Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001
19
Útgáfufólag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Svelnn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýslngastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Þverholtl 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Græn númer. Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: .http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.ls
Ritsfjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverö 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Söfnun í allra þágu
Lífslíkur krabbameinssjúklinga hafa aukist mikið og er
það þakkað forvörnum, betri skilningi á orsökum krabba-
meins, greiningu á fyrri stigum og markvissri meðferð.
Krabbameinsfélag íslands á sinn þátt í þessum árangri en
félagið hefur unnið brautryðjendastarf á sviði krabba-
meinsleitar, fræðslu og rannsókna, auk ráðgjafar og þjón-
ustu við sjúklinga og aðstandendur.
Krabbameinsfélagið er fimmtíu ára um þessar mundir
og efnir af því tilefni til landssöfnunar á morgun, laugar-
dag. Félagið hefur þrisvar áður leitað eftir stuðningi þjóð-
arinnar með slíku átaki undir samheitinu þjóðarátak gegn
krabbameini, 1982, 1986 og 1990. Markmiðið með söfnun-
inni nú er að auka þjónustu við krabbameinssjúklinga,
ekki síst með því að hjálpa þeim að komast út í lífið á ný,
efla forvamir og treysta núverandi starfsemi Krabba-
meinsfélagsins.
Fram kom í gögnum sem félagið dreifði á fundi fyrr í
vikunni að ár hvert greinast um 1040 íslendingar með
krabbamein. Meðal kvenna er brjóstakrabbamein langal-
gengast en krabbamein í blöðruhálskirtli hjá körlum.
Skipuleg skráning krabbameina hófst á vegum Krabba-
meinsfélagsins árið 1954. Því er hægt að skoða breytingar
á tíðni krabbameina í meira en fjóra áratugi. Á þessu
timabili hefur tíðnin í heild aukist um 1,2 prósent á ári,
að teknu tilliti til fjölgunar íbúa og aldurssamsetningar
þjóðarinnar. Brjóstakrabbamein er nú tvöfalt algengara
en var við upphaf skráningar en tíðni krabbameins í
blöðruhálskirtli hefur nær fimmfaldast. Lungnakrabba-
mein er nú orðið næstalgengasta krabbamein hjá báðum
kynjum.
Því hefur verið spáð að eftir áratug muni árlega grein-
ast 1300-1400 ný krabbameinstilfelli hér á landi. Krabba-
mein er fremur sjúkdómur aldraðra en þó ekki eingöngu
því fólk getur fengið krabbamein á öllum aldri. Krabba-
meinstilfellum fer þó ekki að fjölga verulega hjá fólki fyrr
en eftir fertugt. Úr gögnum Krabbameinsfélagsins má lesa
að meðalaldur kvenna við greiningu krabbameins er rúm
62 ár en rúm 67 ár hjá körlum.
Þótt tíðni krabbameinstilfella hafi aukist jafnt og þétt
eru jákvæðu tíðindin þau að lífshorfur krabbameinssjúk-
linga hafa batnað. Um 17 prósent karla sem greindust með
krabbamein á árunum 1956-60 lifðu í fimm ár eða lengur
en nú geta um 44 prósent vænst þess að lifa svo lengi sé
miðað við árabilið 1991-95. Um 27 prósent kvenna sem
greindust með krabbamein á árunum 1956-60 lifðu í fimm
ár eða lengur en nú geta um 51 prósent vænst þess að lifa
svo lengi. Að teknu tilliti til annarra dánarorsaka eru
fimm ára lífshorfur karla með krabbamein um 55 prósent
af lífshorfum jafnaldra og 59 prósent meðal kvenna.
Fram kemur í gögnum Krabbameinsfélagsins að þriðji
hver íslendingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleið-
inni og flest verðum við aðstandendur krabbameinssjúk-
linga. Málefnið snertir því alla. Mikilsvert er því að söfn-
un Krabbameinsfélagsins á morgun gangi að óskum og
landsmenn taki söfnunarfólki vel. Leitað verður til ein-
staklinga, gengið í hús í samvinnu við Kiwanis og Lions,
safnað í samvinnu við útvarpsstöðvar og í sérstökum
þætti í Sjónvarpinu, safnað á Netinu og tekið við framlög-
um í síma. Þá verður leitað sérstaklega til fyrirtækja í
landinu.
Landsmenn eru hvattir til að leggja sitt af mörkum til
þessarar landssöfnunar Krabbameinsfélags íslands. Það er
í allra þágu.
Jónas Haraldsson
r>v
IKEA-rassinn
Sú auglýsing sem ég kalla
IKEA-rassinn er ekki bara
tákn um smekkleysi í þeirri
listgrein sem auglýsing á að
vera heldur er hún dæmi-
gerð fyrir gleymsku okkar
og andlegt hirðuleysi. Þessi
brosandi konurass er víst
upprunninn í Svíþjóð en
ætlaður til útflútnings,
enda ólíklegt að hann
myndi líðast á skjánum í
kvenvænu landi þar sem
virðing er borin fyrir kon-
unni allri. Auðvitað gegnir
öðru máli hér, IKEA-rass-
inn brosir mjúkur og neysluörvandi.
„Endakraftur“ á galvaskri
kvennahreyfingu?
IKEA-rassinn skellihlær ekki
hæðnislega að körlum en það virðist
vera eina vísindalega aðferðin í
femíniskum bókmenntafræðum í Há-
skóla íslands til að kveða karlrembu-
höfunda í kútinn. Mjúkur brosir
hann jafnt við báðum kynjum. Bros-
ið stafar ekki af visku í kvennafræð-
um, það sprettur af bjánaskap sem
rikir í samfélagi sem miðar allt við
þarfir munns og rass.
Guðbergur
Bergsson
rithöfundur
Hvar eru nú þær hug-
djörfu sem fóru í kröfu-
göngur og hrópuðu að lík-
ami konunnar væri ekki
verslunarvara? Þær komu
í lög að ekki mætti nota
kyngreiningu í atvinnu-
auglýsingum svo upp var
fundið orðið starfskraftur
á öllum sviðum nema á Al-
þingi. Þar mátti nota áfram
orðin þingmenn og þing-
konur en ekki tekin upp
orðin alþingiskraftar eða
stjórnmálakraftar. - Er
IKEA-rassinn „endakraft-
á þvi sem var galvösk
urinn
kvennahreyfing?
í líkkistu tímans
I kjölfar æpandi forystukvenna,
sem nú eru komnar i mjúk embætti,
hafa umsvif í kringum fegurðarsam-
keppnir aukist. Og svo mikill inn-
flutningur hefur verið hafinn á út-
lendum „stúlkugreyjum" frá áður
sovéskum alþýöurikjum að líkkistu-
salan í Fischersundi varð að víkja
til þess að kynörvandi klúbbur með
þeim gæti fært út kvíamar.
Nú dansa sovétmeyjar þar
„Mjúkur brosir hann jafnt við báðum kynjum. Brosið
stafar ekki af visku í kvennafrœðum, það sprettur af
bjánaskap sem ríkir í samfélagi sem miðar allt við
þarfir munns og rass. “
Þjóðkirkja á eigin forsendum
í tveimur greinum hér í blaðinu
(18/1 og 5/2) hef ég fært rök að því að
íslendingar upp og ofan líkt og aðrir
Norðurlandabúar ætli þjóðkirkju
sinni einkum það hlutverk að skapa
virðulegan ramma um hátíðahald
sitt. Gildir þá einu hvort um er að
ræða hátíð í lífi einstaklings, fjöl-
skyldu eða samfélagsins alls. Þá
ætlist yfirvöld til þess að þjóðkirkjan
efli samstöðu almennings og ljái
pólitískum markmiðum ríkisins
æðri tilgang. Það gerir hún með því
aö samþætta minni úr sögu þjóðar-
innar eigin siðum, venjum og hug-
myndum. Þetta taldi ég helstu skýr-
ingu þess að um 90 % þjóðar-
innar kjósa að tilheyra kirkj-
unni án þess að taka reglu-
bundinn þátt í starfi hennar.
Af sjónarhóli
kirkjunnar sjálfrar
Á liðnu kristnihátíðarári
var oft á það bent að þær að-
stæður sem hér var lýst bæru
vitni um yfirborðsleg tengsl
kirkju og þjóðar og væru
enda alvarlegt kreppuein-
kenni i kirkjunni. í raun er
þó ekkert við það að athuga
aö í samfélagi sem býr að
Kjallari
Hjalti Hugason
prófessor
gronu
„Þá er það nauðsyrilegt fyrir þjóðkirkjuna að auka tengsl sín við önn-
ur trúfélög sem starfa í landinu og taka sem virkastan þátt í alþjóð-
legum samtökum krístinna kirkna.“ - Bœnastund frjálsra
trúarsöfnuða á Vatnsendahæð.
þjóðkirkjuskipulagi ætli
allur þorri fólks kirkj-
unni skilgreint þjónustu-
hlutverk af þessi tagi og
snúi sér fremur til henn-
ar þegar sérstaklega
stendur á en í gráum
hversdeginum. Þannig
býr kirkjan við sömu að-
stæður og aðrar velferð-
arstofnanir. Af þeim sök-
um þarf ekkert yfirborðs-
legt eða kreppukennt að
einkenna samband ís-
lendinga við þjóðkirkju
sína. Hér er aðeins um ákveðinn aö
visu dálítið ver-
aldlegan kirkju-
skilning að ræða.
Af sjónarhóli
þjóðkirkjunnar
sjálfrar ætti mál-
ið þó að horfa
öðru vísi við.
Hún getur t.d.
aldrei byggt til-
verurétt sinn á
þessum eða öðr-
um veraldlegum
hlutverkum.
Þjóðkirkjan verð-
ur ætíð að
horfast í augu við
að hún er ekki
aðeins þjóðleg
stofnun heldur
einnig hluti al-
þjóðlegrar hreyf-
ingar og þegar
dýpst er skoðað
hinni einu,
heilögu, almennu
og postullegu
kirkju Krists sem
m.a. er rætt um í
trúarjátningunni. í stefnumörkun
sinni og starfsskipulagi getur þjóð-
kirkjan því aldrei verið að fullu sátt
við ofangreind hlutverk. Að vísu má
hún þó aldrei víkja sér undan þeim -
jafnvel ekki þótt samband ríkis og
kirkju verði rofið. Þessi hlutverk eru
miklu fremur afleiðing af langri
samleið lúthersku kirkjunnar með
þjóðinni og stærð hennar miðað við
önnur trúfélög í landinu en lög- eða
stjórnarskrárbundinni stöðu þjóð-
kirkjunnar. - Sagan er því að þessu
leyti skuldbindandi fyrir þjóðkirkj-
una.
Á sínum eigin forsendum
Það sem mestu máli skiptir er
þvert á móti að þjóðkirkjan spyrji
ætíð hvemig hún fái best gegnt hin-
um félagslegu hlutverkum meðal
þjóðarinnar á sínum eigin forsend-
um. Það gerir hún best með því að
ástunda agaða guðfræðilega umræðu
um það hverjar þessar forsendur séu
sem og með því að efla og styrkja
guðsþjónustulíf sitt og annað safnar-
starf.
Þá er það nauðsynlegt fyrir þjóð-
kirkjuna að auka tengsl sin við önn-
ur trúfélög sem starfa í landinu og
taka sem virkastan þátt í alþjóðleg-
um samtökum kristinna kirkna.
Þannig skapar hún sér ytra aðhald
og mat á starfi sínu og ræktar um
leið samstöðu sína með hinni al-
mennu kirkju. Aðeins á þennan hátt
fær þjóðkirkjan gegnt lífrænu trúar-
legu hlutverki meðal íslensku þjóð-
arinnar. Án innri uppbyggingar og
samkirkjulegra tengsla af þessu tagi
er hætt viö að hana dagi uppi sem
íhaldssaman hefðarvörð á hátíðum
og tyllidögum.
Hjalti Hugason
Með og á móti
- og klaufaveikisvœði
p
Allt í lagi
„í sjálfu sér er
ég alfarið á móti
því að íslenskir
bændur heimsæki
breska starfsbræð-
ur á þessum tima þó ekki
væri nema vegna þess að þá
þyrfti ég að standa í því að
láta þá þvo stígvélin sín við
heimkomuna.
En hugtakið bændaferðir í
dag þýðir einfaldlega ódýrar
rútuferðir um Evrópu og í þessu til-
felli er ekki verið að heimsækja
neina bændur heldur erum við að
skoða menningararfleifð Breta frá
Rómverjum og víkingum.
Það er bara grjót og bygging-
ar en ekki bændur.
Það hefði alveg eins mátt
kalla ferðalagið fiskimanna-
ferð eða víkingaferð þó aug-
lýst sé sem bændaferð.
Þessi ferð er ekki aðeins
fyrir bændur heldur alla
þjóðina. Það er alveg á
hreinu að við förum ekki á
einn einasta bóndabæ og ég
skal persónulega sjá til þess að far-
þegamir komist ekki í tæri við eina
einustu belju.“
Ekki í lagi
„Það tekur ekki
nokkru tali að ís-
lenskir bændur
taki sig upp á þess-
um tíma og ætli í
bændaferð til Bretlands. Það
er vitað mál að gin- og klaufa-
veiki er bráðsmitandi og því
engin ástæða til að taka þá
áhættu sem óumflýjanlega
fylgir ferðalagi sem þessu. í
raun er ég hissa á að ekki sé
þegar búið að aflýsa þessari bænda-
ferð því ef meiri hagsmunir hafa ein-
hvern tíma átt að víkja fyrir minni
þá á það við í þessu tilfelli.
Að sjálfsögðu þurfa bænd-
ur að ferðast eins og annað
fólk og vissulega er fróðlegt
fyrir þá að heimsækja starfs-
bræður sína erlendis. En
ekkert getur réttlætt ferðalag
Islenskra bænda um breskar
sveitir á meðan það ástand
varir sem nú er á Bret-
landseyjum. Menn verða
annaðhvort að finna sér
betri tíma til slíkrar bænda-
ferðar eða þá að beina ferðinni til
annarra landa þar sem smitsjúkdóm-
ar eru ekki landlægir um þessar
mundir.“
Friðrik G.
Friðriksson
fararstjóri.
Guðbjörg
Þorvarðardóttir
dýraiæknir.
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn hefur auglýst og skipulagt bændaferð um Bretlandseyjar þar sem gelsar gln- og klaufaveikifaraldur. Sýnist sltt hverjum.
aufav
kannski fyrir kommúnista sem hafa
kastað lifandi hugsjón í líkkistu
tímans. Fá karlmenn að leggja sig
hjá þeim í einni? Eitthvað svipað
hefur gerst í dansinum kringum
IKEA-rassinn. Hann var sýndur
með brosi á báðum kinnum á konu-
daginn og jók sölu á IKEA-rúmum.
Eins og veröld vill....
fslenskt nútímasamfélag er ungt
og reynslulítiö og fremur skopmynd
af samfélagi en þroskuð þjóð þar
sem fólk talar og starfar og ber
ábyrgð á orðum sínum og gerðum.
Skopmyndin er fremur grátleg og
ber vott um tómleika og skort á
kjölfestu innra með okkur. Slíkt er
ekki aðeins að finna hjá almenn-
ingi, sem er eins og veröld vill eða
vindur blæs og heldur að slíkt beri
vott um frjálslyndi, heldur öðru
fremur hjá menntafólki og ráða-
mönnum.
Þess vegna hefur vinstristefnan
liðið undir lok með ropa og kvenna-
hreyfingin með sama hætti, nema
það hafi verið með prumpi, og
hægristefnan tórir aðeins vegna
orða fyrrum brandarastráks.
Guðbergur Bergsson
Ummæli
Til heilla fyrir
Hafnfirðinga
„Hér i Hafnarfirði
nemur rekstur grunn-
skólanna hundruðum
milljóna króna fyrir
hvern skóla og mikil
ábyrgð lögð á skóla-
stjórnendur um fjár-
málastjórn og meðferð
opinberra fjármuna ekki síður en að
þeir séu faglegir leiðtogar í skólunum.
Með markvissri íjármálastjórn, sem
ég tel að sé vel borgið í höndum
traustra einkaaðila, og sterku faglegu
starfl skólafólks með öll réttindi og
reynslu sem krafist er í öðrum skól-
um, er ég þess fullviss, að við fáum
góðan skóla í Áslandi."
Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í
Hafnarfiröi, í Mbl. 1. mars.
Skattlagt í þágu Stefs
„Samtökin STEF beita fyrir sig
hugtökunum réttlæti og sanngirni.
Þau segja félagsmenn sína verða fyrir
barðinu á þjófum sem fjölfaldi verk
félagsmanna í heimildarleysi. Til að
bregðast við þessu hafa þau hins
vegar fengið því framgengt að
heyrnarlaus maður sem kaupir sér
tóman geisladisk er
skattlagður á þágu
STEFs, fyrirtæki sem vista eigin gögn
á geisladiskum eru skattlögð í þágu
STEFs, skólafólk sem kaupir
geisladisk undir ritgerðir er skattlagt
í þágu STEFs ... Svo virðist sem STEF
líti þannig á að þeir sem verði fyrir
þjófnaði eigi að fá umboð til að
skattleggja alla aðra, hvort sem þeir
eru sekir eða saklausir. Hér er því
ekki aðeins verið að snúa við
sönnunarbyrði eins og stundum er
krafist, heldur eru allir sakfelldir. t
því virðast sumir telja að felist
eðlilegar sárabætur."
Úr Vef-Þjóöviljanum 28. febrúar.
Samviskan á flokks-
þingi Framsóknar
„Þingmenn Fram-
sóknarflokksins geta
soflð rólegir á nótt-
unni fyrir skoðunum
flokksformanns á
kvótakerfmu. Hún
kemur honum einum
við og öðrum ekki.
Allir þingmenn hafa svarið eið að
stjórnarskránni og stjórnarskráin seg-
ir að þingmenn séu ekki bundnir af
skilaboðum frá kjósendum heldur
samvisku sinni. Þar með detta allar
flokkssamþykktir dauðar niður og
samviskan ein situr eftir á flokksþing-
inu. Kannski verða framsóknarmenn
fyrstir til að brjótast úr flokksviðjum
og ryðja þingræðinu braut á íslandi."
Ásgeir Hannes Eiríksson verslunar-
maöur, í Degi 1. mars.
“f-ÞjóðviIjinn}
Skoðun
;i v-
ET&U
X/ONÍC/RGE* *=? GÖ&VI&'
V€TKII MINNI, HLLT ERTjR’
^\A mVpíO KF7NF7NIOM
vCRNIM HE? 3=><ÓK“NíR5\
\HVEF?JL1 SINIKII
Landssöfnunin:
Það er ljós í myrkrinu
Krabbamein er ekki fallegt orð.
Það er nístandi og meiðandi enda
greinir það frá þeim sjúkdómi sem
skelfir marga. Það lýsir sjúkdómi
sem oft á tíðum étur, skemmir og
spillir því sem áður var heilt. Það
leggur líf margra í rúst og spillir
gleðinni sem átti að vera fórunautur
til framtíðar.
Sjúkdómsgreiningin, þú ert með
krabbamein, sviptir marga sýn til
lifsins. Niðurstaðan leggst á sálina og
tilfmningar allar fara í uppnám. Það
er ekki aðeins sjúklingurinn einn
sem brestur sýn fram á veginn. Fjöl-
skyldan öll verður þátttakandi, vinir
og starfsfélagar. Það fer allt í upp-
nám. - Margir neita að trúa slíkum
tíðindum. Vilja fá að vakna af vondri
martröð lífsins. Sjá ekkert nema
myrkur. Finnst að öll von sé úti.
Lítið kerti verður að
kærleiksljósi
Krabbamein er samheiti margra
ólíkra sjúkdóma. Sumir eru erfiðir
og aðrir viðráðanlegri. Sigrar í bar-
áttunni eru margir og það ber að
þakka þrotlausu starfi vísinda-
manna. Krabbameinsfélagið hefur
verið í forystu hér á landi um
fræðslu og rannsóknir. Starf félags-
ins er sannarlega ljós í þessari bar-
áttu lífsins. Það eru ekki rannsóknir
einar sem ráða för. Fræðsla og um-
hyggja um andlega líðan og velferð
hefur verið í fyrirrúmi.
I fimmtíu ára sögu félagsins hefur
starfið eflst og þró-
ast. Frá árinu 1964
hefur regluleg leit
að krabbameini í
leghálsi verið starf-
rækt á vegum fé-
lagsins. Árlega
mæta um 30.000
konur í slíka leit og
15.000 konur koma
árlega í brjósta-
skoðun.
Góður árangur
hefur náðst og talið
er að 150 fleiri kon-
ur hefðu dáið af
völdum leg-
hálskrabbameins ef
leitarinnar hefði
ekki notið við.
Þessar rannsóknir
hafa vakið athygli
erlendis og rann-
sóknir í sameinda-
og frumulíffræði á
brjóstakrabbameini
ber þar hvað hæst.
Allar þessar
rannsóknir og leit,
sem Krabbameins-
félagið hefur staðið fyrir,
eru sannarlega máttugt
ljós í harðri baráttu gegn
krabbameini. Félagið sam-
anstendur nú af 30 félög-
um sem eru staðsett víða
um landið. Frumkvöðlar
að stofnun þess þann 27.
júní árið 1951 hafa fengið
að sjá hugsjón sína breyt-
ast úr litlum neista í eld
vonarinnar.
Ekkert Ijós lýsir af
sjálfu sér
Árlega greinast meir en
1000 íslendingar með
krabbamein. Þriðji hver íslendingur
fær krabbamein einhvern tíma á lífs-
göngu sinni. Þess vegna mun engin
fjölskylda komast hjá því að verða
aðstandendur krabbameinssjúk-
linga. Það er jafn víst og við fæðumst
og deyjum í þessum heimi.
Þess vegna varðar þetta alla. Mál-
efni Krabbameinsfélagsins eru því
málefni þjóðarinnar.
Á fimmtíu ára afmæli leitar
Krabbameinsfélagið eftir liðsinni ís-
lensku þjóðarinnar. Félagið þakkar
meðbyr og þann stuðning sem veitt-
ur hefur verið. En það þarf meira til,
það þarf samstillt átak.
Deildu Ijóslnu meö okkur
Þjóðarátak þarf til þess að efla enn
frekar starf Krabbameinsfélagsins.
Með þátttöku þinni, þá ertu að bera
Pálmi
Matthíasson
sóknarprestur
í BústaOakirkju.
ljós vonarinnar til þeirra
sem finnst myrkrið vera al-
gjört. Þátttakan mun gefa^
þér gleði og þá tilfinningu að
þú notir llf þitt til þjónustu
við náungann. En mest mun
gleðin verða í hugum þeirra
sem finna að sigurinn i bar-
áttunni gegn krabbameini
getur orðið þeirra. Þá mun
kvikna ljós í stað myrkurs,
von í stað ótta.
Ijós inn í framtíðina
Lífslíkur þeirra sem grein-
_______ast með krabbamein hafa
aukist mikið á síðustu árum.
Aukin umhyggja fyrir krabbameins-
sjúklingum hefur hjálpað þeim að ná
fótfestu á ný og komast út í lífið.
Þennan þátt starfsins þarf enn að
efla. Heimahlynning og síðanv
fræðsla og eftirfylgni skilar miklum
árangri og meðal starfsfólks Krabba-
meinsfélagsins eru margar kærleiks-
sólir sem seint verður þakkað þeirra
fómfúsa starf.
Það skiptir ekki máli á hvaða
aldri þú ert. Starf félagsins snertir
alla aldurshópa. Félagið snertir lífið
í vísindum, umhyggju, rannsóknum,
fróöleik og heilsuátaki og bættum
lífsstíl. Öll viljum við halda heilsu
okkar og njóta lífsins. Við viljum
ganga í Ijósinu og njóta þess. -
Krabbameinsfélagið og starf þess er
sannlega ljós inn í framtíöina.
Pálmi Matthíasson
„Þátttakan mun gefa þér gleði og þá tilfinningu að þú notir líf þitt
til þjónustu við náungann. En mest mun gleðin verða í hugum
þeirra sem finna að sigurinn í baráttunni gegn krabbameini getur
orðið þeirra. “ - Kynning á landssöfnun Krabbameinsfélagsins.