Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001
I>V
Fréttir
íbúi á Kópaskeri segir Ríkisútvarpinu stríð á hendur:
Ríkisútvarpið kært til Samkeppnisráðs
- útsendingar útvarps og sjónvarps nást mjög illa eöa alls ekki
DV, AKUREYRI: ____________._________
„Skömmu eftir ég flutti hingað í
júlí árið 1999 sendi ég kvörtun til
Ríkisútvarpsins og krafðist þess að
fá afnotagjöldin felld niður eða
lækkuð eða að þjónustan yrði bætt
verulega, t.d. í samræmi við það
sem er á Akureyri þaðan sem ég
kom. Ég fékk bréf til baka þar sem í
raun og veru var sagt að sú þjón-
usta sem við fáum sé nógu góð fyrir
okkur þótt hún sé lakari en sú sem
aðrir fá,“ segir Guðmundur Lárus-
son á Kópaskeri sem hefur kært
Ríkisútvarpið til Samkeppnisráðs
vegna lélegrar þjónustu og mismun-
unar við viðskiptavini.
Það er skemmst frá því að segja
að ibúar á Kópaskeri, sem og fleiri
byggðarlögum á norðausturhorni
landsins, búa við afar slæm skilyrði
til að ná útsendingum Ríkisútvarps-
ins og er þá bæði átt við útvarps- og
sjónvarpssendingar. ítrekað hefur
verið kvartað en án árangurs.
„Ég fékk bréf frá Ríkisútvarpinu
þar sem segir m.a. að viðtökustyrk-
ur á Kópaskeri sé minni en á Akur-
eyri, sem er rétt. í bréfinu sagði að
viðtökustyrkurinn hjá okkur væri
„viðunandi þó miðað við dreifbýli".
Svo bættu þeir við að ekki væri
tæknilega eða fjárhagslega mögu-
legt að tryggja öllum sama styrk
óháð búsetu. Þeir eru sem sagt að
segja að þeir hafi hvorki tæknilega
né fjárhagslega eða yfirleitt
nokkurn áhuga eða getu til að bæta
þjónustuna. Þetta er auðvitað ekk-
ert annað en að fólki er mismunað
eftir búsetu en það borgar auðvitað
sömu gjöld fyrir þjónustuna.
Ég sendi þetta til Samkeppnisráðs
með fyrirspurn um hvort ráðið vildi
taka á þessu máli og þaðan fékk ég já-
kvætt svar. Ég útbjó því greinargerð
þar sem ég fer fram á að skylt verði
að miða gjaldskrá við þá þjónustu
sem veitt er á hverjum stað og fer
fram á endurkröfurétt vegna skertrar
þjónustu. Málið er því hjá Samkeppn-
isráði til afgreiðslu."
Guðmundur segir að forsvarsmenn
Ríkisútvarpsins hafi ekki sýnt
Frá Kópaskeri
Þar eru menn í vandræöum meö aö ná útsendingum Ríkisútvarpsins
og Sjónvarpsins
nokkurn áhuga á að ræða þetta mál,
hvað þá að vinna að úrbótum. Þá hafi
honum ekki tekist að komast í síma-
samband við æðstu menn Ríkisút-
varpsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir og það hafi í rauninni fyllt mælinn.
En hvernig lýsir hann hlustunar- og
áhorfsskilyrðum á Kópaskeri?
„Þau eru misslæm. Þau fara upp í
það að það er hægt að horfa á sjón-
varp og niður í það hreinlega að mað-
ur stendur upp og slekkur. í sjónvarp-
inu lýsir þetta sér í því að þverrákir
ganga yfir skjáinn og áður en maður
veit af er maður farinn að fylgja þeim
eftir með augunum og hættur að
reyna að horfa á myndina. Þetta virk-
ar nánast eins og dáleiðsla. Hvað
varðar útvarpið er það þannig að í
mörgum húsum nást útsendingar ein-
faldlega ekki en á öðrum stöðum eru
menn að reyna að hengja tækin upp
um allt, með aukaloftnet og víra út
um allar íbúðir en árangurinn er lít-
iil. Ég sé enga ástæðu til þess að láta
bjóða mér upp á þetta,“ segir Guð-
mundur. -gk
Munum leita
réttar okkar
- segja fulltrúar í hafnarstjórn Hafnarfjarðar
Fulltrúar Hafnarfjarðarhafnar
draga stórlega í efa að þær úthlut-
unarreglur sem farið er eftir í
hafnaáætlun 2001 til 2004 eigi sér
nokkra stoð. Þeir segjast munu leita
réttar síns verði tillaga til þingsá-
lyktunar samþykkt óbreytt en þar
sitji Hafnarfjarðarhöfn ekki við
sama borð og aðrar hafnir landsins.
Á síðasta fundi hafnarstjómar
Hafnaríjarðarhafnar var rætt um
þessa tillögu til þingsályktunar um
hafnaáætlun 2001-2004. Hafnar-
stjórn er afar óánægð með hafnaá-
ætlunina og vill fá fjárframlög til
jafns við aðrar hafnir landsins.
Hún sendi frá sér harðorða bókun
vegna hafnaráætlunarinnar þar
sem segir m.a.:
„Hafnarstjóm ítrekar kröfur sín-
ar um að Hafnarfjarðarhöfn fái
framlög til hafnargerðar til jafns við
aðrar hafnir landsins og mótmælir
harölega mismunun þeirri sem
Hafnarfjarðarhöfn er gert áð sæta
samkvæmt framlagðri tillögu. Hafn-
aríjarðarhöfn hefur, á grundvelli
hafnalaga, reglulega sent inn óskir
sínar um þátttöku ríkisins í fram-
kvæmdum hafnarinnar til jafns við
aðrar hafnir og vísar til þeirra
gagna, sem eru í vörslu Siglinga-
stofnunar íslands." -DVÓ
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Frá Hafnarfjaröarhöfn
Þar á bæ viija menn fá framlög til jafns viö aðrar hafnir í landinu.
NU A 4D KAURA
NOTAÐAN BÍL!
BMW 750ia '97 grænsanz s.sk
ek 71 þ.km. Einn með öllu t.d leður,
topplúga, 18" álf. o.fl o.fl.
Verð kr. 4.900.000,-
Toyota Corolla Luna l/b
5 dyr, 08/98 grænn 5 gíra
ek 51 þ.km
Verð: 990,000,-
Ford Expedition 5,4 Eddie Bauer
v-8 '97 grænn s.sk ek 47 þ.km.
einn með görsamlega öllu t.d 38",
leður,gps, sjón er sögu ríkari.
Verð: kr. 5.250.000,-
1 . H. Ii,! y*?’111' ss
i^I^HHH* JpWSM míBstmHf S Lfgfan&j yHHBBiSP ■
,
Daewoo Lanos 1500 se 08/98
Blár 5 gíra ek 30 þ.km
Verð: 770.000,-
Subaru Forester cx 02/99 grár
s.sk ek 26 þ.km. abs, cd, o.fl
Verð: 1.850.000,-
Daihatsu Feroza 05/96 v.rauð,
5 gíra, ek 83 þ.km 33" breyttur.
góður jeppi
Verð kr. 850,000,-
Daewoo Musso e-32 Grand luxe
06/00 grænn s.sk ek 17 þ.km.
33", abs + spólvörn, o.fl.
Verð: 3.790.000,-
Daewoo Matiz se-x 01/00
Rauður 5 gíra ek 14 þ.km.
Verð: 930,000,-
Daihatsu Terios sx '98 rauður 5 gíra ek
22 þ.km. fallegur konujeppi.
Verð: 1.190.000,-
Subaru Impreza GT turbo Sedan
4wd. 09/00 hvítur 5 gíra ek 3 þ.km.
eins og hann gerist flottastur.
Verð: 2.590.000,-
Ford Windstar 7 manna '96 hvítur
s.sk ek 88 þ.km
Verð: 1.480.000,-
Daewoo Nubira II cdx Poiar stw
02/00 grænn 5 gíra ek 16 þ.km
vel búinn fjölskyldubíll.
Verð: 1,480,000,-
BILASALAN SKEIFAN • BÍLDSHÖFÐA 10 • S: 577 2800 / 587 1000
Akureyri: Bílasalan Ós - Hjalteyrargötu 10 - Sími 462 1430
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10 - 16
Grelðslukjör við allra hæfi. Bílalán, Visa/Euro raðgreiðslur, skuldabréf, skiptum
á ódýrari, erum sanngjarnir í samningum.