Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001
Fréttir DV
Boð varnarliðsins um afnot af olíubirgðastöð í Helguvík:
Hefur skaðað Hafna-
samlag Suðurnesja
byggð eftir að samkomulag hafði
náðst við utanríkisráðuneytið í apr-
íl 1983 um leigu á landi við Helgu-
vík fyrir olíuhöfn. Öll samskipti
mín viö Bandaríkjamenn hafa bent
til þess að þeir séu vel viðskiptalega
þekjandi og ákvörðun þeirra og
mannvirkjasjóðs NATO um að
byggja nýja eldsneytisbirgðastöö í
Helguvík hafi verið vandlega
ígrunduð með hag varnarliðsins í
huga til lengri tima, þ.e. að flytja
eldsneytið beint á áfangastað og
spara þannig óþarfa milliliði. Að-
staða við Keflavíkurhöfn leyfði ekki
byggingu tankasvæðis og því varð
Helguvík fyrir valinu.“
-HKr.
- segir Pétur Jóhannsson hafnarstjóri
Hafnarstjóri
Hafnasamlags Suð-
umesja, Pétur Jó-
hannsson, telur að
boð frá varnarlið-
inu um afnot af ol-
íubirgðastöð sinni
hafi skaðað samlag-
ið. Áætlanir oliufé-
laga um byggingu
olíuafgreiðslu- og
birgðastöðva i
Helguvík hafa stöðvast meðan beðið
er eftir afgreiðslu Varnarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins.
í kjölfar viðtals í DV 23. desember
sl. við Pétur hafnarstjóra um úr-
sögn Vatnsleysustrandarhrepps úr
Hafnasamlagi Suðurnesja hafa birst
greinar um olíuflutninga um
Reykjanesbraut. Rætt var við Krist-
in Bjömsson, forstjóra Skeljungs
hf., þar sem hann taldi m.a. hafnar-
stjóra fara vísvitandi með rangt mál
um afnot af tönkum NATO í Helgu-
vik. Einnig var rætt við Friðþór Ey-
dal, upplýsingafulltrúa vamarliðs-
ins, sem skýrði frá stöðu mála milli
Bandaríkjamanna og NATO, en
máliö er enn óafgreitt hjá yfirstjórn
Bandaríkjahers.
Pétur segist telja alla umræðu um
málið vera af hinu góða og ekki geta
skaðað málstaö Hafnasamlagsins.
„Flutningar með bifreiðum eru arfa-
vitlausir í mínum huga, burtséð frá
skuldum eða rekstrarstöðu Hafna-
samlags Suðumesja. Því miður tel
ég að boð frá varnarliðinu um afnot
af olíubirgðastöð sinni hafi skaðað
okkur þar sem áætianir olíufélaga
um byggingu olíuafgreiðslu- og
birgðastöðva í Helguvík hafa
stöðvast á meðan beðið er eftir af-
greiðslu Vamarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins.
Það er trú mín að innan skamms
tíma verði byggð olíubirgðastöð í
Helguvík fyrir flugvélaeldsneyti fyr-
ir almenna flugumferð og aðra olíu,
eftir því sem magnið eykst og fjár-
magnseigendur krefjist hámarks
arðs af sinni fjárfestingu, þ.e. ílugfé-
lögunum. Helguvíkurhöfn var
Pétur
Jóhannsson.
Hætt að flæða úr Hvítá yfir Hraungerðishrepp:
Víða skemmdir
vegna flóðsins
PV, SELFOSSI:
Enn er mikið
vatn á túnum í
Hraungerðis-
hreppi þar sem
Hvítá flæddi yfir
þegar ísstífla
myndaðist í
henni um helg-
ina. Enn sem
komið er er lítið
að frétta af afleið-
ingum vatns-
gangsins, það
mun koma betur
í ljós þegar vatn-
ið sígur betur af
svæðinu og jaka-
ruðningurinn
hlánar. Þó má
víða sjá miklar
DVA1VND NJÖRÐUR HELGASON
Jakahrönn
Víöa eru miklir garöar afís eftir flóöiö úr Hvítá.
skemmdir á girðingum og slitlag og
ofaníburður hefur hreinsast af veg-
um sem flæddi yfir. Þá hafa rúllu-
baggar víða farið á flot í flóðinu og
sums staðar borist langar leiðir með
því. í gærkvöld flæddi enn yfír veg-
inn upp að Langholti en á svæðinu
nær Hvitá var farið aö sjatna held-
ur vatn sem safnast hafði upp á tún-
um. Ekkert flæddi lengur upp úr
farvegi Hvítár, það vatn sem rennur
yfir veginn er því vatn sem er að
skila sér fram af flóðasvæðinu.
-NH
Brottflutningur Goða frá Borgarnesi:
Mikil vonbrigði að
missa kjötvinnsluna
DV, BORGARBYGGÐ:_________________
A fundi bæjarstjórnar Borgar-
byggðar, sem haldinn var fimmtu-
daginn 18. janúar 2001, var lýst yfir
miklum vonbrigðum með þá
ákvörðun stjómar Goða hf. að stað-
setja höfuðstöðvar fyrirtækisins,
þar með talið alla kjötvinnslu, á höf-
uðborgarsvæðinu.
Bæjarstjómin bendir á að kjöt-
vinnsla hefur verið mikilvægur
hluti atvinnustarfseminnar i Borg-
amesi um langan tíma. Meö sam-
einingu þeirrar starfsemi við Goða
á síðasta sumri hafi verið uppi fög-
ur fyrirheit um áframhaldandi öfl-
uga starfsemi í Borgamesi og jafn-
vel að hún yrði aukin til muna.
„Á fundi fulltrúa Borgarbyggðar
með stjórn og framkvæmdastjóra sl.
haust kom fram að starfsemin yrði
a.m.k. ekki dregin saman og jafnvel
aukin. Stjómir fyrirtækja hafa
vissulega það hlutverk að sjá til
þess að hagkvæmni sé gætt í starf-
semi þeirra og taka sínar ákvarðan-
ir út frá þvi. Það er hins vegar dap-
urleg staðreynd að fyrirtæki sem
byggja á úrvinnslu landbúnaðaraf-
urða og voru til skamms tíma að
stórum hluta í eigu kaupfélaganna
víðs vegar um land hafa smám sam-
an horfið af sjónarsviðinu eða verið
sameinuð og flutt á höfuðborgar-
svæðið. Svo virðist sem Goði verði
gott dæmi um slíka þróun, þvert á
öll markmið um eflingu byggðar og
atvinnulífs utan höfuðborgarsvæð-
isins,“ segir bæjarstjórn Borgar-
byggðar.
Leggur bæjarstjórn á það ríka
áherslu við stjóm Goða hf. að rekst-
ur sláturhúss í Borgamesi verði
tryggður. Það sé undirstaða þess að
áfram verði rekinn öflugur land-
búnaður í Borgarfirði auk þess sem
það skapar möguleika á því að
áfram verði ákveðinn hluti frum-
vinnslu í Borgarnesi.
-DVÓ
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Haggast ekki
Stefán Már Guömundsson, íþróttafulltrúi Akraneskaupstaöar, viö nýju festing-
arnar á mörkunum sem vakiö hafa athygli.
Festingar á lausum mörkum vekja athygli:
Þrír fílefldir velta ekki
mörkunum um koll
DV, AKRANESI:_____________ ~
. A undanfómum árum hefur verið
töluvert um að unglingar hafi
slasast af völdum lausra marka á
fótboltavölium. Mörg bæjarfélög
hafa af þessu miklar áhyggjur og
hafa menn gripið til ýmissa ráða til
að festa mörkin. Á Akranesi er mik-
ið af sparkvöllum og svo virðist sem
búið sé að fmna lausn sem er ódýr
og reynist svo vel að bömin geta
ekki hreyft mörkin.
Sérstakar tromlur hafa verið
soðnar aftan við mörkin og gera
þær það að verkum að ekki er hægt
að velta mörkunum um koll, jafnvel
þótt þrír fullorðnir og filefldir menn
hangi á slánni. Þessum sérstöku
tromlum hefur verið komið fyrir á
öllum mörkum við alla sparkvelli
Skagamanna og hafa þær reynst
mjög vel og til stendur að setja
tromlur á mörkin viö íþróttavöll-
inn. -DVÓ
Sandkorn
_____ UniSjón:
Gylfi Kristjánsson
netfang: sandkom@ff.is
Hvaö gerir Olafur?
Hafi Alþingi
ekki samþykkt
„öryrkjafrum-
varpið“ þegar
þessar línur
birtast er
stutt í það þvi
þingmeiri-
hlutinn er
fyrir hendi
og vel það.
Menn eru þegar
famir að horfa til næsta kafla máls-
ins sem er staðfesting Ólafs Ragn-
ars Grímssonar forseta á lögunum
til að þau megi öðlast gildi. Margir
eru þeir sem halda að forsetinn
muni ekki skrifa undir lögin há-
vaðalaust og Garðar Sverrisson,
forystumaður Öryrkjabandalagsins,
er á þeirri skoðun. „Ég læt segja
mér það tvisvar að forseti íslands
setji stafina sína undir þetta,“ sagði
Garðar í útvarpsviðtali og segja
þessi ummæli meira en margt ann-
að um þær væntingar sem öryrkjar
hafa í málinu.
Vilii mættur
Gárungami;
segja að Vil
hjálmur Eg
ilsson alþing
ismaður berj-
ist aðeins fyr-
ir tvennu í
þinginu. Þeir
benda á að ár-
lega flytji
hann tiilögu
um að breyia
klukkunni tvisvar á ári og svo
komi hann jafnoft fram með tillög-
ur um að leyfa sölu á léttum vín-
um og bjór í matvöruverslunum.
Varla eru þetta einu pólitísku bar-
áttumál Viihjálms en menn telja að
hann eigi eftir að flytja þessi mál
nokkrum sinnum enn. Hins vegar
segja menn að hann muni loksins
hafa þessi mál í gegn um þingið,
það þurfi bara þolinmæði eins og
menn sýndu sem lögðu fram tillög-
ur árum saman um að leyfa sölu á
bjór hér í landi.
Helvítis andleysi
Hand-
boltalandsliðið
okkar er farið
á HM í Frakk-
landi og mæt-
ir Svíþjóð í
fyrsta leik á
morgun. Á
j ýmsu hefur
gengiö í und-
irbúningnum
og menn eru
misbjartsýnir á gengi liðsins. Þrátt
fyrir stórsigur á Bandaríkjamönn-
um sl. fimmtudagskvöld var Þor-
bjöm Jensson landsliðsþjálfari
allt annað en ánægður með sína
menn í leikslok. „Helvítis and-
leysi,“ sagði þjálfarinn og bætti
við: „Að bjóða áhorfendum upp á
þetta var skandall." Vonandi verð-
ur ekki eins mikið „skandaliserað"
í Frakklandi á næstu dögum.
Þorbergur t
Þorbergur
Aðalsteins-
son, fyrrum
landsliðsþjálf-
ari í hand-
bolta, er bjart-
sýnn á gengi
liðsins á HM í
Frakklandi og
segist „vita“
að liðið nái 2.
sæti í sínum
riðli. „Þá fáum við léttan andstæð-
ing í 16-liða úrslitum sem þýðir sæti
í 8-liða úrslitum og þá getur allt
gerst,“ sagði Þorbergur. Til að þetta
gerist þarf íslenska liðið m.a. að
sigra a.m.k. Egyptaland og Tékkland
í riðlakeppninni og miðið við það
sem liðið hefur oft verið að sýna að
undanförnu er það hreinlega langt
frá því að vera öruggt, hvað sem
Þorbergur segir.