Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 8
8
Viðskipti__________
Umsjón: Viöskiptablaðiö
Húsasmiðjan
í Eistlandi og
fjárfestir
Lettlandi
Húsasmiðjan hefur íjárfest í
þremur fyrirtækjum í Eistlandi og
Lettlandi fyrir alls um 160 m.kr.
Umræddar fjárfestingar eru í sam-
ræmi við yfirlýsta stefnu félagsins
um að hasla sér völl á erlendri
grund. Jafnframt verða á næstu
mánuðum opnaðar tvær nýjar
Húsasmiðjuverslanir hérlendis, sem
og ein Blómavalsverslun.
1 Eistlandi hefur Húsasmiðjan
fest kaup á helmingshlut í timbur-
framleiðslufyrirtækinu Natural SA.
Félagið var stofnað af þarlendum
frumkvöðlum árið 1991 og hefur
Húsasmiðjan átt farsæl viðskipti
viö félagið um árabil. Hjá Natural
SA starfa nú um 70 manns. Samfara
kaupum Húsasmiðjunnar á helm-
ingshlut í félaginu verður tækja-
kostur þess stórlega aukinn og end-
urbættur, m.a. með kaupum á nýrri
og afkastamikilli sögunarlínu,
þurrkofnum, fullkominni heflunar-
línu og öðrum búnaði til timbur-
vinnslu. Stærstum hluta þessarar
uppbyggingar mun Ijúka innan
tveggja mánaða og verður Natural
SA að þeim loknum án efa eitt full-
komnasta timburvinnslufyrirtæki
Eistlands. í frétt frá Húsasmiðjunni
segir að markmið þessara breytinga
t f
n
í Elstlandi hefur Húsasmiöjan fest kaup á helmingshlut í timburframleiöslu-
fyrirtækinu Natural SA.
sé m.a. að auka verulega afkasta-
getu og vöruframboð Natural SA og
er stefnt að því að ársvelta félagsins
nái 1,5-2,0 milljörðum ÍKR á næstu
þremur til fimm árum með góðri
arðsemi.
Jafnframt hefur Húsasmiðjan fest
kaup á hlut í tveimur félögum í
Lettlandi í samstarfi viö Gisla Reyn-
isson. Gísli er í forsvari fyrir Nor-
dic Industries sem er i umsvifamikl-
um viðskiptum í Lettlandi og víðar.
Kaupir hiut í gluggafram-
leiðslufyrirtæki
Annars vegar er um að ræða
42,5% hlut í gluggaframleiðslufyrir-
tækinu Ispan Baltics SA. Samhliða
kaupunum færir Húsasmiðjan
glugga- og hurðaframleiðslustarf-
semi sína til Lettlands og sameinar
hana starfsemi Ispan Baltics SA en
félagið framleiðir nú þegar umtals-
vert magn af samsettu gleri og plast-
gluggum. Með því að færa glugga-
og hurðaframleiðslu Húsasmiðjunn-
ar til Ispan Baltics SA næst fram
umtalsvert hagræði í framleiðsl-
unni, auk þess sem mikil afkasta-
geta framleiðslutækjanna mun nýt-
ast betur á stærra markaðssvæði.
Hins vegar er um að ræða kaup
Húsasmiðjunnar á fjórðungshlut í
timbursölufyrirtækinu Lako AB.
Starfsemi félagsins hefur undanfar-
in ár takmarkast við sölustarfsemi
sagaðs timburs og hefur það m.a.
haslað sér völl sem einn af stærri
útflytjendum Lettlands á afmörkuð-
um sviðum trjávöru, s.s. trjábolum
til pappírsframleiðslu. 1 kjölfar
kaupa Húsasmiðjunnar er stefnt að
því að hefja þar fullvinnslu timburs
innan tíðar með það að markmiði
að auka arðsemi rekstrarins.
DV-MYND INDRIÐI JÓSAFATSSON
Meö nýju vélina
Sigurjón Jóhannsson og Einar Bragi
sýningarstjóri viö nýju vélina.
Bíó í 70 ár
DV, BORGARBYGGÐ:___________________
Það var glatt á hjalla þegar ný
bíósýningarvél var tekin í notkun
sl. miðvikudag í félagsmiðstöðinni
Óðali í Borgarnesi að viðstöddu fjöl-
menni. Um þessar mundir eru 70 ár
frá því fyrst voru sýndar kvikmynd-
ir í Borgamesi og var það á hand-
snúna farandvél og fóru sýningar
fram i húsi í Brákarey þar sem þá
var verkstæði Finnboga Guðlaugs-
sonar.
Árið 1940 sýndi breski herinn
kvikmyndir í bragga sem þeir not-
uðu sem samkomuhús og stóð við
Brákarbraut þar sem gamla kaupfé-
lagsplanið er nú. Um 1942 færðust
svo sýningamar í Samkomuhúsið
(félagsmiðstöðina Óðal) þar sem
sýnt er enn í dag. Margir sýningar-
menn hafa komið að sýningum á
þessum 70 árum. Þar ber helst að
nefna: Amberg Stefánsson, Sigurjón
Jóhannsson, Ólaf Guðmundsson, Jó-
hann Valberg Sigurjónsson, Jón B.
Björnsson sem sýndi í um 35 ár,
Örn Símonarson, Björn Jónsson,
Sverri Vilbergsson, sem sýndi í rúm
20 ár, Arinbjöm Hauksson, Ragnar
Má Steinsen, Friðrik ísleifsson,
Kjartan Ásþórsson og núverandi
sýningarmenn, þá Einar Braga
Hauksson og Axel Ásþórsson.
Það er fagnaðarefni að bíó verði
enn um ókomin ár í Borgarbyggð en
fyrir lá að gamla sýningarvélin var
að verða ónothæf með öllu enda ára-
tuga gömul. Menningarsjóður Spari-
sjóðs Mýrasýslu, Menningarsjóður
Borgarbyggðar, bæjarstjórn Borgar-
byggðar og Nemendafélag Grunn-
skóla Borgamess eiga þakkir skild-
ar fyrir fjárhagslegan stuðning til
þessa verks því annars hefði bíó-
menning aö öllum líkindum lagst
niður í Borgarbyggð og færst alfarið
til höfuðborgarsvæðisins. -DVÓ/IJ
íslenski hugbúnaðarsjóðurinn
kaupir 4% í Mint AB í Svíþjóð
Islenski hugbúnaðarsjóðurinn hf.
hefur keypt rösklega 4% hlut í Mint
AB í Svíþjóð. Mint AB hefur þróað
greiðslumiðlunarkerfi sem gerir
GSM-farsímanotendum kleift aö
greiða fyrir hvers konar vöru og
þjónustu í gegnum farsíma.
Fram kemur í tilkynningu frá ís-
lenska hugbúnaðarsjóðnum að þjón-
usta Mint AB er ókeypis fyrir neyt-
andann og að auki mun hagkvæm-
ari kostur fyrir þjónustufyrirtæki
en kreditkort og debetkort. Fyrir-
tækiö opnaði fyrir þjónustu sína í
gær, mánudaginn 15. janúar, í
Stokkhólmi og er þegar búið að gera
samstarfssamninga við fjölda fyrir-
tækja og verslanakeðja í borginni.
Stefna Mint á næstunni er að
auka þjónustuna með auknu vöru-
framboði og laða til sin samstarfsað-
ila í öðrum löndum Evrópu. M.a.
verður unniö að því á næstu mán-
uðum að leita samstarfsaðila á ís-
landi í því skyni að bjóða upp á
þjónustuna fyrir íslenska neytendur
og fyrirtæki.
Fram kemur að á bak við Mint
stendur hópur af hæfileikaríku fólki
og vann viðskiptahugmyndin m.a.
fyrstu verðlaun í viðskiptaáætlana-
samkeppnunum „Stockholm School
of Entrepreneurship’s Business
Plan of the Year“ og „Cap Gemini
Innovation of the Year Award“.
Aukiö samstarf við
Ledstiernan
Fjárfestingarfélagið Ledstiernan
AB fjárfesti í Mint í maí í fyrra og á
í dag rösklega 40% í félaginu. Led-
stiernan, sem einnig er stór hluthafi
í GoPro - Landsteinar Group, er
leiðandi áhættufjárfestingarfyrir-
tæki í Svíþjóð með útibú í London
og Helsinki. Fjárfestingar þeirra
beinast einkum að fyrirtækjum með
hugbúnaðarlausnir á sviði þráð-
lausra samskipta og þráðlauss inter-
nets.
„íslenski hugbúnaðarsjóðurinn
hf. hefur miklar væntingar til Mint
og telur félagið eiga mikla mögu-
leika á að ná alþjóðlegri útbreiöslu
á greiðslumiðlunarlausn sinni.
Jafnframt má segja að hér sé um að
ræða fyrsta skref íslenska hugbún-
aðarsjóðsins í að færa út kvíamar
og hefja fjárfestingar í einhverjum
mæli erlendis. í þvi sambandi telur
stjóm félagsins mikilvægt að gott
fjárfestingarsamstarf er nú komið á
með Ledstiernan ásamt því sem
unnið er að því að byggja upp fjár-
festingarsamstarf við fleiri aðila er-
lendis,“ segir í tilkynningu frá Is-
lenska hugbúnaðarsjóðnum.
Coldwater í 25. sæti í
Bandaríkjunum
Coldwater Seafood Corp., dóttur-
fyrirtæki SH í Bandaríkjunum, var
í 25. sæti yfir þau fyrirtæki sem
seldu mest af sjávarafurðum í Norð-
ur-Ameríku á sl. ári ef miðað er við
verðmæti. Sala Coldwater nam 174
milljónum dollara eða sem svarar
til rúmlega 14,6 milljarða íslenskra
króna.
Á toppnum yfir söluhæstu fyrir-
tækin er Sysco Corp. með 1250 milij-
ónir Bandaríkjadollara eða rúmlega
sjö sinnum meiri verðmæti en Cold-
water. I öðru sætinu er Starkist
Seafood Co. með 1200 milljónir doll-
ara, Bumble Bee Seafoods er í því
þriðja með 750 milljónir dollara,
Red Chamber (Group) er í fjórða
sætinu með 665 milljónir dollara og
í fimmta sætinu er Trident Seafoods
Corp. með sölu upp á 600 milljónir
dollara.
Samkvæmt WorldCatch er röð
annarra fyrirtækja á listanum sem
hér segir: Fishery Products Ltd á
Nýfundnalandi (510), Pacific
Seafood Group (450), Tri-Marine Int.
Inc. (439), ConAgra Seafoods Cos.
(410), Gorton’s Seafood (350), Ocean
Garden Products Inc. (350), Tri-
Union Seafoods (340), Aqua Star
(324), Alliant Foodservice (315), U.S.
Foodservice (305), Rich-SeaPak
Corp. (290), Ocean Beauty
Seafood Inc. (290), Americ-
an Seafoods Co. (270), Bea-
ver Street Fisheries (270),
The Mazzetta Co. (250),
Clearwater Fine Foods
Inc. - Nova Scotia (235),
Aurora Foods (225), Icicle
Seafoods Inc. (220),
Contessa Food Products
(210), H&N Fish Co. (210),
North Pacific Prosessors
Inc. (202), Peter Pan
Seafoods Inc. (200), High Liner
Foods - Nova Scotia (196) og Cold-
water Seafood Corp. (174).
Rétt er að taka fram að Bumble
Bee Seafoods var selt ConAgra í
ágúst 2000 og var sameiginleg sala
fyrirtækjanna tveggja á árinu 1160
milljónir doUara. Tölurnar fyrir
U.S. Foodservice og Aurora Foods
eru frá árinu 1999 -DVÓ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001
x>v
HEILDARVIÐSKIPTI 1542 m.kr.
Hlutabréf 914 m.kr.
Húsbréf 260 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
í;: Kaupþing 771 m.kr.
O Eimskip 39 m.kr.
Össur 24 m.kr.
MESTA HÆKKUN
Q Sjóvá-Almennar 3,6%
Q Bakkavör Group 2,9%
O Búnaðarbankinn 1,2%
MESTA LÆKKUN
o Marel 4,1%
Q íslenski hugbrsjóðurinn 1,6%
© Flugleiðir 1,5%
ÚRVALSVÍSITALAN 1231 stig
: - Breyting o 0,9% 1
Schneider og
Legrand tilkynna
um samruna
Frönsku hátæknifyrirtækin
Schneider og Legrand hafa tilkynnt
um samruna fyrirtækjanna og verð-
ur hiö nýja fyrirtæki eitt hið
stærsta sinnar tegundar i heimin-
um.
Hið nýja fyrirtæki mun hafa árs-
tekjur upp á 12,4 miUjarða evra og
veita 94000 manns atvinnu. Fyrir-
tækið verður með um 20% markaðs-
hlutdeUd í Frakklandi og 29% í
Bandaríkjunum. Samruninn mun
fara þannig fram að hlutaíjáreigend-
um Legrand munu verða boðin sjö
hlutabréf í Schneider í skiptum fyr-
ir 2 venjuleg hlutabréf í Legrand og
tvö Schneider-bréf fyrir eitt for-
gangshlutabréf í Legrand.
Fyrirtækin hafa áður reynt sam-
runa árið 1997 en hann gekk ekki
eftir.
OPEC líklegt til að
minnka olíufram-
leiðslu um 1,5 milljón-
ir tunna á dag
Liklegt er talið að á fundi OPEC-
rikjanna nk. miðvikudag náist sam-
staða um að minnka olíuframleiðslu
um 1,5 miUjón tunnur á dag en ein-
stök OPEC-ríki hafa lagt til að fram-
leiðsla verði minnkuð mun meira,
eða um 2-3 mUljónir tunna.
BUl Richardson, orkumálaráð-
herra Bandaríkjanna, hefur verið á
ferð um arabarikin tU þess að
hvetja tU eins lítUs samdráttar í ol-
iuframleiðslu og mögulegt er. Sádi-
Arabía leggur til að olíuframleiðsl-
an verði minnkuð um 1,5 miUjón
tunnur á dag og í gær tók olíumála-
ráðherra Kúveit undir þau sjónar-
miö.
c:ngh> Hi 16.01.2000 M. 9.15
KAUP SALA
Bfej Dollar 84,730 85,160
Pund 125,090 125,730
1*1 Kan. dollar 56,290 56,640
Bfil Dönsk kr. 10,6750 10,7340
ÍF-j Norsk kr 9,7050 9,7580
Sœnsk kr. 8,9610 9,0110 i
I4H R. mark 13,4008 13,4813
§ Fra. ftanki 12,1467 12,2197
1 K Belg. franki 1,9752 1,9870
Q Sviss. franki 51,7300 52,0200 !
£■3 Holl. gyllini 36,1560 36,3733
Þýskt mark 40,7384 40,9832
1 B ít líra 0,04115 0,04140
□Q Aust. sch. 5,7904 5,8252
Hl Port. escudo 0,3974 0,3998
Spá. peseti 0,4789 0,4817
[~Í~|jap.yen 0,71570 0,72000
5 11 írskt pund 101,169 101,777
SDR 109,9300 110,5900
Hecu 79,6774 80,1562