Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Síða 22
34 ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 DV Ættfræði__________________ Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára________________________________ Ásta Jónsdóttir, Hagame! 29, Reykjavík. 85 ára________________________________ Ingvar Björnsson, Jöldugróf 14, Reykjavík. 80 ára________________________________ Hjörtur Guðjónsson, Ásgarðsvegi 13, Húsavík. 75 ára________________________________ Auður V. Welding, Fagrabæ 9, Reykjavík. 70 ára________________________________ Gísli Grímsson, lllugagötu 21, Vestmannaeyjum. Hörður Jörundsson, Ásvegi 15, Akureyri. 80 ára ^ ’ . * Gaukshólum 2, Reykjavik. þau meö vinum og ættingjum á Broadway Hótel Islandi frá kl. 17.00. Anna Lilja Leósdóttir, Hólavegi 28, Sauðárkróki. Sesselja Þórdís Ásgeirsdóttir, Hverfisgötu 58, Reykjavík. Stefanía Guðmundsdóttir, lllugafötu 35, Vestmannaeyjum. 50 ára________________________________ Elín Egilsdóttir, Hásteinsvegi 47, Vestmannaeyum. Herdís Karlsdóttir, Álakvísl 7c, Reykjavík. Hrafnkell Tryggvason, Grenimel 9, Reykjavík. Þórdís Magnúsdóttir, Sæbólsbraut 29, Kópavogi. 40 ára________________________________ Björk Engilbertsdóttir, Hverafold 27, Reykjavik. Deane Júlían Scime, Heiðarholti 101, Reykjavík. Eggert Jónsson, Víðigrund 22, Sauðárkróki. Einar Bergur Pálmarsson, Burknabergi 10, Hafnarfiröi. Guðmundur Jónsson, Ytri-Ánastööum, Hvammstanga. Guðný Helga S. Hauksdóttir, Suðurbraut 18, Hafnarfirði. ingibjörg E. Sigurðardóttir, Bakkastöðum 163, Reykjavík. Kristín Halldórsdóttir, Garðbraut 8, Garöi. Lára Dröfn Gunnarsdóttir, Lindarbyggð 20, Mosfellsbæ. Rósa Valtýsdóttir, Hátúni lOa, Reykjavík, Sigríður Grímsdóttir, Vesturbergi 78, Reykjavík. ro W) £ <#) 'OJO 3 CU 550 5727 E </> Þverholt 11, 105 Reykjavík Guðrún Karólína Hannesdóttir frá Hnífsdal, Austurbrún 6, Reykjavlk, lést mánud. 25.12. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Anna Bjerregaard Ögmundsdóttir, Gnoðarvogi 14, Reykjavík, lést laugard. 6.1. sl. Útförin hefur fariö fram i kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta- réttarlögmaður ræddi í helgarvið- tali DV um síðustu helgi um dóm Hæstaréttar vegna örorkugreiðslna og viðbrögð ríkisstjórnarinnar og annarra aðila við dómnum. Starfsferill Jón Steinar fæddist í Reykjavík 27.9.1947 og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1967, embætt- isprófi í lögfræði frá Hl 1973, öðlað- ist hdl.-réttindi 1975 og hrl.-réttindi 1980. Jón var þingfréttaritari Morgun- blaðsins 1973-74, framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík 1974, full- trúi hjá lögmönnunum Eyjólfl Kon- ráð Jónssyni hrl., Jóni Magnússyni hrl. og Hirti Torfasyni hrl. 1974-77, stofnaði þá eigin lögmanns- og end- urskoðunarstofu og rak hana siðan i félagi við Baldur Guðlaugsson hrl., Sverri Ingólfsson, lögg. endurskoð- anda, Þorstein Haraldsson, lögg. endurskoðanda og síðar einnig Kristján Þorbergsson hdl. Frá 1995 hefur hann rekið sína eigin lög- mannsstofu. Þá var Jón stundakennari við HÍ 1975-77, settur dósent þar 1977-78 og aðjúnkt 1979-81. Hann kenndi versl- unarrétt við VÍ 1975-77. Jón sat í stjórn Heimdallar 1968-69, i stjórn SUS 1969-71, í Há- skólaráði HÍ 1970-72, formaður Orators 1971—72, í stjórn Lögfræð- ingafélags íslands 1974-79 og í vara- stjórn 1979-83 og 1986-92, í réttar- farsnefnd 1981—89, í stjórn Lög- mannafélags íslands 1981-86 og for- maður 1983-86, í kjaranefnd félags- ins 1979-80, I framkvæmdastjórn SÁÁ 1982-84, í dómstóli KSÍ frá 1983 og formaður frá 1985, í stjórn Bridgesambands íslands 1986-89 og forseti þess 1987-89, formaður dóm- nefndar sambandsins frá 1990, for- maður kjömefndar Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík 1985-91, í landskjörstjórn 1991-95, formaður yfirkjörstjórnar við alþingiskosn- ingar í Reykjavík frá 1995, var skip- aður í nefnd til að endurskoða stjórnkerfi Islands 1983-84 og í nefnd um endurbætur á reglum um dráttarvexti 1985 og er nú formaður nefndar sem athugar hvort reglur EES hafi verið leiddar í lög á íslandi á stjórnskipulegan hátt. Jón samdi ritið Deilt á dómarana, útg. 1987. Þá hefur hann skrifað fjölda greina um stjórnmál og lög- fræðileg efni í blöð og tímarit. Fjölskylda Jón kvæntist 27.7. 1974 Kristínu Pálsdóttur, f. 14.11. 1952, B.Sc. í hjúkrunarfræði og húsmóður. Hún er dóttir Páls Bergþórssonar, fyrrv. veðurstofustjóra, og k.h., Huldu Baldursdóttur læknaritara. Börn Jóns og Kristínar eru Ivar Páll, f. 27.2. 1974, háskólanemi; Gunnlaugur, f. 4.6. 1976, BA í verk- fræði; Konráð, f. 12.2. 1984, nemi; Hulda Björg, f. 16.3. 1986, nemi; Hlynur, f. 30.8. 1988, nemi. Dætur Jóns frá því fyrir hjóna- band eru Steinunn Fjóla, f. 30.11. 1970, kennari í Reykjavík; Ásdís, f. 16.9.1972, mannfræðingur; Birna ír- is, f. 14.1.1973, háskólanemi. Systkini Jóns: Grettir, f. 24.7. 1945, húsasmíðameistari; Ingibjörg, f. 12.11. 1958, d. 29.1. 1960; Ingibjörg Margrét, f. 8.11.1961, leikskólakenn- ari. Foreldrar Jóns: Gunnlaugur Ólafsson, f. 10.11. 1919, d. 3.6. 1979, leigubílstjóri í Reykjavík, og k.h., Ingibjörg Margrét Jónsdóttir, f. 3.6. 1923, d. 3.9. 1998, húsmóðir og bóka- vörður. Ætt Gunnlaugur var sonur Ólafs, múrara í Reykjavík, Þórarinssonar, b. á Kjaransstöðum, Jónssonar, b. á Iðu, Jónssonar. Móðir Gunnlaugs var Þorgerður Gunnarsdóttir, b. á Skálahnjúki, Hafliðasonar. Móðir Gunnars var Björg, systir Pálma í Valadal, afa Jóns á Nautabúi, langafa Jóns Ásbergssonar, for- stjóra Útflutningsráðs. Björg var dóttir Magnúsar, b. í Syðra-Vall- holti, Péturssonar. Móðir Þorgerðar var Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, b. á Ytri-Ásláksstöðum, Jónssonar. Móð- ir Gunnlaugs var Þorgerður Þor- kelsdóttir, systir Lopts, langafa Þor- láks Johnson kaupmanns, afa Arn- ar Johnson forstjóra. Bróðir Ingibjargar Margrétar var Eyjólfur Konráð alþm. Ingibjörg var dóttir Jóns Guðsteins, kaupmanns í Reykjavík, Eyjólfssonar, b. á Mæli- felli, Einarssonar. Móðir Eyjólfs var Sigurlaug Eyjólfsdóttir, b. á Mein- grund, bróður Sigurlaugar, langömmu Björns, afa Jóns L. Árna- sonar stórmeistara. Eyjólfur var son- ur Jónasar, b. á Gili í Svartárdal, Jónssonar, af Skeggstaðaætt, bróður Jóns á Finnastöðum, afa Björns Jóns- sonar á Veðramótum, afa Sigurðar Bjarnasonar, fyrrv. alþm. Móðir Ingibjargar var Sesselja skólastjóri Konráðsdóttir, b. á Syðra-Vatni, Magnússonar, bróður Jóns, pr. á Mælifelli, föður Magnús- ar, dósents og ráðherra, og Þóris Bergssonar rithöfundar. Móðir Kon- ráðs var Rannveig, systir Ingibjarg- ar, langömmu Gylfa Gíslasönar, fyrrv. ráðherra, föður Vilmundar ráðherra, og langömmu Vilhjálms Gíslasonar, föður Þórs dómara. Rannveig var dóttir Guðmundar, b. á Mælifellsá, Jónssonar og Ingi- bjargar Björnsdóttur, ættföður Ból- staðarhlíðarættar, Jónssonar. Móð- ir Sesselju var Ingibjörg Hjálmars- dóttir, alþm. í Norðtungu, Péturs- sonar, bróður Þorsteins, langafa Ög- mundar Jónassonar, formanns BS- RB. Móðir Ingibjargar var Helga Árnadóttir, b. í Kalmanstungu, Ein- arssonar, bróður Bjarna, afa Bjarna Þorsteinssonar, prests og tónskálds. Fimmtug 1 Fcrtug Elísabet Eygló Egilsdóttir hótelstjóri í Ólafsvík Elísabet Eygló Egils- dóttir hótelstjóri, Ólafs- braut 20, Ólafsvík, er fimmtug í dag Starfsferill Elísabet fæddist i Reykjavík en ólst upp í Ólafsvík. Hún tók versl- unarpróf í Fjölbrauta- skóla Vesturlands. Elisabet var afgreiðslustúlka í ap- óteki, starfaði við bókhaldsvinnu og hefur verið hótelstjóri og eigandi Hótel Höfða i Ólafsvík í átta ár. Fjölskylda Sambýlismaður Elísabetar sl. átta ár er Sigurður Elínbergsson, f. 23.4. 1949, húsasmíðameistari. Hann er sonur Elínbergs Sveinssonar, vél- stjóra í Ólafsvik, og Gestheiðar Stef- ánsdóttur verslunarmanns. Börn Elisabetar frá hjónabandi við Finn Guðmundsson eru Harpa Finnsdóttir, f. 28.5. 1974; Guðlaug Merkir Islendingar Finnsdóttir, f. 19.5. 1981. Systkini Elísabetar eru Sveinn, f. 29.6. 1952, bóndi á Sandhólum á Tjörnesi; Elín Þ., f. 18.9. 1953, starfs- maður við leikskóla í Reykjavík; Guðmundur Gísli, f. 14.5.1955, vélstjóri í Stykkishólmi; Sigurður Egilsson, f. 15.5. 1956, raf- virki og tónlistarmaður í Hvera- gerði; Guðbjörg, f. 14.12. 1957, fram- kvæmdastjóri í Stykkishólmi; Gúst- af Geir, f. 4.11. 1960, pípulagninga- meistari í Ólafsvík; Hólmar, f. 7.2. 1962, vélstjóri á Egilsstöðum; Sigur- laug, f. 1.12. 1963, skrifstofumaður í Ólafsvík; Agla, f. 2.9. 1965, póstur í Ólafsvík. Hálfbróðir Elisabetar er Jónas Egilsson, f. 3.9.1946, búsettur í Dan- mörku. Foreldrar Elísabetar Eyglóar eru Egill Guðmundsson, f. 10.6. 1927, verkamaður í Ólafsvík, og Guðlaug Sveinsdóttir, f. 30.1. 1929, húsmóðir. Jóhanna Þórey Jónsdóttir starfsmadur íslandspósts Jóhanna Þórey Jóns- dóttir, starfsmaður ís- landspósts, Engihjalla 1, Kópavogi, varð fertug á sunnudaginn var. Starfsferill Jóhanna fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún var Hlíðaskóla, Æf- ingardeild KHÍ, Árbæjar- skóla og Álftamýraraskóla þar sem hún lauk grunnskólaprófi. Þá stund- aði hún nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, lauk prófum frá Póst- og símaskólanum og hefur sótt ým- is námskeiö. Jóhanna hóf störf hjá Pósti og síma 1983 og hefur starfað hjá Pósti og sima og íslandspósti síðan. Fjölskylda Sambýlismaður Jóhönnu er Guð- jón Ólafsson, f. 13.10.1962, starfsmað- ur Orkuveitu Reykjavíkur. Hann er sonur Ólafs Ingólfssonar, vélvirkja í Jón Magnússon forsætisráðherra fæddist í Múla í Aðaldal 16. janúar 1859. Hann var sonur Magnúsar Jónssonar, prests í Lauf- ási, og Vilborgar Sigurðardóttur. Jón lauk stúdentsprófi í Reykjavík 1881, las lögfræði við Kaupmannahafn- arháskóla en gekk illa m.a. vegna óreglu. Hann kom heim 1884, var skrif- ari hjá Júlíusi Havsteen amtmanni og fór aftur utan til lögfræðináms 1889 og lauk þá prófum með hárri einkunn á ótrúlega skömmum tíma, eftir eitt og hálft ár. Hann var sýslumaður í Vest- mannaeyjum 1891-96, landshöfðingjarit- ari 1896-1904, skrifstofustjóri í dóms- kirkju- og menntamálaráðuneytinu 1904-1908 og bæjarfógeti í Reykjavík 1909-17. Jón Magnússon Jón var helsti stjórnmálaleiðtogi þjóðarinnar og formaður Heimastjórnar- flokksins að Hannesi Hafstein gengnum og forsætisráðherra er þjóðin náði sínu megintakmarki í sjálfstæðisbaráttunni með fullveldissamningnum 1918. Hann var alþingismaður 1902-1913,1914-1919 og 1922-1926, og forsætisráðherra 1917-1922 og 1924-1926. Jón var frjáls- lyndur íhaldsmaður sem náði sínum takmörkum með hægðinni. Hann var meðalmaður á hæð, kubbslegur í vexti og engan veginn höfðinglegur á velli. Þá var hann stirður ræðumaður og fámáll en afar rökvís og yflrvegaður og sýndi mikið jafnaðargeð við mótlæti og oft ósann- gjamri gagnrýni. Jón lést 23. júní 1926. Hafnarfirði, og Svanhildar Guðmundsdóttur, starfs- manns sýslumannsins í Hafnarfirði. Dóttir Jóhönnu er Dag- björt Svana Haraldsdóttir, f. 18.1. 1985, nemi. Sonur Jóhönnu og Guð- jóns er Ólafur Þórir, f. 2.8. 1995. Dóttir Guðjóns er Svan- dís, f. 7.1. 1990. Systkini Jóhönnu: Ragnheiður Helga, f. 21.7. 1962, kaupkona í Kópa- vogi; Berglind, f. 17.12.1967, fyrirsæta og skrifstofumaður hjá Eskimo Mod- els. Hálfbróðir Jóhönnu, sammæðra, er Ragnar Gunnar ÞórhaOsson, f. 14.11. 1955, skrifstofumaður hjá Toll- stjóraembættinum. Foreldrar Jóhönnu Þóreyjar eru Jón Skúli Þórisson, f. 16.7.1931, klæð- skeri, búsettur í Hafnarfirði, og k.h., Svana Ragnarsdóttir, f. 22.1. 1935, húsmóðir í Reykjavík. Guömundur Guðmundsson vélvirki, Hringbraut 101, Reykjavík, verðurjarð- sunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavlk þriðjud. 16.1. kl. 13.30. Þórlaug Finnbogadóttir, Hvassaleiti 58, Reykjavík, sem lést á Vífilsstaöaspítala mánud. 8.1., verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju miðvikud. 17.1. kl. 13.30. Sigríöur Júlíusdóttir, áður Stigahlíö 14, sem lést á Vífilsstaðaspítala mánud. 8.1., verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju þriðjud. 16.1. kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.