Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2001, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2001, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 I>V 7 Fréttir Ríkið hafnaði 17,5 milljóna tilboði í Kvoslæk: Vill minnst 20 milljónir króna fyrir jörðina - tilboð opnuð í nýju útboði í morgun Tilboö í ríkisjörðina Kvoslæk í Fljótshlíð voru opnuð kl. 11 i morg- un og er það í annað sinn sem útboð fer fram á þessari jörð á stuttum tíma. I fyrra útboði í janúar á þessu ári bárust fjörutíu og átta tilboð í jörðina sem var öllum hafnað. Hæsta tilboðið var 17,5 milljónir króna. Meðalupphæð tilboða mun hafa verið um 8 milljónir króna en engin skilyrði voru þá sett um lágmarks- upphæð tilboða að sögn Óskars Ás- geirssonar hjá Ríkiskaupum. Sam- kvæmt heimildum DV mun fram- kvæmd fyrra útboðsins hafa verið send Umboðsmanni Alþingis til skoðunar, m.a. vegna þess að tilboð- um hafi verið hafnað þó í útboðs- gögnum hafi engin skilyrði verið sett um lágmarkstilboð. „Tilboöunum sem bárust í fyrra útboðið var hafnað sem of lágum,“ sagði Óskar í samtali við DV í gær. Hann segir að menn.vilji fá í það minnsta 20 milljónir fyrir jörðina. Hann sagði því að öllum tilboðum undir 17,5 milljónum i þessu síðara útboði yrði hafnað. Kvoslækur er 90 hektara land- spilda sem liggur upp með Kvos- lækjará í Fljótshlíð. Er þarna um að ræða mjóa landræmu sem nær alla leið upp á fjalliö Þrihyrning. Til við- bótar þessum 90 hekturum er 13,5% eignaraðild í óskiptu 440 hektara landi. Þar bætast þvi við Kvoslækj- arjörðina 60 hektarar. Meðal þekktra einstaklinga sem land eiga í nágrenninu eru Hörður Sigurgests- son, fyrrverandi forstjóri Eimskips. Magnús Leopoldsson fasteigna- sali sagði ekki óalgengt að Ríkis- kaup auglýstu útboð á jörðum oftar en einu sinni. Ekki væri til nein þumalputtaregla um verðlagningu á ríkisjörðum. Jarðaverð væri mjög afstætt og færi mikið eftir því hvaða staðir væru í tísku ásamt þvi að landslag og fegurð skiptu miklu máli. Þannig væri jarðaverð einna hæst í Borgarfirði og á Suðurlandi um þessar mundir. Þar væri Fljóts- hlíðin ofarlega á vinsældalistanum og jarðir í háu verði. Hann sagði húsakost á Kvoslæk lélegan en jörð- in væri falleg. -HKr. Úti með hundinn dv-mynd hari Hann lét rokiö ekki stöðva sig, hundseigandinn sem Ijósmyndari DV rakst á við Ægisíðuna í Reykjavík. Ekki var annað að sjá en hvutti væri ánægður með útiveruna. Austfirðingar bíða og vona í tvö ár enn: Nýtískulegasta álver heims - segir Bjarne Reinholdt, framkvæmdastjóri Reyöaráls DV-MYNDIR SKÚLI MAGNÚSSON. Stór áform Mikill hugur var í fundarmönnum varðandi hin stóru áform um uppbyggingu nýrra atvinnugreina á Austurlandi. DV. EGILSSTOQUM:_____________________ „Það er hægt að fullyrða það að verið er að vinna að þessum málum af heilindum, bæði hvað varðar virkjun og álver. Sú tímaáætlun sem undirrituð var á síðasta ári er virk og ekkert hefur komið upp á að við séum neitt að leggja upp laupana eða missa kjarkinn. Það er óhætt að vera bjartsýnn," sagði Val- gerður Sverrisdóttir iðnaðarráð- herra í samtali við DV á málþingi um austfirskt atvinnulíf fyrir helg- ina. „Fólk áttar sig á að það þarf að Ekkert veriö aö bakka Það er enginn að leggja upp laupana eða missa kjarkinn i stór- iðjumálum Austfirðinga, segir Val- geröur Sverrisdóttir iðnaðarráðherra. undirbúa ýmislegt þannig að byggð- arlögin verði tilbúin að taka við þessum stórframkvæmdum, það er ekki launungarmál að þetta eru stærri framkvæmdir en farið hefur verið í nokkru sinni,“ sagði ráð- herrann. „Allir þeir sem vinna á virkan hátt að verkefninu, hafa á því mikla trú. Við erum sannfærð um að við séum að koma á fót nýtískulegasta, umhverflsvænsta og skilvirkasta ál- veri heims, sem jafnframt verður eftirsóttur vinnustaður fyrir konur jafnt sem karla,“ sagði Bjarne Rein- holdt, framkvæmdastjóri Reyðaráls. Hann sagði að Landsvirkjun og Reyðarál nýttu sér nú mikla þekk- ingu og fjárhagslegt bolmagn til að standa þannig að verkefninu að það uppfylli kröfur allra málsaðila. Þessa stundina er mikil vinna lögð i sundurgreiningu á umhverílsáhrif- um, tæknilegar rannsóknir, samn- ingaviðræður og mat á því hvernig best er að aðhæfa verkefnin ís- lensku efnahagslífi og aðstæðum í grenndarbyggðum. „Þessi umfangsmiklu störf eru ekki alltaf sýnileg þeim sem aðeins sjá starfsemina utan frá. Þeim sem lengi hafa beðið eftir þungaiðnaði við Reyðarfjörð gæti þótt vera lang- ur timi fram til febrúar 2002 þegar tekin verður endanleg ákvörðun um byggingu orkuversins og álversins. Við sem vinnum að verkefninu, erum þó sannfærðir um að þessa tíma er þörf til að verkefnið geti orðið sem allra best heppnað, svo hægt sé að taka réttar ákvarðanir,“ sagði framkvæmdastjórinn. Fréttamaður DV á Egilsstöðum spurði Jón Kristjánsson, alþingis- mann og formann fjárlaganefndar, hvort Austfirðingar væru að fá orkuver og í kjölfarið stóriöjuver. „Mér finnst útlitið gott, en ég get meö engu móti sagt já eða nei fyrr en búið er að skrifa undir og taka endanlega ákvörðun um málið,“ sagði Jón. Hann segir að undirbún- ingurinn sé í góðum farvegi. Am- björg Sveinsdóttir alþingismaður sagði að verkefnið væri stórkostlegt fyrir Austfirðinga. Hún sagði að lít- ill vafl væri á að Austfirðingum mundi fjölga aftur með tilkomu stóriðju og þjónustu sem henni mundi fylgja. Ambjörg sagði aug- ljóst aö Norðmenn hefðu áhuga á að ná samningum, eftir væri að semja um raforkuverðið. „Þetta slær mig þannig að þetta sé allt mjög já- kvætt," sagði Ambjörg. -SM DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON Vilja fá Sýn Arnar Guðmundsson með áskorunina. Undirskriftasöfnun: Vilja Sýn DV, SÚDUREYRI:_____________ Þeir Amar Guðmundsson og Oddur Hannesson á Suðureyri stóðu fyrir söfnun undirskrifta þar sem skorað er á forsvarsmenn íslenska útvarpsfélags- ins að heQa sem fyrst útsendingar á efni Sýnar og Bíórásarinnar á Suöur- eyri, auk útvarpsstöðvarinnar Bylgj- unnar. Söfnunin gekk mjög vel og hef- ur áskorunin verið afhent íslenska út- varpsfélaginu ásamt undirskriftunum. Það sem veldur mestum vandræðum í þessu sambandi er gífurlegur kostnað- ur á leigu ljósleiöara til Suðureyrar. „Við viljum fá Sýn og aðrar stöðvar, og okkur finnst undarlegt að þegar tal- að er um að halda ljósleiðaranum í þjóðareign þá lokar rikið á okkur með okri á leigugjaldi fyrir ljósleiðarann. Þetta kemur verst niður á minnstu byggðunum," segir Amar. -VH Dýr uppsögn DV, AKUREYRI:______________ Veitingastaður á Akureyri hefur verið dæmdur til að greiða fyrrum starfsmanni tæplega 300 þúsund krón- ur vegna ólöglegrar uppsagnar, og 150 þúsund krónur í málskostnað. Starfsmaöurinn var á leiðinni frá Reykjavík tO Akureyrar og hringdi til að láta vita að honum myndi e.t.v. seinka aðeins til vinnu kl. 18. Honum var tilkynnt að hann ætti að mæta til vinnu kl. 17 en í sama mund og þessi samskipti komu fram ók maðurinn inn i Hvalfjarðargögnin og símasambandið rofnaði. Þegar samband komst á aftur var hringt til mannsins og honum til- kynnt aö hann þyrfti ekki að mæta meira til vinnu. I framhaldi kom fram að starfsmaðurinn og stjómendur fyr- irtækisins voru mjög ósammála um fortíð mannsins hjá fyrirtækinu, mað- urinn sagðist aldrei hafa fengið áminn- ingu en talsmenn fyrirtækisins sögðu að hann hefði verið varaður við, m.a. fyrir óreglu. Dómurinn taldi hins vegar að uppsögn mannsins væri ólögmæt og dæmdi manninum það sem hann hafði krafist, þ.e. laun í þriggja mánaða upp- sagnartíma og tengd gjöld. -gk Ndttúrusalt Herbamare kryddsalt er blanda af hafsalti, kryddjurtum og lífrænt ræktuðu grænmeti. Ljúffengt og hollt kryddsalt í matargerðina og ó matarborðið. náttúrulega €ilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.