Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Síða 2
2
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001
x>v
Fréttir
Hörkuátök vegna laga um að ýsa og steinbítur fari undir kvóta hjá smábátum:
LÍÚ hótar málsókn
- stjórnarþingmaður varar við að skilja smábátakerfið eftir sem rjúkandi rúst
Kristján Ragnarsson, stjómarfor-
maður Landssambands íslenskra út-
vegsmanna, hótar málsókn ef lög um
kvótasetningu á ýsu, steinbít og ufsa
verða ekki látin ganga í gildi í haust.
Einar Kristinn Guðfinnsson, formaður
sjávarútvegsnefndar Alþingis, segir
það boma von að meiri sátt náist um
fiskveiöistjómunarkerfið ef skilja eigi
smábátakerfið eftir sem rjúkandi rúst.
Stjómarþingmennimir Kristinn H.
Gunnarsson og Einar K. Guðfmnsson,
og aðrir þingmenn Vestfírðinga, hafa
tekið undir sjónarmið Bolvikinga og
smábátasjómanna í litlum byggðarlög-
um sem óttast hmn byggðanna ef
kvótasetningu á utankvótategundum
verður komið á í haust. Ljóst er að nú
stefnir í hörð átök um lögin sem
frestað var gildistöku á sl. haust.
Ekkert sem réttlætir frestun
„Það mun vonandi aldrei eiga sér
stað að lögin sem illu heilli var frestað
í haust öðlist ekki gildi. Það er ekkert
sem getur réttlætt það,“ sagði Kristján
Ragnarsson, stjómarformaður LtÚ, í
samtali við DV.
„Þeir sem fiskuðu 2 prósent áður en
kvótakerfið kom til em búnir að fá upp
undir fjórðung af þorskaflanum í sinn
Einar Kristinn
Guðfinnsson, for-
maður sjávarút-
vegsnefndar.
hlut. Þeir taka sífellt af öðrum, vegna
þess að fiskurinn sem þeim leyfist að
veiða kemur ekki af himnum heldur úr
sjónum. Þess vegna verður að gæta jafn-
ræðis meðal þegnanna um sambærileg-
an aðgang að fiskinum.
Það er sérkennilegt að menn séu að
sigla vestur á firði með nýja báta sem
þeir segjast gera i þeirri von og trú að
alþingismenn sjái til þess að þeir fái að
fiska frjálst. Á meðan hafa aðrir hend-
ur bundnar aftur á bak. Það getur ekki
gengið að einum leyfist það sem öðmm
er bannað. Það er aðfór að sjáifu fisk-
veiðistjómunarkerfinu að hafa þetta
opið með þessum hætti.“
- Áttu von á að lögin öðlist gildi?
„Annað hvarflar ekki að mér. Við
munum að sjáifsögðu láta reyna á það
ef það hvarflar að einhveijum að til
lengri tíma verði einum heimilað það
sem öðrum er bannað. Það gæti engin
jafnræðisregla réttlætt slíkt.“
i mál út af misræmi
- Með hvaða ráðum verður látið
reyna á þetta?
„Það hefur áður verið farið í mál út
af misræmi. Það segir sig sjálft að það
er ekki hægt að leyfa einhverjum sem
er á 5,9 tonna bát að gera það sem öðr-
um á 6-50 tonna bátum er bannað."
- Hvað segir þú þá um afstöðu Vest-
fjarðaþingmanna?
„Það er óþolandi að þingmenn ætli
að taka af einni byggð og færa til ann-
arrar í þessu formi. Það er algjörlega
óásættanlegt fyrir aðrar byggðir sem
þessir sömu þingmenn eru fulltrúar
fyrir,“ sagði Kristján Ragnarsson.
Náðu vopnum sínum
„Það er ljóst að smábátaútgerð hefur
komið í stað öflugrar togaraútgerðar
sem um tíma var á Vestfjörðum. Menn
hafa náð vopnum sínum með því að
byggja upp mjög öfluga smábátaútgerð
á grundvelli afar skynsamlegra laga
hvað snertir starfsumhverfi smábát-
anna,“ segir Einar Kristinn Guðfinns-
son alþingismaður.
Gjörtareytt staða
„í kjölfar dóms í svokölluðu Valdi-
marsmáli var það mat manna að óhjá-
kvæmilegt væri að kvótasetja allar teg-
undir, líka fyrir smábáta, til að verja
veiðirétt þeirra útgerða. Nú liggur
hins vegar fyrir álit sérfróðra aðila,
Skúla Magnússonar, dósents við laga-
deild Háskólans, og Sigurðar Líndals
prófessors, sem segir að hægt sé að
verja veiðirétt smábátaútgerðar án
þess að kvótabinda allar tegundir.
Þetta gjörbreytir að mínu mati stöðu
málsins og gerir okkur kleift að finna
lausn á málinu án þess að kvótasetja
allar tegundir eins og áður var fyrir-
hugað. Menn hafa þó ekki mikinn tíma
til stefnu."
- Telur þú að menn nái saman um
þessi mál fyrir haustið?
„Ég trúi ekki öðru. Ég tel að það sé
ekki slík ofurgjá á milli manna að
menn eigi ekki að geta fundið á þessu
skynsamlega niðurstöðu. Ég held að
það sé borin von að það skapist meiri
sátt um fiskveiðistjómunarkerfið ef
það á að skilja smábátakerfið eftir sem
rjúkandi rúst.“ -HKr.
Ragnarsson,
stjórnarformaöur
LÍÚ.
Deilan um það hvort yfirvinnubann átti sér stað eða ekki
Of snemmt aö ákveða sig
Jónína Bjartmarz,
þingmaður Fram-
sóknarflokksins,
sagðist í morgun
ekki vera búin að
gera upp við sig
hvort hún byði sig
fram sem varafor-
maður Framsóknar-
flokksins. „Dagurinn er rétt að byrja
og ég er á kafi í öðm, ég vil ekkert tjá
mig um það að svo stöddu en það gæti
þó farið svo að ég tilkynnti það seinna
í dag.“
Á rangrí leið
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA,
er ánægður með úrskurð kærunefndar
en þar var hnekkt úrskurði Samkeppn-
isráðs vegna samruna prentsmiöjanna
Odda og Gutenbergs. Hann segir að
ráðið hafi verið á rangri leið í áherslu
sinni á markaðsráðandi stöðu. - Vís-
ir.is greindi frá.
Rafmagn lækkar í Hafnarfiröi
Gjaldskrá Rafveitu Hafnarfjarðar
lækkaði um tíu prósent í gær vegna
fyrirhugaðs samruna Rafveitu Hafnar-
fjarðar og Hitaveitu Suðumesja. Þá á
að samræma gjaldskrámar að fullu á
haustdögum og þá megi búast við enn
frekari lækkunum.
Lögreglumenn reiðir
- trúverðugleiki þeirra dreginn opinberlega í efa
Mikill hiti er í lögreglumönnum
vegna yfirlýsinga dómsmálaráð-
herra og lögreglustjórans í
Reykjavík varöandi yfirvinnu-
bann. Landssamband lögreglu-
manna hélt neyðarfund f hádeg-
inu í gær þar sem það lýsti óá-
nægju sinni með það að trúverð-
ugleiki lögreglumanna hefur ver-
ið dreginn í efa í umræðunni um
þessi mál síðustu daga.
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra sagði f utandagskrárum-
ræöu um máliö á Alþingi á þriðju-
dag að yfirvinnubann hefði ekki
verið sett á fíkniefnadefld Reykja-
víkurlögreglunnar í sinni valdatíð
sem ráðherra. í fyrradag sendu
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík, og Ingimundur Einars-
son varalögreglustjóri frá sér yfir-
lýsingu þar sem segir: „Eins og ít-
rekað hefur komiö fram varð að
leggja ákveðnar takmarkanir við
yfirvinnu ávana- og flkniefnadeild-
ar, sem og annarra deilda embætt-
isins frá liðnu hausti til áramóta.
Yfirvinnubann hefur hins vegar
aldrei verið sett á ávana- og fíkni-
efnadeild.“
Orð þeirra stangast á við orð
formanns Landssambands lög-
reglumanna en hann hefur haldið
því fram í fjölmiðlum að yflr-
vinnubann hafi víst verið sett á og
að tugir manna séu vitni að því.
Á fundinum var stuðningur við
orð formannsins í fjölmiðlum ein-
róma samþykktur.
„Fundurinn itrekar stuðning
sinn við formann Landssambands
lögreglumanna og lýsir yfir undr-
un sinni á því að dómsmálaráð-
herra skuli ekki eftir alla þessa
umræðu hafa undir höndum réttar
upplýsingar varðandi máliö,“ stóð
í yfirlýsingunni sem samþykkt var
á fundinum.
Gils Jóhannsson, varaformaður
' Landssambands lögreglumanna,
sagði að þótt umræðan hefði snú-
ist fyrst og fremst um bága fjár-
hagsaðstöðu lögreglunnar i
Reykjavík, væri hún í raun þver-
skurður af fjármálum margra lög-
regluembætta landsins og vanmet-
inni fjárþörf embættanna. Máli
sínu til stuðnings vitnaði Gils í
grein sem birtist í DV í fyrradag
og fjallaði um að lögreglan í Borg-
amesi væri búin með yfirvinnu-
kvóta sinn fram á sumar vegna
átaks í umferöarmálum sem hún
hefur staðið í undanfarið.
ítarlega verður fjailað um yfir-
vinnudeiluna í fréttaljósi DV á
morgun. -SMK
Byggöastefna gagnrýnd
Stefna ríkisstjóm-
arinnar eða stefnu-
leysi i byggðamálum
var harðlega gagn-
rýnd í utandag-
skrárumræðu á þing-
inu í gær sem Jón
Bjamason, Vinstri-
grænum, var upp-
hafsmaður að og laut að stöðu almenn-
ingsþjónustu á landsbyggðinni. Tilefni
umræðunnar voru ekki síst áform ís-
landspósts um lokun tveggja pósthúsa
í Skagafirði.
Rekstri RÚV verði breytt
Ríkisútvarpið verður áffam í þjóðar-
eigu, það hættir að keppa á auglýsinga-
markaði, Rás 2 verður ekki seld og af-
notagjöld felld niður en RÚV rekið af
fjárlögum, samkvæmt tillögu Sverris
Hermannssonar, Frjálslynda flokkn-
um, til þingsályktunar sem lögð hefur
verið fram á Alþingi.
Vongóður um bætt kjör
Ólafur Ólafsson,
formaður félags eldri
borgara í Reykjavík
og nágrenni, er von-
góður um að rikis-
tjómin bæti kjör aldr-
aðra eftir fúnd sem fé-
lagið átti með henni í
gær. RÚV greindi frá.
Aldrei sama verö
Forstjórar símafyrirtækja efast um
að hægt sé að ná sama verði á gagna-
flutningum um land allt. Hjálmar
Ámason minnir á að jafnræði í verði
hafi verið eitt þeirra pólitísku skilyrða
sem menn settu fyrir að selja fyrirtæk-
ið í einu lagi. - Dagur greindi frá.
Ágreiningi eytt að miklu leyti
Jóhannes Gunnarsson, lækningafor-
stjóri Sjúkrahúss Reykjavíkur, segir
að stórum hluta ágreinings við lækna
vegna breytts skipulags í rekstri
sjúkrahússins hafi verið eytt. - Vísir.is
greindi frá.
Björgunarsveitir í eftirlit
Ráðherrum dóms-, sjávarútvegs- og
samgöngumála munu kanna kosti þess
að ríkisvaldið semji við björgunar-
sveitir landsins um aö þær sinni til-
teknum þáttum eftirlits á hafsvæðinu
við ísland undir stjóm Landhelgis-
gæslunnar, Fiskistofu og Siglingastofn-
unar, samkvæmt þingsályktun stjóm-
arflokkanna.
-HKr./Kip
Frá fundi lögreglunnar í gær
Húsfyllir var á fundi Landssambands lögreglumanna sem haldinn var í kjölfar deilu um það hvort yfirvinnubann heföi
raunverulega veriö sett á hjá fikniefnadeildinni í Reykjavík í fyrrahaust. Gils Jóhannsson, varaformaöur landssam-
bandsins og iögregiumaöur í Rangárvallasýslu, er á innfelldu myndinni. Fundarmenn lýstu einróma stuöningi
sínum viö orö formanns sambandsins.