Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Blaðsíða 25
29 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 I>V Tilvera DV-MYND HILMAR ÞÓR Komu frá Vigur og Amsterdam Guörún Anna Tómasdóttir píanóleikari, Ingunn Ósk Sturludóttir mezzósópran og Þórunn Ósk Marin- ósdóttir víóluleikari. Zodiac á tónleika Á morgun kl. 16 verða söng- tónleikar í tónleikasalnum Ými við Skógarhlíð. Flytjend- ur eru þær Ingunn Ósk Sturlu- dóttir mezzósópran, Guðrún Anna Tómasdóttir píanóleik- ari og Þórunn Ósk Marinós- dóttir víóluleikari. Á efn- iskránni eru spænskir ljóða- söngvar eftir E. Granados, þýsk þjóðlög eftir Brahms, ijóðasöngvar eftir Tsjajkov- skíj, sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns og gamansöngvar eftir Atla Heimi Sveinsson. Ingunn Ósk lauk 8. stigi frá Söngskólanum i Reykjavík áður en hún hélt utan til fram- haldsnáms í London og síðar við Sweelinck-tónlistarháskól- ann í Amsterdam þaðan sem hún lauk námi frá ijóða- og óp- erudeild árið 1992. Hún hefur víöa komið fram sem ein- söngvari og eru þetta fjórðu einsöngstónleikar hennar. Guðrún Anna Tómasdóttir tók burtfararpróf frá Tónlist- arskólanum í Reykjavík 1985, stundaði framhaldsnám í Lyon og við Sweelinck-tónlist- arháskólann í Amsterdam og lauk þaðan prófi 1992. Hún hefur haldið einleikstónleika og komið fram við ýmis tæki- færi hér heima og í Hollandi. Þórunn Ósk Marinósdóttir lauk prófi frá Konunglega tón- listarháskólanum í Brussel. Hún hefur komið fram sem einleikari bæði hér heima og eriendis en þó fyrst og fremst starfað með kammermúsík- hópum. Frá 1998 hefur Þórunn leikið með Sinfóníuhljómsveit íslands og Kammersveit Reykjavíkur. Koma langt að Þórunn Ósk er sú eina þre- menninganna sem á heima í Reykjavík. Ingunn Ósk er bú- sett í Vigur á ísafjarðardjúpi og Guðrún Anna á heima í Amsterdam. Blaðamanni lék því forvitni á að vita hvers vegna þær héldu saman tón- leika. Blaðamaður hitti þær Ing- unni Ósk og Guðrúnu Önnu að máli fyrir æfingu í gær. „Ég hugsaði með mér að ég væri hvort sem er svo langt frá mönnum að það væri eins gott að fá Guðrúnu til að spila með mér eins og hvern ann- an,“ segir Ingunn enda hafa þær leikið áður saman á tón- leikum. Eftir nokkrar vangaveltur komust þær stöllur að því að Ingunn væri líklega lengur að komast til Reykjavíkur frá Vigur en Guðrún frá Amster- dam. „Ég þarf að byrja að róa,“ segir Ingunn og hlær. En án gríns þá eiga þau litla trillu í Vigur og Zodiac-tuðru og not- ar Ingunn sér þessi farartæki að minnsta kosti á sumrin. „Á veturna nota ég nú póstferð- irnar,“ segir Ingunn en fastar ferðir eru í Vigur tvisvar í viku. Undirbúningur hefur staðiö lengi Ingunn er mikið borgar- bam og hafði varla í sveit komið áður en hún fluttist vestur í Vigur. Guðrún Anna segir þó af henni miklar sveitahúsmóðursögur og Ing- unn bara hlær. „Ég bakaði kannski köku á fimm ára fresti áður en ég settist að í sveit þannig að mestu áhyggj- ur bónda míns af flutningum mínum vestur voru að ég kynni kannski ekki að baka.“ Guðrún Anna starfar sem píanókennari í Amsterdam og leikur einnig á tónleikum eftir því sem við verður komið. Hún tekur undir þegar Ingunn segir að hún hafi gott af því að koma reglulega heim til ís- lands og minnir Ingunni á að henni hafi ekki heldur þótt slæmt að koma út til Amster- dam að æfa. „Við byrjuðum að undirbúa þessa tónleika fyrir rúmu ári. Þeir áttu nefnilega að vera í fyrra en við frestuðum þeim bæði vegna þess að ég átti von á barni og vegna andláts Snjó- laugar systur minnar. Ég ákvað svo með samþykki hinna að fá að tileinka þessa tónleika minningu hennar." Valið á efnisskránni fór fram í samvinnu tónlistar- kvennanna. Þær segjast hafa lagt í púkk og svo valið og hafnað. Þarf aga til að halda sér við Það er ekki erfitt að ímynda sér hvernig er að vera píanó- leikari í Amsterdam eða víólu- leikari í Reykjavík. Hitt er erf- iðara að ímynda sér líf söng- konu á sveitabýli í eyju. „Mað- ur þarf að beita sig alveg rosa- legum aga til að halda sér í formi en það er hægt ef maður vill það nógu mikið,“ segir Ingunn Ósk en hún segist halda sér við með því að sækja söngtíma á hverju ári. Ingunn kenndi á ísafirði í tvö ár áður en hún eignaðist börnin sín sem enn eru lítil. Hún segist vonast til að geta tekið upp þráðinn í kennsl- unni eftir nokkur ár þegar börnin eru komin svolítið á legg. Auk þess syngur hún við ýmis tækifæri á ísafirði." Nú hefur Þórunn Ósk bæst í hópinn, sú eina þremenning- anna sem búsett er í Reykja- vík. „Þess vegna mæti ég alltaf síðust á æfmgarnar," segir hún og blæs enn af hlaupun- um. Þremenningunum er ekk- ert að vanbúnaði að heíja æf- inguna og því ekki ástæða fyr- ir blaðamann að tefja lengur. Ekki leið á löngu áður en tón- listin ómaði um alla ganga í Ými. -ss Enn léttist Hallur - spikinu skipt út fyrir vöðva Hallur Guðmundsson heldur áfram baráttu sinni við aukakílóin. Þegar hann byrjaði í megr- uninni í lok janúar var hann 136 kíló. Hallur sagði í upphafi að hann ætlaði ekki að gera sér of miklar vonir um skjótan árangur en grennast hægt og örugglega. Eins og sjá má af meðfylgjandi grafí hefur hann lést um 6,5 kíló síðasta mánuðinn og verð- ur þaö að teljast góður árangur. Fyrstu vikuna léttist Hallur um fjögur kíló enda missa menn mikinn vökva í upphafi svona átaks. Eftir það hefur hann lést minna sem eðlilegt er þar sem vöðvamassi hefur komið í staðinn fyrir fituna. í dagbók, sem hann heldur á Netinu og er að finna á slóðinni www.mikkivefur.is/hallur, segir Hallur á einum stað að hann sé farinn aö fara á handahlaupum upp alla stiga. „Nei, ég er ekkert að verða vitlaus, ég er bara svolítið skrýtinn. Ég finn fyrir því að allir stigar sem ég fer eru auö- veldari en áður og mér líður alveg prýðilega lík- amlega. Ég held að ég sé að losna við slenið og að komast i góðan gír.“ Þaö verður spennandi að fylgjast með Halli næstu vikumar og vita hvort honum tekst að sigrast á aukakílóunum og standast freistingam- ar sem bíða hans alls staðar. -Kip exxxotica www.exxx.is GERUM GOTT KYNLÍF BETRA! LANDSINS MESTA ÚRVAL AF UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLÍFSINS Barónsstíg 27 - S: 562 7400 Þyngd Halls fyrsta mánuðinn 133 130 kg Og enn léttlst Hallur RÆSIR HF NotaSur bfll Til sýnis hjá Bíiahöllinni hf., Bíldshöfða 5. Til sölu Chrysler Stratus LX V6 2,5, árg. 1995, nýskr. 8/96. Sjálfsk. rafdr. rúður, fjarst. samlæsingar, hraðastillir, loftkæling, álfelgur, sumar/vetrardekk o.fl. Innfl. nýr af umboði, einn eigandi, ekinn aðeins 62.000 km. Glæsilegur bíll. Verð kr.1.090.000. www.raesir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.