Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Side 11
MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2001
I>V
11
Útlönd
✓
Israelar og Palestínumenn á friðarfundi í Egyptalandi:
Ekki búist við
miklum árangri
Israelar og Palestínumenn vör-
uðu við of mikilli bjartsýni um nið-
urstöður friðarviðræðna sem hófust
í Egyptalandi seint í gærkvöld. Tím-
inn er að hlaupa frá samninga-
mönnum þar sem ísraelar kjósa sér
nýjan forsætisráðherra þann 6. febr-
úar næstkomandi.
Til að draga enn frekar úr vonum
manna ítrekuðu helstu ráðgjafar
hægrisinnans Ariels Sharons, sem
skoðanakannanir benda til að verði
næsti forsætisráðherra Israels, að
hann myndi ekki telja sig bundinn
hugsanlegum samningi.
„Ekki eru miklar líkur á því að
okkur takist að brúa það bil sem er
á milli okkar á þeim tíma sem er til
stefnu," sagði Ehud Barak, forsætis-
ráðherra ísraels, í viðtali við útvarp
ísraelska hersins í gær.
Saeb Erekat, helsti samningamað-
ur Palestínumanna, sagði að við-
ræðurnar, sem fara fram á lúxus-
Komið á fundarstað
Nabil Shaath, einn helsti samninga-
maöur Palestínumanna, ræöir viö
fréttamenn við komuna til strand-
bæjarins Taba viö Rauöa hafiö.
hóteli í egypska sumarleyfisbænum
Taba við Rauða hafið, myndu eink-
um snúast um framtíð Jerúsalem,
landnemabyggðir gyðinga og örlög
palestínskra flóttamanna. Þá verður
einnig rætt um önnur mál svo sem
vatnsréttindi og varanleg landa-
mæri. Búist er við að fundahöldin
standi 1 viku eða tíu daga.
„Ég vil sannast sagna ekki vekja
mönnum of miklar vonir af því að
ágreiningurinn er enn til staðar og
hann er enn mikill," sagði Erekat
við fréttamann Reuters.
Samningamennirnir tókust í
hendur fyrir ljósmyndara áður en
viðræðurnar hófust. Greinilegt var
þó að sumum var það þvert um geð.
Á meðan verið var að undirbúa
viðræðurnar skutu ísraelskir her-
menn fimmtán ára gamlan palest-
ínskan pilt til bana á Gaza. Hann
hafði verið staðinn að því að kasta
grjóti í hermennina.
Dorgaö í Rússlandi
Tveir veiöimenn veiöa í soöiö gegn um ísinn á Tom-ánni, nærri þorpinu Berezovo í Kemerovo héraöi í Rússlandi. Dorg-
veiöi er mjög vinsæl íþróttagrein í Rússlandi en hún getur verið hættuleg, eins og dæmin sanna, þegar hlýna tekur í
veöri. Núna er hins vegar öllu óhætt því frostið í Berezovo var tuttugu gráöur um helgina.
Lík Laurents Kabila komið heim til Kongós:
Hundruð þúsunda út á götur
til að syrgja myrta forsetann
Hundruð þúsunda íbúa Kongólýð-
veldisins syrgðu myrtan forseta
sinn, Laurent Kabila, þegar lik hans
kom heim til höfuðborgarinnar
Kinshasa í gær.
Mannfjöldinn raðaði sér meðfram
veginum frá flugvellinum til alþýðu-
hallarinnar í miðborg Kinshasa þar
sem lík Kabila verður á viðhafnar-
börum þangað til það verður jarð-
sett á þriðjudag. Kabila var drepinn
af einum lifvarða sinna fyrir rúmri
viku þar sem hann var að ræða við
einn fjármálaráðgjafa sinna, að því
er stjórnvöld í Kongó segja.
Hvít líkkistan, sveipuð þjóðfána
Kongós, var flutt á fallbyssuvagni
til alþýðuhallarinnar. Heiðursvörð-
ur hermanna með hvita hanska á
höndum fylgdi kistunni og fremstur
fór liðsforingi með risastóra mynd
Grátið á flugvellinum
Stuðningsmaöur Kabila Kongóforseta
grætur er lík forsetans kom heim.
af látna forsetanum.
Bandamenn Kabila, leiðtogar
Simbabve, Angóla og Namibíu, hitt-
ust í Luanda til að ræða ástandið í
Kongó. Heimildarmenn herma að
stjórnvöld í Suður-Afríku séu að
íhuga að boða leiðtogafund í Mó-
sambík á miðvikudag.
„Ný stjómvöld hafa lýst því yfír
að þau vilji áframhaldandi stuðning
okkar. Við bjóðum fram þennan
stuðning, einkum í öryggismálum,“
sagði Robert Mugabe, forseti
Simbabve, eftir fundinn.
Sonur Kabila, hinn 31 árs gamli
Joseph, sver forsetaeiðinn þegar bú-
ið verður að jarðsetja föður hans.
José Eduardo dos Santos, forseti
Angóla, hvatti bandamennina til að
til að halda uppi lögum og reglu í
Kongó.
Sjálfsvörn
JIU JITSU
Kennsla í alvöru sjálfsvörn
SKráíó
mlnufi Ȓ
|ionpu !
Smáauglýsingar
allt fyrir heimiliö
550 5000
108 Reykjavík
Enn meiri
verölækkun
afsiáttu r
VERÐDÆMI;
piis 3refir- 1.190.-
buxur-2r§ín5T- 1.490.-
dress j&r3^9T- 1.999.-
peysa-3r£§9T- 799.-
Opnunartími:
Mán.-fim. og lau. kl. 10-18
Fös. kl.10-19. Sun. kl.12-17