Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Blaðsíða 7
FÓSTUDAGUR 2. MARS 2001 DV Fréttir 7 Geysileg loönuveiði undanfarna daga í Faxaflóa: I kapphlaupi við verkfallsdrauginn Geysileg loðnuveiði hefur verið undanfarna daga í Faxaflóa og útlit- ið er gott hvaö varðar veður næstu daga samkvæmt langtímaspá Veður- stofunnar. Það sem kemur í veg fyr- ir enn meiri veiði er einungis það að verksmiðjumar og vinnslurnar á suðvesturhominu hafa ekki undan og því er mikið um það að skipin þurfi að sigla með aflann austur fyr- ir land og fara hátt í tveir sólar- hringar í ferðirnar þangað fram og til baka. Það tekur hins vegar yfir- leitt ekki nema nokkrar klukku- stundir að fylla skipin á miðunum. Flotinn er nú í kapphlaupi við tímann og verkfallsdrauginn því sjómannaverkfall voflr yflr 15. mars. Ljóst er að ekki tekst að ná kvótanum fyrir þann tíma, og þá styttist í að loðnan í göngunni sem veitt er úr í Faxaflóa fari til hrygn- ingar og drepist að þvi loknu. Þá er óvissa varðandi „austurgönguna" svokölluðu sem ekki hefur fundist í veiðanlegu ástandi lengi. Menn leggja nú ofurkapp á að ná sem mestum afla á sem skemmstum tíma. Veiðin undanfarna viku er komin yflr 100 þúsund tonn sem er metveiði á einni viku. Heildaraflinn frá áramótum var í gær 331 þúsund tonn og heildaraflinn á vertíðinni 457 þúsund tonn. Þá voru eftirstöðv- ar kvótans um 360 þúsund tonn. Hjálmar bjartsýnn Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð- ingur Hafrannsóknastofnunar, sagði í samtali við DV í gær að loðnugangan sem veitt var úr út af Austurlandi í janúar og fyrstu daga febrúar hljóti að fara að skila sér, en hún hefur ekki fundist í veiðan- legu ástandi undanfarnar vikur. „Ég get ekki ímyndað mér annað en þessi ganga fari að skila sér upp að landinu og hægt verði að fara að Löndun Víkingur AK aflahæsta skipið á vertíðinni. DV-MYND GVA Mjöliö í tankana Mikil verðmæti eru í loðnumjölinu. Hér má sjá tanka Faxamjöls hf. í Reykjavík sem óðum safnast í. Verði verkfall mun það stórskaða hagsmuni bræðslunnar. veiða úr henni, og það verður spennandi að sjá hvað gerist og hvemig ástand hennar verður, t.d. varðandi hrognafyllingu," sagði Hjálmar. Hann segir að loðnan sem var fyrir Austurlandi hafl verið þar í miklu magni og talsvert á eftir loðnunni vestur af landinu varð- andi kynþroska. Það á þvi að vera hægt að veiða mun lengur úr þeirri göngu, fmnist hún í tíma og ekki komi til verkfallsins 15. mars. Víkingur aflahæstur Víkingur AK frá Akranesi er afla- hæsta skipið á vertiðinni, var kom- inn með 26.306 tonn samkvæmt upp- lýsingum Samtaka fiskvinnslustööva í gærmorgun. í næstu sætum yfir aflahæstu skipin voru Örn KE með 23.724 tonn, Sigurður VE 21.775 tonn, Hólmaborg SU 20.734 tonn, Óli í Sandgerði AK 16.826 tonn, Júpiter ÞH 15.894 tonn, Börkur NK 15.800 tonn og Grindvíkingur GK 15.418 tonn. Mestu hafði verið landað á Eski- firði eða 42.8847 tonnum en næstu löndunarstaðir í röðinni eru Nes- kaupstaður 37.569 tonn, Vestmanna- eyjar 35.615 tonn, Grindavík 28.894 tonn, Akranes 26.084 tonn og Þórs- höfn 26.528 tonn. -gk Þjónustuver samgöngumála í Ólafsvík: Störfum fjölgar DV-MYND PÉTUR S. JÓHANNSSON Fjölga störfum í Snæfellsbæ Frá undirritun samningsins, frá vinstri eru Þorgeir Pálsson flugmálastjóri, Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra, Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ, Helgi Hall- grímsson vegamálastjóri og Hermann Guðjónsson, forstjóri Siglingastofnunarinnar. Þjónustusamningur milli samgönguráðuneytisins, Vegagerðarinnar, Flugmála- stjórnar íslands, Siglinga- stofnunar íslands og Snæ- fellsbæjar um rekstur þjón- ustuvers samgöngmnála fyr- ir Snæfellsbæ og Snæfelis- nes var undirritaður á þriðjudag í Ólafsvik. Upphafið að rekstri þessa þjónustuvers er að í septem- ber 1999 sendi Sturla Böðv- arsson samgönguráðherra bréf til undirstofnana ráðu- neytisins. í þvi kom fram sú skýra stefna hans að leita skyldi leiða til að flytja störf út á landsbyggðina. í þessu bréfi sagði m.a. „að búsetu- þróun hafi verið landsbyggð- inni óhagstæð hin síðari ár og ástæður væru margvís- legar. Talið er að fjölgun atvinnu- tækifæra á vegum opinberra aðila á höfuðborgarsvæðinu eigi sinn þátt í þessari óæskilegu þróun. í stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarinnar er kveð- ið á um að beita sér fyrir því að undirstöður byggðar verði treystar. Liður í þvi er að auka fjölbreytni í atvinnutækifærum á landsbyggð- inni og þar með að staðsetja stofn- anir utan höfuðborgarsvæðisins eft- ir því sem unnt er,“ eins og segir í bréfi ráðherra. Tilgangur samstarfs þessa er að þróa starfsaðferðir til að bæta þjón- ustu samningsaðila á svæðinu, samnýta tækjakost og starfskrafta eins og unnt er og tryggja öryggi þjónustunnar. Starfsemin verður í húsnæði Vegagerðarinnar í Ólafsvík og verður með sérstaka kennitölu. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra flutti ávarp af þessu tilefni og sagði frá undirbúningi að þessu verkefni sem hann sagði að væri til- raun til tveggja ára við Snæfellsbæ. Hann lýsti ánægju sinni með það frumkvæði sem heimamenn hefðu sýnt í þessu máli. Þetta væri ný leið til að efla og bæta þjónustustigið hjá þessum stofnunum og bæjarfélaginu og þetta myndi styrkja þær i sessi. Þá sagði ráðherra einnig frá því að fleiri hugmyndir væru í bígerð í þessum málum. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfelisbæ, sagðist vera afar ánægður með þetta verkefni. Hann sagði að ráðinn yrði forstöðumaður fyrir verkefnið sem hefði yfirum- sjón með starfseminni og hann yrði ábyrgur fyrir þvi að framfylgja þvi þjónustustigi sem skilgreint verður og beri fjárhagslega ábyrgö gagn- vart samningsaðilum. Kristinn sagði enn fremur að starfsmenn þeirra stofnana sem taka þátt í verkefninu yrðu áfram starfsmenn viðkomandi stofnana, fyrst um sinn a.m.k. I stjóm þjónustuversins verða þrír menn, frá samgönguráðuneyti, Vegagerðinni og einn frá Snæfells- bæ. -PSJ. T boð í febrúar og mars Lotus veisluservéttur 40x40 cm 150 stk. í pakka, 13 litir. Lotus TexStyle pappírsdúkar 50 metrar, 8 litir. '4 ||M>j Lowboy kerti í qleri, 70 klst. brennsíutími, 6 litir. Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík • Slmi 520 6666 • Bréfasfmi 520 6665 • sala@rv.is __________________________________ v7 ff.í-i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.