Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2001, Blaðsíða 10
10 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 I>V Peter Mandelson Er kveikjan aö tittögu þingmanna um aukiö eftirlit meö störfum ráöherra. Hertara eftirlit með ráðherrum Breskir þingmenn vilja láta kanna möguleikann á því að komið verði á sterkri eftirlitsstofnun sem hefur það að markmiöi að hafa eft- irlit með störfum ráðherra í ríkis- stjórn. Tillaga þingmannanna kem- ur i kjölfar ásakana í garð fyrrum Norður-lrlansmálaráðherrans, Pet- er Mandelson sem sagði af sér embætti fyrir skömmu. Hlutverk stofnunarinnar yrði að sjá til þess að reglum um hegðan og breytni ráðherra, sem hafa spunnist á síðustu 50 árum, sé fylgt í hví- vetna. Tillögurnar miða að því að um- boðsmaður þingheims, sem tekur einnig við kvörtunum í garð þing- manna, fengi aukið vald og tæki að sér kvörtunarmál í garð ráðherra. Sakaður um að hafa vitað af árás NATO Sjónvarpsstjóri serbneska rikis- sjónvarpsins hefur verið handtek- inn grunaður um að hafa vitað að sjónvarpsstöðin myndi verða fyrir sprengingu. Sextán létust þegar NATO-ílugvélar sprengdu sjón- varpsbygginguna í Belgrad í apríl árið 1999. Sjónvarpsstjórinn, Dragoljub Milanovic, stuðningsmaður Milos- evic, fyrrum forseta Júgóslavíu, er sakaður um að hafa ekki rýmt bygg- inguna áður en hún varð fyrir árásinni. Starfsmenn stöðvarinnar saka Milanovic um að hafa þar með gert stöðina að „lifandi skot- marki“og fara fram á refsingu. Poul Nyrup Rasmussen Þjóöarfiokkurinn vilt einnig kanna aöild Pouls Nyrups aö sölunni. Vill kanna sölu á olíurétti Dana Danski Þjóðarflokkurinn vill hetja umræður á danska þinginu um fundi fyrrum forsætisráðherra Danmerkur, Pouls Schlúters, og færeysku landstjórnarinnar árið 1992 um sölu stjórnarinnar á rétti til olíuvinnslu í lögsögu Færeyja. „Ríkisstjómin verður að leggja öll spilin á borðið," sagði varaformaður Þjóðarflokksins, Peter Skaarup, í fréttatilkynningu til fjölmiðla. Annar öflugur jarðskjálfti í E1 Salvador á einum mánuði: Hundruð látin og yfir 1000 slasaðir Að minnsta kosti 170 manns lét- ust og yfir þúsund manns slösuðust í öflugum jarðskjálfta sem reið yfir E1 Salvador í gær. Einn mánuður er síðan annar öflugur skjálfti gekk yf- ir svæðið en í honum létust 844. Skjálftinn í gær mældist 6,1 stig á Richterskvarða og telst til eftir- skjálfta af stóra skjálftanum 13. jan- úar síðastliðinn. Sá skjálfti mældist 7,7 á Richterskvarða. Verst úti varð borgin San Vicente sem er um 40 kílómetra frá höfuð- borg E1 Salvador, San Salvador. Hundruð húsa i borginni féllu sam- an í skjálftanum en mörg þeirra höfðu þegar látið á sjá síðan í fyrri skjálftanum. Mikil hræðsla greip um sig um allt land í kjölfar skjálft- ans og fólk vart búið að jafna sig eft- ir fyrri hörmungar. Skjálftans varð einnig vart í ná- grannaríkjunum, Gvatemala og Hondúras, og einnig í hluta Nikaragúa. Auk San Vicente varð tjónið verulegt í borgunum Los Chorrös, La Leona og Cojutepeque en þessar borgir eru allar í nokkrurra tuga kílómetra fjarlægð frá San Salvador. í San Salvador varð tjónið óverulegt. Skjálftinn fannst vel á mælum bandarísku Jarðvísindastofnunar- innar í Kóloradó í Bandaríkjunum en upptök hans mældust 24 kíló- metra suðaustur af San Salvador. Skjálftahrinan sjálf stóð í tuttugu sekúndur. Mikil umferð var á göt- um borga þegar skjálftinn reið yfir klukkan rúmlega átta að morgni að staðartíma. Eftir skjálftann þusti fólk út af vinnustöðum sínum og út á götur í mikilli geðshræringu. í Teg- ucigalpa, höfuðstað Hondúras, varð fólk gripið ofsahræðslu þegar jörðin tók að hristast. T)ón í Hondúras er þó ekki talið verulegt. Tilkynningar hafa borist um fólk sem er lokað inni í húsum sínum í San Miquel de Tepezontes og San Augustin sem eru rétt utan höfuð- borgar E1 Salvador. Þá var einnig tilkynnt um fólk sem er fast í rúst- um í San Cayetano, um 30 kílómetra austur af höfuðborginni. Tíu herþyrlur hafa verið sendar á staðinn til að rýma svæðið og bjarga slösuðum af jarðskjálftasvæðunum. Rauði krossinn hefur beðið fólk um að birgja sig af matvælum og vatni og bíða eftirskjálfta. Yfir Suðurskautslandið Ann Bancroft frá Bandaríkjunum og Liv Arnesen frá Noregi eru fyrstu konurnar sem komist hafa yf- ir Suðurskautslandið á skiðum. Tók ferð þeirra 90 daga. Sakað um nasistaaöstoð Gyðingar fullyrða að þýskt dótt- urfyrirtæki IBM hafði látið þýska ríkinu í té tækni sem það hefði átt að vita að auðveldaði ofsóknir gegn gyðingum. Fundur í Kaíró Utanríkisráð- herra Rússlands, Igor Ivanov, greindi í gær frá fýrirhug- uðum fundi sínum og bandarisks starfsbróður síns, Colins Powells, í Kaíró í Egyptalandi þann 24. febrúar. Meðal annars verður rætt um kólnað andrúmsloft milli Rússlands og Bandaríkjanna. Baráttumaður myrtur Ivan Villamizar, mannréttinda- frömuður og fyrrverandi umboðs- maður stjómarinnar í Kolumbíu, var skotinn til bana í Cucuta á mánudaginn. Ekki þvingaðir á eftirlaun Tony Blair, for- sætisráðherra Bret- lands, leggur til að Bretar fái að vinna eins lengi og þeir vilja. Ekki eigi að þvinga þá á eftir- laun við 65 ára ald- ur. Þetta fyrir- komulag ætti að verða mögulegt ár- ið 2006 nái Blair endurkjöri. Jarðskjálfti í Indónesíu Öílugur jarðskjálfti, 7,3 á Richter, reið yfir Indónesíu í gærkvöld. Skelflng greip um sig meðal íbúanna en engar fréttir hafa borist af manntjóni eða skemmdum. Sakar ríkið um fjöldamorð Fyrrverandi alsírskur liðsforingi, sem sakað hefur yfirvöld um fjöldamorð á óbreyttum borgurum, hvatt í gær ríkisstjómina til að láta alþjóðlega nefnd rannsaka striðið. Friðarverðlaun Kofi Annan, I framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, bandarískur morðingi og Falun Gong hreyfingin í Kína eru ásamt Rauða krossinum á lista yfir 126 aðila sem tilnefndir hafa verið til friðar- verðlauna Nóbels. Fjöldi tilnefninga kann að aukast því þær streyma enn inn til verðlaunanefndarinnar. Keisarasonur heim Reza Pahlavi, sonur íranskeisara, hyggst snúa aftur heim til írans. Föður Reza, Muhammed Reza Pa- hlavi, var steypt af stóli 1979. Fujimori ákærður Fyrrverandi forseti Perú, Alberto Fujimori, sem er í útlegð í Japan, verður ákærður fyrir vanrækslu í embætti að því er þingnefnd samþykkti í gær. Fujimori sendi afsagnarbeiðni frá hótelherbergi í Japan á síðasta ári. Tjón af völdum skjálftans Borgin San Vicente, skammt fyrir utan höfuöstaö El Salvador, San Salvador, varö einna verst úti í skjálftanum í gær. Skjálftinn, sem mældist 6,1 á Richterskvaröa, er annar skjálftinn á einum mánuöi sem genguryfir iandiö. Gagnrýnendur Bills Clintons, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, voru ekki lengi að taka við sér þegar fregnir bárust af því að hann hygð- ist taka á leigu skrifstofu á 56. hæð í Carnegie Hall Tower í New York á kostnað skattgreiðenda. En nú hef- ur forsetinn fyrrverandi hætt við lúxusskrifstofuna og valið sér aðra, ekki jafn íburðarmikla, í Harlem- hverfinu sem er hverfi blökku- manna. Skrifstofan er á 125. stræti sem er stærsta verslunargatan í hverfinu, að því er bandaríska blað- iö New York Times greinir frá. Blökkumenn í Harlem fognuðu ákaft ákvörðun Clintons og víst þykir að hann geti í framtíðinni áfram reitt sig á stuðning þeirra. Með þessari ákvörðun sinni þykir Bill Clinton Forsetinn fyrrverandi tók á leigu skrifstofu í blökkumannahverfi. Clinton hafa slegið tvær flugur í einu höggi því hann tekur jafnframt tillit til þeirra sem gagnrýndu þá áætlun hans um að taka á leigu rán- dýrt skrifstofuhúsnæði nálægt Camegie Hall. „Mér hefur alltaf liðið vel í Harlem," sagði Clinton á meðan hann ruddi sér braut i gegnum mannþröngina. „Áður en ég tók ákvörðun um að taka á leigu skrif- stofuna hér ræddi ég við öldunga- deildarþingmanninn minn frá New York. Hún var einnig hrifin," sagði Clinton sem auðvitað átti við eigin- konu sína, Hillary Rodham Clinton. í stað þess að borga 6,6 milljónir dollara í ársleigu fyrir skrifstofu Clintons þurfa skattgreiðendur nú bara að greiða 2 milljónir dollara. Bill Clinton fær skrifstofu í Harlem

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.