Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2001, Blaðsíða 24
28
FÖSTUDAGUR 2. MARS 2001
Tilvera
DV
•*s
lí f iö
E F T I R V I N N U
Á sama tíma
síðar
Loftkastalinn sýnir klukkan 20 í
kvöld Á sama tíma síðar.
Leikaramir eru sem fyrr Tinna
Gunnlaugsdóttir og Sigurður
Sigurjónsson sem slógu i gegn í
fyrri sýningunni Á sama tíma að
ári.
Krár
■ STEINAR I HUSI MALARANS
Steinar spilar í Húsi Málarans í
kvöld.
■ EINAR OG HJÖRTUR Á KAFFi
STRÆTO Það veröur stemning á
Kaffi Strætó í kvöld þegar snilling-
arnir Einar Jónsson drýsill og dyra-
vörðurinn Hjörtur Geir mæta með
stuðið.
■ HEITT OG SVEITT Á PLAYERS
Hljómsveitin Hot’n’Sweet ætlar að
sjá til þess að gestir Players Sport-
bars verði ekki fyrir vonbrigðum með
stemninguna í kvöld.
* ■ GEIR ÓLAFSSON í
NAUSTKJALLARANUM Geir
Olafsson og Furstarnir veröa í
Naustkjallaranum bæði í kvöld og
annað kvöld. Góða skemmtun.
■ HOT AND SWEET Á PLAYERS
Hljómsveitin Hot and Sweet leikur á
Players í kvöld og annað kvöld.
Sérstakur gestur á laugardagskvöld
er Helga Möller.
Klassík
■ LA BOHEME Islenska Operan
sýnir í kvöld klukkan 20 óperuna La
Bohéme eftir Giacomo Puccini við
texta eftir Giuseppe Giacosa og
Luigi lllica. Hljómsveitarstjóri er
Tugan Sokhiev en leikstjórinn er
Jamie Hayes. íslenskir söngvarar
mr fara með helstu hlutverkin: Auður
Gunnarsdóttir, Sólrún Bragadóttir,
Kolbeinn Ketilsson, Hlín Pétursdótt-
ir, Þóra Einarsdóttir, Bergþór Páls-
son, Ólafur Kjartan Siguröarson,
Viöar Gunnarsson, Guöjón Óskars-
son og Siguröur Skagfjörö Stein-
grímsson.
Sveitin
■ INGIMAR A DUSSABAR Þaö er
enginn annar en gleðigjafinn hann
Ingimar sem ætlar að troöa upp á
Dússabar í Borgarnesi í kvöld.
Leikhús_______________________
■ HÁALOFT Háaloft er einleikur um
konu með geðhvarfasýki eftir Völu
Þórsdóttur. Þetta er svo sannarlega
svört kómedía. Einleikurinn er sýnd-
# ur í Kafftleikhúsinu í kvöld klukkan
21.
■ SKÁLPANÓTT Skáldanótt eftir
Hallgrím Helgason verður sýnt á
Stóra svíði Borgarleikhúsins klukk-
an 20 í kvöld. Verkið var tilnefnt til
Menningarverölauna DV. Örfá sæti
laus.
■ VITLEYSINGARNIR Hafnarfjarö-
arleikhúsiö sýnir í kvöld klukkan 20
leikritið Vitleysingana eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Nokkur sæti
laus.
Síðustu forvöð
'V ■ DETOX I LISTASAFNINU A AK-
UREYRI I dag kl. 16 lýkur margmiðl-
unarsýningunni Detox í Listasafninu
á Akureyri. Á sýningunni er veruleiki
nútímans túlkaður með margvísleg-
um tólum og tækjum sem virkja
áhorfendur til þátttöku, en alls unnu
sextán norskir listamenn að gerð
verkanna í samvinnu við ýmsa tölvu-
fræöinga og tæknimenn.
Sæbjörn Jónsson lætur af störfum sem stjórnandi Stórsveitar Reykjavíkur á tíu ára afmæli hennar:
Höfum alltaf spilað betur
en búist var við af okkur
„Þessi tíu ár hafa verið mjög
skemmtileg en stundum erfið. Það er
enginn leikur að halda úti big-band
hljómsveit í svona litlu landi og það
verður að hafa í huga að í heiminum
fer slíkum hljómsveitum fækkandi.
Þetta hefur samt verið gefandi starf og
það að hafa fengið tækifæri til að
vinna með öllum þessu ágætu hljóð-
færaleikurum í tíu ár, hljóðfæraleikur-
um sem gera þetta af sömu hugsjón og
ég, gerir það að verkum að hverjir vel
heppnaðir tónleikar eru áfangasigur
fyrir alla,“ segir Sæbjörn Jónsson, sem
stofnaði Stórsveit Reykjavíkur fyrir
tíu árum og hefúr verið aðalstjórnandi
hennar síðan. Hann lætur nú af störf-
um á tíu ára afmæli sveitarinnar, hef-
ur gengið í gegnum súrt og sætt með
sveitinni og mun í framtíðinni verða
henni innan handa í ýmsum verkefn-
um. Sæbjörn mun stjórna stórsveitinni
í síðasta sinn í Ráðhúsinu á laugardag-
inn og hefjast tónleikarnir kl. 16.00.
„Hugmyndin að stofnun Stórsveitar
Reykjavíkur verður til um áramótin
1991. Þá koma heim úr námi trompet-
leikarinn Einar Jónsson og Jóel Páls-
son saxófónleikari, strákar sem ég
hafði byrjað að kenna þegar þeir
voru níu ára guttar. Fleiri voru
nýkomnir úr námi og aðrir á
leiðinni út. Þessir strákar voru
hjá mér í Léttsveit Tónmennta-
skólans og leituðu því til mín
um að setja á stofn hljómsveit
og stjóma henni. Ég varð strax
hrifinn af hugmyndinni. Ég hef
alltaf átt auðvelt með að fá fólk
til að spila með mér og fór þvi
af stað af fullum krafti.
Ég hélt nú satt að segja aö
ég fengi ekki alla þá sem ég
vildi, þar sem þetta er unnið
eingöngu á áhugamannabasis, en það
var öðru nær. Allir sem ég hafði sam-
band við sögðu já, þó ég segði að eng-
inn peningur væri til. Þegar svo kom
að fyrsta konsertinum þá langaði mig
mikið til að hafa söngvara og hringi í
minn gamla vin, Ragnar Bjamason
sem hló mikið en sagðist að sjálfsögðu
mundu mæta. Þegar ég leiddi hugann
að söngkonu sem hefði það sem þarf til
að bera til að geta sungið með stórsveit
datt mér í hug Andrea Gylfadóttir og
hafði samband við hana. Hún tók mér
svo vel að hún var búin að segjast
koma áður en hún spurði mig hvaða
hljómsveit þetta væri. Það er svo gam-
an til þess að vita að þau Ragnar og
Andrea verða söngvarar á síðustu tón-
leikunum sem ég stjórna."
Launin eru ánægjan
Sæbjörn segir að það sé alveg ótrú-
legt hvað margir hafa haldið tryggð við
hljómsveitina þessi tiu ár sem hún hef-
ur starfað: „Þetta hefur að megninu til
verið sami hópurinn. Menn hafa farið
í nám
Sæbjörn Jónsson
Hefur leitt Stórsveit
Reykjavíkur í tíu
ár.
eða orðið að sinna öðrum verkefnum
en komið jafnharðan aftur til baka og
er ég hreint út sagt alveg hissa á þess-
ari tryggð við hljómsveitina því launin
eru aðeins ánægjan og reynslan. Fjórir
hafa verið í hljómsveitinni frá fyrstu
æfingu. Það er aldursforsetinn, Björn
R. Einarsson, Einar Jónsson, Jóel Páls-
son og Birgir Freyr Matthíasson. Þeir
hafa eins og aðrir stundum þurft að
sinna öðrum verkefnum, en ég tel þá
hafa verið með frá upphafi. Hópurinn
sem skipar hljómsveitina í dag er bú-
inn að vera nokkuð lengi saman og það
sést á spilamennskunni. Hún er, þó ég
segi sjálfur frá, orðin mjög góð og vitn-
isburður erlendra gestastjórnenda hef
ég til vitnis um það.“
Við víkjum talinu að tónlistinni og
gestastjórnendunum sem eru engin
smánöfn í djassheiminum: „Við höfum
ekki haft efni á að láta útsetja fyrir
okkur sérstaklega, heldur keypt út-
setningar frá útlöndum. Óhemju magn
er til af slikri músík. Að vísu hafa ver-
ið útsett fyrir okkur innlend lög og má
nefna að Veigar Margeirsson, trompet-
leikari og tónskáld, hefur látið okkur
hafa islensk lög í flokki sem hann
kallar Reykjavíkurlög. Þegar svo
erlendir stjórnendur hafa kom-
ið þá koma þeir með eigin út-
setningar. Við þau tækifæri
fær hljómsveitin að leika
tónlist sem er oft og tíð-
um mjög krefjandi og
satt best að segja hefur
það komið þessum mönn-
um mjög á óvart hversu
góð hljómsveitin er.
Sá sem fyrstur kom til
okkar var Frank Foster, sem
hafði stjórnað Count Basie-
bandinu og leikið í því þegar
Basie var á lífl. Þegar hann kom
til okkar lagði hann á borðið tutt-
ugu útsetningar sem hann hafði
gert fyrir Basie-bandið. Hann sagði
svo síðar við mig að hann hefði
ekki búist við miklu
en hitt fyrir
galdra-
menn.
Af
öðrum þekktum stjórnendum sem hafa
komið til okkar má nefna Ole Koch
Hansen, sem stjórnað hefur dönsku út-
varpshljómsveitinni, Daniel Nolgárd,
Mariu Schneider, sjálfsagt besta big-
band stjórnanda Bandaríkjanna í dag,
og Fredrik Norén. Stutt er síðan Norén
var hér og kom hann beint frá Banda-
ríkjunum þar sem hann hafði verið að
stjórna þarlendum hljómsveitum.
Hann kom með eigin útsetningar sem
hann lagði fyrir sveitina á æfingu. Eft-
ir þá æfmgu fór hann í hirslu sína og
dró fram aðrar útsetningar sem hon-
um hafði ekki dottið í hug að láta
hljómsveitina reyna við. Eru þetta ein-
hver bestu meðmæli sem hljómsveitin
hefur fengið. Það hefur verið sameigin-
legt með öllum gestastjómendum að
þeir hafa fengið mikið meira en þeir
bjuggust við og það sama má segja um
áhorfendur, hvað eftir annað höfum
við komið þeim á óvart.“
Erfitt að hætta
Sæbjörn er búinn að lifa og hrærast
í tónlist megnið af sinu lífi: „Það að
þurfa að hætta með Stórsveit Reykja-
víkur er það allra sísta sem mig lang-
ar að gera. Staðreyndin er aö eftir að
ég veiktist hastarlega fyrir fjórum
árum er nú svo komið að ég hef ekki
orku í þetta lengur. Það má segja að í
dag gangi hjartað í mér á 50% styrk-
leika og nú er bara að reyna að halda
heilsunni. Hljómsveitin er orðin eins
og fyrirtæki sem á bjarta framtíð fyrir
sér. Það er mun meira umstang i
kringum hana en áður var um leið og
ég verð að hægja á mér, þannig að því
miður fer það ekki saman, heilsa mín
og hljómsveitin.
Ég hef hraerst i tónlistinni nánast
allt mitt lif. Ég kem í Sinfóníuhljóm-
sveitina 1963 og er þar til 1997 þegar ég
varð að hætta að spila. Þá hef ég kennt,
spilað í mörgum hljómsveitum, auk
þess að sjá um stórsveitir, og stjómaði
lúðrasveitinni Svaninum í mörg ár. Ég
skila sem betur fer góðu búi, stórsveit-
in er í toppformi, hljómsveit sem er á
heimsmælikvarða og getur tekist á við
allt sem i boði er fyrir slíkar sveitir.
Það hefur enginn fastur stjórnandi ver-
ið ráðinn. Gestastjórnendur munu
stjórna henni út árið og svo verður
sjálfsagt tekin einhver ákvörðun um
stjórnanda. Ég fer ekki langt og
mun fylgjast vel með gangi mála
úr hæfilegri fjarlægð og gera
mitt til að hljómsveitin
R-v blómstri sem mest.“ -HK
Húsfyllir á tónleikum Stórsveitar Reykjavíkur á Snæfellsnesi:
Sæbjörn á heimaslóðum
DV7STYKKISH0lMI:
Stórsveit Reykjavíkur hélt tón-
leika í Félagsheimili Stykkishólms
á laugardagskvöldið. Fyrr um dag-
inn var sveitin í Ólafsvík og
skemmti bæjarbúum þar. Á laugar-
daginn kemur heldur stórsveitin
tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur og
er tilefnið 10 ára afmæli hennar.
Stjórnandi sveitarinnar er Sæ-
björn Jónsson trompetleikari og
stofnandi hljómsveitarinnar. Hann
er úr Stykkishólmi og þar stofnaði
hann sína fyrstu hljómsveit, Egon. í
henni voru með honum Birna Pét-
ursdóttir, Gunnlaugur Lárusson,
Hinrik Finnsson, Birgir Jónsson og
Bjami Lárentsínusson.
Söngvarar með Stórsveit Reykja-
víkur á tónleikunum á Snæfellsnesi
voru Andrea Gylfadóttir og Ragnar
Bjarnason. Tónleikamir þóttu
takast vel fyrir fullu húsi í Félags-
heimilinu í Stykkishólmi og stemn-
ingin var mikil enda ekki á hverj-
um degi sem að Raggi Bjama og
Andrea Gylfa syngja saman með
stórsveit. Þau vöktu mikla ánægju
hjá tónelskum Hólmurum og fengu
mikið lófaklapp. -DVÓ/ÓJ
Sjá nánar: Lífið eftir vjnnu á Vísi.is
DV-MYNDIR ÓMAR JÓHANNESSON
Sá eini sanni
Ragnar Bjarnason, hinn eini og sgnni, tekur iagiö með Stórsveit Reykja-
............. víkur og- Rýtur-álliaf sömu- vinsældanna.........................i;
Fyrsta hljómsveit Sæbjörns
Hér er Egon auk Sæbjörns, Birna Pétursdóttir, Gunnlaugur Lárusson, Hin-
rik Finnsson, Birgir Jónsson og Bjarni Lárentsínusson.