Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001 7 Fréttir $ SUZUKI Akrahreppur í Skagafirði: Nýburabæt- ur reynast vel DV, SKAGAFIRÐI:________ Athyglisverö fjölgun varö i Akrahreppi í Skagafirði á síðasta ári þar sem fjölgaði um 10 manns. Broddi Björnsson oddviti segir þessa fiölgun m.a. tilkomna vegna þess aö Qögur böm fæddust í hreppnum og lítið var um dauðs- fóll, ekkert sem hann rak minni til, og þá flutti ungt par með bam aftur í hreppinn en fólkið var kært inn á íbúaskrá sveitarfélagsins Skagafiarðar á sínum tima. Sem kunnugt er greiðir sveitar- sjóður Akrahrepps 100 þúsund krónur til foreldra hvers nýbura í hreppnum. Þeir voru fiórir í fyrra og sex hvert ár, tvö árin á undan, frá því þetta fyrirkomulag var tek- ið upp. Broddi segir að menn séu ánægðir með þessa þróun og segist fastlega búast við því að áfram verði greitt fyrir nýburana á nýju ári þótt hreppsnefndin hafi ekki tekið formlega ákvörðun þar um. Það vakti athygli á sínum tíma þegar hreppsnefnd Akrahrepps tók upp hinar svokölluðu nýbura- bætur en það gerðist einmitt á þeim tíma sem öll önnur sveitarfé- lög í Skagafirði voru að sameinast í eitt. Og útkoman í heildina er sú að Akrahreppi hefur tekist betur í viðspyrnunni við fólksflóttanum af svæðinu en „stóra bróður“, sveitarfélaginu Skagafirði, hvort sem nýburabætumar hafa þar rið- ið baggamuninn eða ekki. -ÞÁ ..af hver ju að láta jeppling duga þegar þú færð alvöru JEPPA á sama eða enn betra verði? Tæki 2 mánuði að undirbúa hvalvertíð, segir forstjóri Hvals hf.: Ekkert vandamál að selja afurðirnar Rætt um hvalspik Hér ræöa þeir saman, Steinar Bastesen og Júlíus Jónsson, fyrrum verslunarstjóri í Nóatúni. Ólöglegt að banna sölu á norsku hvalrengi til íslands: Ná ekki að flytja inn hvalspik fýrir þorrablótin „Þaö er alveg viðbúið að við tök- um þráðinn upp að nýju og að hingað verði flutt norskt hval- rengi. Þessi ákvörðun norskra sfiórnvalda kemur þó því miður of seint til þess að við náum því að flytja inn hvalrengi fyrir þorra- blótin sem fram undan eru,“ segir Júlíus Jónsson hjá Búri hf. og fyrrum verslunarstjóri hjá Nóa- túni í samtali við Inter- Seafood.com. Júlíus vitnar hér til áforma Nóatúns um að flytja inn hval- rengi frá norska þingmanninum og hvalveiðimanninum Steinar Bastesen sem nú virðist hafa unn- ið fullnaðarsigur í baráttu sinni við norsk stjórnvöld. Að sögn Júl- íusar ætlaði verslunin aö flytja inn einn gám með hvalrengi í til- raunaskyni fyrir um tveimur árum en norsk stjórnvöld komu þá i veg fyrir útflutning til íslands. „Bann norskra stjórnvalda við útflutningi á hvalrengi til íslands var sannarlega ólögmætt, enda skilst mér að hann hafi verið með unnið mál í höndunum þegar ákveðið var að heimila útflutning- inn. Það var hægt að banna út- flutning á hvalaafurðum til Japans en ekki íslands þar sem við vorum hvorki aöilar að Cites eða Alþjóða- hvalveiðiráðinu. Bastesen hefur, , að minu mati, unnið mikinn sigur ! og ég geri ráð fyrir því að við mun- um taka upp þráðinn að nýju nú þegar þessi ákvörðun liggur fyrir, , segir Július Jónsson. -DVÓ I DV, HVALFIRÐi:____________________ „Undirbúningur hvalvertíðar tæki um það bil tvo mánuði. Það þarf að fara yfir flest tæki og taka skip í slipp og endumýja ýmislegt. Þetta eru menn reyndar að gera alla daga þegar skip og tæki eru í rekstri. Sala þeirra afurða er ! fengjust við hvalveiðar er ekki og hefur ekki verið neinum vandræð- um háð,“ sagði Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., í samtali við DV. Eins og kunnugt er var samþykkt þingsályktun á Alþingi á síðasta ári þess efnis að stefnt skuli að þvi að Ihefla hvalveiðar á þessu ári. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra sagði í samtali við Útveginn að af þvi verði ekki vegna þess að það þurfi að kynna málstað okkar betur í Bandaríkjunum. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, lýsti því yfir í DV fyrir skömmu að það væri bull, það þyrfti enga kynningu á málstaðn- um. DV spurði Kristján hvað það hefði kostað fyrirtækið að hafa skip- in við bryggju síðan 1990 þegar hvalveiðar voru bannaðar. „Það er allt of mikið fé sem Hval- ur hf. hefur þurft að punga út vegna hafnargjalda og viðhalds á eignum félagsins og hvalbátum í Reykjavík og öðrum kostnaði Áratugarbið Hvalbátar Hvals hf. hafa beöiö aögeröalausir í Reykjavíkurhöfn í áratug og hefur þaö kostaö mikiö fé. tengdum viðhaldi en það er ekki gott að segja hversu mikið fé það er. Ef vel ætti að vera þá þyrfti að vísitölureikna kostnaðinn allt til ársins 1990. Stjómvöld og bæjarfé- lög hafa ekki fellt niður nein gjöld til fyrirtækisins," sagði Kristján Loftsson. -DVÓ Berðu saman getu, aksturseiginleika, búnað, þægindi og rekstraitiagkvæmni jepplinga við það sem þú færð í Suzuki Grand Vitara: grindarbyggðum jeppa með tengjanlegt framhjóladrif og hátt og lágt drif um millikassa. SUZUKI SÖLUUMB0Ð: Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Borgarnes: Bilasala Vesturlands, sími 437 15 77. Isafjörður: Bilagarður ehf„ Grænagarði, sími 456 30 95. Hvammstangi: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 22 30. Sauðárkrókur: Bíla- og búvélasalan, Borgarröst 5, slmi 453 66 70. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bilasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, simi 471 30 05. 3 dyra frá 1.840.000 kr. 5 dyra frá 2.190.000 kr. SUZUKl GRAND VITARA Á meðal nýs búnaðar eru ABS-hemlar með rafeindastýrðri hemlaiöfnun (EBD), rafhitaðir útispeglar, fjarlæsing og tvístillt samlæsing. Hægt er að stilla hæð ökumannssætis og stuðning við mjóbak auk þess sem fótarými aftursæta hefur verið aukið. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is Hátt og lágt drif Byggður á grind

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.