Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.2001, Blaðsíða 28
«0> Almera el
odition limitod
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Skoðanakönnun DV:
Engir kosninga-
sigrar fyrir fram
„Þetta er í takt við það að Samfylk-
ingin hefur eílst mjög í stjórnarand-
stöðu. Þó ég sé
þakkláttur fyrir
þetta góða fylgi
tekur enginn kosn-
ingasigra út fyrir
fram og stuðnings-
menn Samfylking-
ar verða enn að
herða róðurinn,"
segir Össur Skarphéðinsson, um þá
niðurstöðu skoðanakönnunar DV.
Hjökkum í sama fari
„Þarna velur fólk þá flokka sem lík-
legt þykir að geti
fellt ríkisstjórnina.
Hvað okkur varð-
ar þá hjökkum við
enn í sama farinu
og fylgi okkar er
innan skekkju-
marka,“ segir
Sverrir Hermanns-
son, formaður Frjálslynda flokksins.
Athyglisvert hjá VG
sjá hvernig þetta
breytist þegar rík-
isstjórnin nær að
skýra sina afstöðu
í máli öryrkjanna.
Athyglisvert er að
Samfylking rétt
nálgast kjörfylgi i
síðustu kosning-
um en athyglis-
verðast er að Vinstri-grænir fá mestu
mælingu sem þeir hafa náð,“ segir
Árni Mathiesen.
„Við munum
Vond könnun
tt-S%
„Þetta er vond könnun fyrir okk-
ur,“ sagði Halldór Ásgrímsson, for-
maður Framsókn-
arflokks. „Hins
vegar er hún tekin
þegar að stjómar-
andstaðan og ýms-
ir aðrir afílytja
þær ráðstafanir
sem við stöndum
fyrir varðandi
málefni öryrkja. Ég hef verið á mörg-
um fundum víðs vegar um landið og
fundið að fólk hefur fengið mjög rang-
ar upplýsingar um stöðu mála.“
Hefur keyrt út af
„Það verður auðvitað að hafa fyrir-
vara á svona sveiflu sem þarna er því
hún er augljóslega
undir miklum
áhrifum úti í þjóð-
félaginu af ör-
yrkjamálinu svo-
nefnda," sagði
Steingrímur J. Sig-
fússon. „Engu að
síður eru í þessu
fólgin mjög sterk skilaboð til ríkis-
stjórnarinnar sem hefur keyrt út af í
því máli.“ -rt/JSS
STJORNIN ER
MEÐ ÖR-FYLGI!
DV-MYND GVA
Heim á báti
Bærinn Litlu-Reykir var umflotinn í gær vegna flóöa í Hvítá. Þangaö var því aöeins fært á báti. Jakastíflan fór hins vegar aö gefa sig þegar leiö á daginn. Þá
dró úr flóðinu sem hrelldi íbúa Hraungeröishrepps. Víöa flæddi þó enn yfír vegi. Tún eru skemmd og tatsvert tjón á giröingum. Sjá nánar á bls. 6
Yfirdýralæknir metur kjötinnflutning frá Nýja-Sjálandi og Ástralíu:
Innflutningsbann
- á kjöt frá kúariðulöndunumkemur til greina
Kjöt í frost
írska nautakjötiö sem Nóatúnsbúöirnar hafa haft á
boöstólum hefur nú veriö sett í frysti þar til
niöurstaöa um innflutninginn liggur fyrir.
Yfirdýralæknir, Halldór
Runólfsson, segir koma til
greina að banna innflutning á
nautakjöti frá þeim löndum
sem kúariða herjar nú á. Yfir-
dýralæknisembættið er nú að
leggja mat á umsóknir á inn-
flutningi á nautgripakjöti frá
Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Eng-
ar umsóknir um innflutning á
nautakjöti frá Evrópu liggja
fyrir.
Yfirdýralæknisembættið
hefur legið undir ámæli fyrir
að hafa heimilað innílutning á
nautalundum frá írlandi fyrir
jólin. Nú hafa borist fregnir
frá fyrirhuguðum stórfelldum
niöurskurði á nautgripum í
Evrópulöndunum, einkum á írlandi.
„Hver innflutningur er einstakt
mál og tekin afstaða til hvers máls
fyrir sig. Þar er beitt bestu fáanleg-
um vísindalegum niðurstöðum,"
sagði Halldór, aðspurður hvers vegna
innflutningur á nautakjöti frá írlandi
hafi verið heimilaður þegar 149
kúariðutilfelli höfðu greinst þar á
siðasta ári. „Við öflum sjálfir upplýs-
inga um stöðu dýrasjúkdóma í um-
ræddum löndum síðustu sex mánuði
fyrir innflutning. Þær liggja allar fyr-
ir hjá alþjóðastofnuninni OIE og
embættum yfirdýralækna. Þannig
uppfyllum við orðalag auglýsingar-
innar með þeim hætti að afla
sjálfir upplýsinga um sjúk-
dómastöði í viðkomandi
landi. Bestu fáanlegu visinda-
niðurstöður segja að
kúariðusmit berist ekki með
hreinum vöðvum. Kjötið sem
kom hingað fyrir jólin var
eingöngu af dýrum 30 mán-
aða og yngri. „
Halldór sagði að það væri
pólitísk ákvörðun að stöðva
kjötinnflutning frá kúariðu-
löndunum. „Ég er enginn
talsmaður innflutnings en
verð samt sem áður að beita
vísindalegum aðferðum eins
og reglur kveða á um,“ sagði
hann.
Aðspurður um sjúkdómastöðuna í
Nýja-Sjálandi og Ástralíu sagði Hall-
dór að þar væri engin kúariða. Hins
vegar hefðu greinst B-sjúkdómar í
nautgripum þar. Verið væri að meta
hvort smitefni gæti borist milli landa
með nautgripakjöti.
-JSS
Bandarískar reglur um verndun persónulaga:
Skriflegt leyfi frá sjúklingum
- fyrir notkun heilsufarsupplýsinga
upplýsingar um heilsufar sjúklinga til
að nota í rannsókn fær eingöngu sú
stofnun sem sjá á um rannsóknina að-
gang að gögnunum og hún fær aðeins
þær upplýsingar sem nauðsynlegar
eru fyrir rannsóknina. Stoftiuninni er
óheimilt að sýna öðrum upplýsingarn-
ar.
Reglurnar ná til allra upplýsinga
um sjúklinginn, hvort sem um er að
ræða skrifaðar upplýsingar, talað mál
eða upplýsingar sem eru í tölvum.
Gerist menn uppvísir að brotum á
þeim á hinn seki yfir höfði sér háar
fjársektir og varðhald.
-MA
Samkvæmt nýrri reglugerð banda-
ríska alríkisins um vemdun persónu-
laga verða læknar, lyfjabúðir og
sjúkrastofnanir að fá skriflegt sam-
þykki sjúklinga áður en þeim eru af-
hentar upplýsingar um heilsufar
þeirra. Þetta kom fram í máli Mike
Fortun doktors í vísindasögu frá
Harvardháskóla sem hélt erindi um
bandarísku reglurnar á fundi Mann-
vemdar í Norræna húsinu í gær.
„Megintilgangurinn með nýjum
reglunum er að vemda einkamál sem
koma fram í upplýsingum um heilsu-
far fólks,“ sagði Mike. í erindi hans
kom einnig fram að þegar stofnanir fá
DV-MYND HARI
Mlke Fortun
Hélt erindi um nýja reglugerö banda-
ríska alríkisins um verndun persónu-
laga á fundi Mannverndar í gær.
SVR og AV:
Hugmyndir að
sameiningu
kynntar
Tveir fundir verða haldnir með
starfsmönnum SVR í dag þar sem
kynnt verður skýrsla af hálfu borg-
arinnar um hugmyndir og frumdrög
að mögulegri sameiningu SVR og
Almenningsvagna.
“Það er auðvitað bæði gamalt og
nýtt að reyna að renna almennings-
samgöngum á höfuðborgarsvæðinu
í eina heild,“ sagði Hörður Gísla-
son, framkvæmdastjóri SVR, i sam-
tali við DV í morgun. Hjá SVR og
Ferðaþjónustu fatlaðra starfa um
260 manns. Fundirnir tveir verða
haldnir í aðalstöðvum SVR í Borg-
artúni klukkan 16.15 og 19.45. -Ótt
Miklar breyt-
ingar hjá
flugvirkjum
Fundur var haldinn með flug-
virkjum og starfsfólki í viðhcddsstöð
Flugleiða í morgun þar sem kynnt-
ar voru hugmyndir að verulegum
breytingum í viðhaldsstefnu félags-
ins. Samkvæmt upplýsingum DV
kemur til greina að segja upp flug-
virkjum vegna þessa. -Ótt
brother P-touch 1250
Lítil en STÓRmerkileg merkivél
5 leturstæröir
9 leturstillingar
prentar í 2 linur
borði 6, 9 og 12 mm
4 gerðir af römmum
Rafnort
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Heilsudýnur t sérflokkil
Svefn&heilsa
4<-<-r
hEILSUNNAR veG
Reykjavík581 2233 Akureyri 461 1150