Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Blaðsíða 14
14
Meniúng
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001
DV
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir
Dómnefndir um Menningarverölaun DV taka til starfa
Menningarárið hið meira
Dómnefndir um Menningarverólaun
DVfyrir áriö 2000 eru ekki öfundsverö-
ar, svo geysilegt framboó var af menn-
ingarvióburöum um allt land, og þó
einkum í höfuöborginni, gervallt síó-
asta ár. Sem alkunnugt er var Reykja-
vík þá ein af níu menningarborgum
Evrópu og ef nefndunum sýndist svo
gœtu þœr sjálfsagt látið duga aó verö-
launa menningarborgina sjálfa!
Menningarverðlaunin verða afhent
22. febrúar og nefndirnar hafa verið að
störfum síðan um áramót - fyrir utan
nefndimar sem sjá um byggingarlist
og hönnun, þær hafa haft andvara á
sér mun lengur. Gott úrval bygginga
mun vera í ár svo ekki hefur bygging-
amefndinni leiðst starfinn og heldur
ekki hönnunarnefndinni ef að líkum
lætur því íslensk hönnun fékk mörg
tækifæri til að sýna sig og sanna á ár-
inu.
Var það eintómt lof?
Bókmenntanefndin hefur ærinn
starfa því óvenjumargar bækur komu
út árið 2000. Undanfarið hafa ýmsir, til
dæmis útvarpsmenn á Rás 1, kvartað
undan þvi að nýjum bókum hafi verið
hælt af helst til miklu offorsi í fjölmiðl-
um.
„Ég held að það séu nokkrar skýr-
ingar á þessu tali um oílof og jákvæða
dóma,“ segir Jón Yngvi Jóhannsson,
formaður bókmenntanefndar, „og sú
fyrst að það kom út töluvert af mjög
góðum skáldverkum í haust. í öðm
lagi var fiallað um bókmenntir á fleiri
stöðum og af fleirum en stundum áður.
Sumt af þessari umfiöllun getur varla
kallast gagnrýni heldur spjall eða jafn-
vel blaður, þar sem aðeins er fiallað
um það sem þykir gott og því þá hrós-
að af svo mikilli ákefð að jaðrar við of-
lof. Þetta er að sumu leyti óhjákvæmi-
legt þegar aðeins er fiallað um brot af
bókunum sem koma út - þá er freist-
ingin sú að styggja engan og þegja um
þær bækur sem ekki ná máli. í þriðja
lagi hafa útgefendur verið kræfari en
oft áður að vitna í dóma í bókaauglýs-
ingum og þá jafnvel brotið þá sjálf-
sögðu reglu að taka ekki einstakar
setningar sem túlka má jákvætt úr
samhengi dóma sem eru beggja blands
eða jafnvel neikvæðir. Það er vafasamt
hvort þetta er nokkuð sniðugt fyrir
bókmenntirnar eða lesendur. Fyrir þá
sem vilja stunda alvörugagnrýni er
þetta grábölvað, það fer að verða
ómögulegt að segja kost og löst á bók-
um ef ailt sem ekki er í hauskúpustiln-
um er klippt til og notað í auglýsing-
ar.“
Því er við að bæta að umsagnir hér
í DV voru fiölbreytilegar og má full-
yrða að þær bækur voru ekki margar
sem fengu eintómt lof.
Allir gerðu sitt besta -
og jafnvel betur
„Ekki sé ég betur en það verði geysi-
lega erfitt að komast að niðurstöðu,"
sagði Jónas Sen rnn störf tónlistar-
nefndar. Að jafnaði hafa verið á annað
þúsund tónleikar í klassíska geiranum
einum undanfarin ár en giskað er á að
árið 2000 hafi þeir slagað upp í ártalið!
„Við erum búin að funda en það er
ekkert á hreinu enn um tilnefningar,"
hélt Jónas áfram. „Allir gerðu sitt
besta og jafnvel gott betur. Mikið var
um hátiðir sem tókust yfirleitt vel og
var standardinn á sumum þeirra ótrú-
lega hár, til dæmis á hátíðinni í Skál-
holti í sumar sem leið og Art2000-hátíð-
inni í Salnum í haust. Við erum þegar
komin með alltof mörg nöfn á blað og
þetta endar örugglega með slag!“ sagði
hinn galvaski gagnrýnandi DV.
Auður Eydal leiklistargagnrýnandi
sagði að vissulega hefði úrvalið verið
mikið af leiklistarviðburðum á árinu
en furðu fátt stæði þó upp úr af ein-
stökum tindum þegar hraðspólað væri
yfir það í huganum. Eflaust kemur
margt upp úr dúmum við nánari at-
hugun.
Svo bar við á árinu að við fengum
að sjá í sjónhending að Islendingar
eru engir aukvisar í hönnun. Á Kjar-
valsstöðum var haldin merk sýning á
íslenskri hönnun í áranna rás og þó
að gestir deildu kröftuglega um ein-
staka gripi voru allir hissa á hvað
heildin kom vel út.
Myndlistin var bæði í framtíðarsýn
og baksýnisspeglinum á árinu, eins
og tvær stærstu sýningar Listasafns
íslands báru vitni um: Nýr heimur -
Stafrænar sýnir á Listahátíð síðast-
liðið vor og yfirlitssýning Þórarins B.
Þorlákssonar i haust.
Kvikmyndirnar koma sterkt inn og
má kvikmyndanefndin í ár vera fegin
framsýni nefndarinnar í fyrra að
verðlauna Engla alheimsins. Það er
þá frá! Strangt til tekið var hún ekki
frumsýnd fyrr en á nýársdag 2000 en
réttlætingin á því að taka hana samt
með framleiðslunni 1999 var sú að
selt var inn á forsýningar milli jóla og
nýárs það ár. Síðan hafa bæði inn-
lendir og erlendir aðilar keppst við að
ausa hana lofi og verðlaunum - en við
vorum sem sagt fyrst!
Tilnefningar fara að venju að birt-
ast í blaðinu upp úr mánaðamótum
janúar-febrúar. Við bíðum spennt -
meðan nefndarmenn púla!
Jónas Sen,
gagnrýnandi DV.
Halldór Hauksson
útvarpsmaður.
Anna Guðný Guðmunds-
dóttir píanóleikari.
Leiklist
Myndlist
Auöur Eydal, Halldóra Friöjónsdóttir, Jón Viöar Jónsson
gagnrýnandi DV. gagnrýnandi DV. leikhúsfræðingur.
Torfi Jónsson Eyjólfur Pálsson Baldur J. Baldursson
leturhönnuður. innanhússarkitekt. innanhússarkitekt.
Aöalsteinn Ingólfsson, Þóra Sigurðardóttir, Birgir Snæbjörn Birgis-
gagnrýnandi DV. myndlistarmaður og son myndlistarmaður.
skolastjori.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson, Sif Gunnarsdóttir Guðni Elísson
gagnrýnandi DV. menningarfræöingur. bókmenntafræðingur.
Bókmenntir
Jón Yngvi Jóhannsson, Vilborg Dagbjartsdóttir Gunnar Hersveinn, heim-
gagnrýnandi DV. skáld. spekingur og blaða-
maöur.
Dr. Maggi Jónsson Guðmundur Jónsson Júiíana Gottskálksdóttir
arkitekt. arkitekt. listfræðingur.