Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Blaðsíða 10
10 Útlönd FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001 I>V Fini og Berlusconi Utanríkisráöherra Belgíu vill refsa ítal- íu vegna mögulegrar stjórnar þeirra. ítalir æfir vegna hótana um refsi- aðgerðir Belgíu Italir brugðust í gær reiðir við hótunum utanríkisráðherra Belgíu, Louis Michels, um refsiaðgerðir. Ráðherrann sagði í viðtali að hann vildi beita Ítalíu sams konar refsiað- gerðum og Austurríki myndi hægri mennirnir Silvio Berlusconi, Um- berto Bossi og Gianfranco Fini stjórn eftir kosningarnar í maí næstkomandi. Á fundi utanríkisráð- herra NATO i Brussel á þriöjudag- inn kallaði belgíski utanríkisráð- herrann Fini fasista. Romano Prodi, forseti fram- kvæmdastjóri Evrópusambandsins, kvaðst í viðtali við ítalskt dagblað vera mótfallinn refsiaðgerðum gegn heimalandi sínu. Sagði hann rangt að ræða refsiaðgerðir gegn stjórn sem enn hefði ekki verið kosin. Utanríkisráðherra Ítalíu, Lamb- erto Dini, segir alla flokka á ítalska þinginu vera lýðræðisflokka. Leiðir krabba- meins um líkam- ann uppgötvaðar Bandarískir vísindamenn hafa ráðið fram úr því hvernig brjóstakrabbamein getur borist í lungu og beinmerg. Talið er að þetta geti leitt til nýrra aðferða við með- ferð á krabbameini. Það hefur lengi verið vísinda- mönnum ráðgáta hvers vegna krabbameinsfrumur velja ákveðin líffæri til að mynda meinvörp og hvemig eigi að stöðva þetta ferli, sem er helsta dánarorsök krabba- meinssjúklinga. Vísindamenn segja að svarið sé að flnna í ákveðnum mólekúlum sem flytja boð á milli frumna. Ef mólekúlum þessum fjölgar í ákveðn- um vefjum laðar það að fleiri krabbameinsfrumur. Shimon Peres Gamli refurínn sest aftur í stól utan- ríkisráöherra ísraels. Peres staðfestur utanríkisráðherra Til stendur að Verkamannaflokk- urinn i ísrael staöfesti Shimon Per- es í embætti utanríkisráðherra landsins í dag. Peres mun taka sæti í þjóðstjóm hægrimannsins Ariels Sharons sem hefur heitið því að koma á friði. Verkamannaflokkurinn mun skipa menn í átta ráðherraembætti í væntanlegri stjórn Sharons. Peres sagðist ekki trúa öðru en Sharon myndi leggja sig allan fram um að semja frið við Palestínumenn. Tony Blair, forsætisráöherra Bretlands: Vill breytingar í landbúnaðinum Á sama tíma og gin- og klaufa- veikifaraldurinn heldur áfram að breiðast út um Bretlandseyjar, hef- ur Tony Blair forsætisráðherra sleg- ist í hóp þeirra sem krefjast rót- tækra breytinga á breskum land- búnaði. Á fundi með bændum og búfræði- nemum í Gloucesterskíri í gær lýsti Blair því yfir að um leið og komist yrði fyrir faraldurinn nú yrði nauð- synlegt að hefja umræður um land- búnað framtíðarinnar. „Ég tel að við þurfum að setjast niður með fulltrúum iðnaðarins og huga að undirstöðu sjálfbærs land- búnaðar þegar til lengri tíma er lit- ið,“ sagði Blair. Með orðum sínum tók breski for- sætisráðherrann undir með mörg- um sérfræðingum sem telja að krafa neytenda um ódýrar afurðir þvingi bændur til að nota aöferðir sem leiða til mikiliar uppskeru. Farþegar sótthreinsaöir Flugfarþegar frá Bretlandi þurfa aö sótthreinsa skó stna viö komuna til Lissabon vegna gin- og kiaufaveiki. Gin- og klaufaveikin hefur nú borist frá Englandi og Wales til Skotlands og Norður-Irlands. Önnur ríki í Evrópu hafa hert mjög allar varúðarráðstafanir og er mikið kapp lagt á að sótthreinsa alla ferða- langa og bila sem koma frá Bret- landi til meginlandsins. Stjórnvöld í trska lýðveldinu ákváðu í gær að herðá mjög allt eft- irlit við landamæri sín til að reyna að koma í veg fyrir að sjúkdómur- inn berist þangað. Lögreglan á Norður-írlandi hefur handtekið mann i tengslum við rannsókn á fregnum um að sauðfé sem kom frá Englandi og átti að slátra strax hefði i staðinn verið sent í sláturhús handan landamær- anna, í írska lýðveldinu. Gin- og klaufaveikitilfellið í Norð- ur-írlandi fannst í sýslu við landa- mærin. Heimsmeistarinn í flugferö Michael Schumacher velti Ferrari-bíl sínum tvær og hálfa veltu á fyrstu æfingum formúlunnar í Melbourne í nótt. Meistarinn endaöi á dekkjavegg en slagp ómeiddur frá óhappinu og náöi þriöja besta tíma morgunsins. Fundað um stjórnarkreppuna í Færeyjum: Mótmælafundur gegn lög- manni boðaður á morgun Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær- eyja, var of þreyttur þegar hann kom heim í gærkvöld til að halda fund um ósættið innan stjórnar hans um sjálfstæðismálin. Lögmað- ur mun ræða málið við félaga sína i stjórninni í dag. Færeyska landstjómin er að falli komin vegna frumvarps Hogna Hoydals, varalögmanns og ráðherra sjálfstæðismála, um að halda þjóð- aratkvæðagreiðslu um sjálfstæði eyjanna árið 2012. TO stóð að greidd yrðu atkvæði um áætlun stjórnar- innar þann 26. maí næstkomandi en Kallsberg aflýsti þeirri þjóðarat- kvæðagreiðslu þar sem allt benti til að stjómarflokkarnir myndu tapa. KaUsberg ítrekaði í gær, að sögn danska blaðsins Politiken, að land- Anfinn Kallsberg Lögmaöur Færeyja tekur væntanlega á stjórnarkreppunni í dag. stjórnin stæði ekki á bak við tillög- una en það varð ekki til þess að Hogni Hoydal drægi hana tU baka. Færeyingar halda því niðri í sér andanum og bíða frekari fregna af einvígi lögmanns og varalögmanns. Óli Breckmann, samflokksmaður Kallsbergs sem situr á danska þing- inu, sagði í gær að tillöguflutningur Hogna og Þjóðveldisflokksmanna væri hrein ögrun. „Ef þeir draga til- löguna ekki til baka, sé ég ekki neinar líkur á því að landstjómin geti starfað áfram,“ sagði Breck- mann við Politiken. Stuöningsmenn sjálfstæðis Fær- eyja hafa boðað tU mótmælaaðgerða gegn Kallsberg lögmanni í Þórshöfn á morgun, laugardag. Mótmælendur eru hlynntir Þjóðveldisflokknum. Arangur af árásum Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkj- anna, sagði banda- ríska og breska flugmenn öruggari eftir loftárásimar á írak í síðasta mán- uði. Menn vissu nú hvers vegna flugskeytin hefðu lent 40 tU 50 metra frá skotmörkunum. Sagði ráðherrann að slíkt myndi ekki gerast aftur. Meintir njósnarar gripnir Tveir Irakar hafa verið handtekn- ir í Þýskalandi vegna gruns um njósnir. írösk yfirvöld senda njósn- ara utan til að kanna andstöðuna gegn Saddam Hussein forseta meðal íraka. Nei við ESB-umsókn Samkvæmt skoðanakönnunum munu 55 til 60 prósent Svisslend- inga greiða atkvæði á sunnudaginn gegn umsókn um aðild að Evrópu- sambandinu. Tugir þúsunda á flótta Allt að 90 þúsund manns eru nú á flótta undan flóðunum í Mósambík. Yfir 15 þúsund skortir mat og lyf, að því er fulltrúar Rauða krossins greina frá. Falun Gong-félagar teknir 37 félagar í Falun Gong-hreyfing- unni í Kína voru handteknir á þriðjudaginn. Kútsjma varaður við Nokkrum klukkustundum eft- ir að lögregla lét til skarar skríða gegn andstæðingum Kút- sjma Úkraínufor- seta i gær vöruðu bandarísk yfirvöld hann við. Sögðu Bandaríkjamenn hann verða að framfylgja lögum og fylgja eftir lýð- ræðisumbótum til að missa ekki fjárhagsstuðning þeirra. Viðræður um kreppu Tyrkneskur yfirmaður Alþjóða- bankans flaug til Ankara í gær. Vonast er til að viðræður hans og ráðamanna stuðli að lausn efna- hagskreppunnar í landinu. Gripinn vegna mútuþægni Háttsettur félagi i stjórnarflokknum í Japan var í gær handtekinn vegna gruns um að hafa þegiö mútur frá tryggingafélagi. Er handtakan enn eitt áfallið fyrir Yoshiro Mori forsætisráöherra sem hvattur hefur verið til að segja af sér. Stjómarandstaðan hótar nú að leggja fram vantrauststillögu gegn stjórn Moris. Vill bandaríki Afríku Gaddafi Líbýuleiðtogi mun á tveggja daga ráðstefnu Afríkuleið- toga kynna á ný tillögu sina um stofnun bandaríkja Afríku. Gíslum sieppt Sjö erlendum starfsmönnum olíu- vinnslustöðva, sem verið höfðu gísl- ar uppreisnarmanna í Ekvador frá því í október síðastliðnum, var sleppt í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.