Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 DV 9 Fréttir Fornleifafundur frá landnámsöld: Hugsanlega fjórða byggingin - vitaö um staðsetningu þriggja skála „Þetta staðfestir það sem okkur grunaöi, að þarna væru leifar frá elstu tíð og þetta er skemmtilegt að því leyti að þetta gefur góðar vonir um að þarna séu einhverjar heillegar leifar," sagði Orri Vé- steinsson, einn þeirra sex forn- leifafræðinga sem vinna þessa dagana að uppgreftri í Aðalstræti í Reykjavik. Orri og starfsfélagar hans hafa uppgötvað minjar sem taldar eru vera frá landnámstíð. „Það eru skurðir þarna eftir undirstöður húsa frá 18. öld, sem voru grafnir niður á malarkamb- inn. Við sjáum í sniðunum sem þeir skurðir hafa farið í gegnum að þar eru torfveggjaleifar sem ör- ugglega eru mjög gamlar. Þær eru af svipaðri gerð og torfveggir frá elstu tíð sem hafa sést annars stað- ar á svæðinu við fyrri uppgröft. En á þessu stigi málsins vitum við ekkert annað um þetta,“ sagði Orri. Árbæjarsafn stendur fyrir upp- greftrinum og Fornleifastofnun ís- lands vinnur verkið, sem áætlaö er að standi fram á vor. Fornleifa- fræðingarnir eru þessa dagana að skoða 18. og 19. aldar leifar af Inn- réttingahúsum og munu skoöa eldri leifamar þegar vorar. Að sögn Orra virðist sem lítið hafi verið um mannabyggö á þess- um stað frá landnámsöld til 18. aldar. Vitað er að fyrsti Reykjavík- urbærinn stóö sunrlan við upp- gröftinn í Aðalstræti, eða á svipuð- um slóðum og herkastalinn er núna. Leifar þriggja skála eru þekktar, tveggja við Aðalstræti og eins við Suðurgötuna. „Það virðist eins og menn hafi dreift svolitið úr byggðinni þarna allra fyrst, við vitum um þrjá skála og þetta gæti hugsanlega verið fjórða byggingin. Siðan, af einhverjum ástæðum, heldur byggðin ekki áfram nema á einum Fornleifafræöingar aö störfum Viö rannsóknir á fornleifum í Aöalstrætinu í Reykjavík fundu fornteifafræöingar leifar af torfvegg sem talinn er vera frá landnámsöld. af þessum stöðum, það er að segja við Suðurgötuna, hvaða ástæður sem liggja fyrir því. Hugsanlega voru fleiri fjölskyldur á ferö fyrst eða þá að Ingólfur var bara svona stórtækur í byggingum. En kannski munum við finna eitthvað sem varpar ljósi á þetta,“ sagði Orri. -SMK Hvalf j arðargöng: 70 þúsund bílar um göngin í janúar - öryggismyndavélar í göngin meö vorinu DV. HVALFIRDI:____________________ Sjötíu þúsund bílar keyrðu í gegnum Hvalfjarðargöng i janúar á þessu ári á móti 60.000 bílum á sama tíma í fyrrra. Að sögn Stefáns Reyn- is Kristinssonar, framkvæmda- stjóra Spalar, er aðalástæðan fyrir þessari auknu umferð betra tíðarfar í janúar á þessu ári en í fyrra og hann segir jafnframt að umferðin það sem af er febrúar sé meiri en á sama tíma i fyrra af sömu ástæðum. Eins og komið hefur fram þá hef- ur stjórn Spalar ákveðið að endur- skoða gjaldskrá Hvalfjarðarganga og má búast við því að gjaldið hækki í vor m.a vegna gengistaps. Stefán Reynir segir að það sé verið að skoða málin en það sé ekkert frá- gengið. Unnið er að því að flnna hentug- ar öryggismyndavélar fyrir göngin, en þær kosta á bilinu 6-7 milljónir króna. „Ég get ekki sagt til um hvenær öryggismyndavélamar verða settar upp, þetta tekur lengri tíma en menn reiknuðu með, en maður vonar að þær verði komnar upp með vor- inu,“ sagði Stefán við DV. Ráðamenn Spalar hafa ákveðið að setja upp stálbita við munna gang- anna til að koma i veg fyrir að flutn- ingabílstjórar fari undir fjörðinn með of háan farm. Verið er að hanna bitana og þeim verður komið fyrir eftir fáeinar vikur. Áður en til þess kemur mun Spölur kynna mál- ið frekar á opinberum vettvangi svo allir sem stunda þungaflutninga undir Hvalfjörð viti hvað til stend- ur. Ástæður fyrir ákvörðun um stál- bitana eru ítrekuð brot flutningabíl- stjóra sem fara um göngin með mun hærri farma en heimilt er sam- kvæmt gildandi lögum og reglum. -DVÓ Sameignarfélagið Kirkju- braut 40 heldur aðalfund DV. AKRANESI:_________________ Missagt var í DV þann 12. febrúar í grein um deilu Verkalýðsfélags Akra- ness og tveggja stéttarfélaga að ekki hafi verið haldinn aðalfundur síðast- liðinn 10 ár hjá Sameignarfélaginu Kirkjubraut 40 og að bókhaldið væri óendm’skoðað fyrir sama tíma. Hið rétta er að aðalfundir hafa verið haldnir hjá Sameignarfélaginu Kirkju- braut 40 fyrir öll árin og það bókhald er allt endurskoðað og í góðu lagi, að- alfundur þess fyrir árið 2000 verður á fimmtudag. Hins vegar hafa ekki verið haldnir aðalfúndir hjá Sameignarfélag- inu Stéttarfélögin Vinnumiðlun Kirkjubraut 40 síðustu tíu ár og það bókhald er óendurskoðað og er beðist velvirðingar á þessum mistökum. -DVÓ Loðnufrysting fvrir Japan hafin DV, AKRANESl:________________________ A laugardagskvöld hófst frysting á loðnu fyrir Japansmarkað hjá Har- aldi Böðvarssyni hf. Japanar gera kröfu um að loðnan sé átulaus og hrognafylling í hrygnunni sé a.m.k. 15%. Loðnan sem Víkingur og Óli í Sandgerði lönduðu á laugardagskvöld og sunnudagsmorgun uppfyllti þessi skilyrði. Fryst var meðal annars í frystitogaranum Höfrungi III sem lá við bryggjuna á Akranesi. AIls voru fryst tæp 15 tonn þar, eða 1600 kassar af loðnu, fyrir Japansmarkað og voru um 52 til 55 stykki í kílóinu. 18 tíma tók að frysta þetta magn. í gærkvöldi var byrjað að kalda og nú er útlit fyr- ir brælu næstu 2 dagana. Víkingur og Óli í Sandgerði náðu þó afla í nótt og eru þeir væntanlegir i kvöld. Vonast er til að hægt verði að halda loðnu- frystingu áfram í kvöld. -DVÓ Bless bursti Nú á ég skilið að fá uppþvottavél AEG Favorit 4231 U-W verð 49.900 stgr AEG Favorit 60850 U-W Vinnur verk sín í hljóði Þetta er sú heitasta á markaðnum, turbo þurrkun með heitum blæstri og svo hljóðlát að þú hefur ekki hugmynd um að hún er gangi. Tekur 12 manna stell, býr yfir 6 þvottakerfum, er með 6 falt vatnsöryggi og svona mætti lengi telja - þetta er alvöruvél. Við vonumst til að geta óskað þér til hamingju með áfangann en bendum þér samt á að kveðja gamla uppþvottaburstann og -vettlingana með hæfilegri virðingu. Eyrarvegi 29, Selfossi B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.