Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2001, Blaðsíða 32
>
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALOREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Húsmóöir á Akureyri í bæklunaraðgerð á Fjórðungssjúkrahúsinu:
Axlarliðurinn
var í Ameríku
- komst upp þegar búið var að svæfa hana á skurðstofunni
Kolbrún Kristjánsdóttir, 63 ára
húsmóðir á Akureyri, vaknaði á
dögunum upp eftir svæfingu á
skurðstofu Fjórðungssjúkrahúss-
ins á staönum í sama ásigkomulagi
og hún hafði verið fyrir svæfing-
una. Skipta átti um axlarlið i Kol-
brúnu en þegar til átti að taka á
skuröstofunni kom í ljós að nýi
axlarliðurinn var í Bandaríkjun-
um; Kolbrún sofandi á skurðar-
borðinu og ekkert hægt að gera.
„Ég var lögð inn á miðvikudag-
inn og fór þá í allar rannsóknir eins
og gert er fyrir aðgerðir.
Eldsnemma á fimmtudaginn var ég
gerð klár fyrir aðgerð og ekið með
mig niður á skurðstofuna þar sem
ég var svæfð. Nokkrum klukku-
stundum síðar vaknaði ég aftur og
var þá beðin afsökunar á því að axl-
arliðurinn hefði því miður ekki
verið í pakkanum sem kom frá
Bandaríkjunum og mér var ætlað-
ur,“ sagöi Kolbrún í gærkvöldi þar
sem hún var heima hjá sér enn með
sama gamla axlarliðinn sem hefur
plagað hana síöan hún slasaðist á
hestbaki fyrir margt löngu. „Það á
að reyna aftur 31. janúar en þá ætla
ég að fá að kíkja ofan í pakkann
áöur en ég er svæfð. Ég vil fá að sjá
axlarliðinn til að vera örugg,“ sagði
Kolbrún sem ekki varð meint af
þessari tilgangslausu svæfingu á
Fjórðungssjúkrahúsinu.
„Ég tel ekki að þama hafi orðið
nein stór mistök en ræði það ekki
frekar," sagði Júlíus Gestsson,
bæklunarlæknir á Akureyri, sem
ætlaði að skipta um axlarlið í Kol-
brúnu en þurfti að hætta við þegar
hann leit ofan í pakkann frá
Bandaríkjunum og sá að þar var
allt annað en það sem pantað hafði
verið.
„Ég ber fyllsta traust til Júlíus-
ar. Hann skipti um hnjálið í mér
fyrir rúmu ári og þá gekk allt vel.
Þá fékk ég reyndar að sjá hnjálið-
inn áður en ég var svæfö. Ég ætla
að hafa það fyrir reglu í frámtíð-
inni,“ sagði Kolbrún Kristjánsdótt-
ir á Akureyri. -EIR
Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra í Washington:
Með bakverk hjá Bush
„Það var slydda
og dumbungur en
að öðru leyti var
þetta hefðbundiö,"
sagði Jón Baldvin
Hannibalsson,
sendiherra í Was-
hington, um inn-
setningarathöfn
Bandaríkjaforseta
sem hann sótti
ásamt Bryndísi
eiginkonu sinni á laugardaginn.
Nýr forseti sver eiö
/ slyddu og dumbungi.
„Þetta fór prúömannlega fram.“
Jón Baldvin sagðist aldrei hafa
hitt hinn nýkjörna forseta Banda-
rikjanna í eigin persónu en að
því hlyti að koma.
Sendiherrann er nýkominn af
sjúkrahúsi ytra þar sem hann
leitaði sér bóta vegna gamalla
bakmeiðsla sem tóku sig nýverið
upp: Ég er að drepast í bakinu,
annars er allt gott,“ sagði Jón
Baldvin.
Nánar á bls. 10 -EIR
Jón Baldvin
Hannibaisson.
íslenska landsliðið:
Stranda-
glópar
- er töskumar týndust
Ferð íslenska landsliðsins í hand-
knattleik til Montpellier í Frakklandi
i gær gekk ekki áfallalaust en
liðsmenn urðu um tima strandaglóp-
ar á Charles De’Gaulle-flugvelli í Par-
ís vegna þess að talsvert af farangri
liðsins varð eftir á Heathrow-flugvelli
í London en þar millilenti liðið.
Fall er fararheill
Landsliðið á leið til Frakklands.
Eftir nokkra bið var ákveðið að
halda með rútu á innanlandsflug-
völlinn þaðan sem flogið yrði til
Montpellier en farangurinn var enn
i London.
Nánar á bls. 24 og 25 -ÓK
Kringlumýrarbraut:
piB * m *
Fjorir a
slysadeild
Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir
árekstur tveggja bíla á mótum
Kringlumýrarbrautar og Miklubraut-
ar um hálftólfleytið í gærkvöld. Að
sögn lögreglunnar i Reykjavik voru
málsatvik þau að annar bílanna, sem
var á leið norður Kringlumýrarbraut,
beygði fyrir hinn, sem var á
suðurleið, með þeim afleiðingum að
þeir skullu saman. Báðar bifreiðirnar
voru fjarlægðar með kranabíl. -jtr
DV-MYND G. BENDER
Kolbrún Kristjánsdóttir á heimili sínu í gærkvöld
Næst ætlar hún að fá að sjá axlarliðinn áður en hún verður svæfð.
Hlíðarfjall við Akureyri:
Stólalyftan fór út af sporinu
- lafhræddir fengu kakó
Stólalyftan á skíðasvæðinu í Hlíðar-
flalli við Akureyri fór út af sporinu í
hvassri vindhviðu um hálftvöleytið í
gær. Að sögn Guðmundar Karls Jóns-
sonar, forstöðumanns Skíðastaða, fauk
lyftan út af sporinu á einu mastri en
alls halda ellefu möstur henni uppi.
„Það fór allt í einu að hvessa upp úr
þurru og kom vindurinn þvert á lyftu-
línuna," segir Guömundur.
Tólf farþegar voru í lyftunni á leið
upp fjallið þegar óhappið varð. Tók 20
til 25 mínútur að bjarga öllum úr henni
og var notaöur sérstakur stigi við
björgunina en hann er festur við snjó-
troðara. Guðmundur segir að enginn
hafi meiðst en sumum farþegunum
brugðið þegar lyftan stoppaði. Laf-
hræddum farþegunum var sagt frá þvi
hvað hefði komið fyrir og þeir héldu
siðan áfram að renna sér og notuðu
hinar lyftumar. „Sumir fengu heitt
kakó og aðrir frítt í lyftuna i staðinn,"
segir Guðmundur.
Lyftan sem um ræðir er elsta
stólalyftan á landinu en að sögn
Guðmundar má eingöngu rekja
óhappið til þess hve hvasst var.
Hann segir að vel hafi tekist að
koma vír lyftunnar aftur á sporið.
Mun Vinnueftirlitiö skoða hana í
dag og er gert ráð fyrir að hún
verði aftur komin í gang á morgun.
Um 300 manns voru á skíðum í
fjallinu í gær. Segir Guðmundur að
um prufudag hafi verið að ræða en
þá er fólki gefinn kostur á að prófa
ýmsar gerðir af skíðum og prófa
það nýjasta á skíðamarkaðnum.
-MA
Heilsudýnur i sérjlokkil
æfn&heil saj
r«ElLSUNNAB>'e<
Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150
brother
P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tðlvunni
Samhætt Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport