Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Blaðsíða 8
8
Viðskipti__________
Umsjön: Vidskiptablaðiö
Hagnaður
lands 520
Eimskipafélags ís-
milljónir eftir skatt
samanborið við 1426 milljónir árið áður
Hagnaður Hf. Eimskipafélags ís-
lands og dótturfélaga eftir reiknað-
an tekjuskatt nam 520 milljónum
króna árið 2000 samanborið við
1.436 milljónir króna árið 1999.
Hagnaður fyrir reiknaðan tekju-
skatt er aftur á móti 176 milljónir
króna. Reiknaður tekjuskattur er
færður til tekna í rekstrarreikningi
og til lækkunar á tekjuskattsskuld-
bindingu félagsins. Ástæður þess að
verulegur munur er á rekstrarlegri
niöurstöðu samkvæmt rekstrar-
reikningi annars vegar og skatta-
legri niðurstöðu hins vegar eru
einkum þær að samstæðan greiðir
ekki tekjuskatt af mótteknum arði
frá öðrum félögum og vegna mis-
munandi skattalegrar stöðu dóttur-
félaga, en í samstæðureikningnum
eru ársreikningar 44 dóttur- og dótt-
urdótturfélaga. Arðsemi eigin fjár á
árinu 2000 var 6%.
Rekstrarhagnaður án fjármuna-
tekna og gjalda var 827 milljónir
króna, samanborið við 975 milljónir
króna árið 1999. Fjármagnsgjöld
samstæðunnar árið 2000 voru 651
milljón króna, en fjármagnsliðir
voru jákvæðir um 799 milljónir
króna árið 1999. Skrifstofu- og
stjórnunarkostnaður á árinu var
1.517 milljónir króna og hefur hann
nánast staðið í stað frá fyrra ári en
þá var sá kostnaður 1.493 milljónir.
Gengistap samstæðunnar nam 1.530
milljónum króna sem er veruleg
breyting frá fyrra ári en þá varð 261
milljónar króna gengishagnaður af
samstæðunni. íslenska krónan
veiktist verulega á árinu 2000 eða
um 10%. Langtímaskuldir samstæð-
unnar eru nær allar í erlendum
myntum og er gengismunur sam-
stæðunnar kominn til vegna veik-
ingar krónunnar.
Afkoma Eimskips af flutninga-
starfsemi var óviðunandi á árinu
2000 og mun lakari en áætlað var í
upphafi árs. Lakari afkomu af flutn-
ingastarfsemi má rekja til þess að
verðsamkeppni var mjög hörð á
flutningamarkaðinum sem hafði
áhrif á tekjur félagsins, bæði i sjó-
flutningum og landflutningum.
Einnig urðu kostnaðarhækkanir
meiri en ráð var fyrir gert og má þá
einkum nefna hækkun olíuverðs.
Rekstrarleg afkoma af fjár-
festingarstarfsemi góð
Rekstrarleg afkoma af fjárfesting-
arstarfsemi var góð vegna umtals-
verðs söluhagnaðar hlutabréfa á ár-
inu, en á móti kom veruleg lækkun á
gengi hlutabréfa og þar með lækkun
á verðmæti eigna Burðaráss. Þessi
lækkun, sem nam 4.275 milljónum
króna á síðasta ári, er ekki færð tU
gjalda í rekstrarreikningi félagsins
fremur en 5.637 milljóna króna
hækkun til tekna árið á undan.
Söluhagnaður af hlutabréfum nam
777 milljónum króna, samanborið
við 188 milljónir króna árið 1999. Á
árinu var fjárfest í Skagstrendingi
fyrir 507 milljónir króna. í upphafi
ársins keyptu Skagstrendingur og
Burðarás í sameiningu meirihluta í
Nasco ehf. sem hafði um árabU sér-
hæft sig í rækjuveiðum í úthöfum,
aðallega á Flæmska hattinum, og
sölu á eigin afurðum. Forsendur fyr-
ir útgerð af þessu tagi brugðust á ár-
inu og var Nasco tekið tU gjaldþrota-
skipta. Nam tap Burðaráss vegna
gjaldþrotsins um 158 milljónum
króna sem fært hefur verið til gjalda
í ársreikningi félagsins.
Packard Bell
7800a rw
Kraftmikil
heimilisvél
159.900
verö
Þriggja mánaða Internetaðgangur hjá SlMINN-INTERNET
Veglegur hugbúnaðarpakki fylgir
uppsettur á öllum Packard Bell tölvum
v^t Packard Bell
fartölva
verö 3.900
Örgjörvi AMD-K6-550
Minni std/max 64M8/256MB
Flýtiminni 128kB
Hardur Diskur 6 GB
Rafhlaða Lithium I0N
Þyngd 2,9kg
Skjákort Á móðurborði
Skjáminni 4 MB Shared Video Memory
Skjár 13,3-TFT
CDdrif 24x
Faxmódem 56k. - V.90 Data Fax
Tengi 2 x USB
PCMCIA 2
Ábyrgð:
Vélbúnaður 1 ár
Símaaðstoð, v/hugbún. Bmán
Símaaðstod, v/vélbún. 1 ár
HBHHHHi
..——Bi
Örgjörvi AMDK7800
Móðurborð - Kubbasett Athena-AMD 750
Minni std/max 128/512
Flýtiminni 512
Harður Diskur 15 GB
Skjákort TNTII
Kubbasett TNT
Skjáminni 32 Mb
Skjár 17’
CD-Rom 48 x/DVD 10x/CDRW 8x
3d-Hljóð já
Fjöldi radda 320
Faxmódem 56k. - V.90 Fax
Netkort nei
Ábyrgð: Vélbúnaður 1 ár
Símaaðstoð, v/hugbún 3mán
Simaaðstoð, v/vélbún 1 ár
Aðrar gerðir Packard Bell eru:
iConnect, verð frá kr. 116.900 - iXtreme verð kr. 184.900
j Fartölvur: EasyNote 6012, kr. 199.500 - EasyNote 6014, kr. 249.000
Næg
bílastæði
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
Hagnaður
Pharmaco eftir
skatta 900
milljónir króna
Hagnaður fyrir skatta var um
1.500 mihjónir en um 900 miUjónir
eftir skatta og að teknu tiUiti tU
hlutdeildar minnihluta í afkomu
félagsins. Hagnaður samstæðu
Pharmaco hf. árið 2000 nam 893
mUljónum króna eftir skatta. Þetta
er nær þrefoldun hagnaðar frá
fyrra ári sem var þá 331 mUljón
kóna. Hagnaður samstæðunnar
fyrir skatta og minnihluta var
1.497 mUljónir króna og EBIDTA
1.990 miUjónir króna. Spá verð-
bréfafyrirtækjanna í Viðskipta-
blaðinu gerði ráð fyrir 1299 miUj-
óna hagnaði (EBIDTA) og er þetta
því framar vonum. Rekstrartekjur
samstæðunnar námu 11.002 miUj-
ónum króna miðað við 3.605 mUlj-
ónir árið áður sem er ríílega þre-
földun. Eigið fé samstæðunnar var
í árslok 4.822 mUljónir króna. Árs-
reikningurinn inniheldur heUdar-
starfemi Pharmaco og Balkan-
pharma fyrir árið 2000. Reiknings-
skUaaðferðir hafa veriö lagaðar lít-
Ulega að breyttum rekstri sam-
stæðunnar eftir samruna
Pharmaco og Balkanpharma
seinni part ársins 2000.
Miklar breytingar urðu á starf-
semi Pharmaco við samruna fyrir-
tækisins og búlgarska hlutdeildar-
fyrirtækisins Balkanpharma á ár-
inu. Vegna þess samruna var
hlutafé aukið um 170% og var það
í árslok rúmar 422 miUjónir króna.
Eftir þessa breytingu er uppistað-
an í rekstri fyrirtækisins lyfja-
framleiðsla og sala um allan heim,
en mest þó í Mið- og Austur-Evr-
ópu. Velta fyrirtækisins á Islandi
var rúm 30% af heUdarveltu fyrir-
tækisins árið 2000. Starfsmenn í
árslok voru 4.600, þar af 150 á ís-
landi.
Áætlanir félagsins fyrir árið
2001 gera ráð fyrir um 13.000 mUlj-
óna króna veltu og um 1.300 miUj-
óna króna hagnaði eftir skatt.
Gengi hlutabréfa félagsins í árs-
lok var 37,7 og markaðsverðmæti
þess því um 15,7 miUjarðar króna.
Gengi hlutabréfa Pharmaco hækk-
aði mest allra skráðra hlutafélaga
á Verðbréfaþingi íslands á árinu,
eða um 93% á mUli ára.
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001
I>V
IVa':!iUr:Tiyi?l,Td!.lIrl371_________
HEILDARVIÐSKIPTI 3300 m.kr.
: - Hlutabréf 480 m.kr.
- Húsbréf 1120 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
; íslenskir aðalverktakar 150 m.kr.
0 Frjálsi fjárfestingarb. 84 m.kr.
© Baugur 52 m.kr.
MESTA HÆKKUN
o MP-Bio 5,7%
QÖssur 3,7%
o Flugleiðir 2,5%
MESTA LÆKKUN
©ís,enski hugbúnaðarsj. 5,9%
O Opin kerfi 5,6%
©Delta 3,7%
ÚRVALSVÍSITALAN 1216 stig
- Breyting O 0,4 %
Lítill hagvöxtur á
fjórða ársfjórð-
ungi í Þýskalandi
Það dró úr hagvexti í Þýskalandi
á fjórða ársfjórðungi síðasta árs en
væntingar höföu verið um meiri
hagvöxt. Hagvöxtur á fjórða árs-
fjórðungi var 0,2% og 1,9% yfir allt
árið. Þetta er fyrir neðan 0,3% og
2,8% á þriðja ársfjórðungi. Þetta er
einnig aðeins minna en spár
Bundesbank sem hafði spáð 0,25%
hagvexti i fjórðungnum og 2,5% yfir
árið. Þessar tölur voru þó ekki nóg
til þess að evrópski seðlabankinn
lækkaði vexti því hann lét vexti
vera óbreytta í 4,75% eftir vaxta-
ákvörðunarfund bankans í gær. Ný-
legar hagvaxtartölur frá Frakklandi
og Ítalíu fóru fram úr væntingum
og tölunum frá Þýskalandi.
Velta með hluta-
bréf dregst sam-
an um helming
Heildarvelta hlutabréfa á Verð-
bréfaþingi íslands í febrúar 2001
nam rúmum 8,4 milljörðum króna,
samanborið við 29,4 milljarða króna
á sama tíma í fyrra. í Markaösyfir-
liti Landsbankans í dag kemur fram
að það sem af er árinu nemur heild-
arvelta hlutabréfa á VÞÍ 23,1 millj-
arði króna, samanborið við 52,6
milljarða á sama tímabili í fyrra.
Velta með hlutabréf á VÞÍ hefur því
dregist saman um ríflega helming.
02.03.2001 M. 9.15
KAUP SALA
F JPollar 85,360 85,800
laSPund 124,740 125,370
í*tiKan. dollar 55,170 55,510
SÍDönskkr. 10,6960 10,7550
[-HtÍNorsk kr 9,6970 9,7510
C5|Sænsk kr. 8,8180 8,8670
H—Ifí. mark 13,4157 13,4964
;Fra. franki 12,1603 12,2334 :
í jBelg. franki 1,9774 1,9892
E3: Sviss. frankl 51,8600 52,1500 i
Eh°M. gyllini 36,1964 36,4139
” Þýskt maik 40,7839 41,0290
|ít líra 0,04120 0,04144
HErlAust. sch. 5,7968 5,8317
Port. escudo 0,3979 0,4003
Q JSpá. peseti 0,4794 0,4823
| © Jap. yen 0,72080 0,72510
jírskt pund 101,282 101,891
SDR 110,4400 111,1000
SjECU 79,7664 80,2457