Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Side 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 25 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Fréttastjóri: Birgir Guömundsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuöi 2050 kr. m. vsk. lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Lcerdómsrík kosning Slæleg þátttaka Reykvíkinga í atkvæðagreiðslunni um flugvöllinn i Vatnsmýri stafaði ekki af áhugaleysi borgar- anna eða skorti á kynningu málsins. Þvert á móti tröllreið umræðan þjóðfélaginu um nokkurra vikna skeið. Allir virkir borgarar gátu vitað, hvað var á seyði. Fjölmiðlar tóku málinu opnum örmum, sérstakleg dag- blöðin, sem birtu greinar ótrúlegs fjölda nafngreindra manna. Ruslpóstur kom inn um allar lúgur. Meira að segja lifnaði samgönguráðuneytið við til að senda öllum Reykvikingunum bænarskrá um að halda vellinum. Þannig kom i ljós, að fólk og stofnanir höfðu nægan áhuga á málinu til að ganga fram fyrir skjöldu, en allt kom fyrir ekki. Niðurstaða fékkst ekki, annars vegar af því að tveir af hverjum þremur borgarbúum komu ekki á kjörstað og hins vegar vegna jafnteflis fylkinganna. Þetta er áfall fyrir milliliðalaust lýðræði, þá stefnu að láta borgarana ráða ferðinni beint í þverpólitískum mál- um. Eftir hina dýrkeyptu reynslu Reykjavíkurborgar um helgina er hætt við, að sveitastjórnir fari framvegis gæti- lega með þetta tæki og forðist það jafnvel alveg. Úr því að Reykvíkingar komu ekki á kjörstað í jafn um- deildu máli og þessu, er ekki við þátttöku þeirra að búast í öðrum málum, sem ráðamönnum gæti dottið í hug að láta kjósa um. Eina leiðin er sú, sem víðast er farin er- lendis, að láta greiða atkvæði samhliða kosningum. Víða í Bandaríkjunum taka kjósendur afstöðu til marg- vislegra mála heima í héraði á tveggja ára fresti, þegar al- mennar kosningar eru háðar. Þannig fást marktæk svör við brýnum spurningum. Aðeins Svisslendingar fást til að mæta á kjörstað utan almennra kosninga. Borgarstjórn Reykjavíkur hefði betur frestað atkvæða- greiðslunni um flugvöllinn fram í sveitarstjórnarkosning- ar á næsta ári. Fimmtán mánaða frestun skiptir litlu í máli, sem hefur fimmtán ára gerjunartíma. Á þann hátt hefði náðst næg þátttaka til marktækrar niðurstöðu. Borgarstjórinn í Reykjavík getur svo sem túlkað niður- stöðuna sem dauft umboð til að láta gera skipulag, sem gerir ráð fyrir, að flugvöllurinn í Vatnsmýri hverfi eftir fimmtán ár, en sú leið hefði raunar verið greiðfærari, ef hún hefði ekki borið málið undir atkvæði borgarbúa. Þar sem búið er að kjósa einu sinni um flugvöllinn í Vatnsmýri, verður væntanlega ekki kosið um hann aftur. Pattstaða atkvæðagreiðslunnar í flugvallarmálinu heldur því áfram. Þeir, sem vilja halda vellinum, telja sig ekki hafa verið kveðna í kútinn í atkvæðagreiðslunni. Einn ljós punktur var á atkvæðagreiðslunni. Hún sýndi, að fara verður varlega í að treysta á tæknina, rétt eins og Bandaríkjamenn máttu reyna í fyrra. Margir kjós- endur létu undir höfuð leggjast að ýta á hnapp til að stað- festa kjörið og eyðilögðu þannig atkvæði sitt. í handvirkum kosningum þarf enga staðfestingu. Menn krossa bara og málið er búið. í stafrænu kosningunni um helgina þurftu menn fyrst að merkja og síðan að staðfesta. Slíkt getur verið auðvelt i augum tölvuvædds fólks, en þarf alls ekki að vera öðrum ljóst, svo sem öldruðum. Kjörstjómin í Reykjavík féll í bandarísku gildruna. Ef stafrænni kosningu að hætti flugvallarkosningarinnar væri beitt í alvörukosningum, er hætt við eftirmálum, ef munur frambjóðenda reynist vera minni en fjöldi atkvæð- anna, sem ógildast af tæknilegum ástæðum. Gott var að fá aðvörun núna. Ef farið verður út í raf- rænar kosningar hér á landi, þarf aðferðin að vera öllum skiljanleg, lika þeim, sem eru óvanir tölvum. Jónas Kristjánsson DV Veisla stórmennis „íslensk þjóð virðist láta sér lynda að fljóta nœr sof- andi að feigðarósi meðan örfáir sem kallast „sœgreifar“ eru að sópa að sér aflaheimildunum með aðgerðaleysi rikisstjórnarinar í fyrirrúmi. Það eru ekki sœgarparnir sem njóta veiðiheimildanna.“ Einar Benediktsson, hinn mikli jöfur, segir í kvæði sínu Sjá hin ung- borna tíð, íslandsljóð II, í þriðja erindi, það sem menn ættu að hafa í huga gagnvart breytingum á því stjórnkerfi fiskveiða sem nú er fjallað um í fjórðu og síðustu grein undirritaðs að sinni. Allt skal frjálst, allt skal jafnt, réttan skerf sinn og skammt á hvert skaparans barn, allt frá vöggu að gröf. Þetta boðorð knýr fram, knýr menn brautina fram undir blikandi merkjum um lönd og um höf. Sá framsýni meistari Einar Bene- diktsson vissi að sá guli var utar, hann vissi að framfara var þörf, hann vissi að íslensk þjóð varð að sækja þekkingu og nýta þá tækni sem mögu- leg var og verður. Það hefur ekkert breyst. íslenskt samfélag býr enn við það að hér eru menn sem sitja að völdum og vilja ekki breyta, eru hræddir við framtíð og breytingar, og fáir njóta þess að kvótakerfið hefur skapað nýja aðferð til að hagnast á þann óhugnanlega hátt sem hvorki formælendur né andmælend- ur kerfísins sáu fyrir. Hin kalda krumla Hin ógnvænlega hönd markaðarins hefur náð yfir- tökum og stýrir nú aflaheim- ildum og dreifingu þeirra milli útgerða. Afleiðingar þekkja landsmenn. Hver út- gerðin á fætur annarri fellur inn í eitthvert samrunaferli og sá sem var að gleypa er gleyptur af enn stærri aðila áður en hann áttar sig á á hinni köldu krumlu. - Um þetta eru mörg dæmi, og enn eru hlutir að ger- ast svo ótrúlega nærri og augljósir að það vekur hroll og óhugnað. Hagkvæmnisjónarmiðin horfa fram hjá hverjir eiga kvótann, hvar þeir hafa aðsetur á landinu og hvar þeir eru notaðir. Sjónarmiðin sem ráöa eru „að kvótinn skapi svo mik- inn arð sem mögulegt er hverju sinni“. Sömu niðurstöðu má sjá ef litið er til annarra landa. Þar hafa orðið alvarleg áfoll Almenninga sem ganga yfir almenning. (Sjá Skímir 1999. Vor. Grein Gísla Pálssonar og Agnars Helgasonar.) Þar segir með tilvitnun í bandaríska mannfræðing- inn Bonny Mc Kay: „Mikilvægar auðlindir hafa safn- ast á fárra hendur og þorri fólks, sem hefur nýtt sér þær mann fram af manni, situr uppi eigna- og réttinda- laust. Þessi atburðarrás á augljóslega margt sammerkt með lénsveldi mið- alda, þar sem rétturinn til beitar og veiða í Almenningi til lands og sjáv- ar var afnuminn og bændur hraktir cif landi sínu og gerðir að leiguliðum aðalsmanna." SÆ-hvað? Hver kannast ekki við þessar til- vitnanir? íslensk þjóð virðist láta sér lynda að fljóta nær sofandi aö feigðarósi meðan örfáir sem kallast „sægreifar" eru að sópa að sér afla- heimildunum með aðgerðaleysi rík- isstjórnarinar í fyrirrúmi. Það eru ekki sægarparnir sem njóta veiði- heimildanna. Nei, þeir geta hunskast í land þegar þeirra timi rennur upp, án leyfis tU að veiða fisktitt, þó þeir hafi dregið á land og aflað útgerðinni sem þeir starfa hjá auðæfa. Það er gjörsamlega fram hjá því gengið að þeir sem vinna að útgerð í landi, svo sem við fiskvinnslu, netagerð, heim- ilisstörf og bókhald, séu að afla veiöi- réttar. Nei, íslenskt fiskveiðistjórn- unarkerfi lítur svo á að þeim komi þetta ekkert við. Þó eru þetta allt störf sem eru hluti af fiskveiðum. Ágæti lesandi. Hafir þú fylgst með þeirri reiði sem undir sýður í minni sál við ritun þessarra fjögurra greina, sem DV hefur birt á jafn- mörgum vikum, kemur þú í hóp þeirra sem krefjast breytinga á þeirri eyðibyggðastefnu sem ríkir á Islandi. Gísli S. Einarsson Gísli S. Einarsson þingmaöur Samfylkingarinnar Lífpólitík Gaby Schweizer er siðfræðingur og heimspekingur sem skrifaði verð- launaritgerð í svissneska tímaritið „Facts“ (16/2000) undir nafninu: „Hinir útvöldu“. Þar er átt við deCode og Kára Stefánsson. Hún fékk viðtal við hann um hinn ein- stæða gagnagrunn. Fljótlega kom í ljós, að hún spurði ekki réttra spurn- inga. „Er það ekki sérkennilegt að fyrirtæki fái einkarétt til að nýta heilsufarsupplýsingar heillar þjóð- ar?“ Kári hallaði sér aftur í hæginda- stólnum og skutlaði tómri gosflösku i ruslakörfuna. „Sjáið þér nú til og hlustið vandlega,“ sagði hann pirrað- ur. „Þingið sagði aðeins já við þvi sem þjóðin hafði þegar ákveðiö!" Já, þessir íslendingar, enn og aftur. Siö- an vitnaði hún í lækninn Snorrason sem er, já kaldhæðnislega, hluthafi í fyrirtækinu en andstæðingur gagna- grunnsins. „Kári er skarpgáfaður en með stórmennskubrjálæði." „Svona gagnagrunnur gæti aldrei orðið til í Sviss.“ Gaby ritaði einnig merkilega grein í Die Zeit (47/2000), eitt virtasta tímarit Þýskalands; „Lífsið- fræði er framtíðargrein í Þýskalandi, en not hennar í daglegu starfi á sjúkrahúsunum eru umdeild." Kollegi hennar, Daniel Wikler, komst að svofelldri niðurstöðu: „Því heimspekilegar sem ég ræði í siðanefndum sjúkrahúsa, því gagnslausari finnst mér ég vera.“ Greinin fjallar um helstu siðfræðihugtök og vandamál í sambandi við hina byltingarkenndu þró- un, sem er að gerast í sam- eindaerfðafræði og tækni í greiningum á erfðaefnum. Til að finna einhvem grunn til að standa á verður að leita til heimspekinga á borð við John Stuart Mills. „Gerðir manna eru réttlætanlegar ef þær leiða til mestrar velferðar eða hamingju sem flestra." Mótsagnir 2001 Þekkingin er komin langt fram úr siðfræði samtímans. Páfinn i Róm og stjórnmálahreyfingar víða um lönd berjast gegn fóstureyðingum á sama tíma og vísindamenn fikta við klón- un á mönnum með þvi að skipta um kjarna í eggfrumum. Brátt hefst vöxturinn þegar eggið er komið á réttan stað; fruman skiptir sér í tvær, síðan fjórar og o.s.frv. Hvenær er maður orðinn til i tilraunaglösun- um? Siðfræðingar geta aðstoðað vís- indamenn og almenning en ekki sagt hver siðferðismörkin eru. Trúar- brögð og stjórnmál virðast silast í humáttina á eftir með hraða snigils- ins. Kvikmyndahöfundurinn S. Kubrick gerði myndina 2001 eftir- minnilega á þann hátt að það ár myndi marka ný tímamót í þróun mannsins; nú er rætt um að „lífpóli- tík“ sé bautasteinn 2001 (Die Zeit, 43/2000). Vísindamenn nota vél- menni eða „róbóta" til að vinna tímafrek störf í rann- sóknum og framleiðslu flóknustu afurða. Fyrr en varir spýta þeir út úr sér aragrúa upplýsinga sem kann að vera nýtanlegur. Greiningar erfðaefna eða „skotmarka" (fylgifiskar til- tekinna sjúkdóma) eru gerðar að hluta með róbót- um. Lyfjafyrirtækin láta sína róbóta prófa áhrif um milljón handbærra efna- sambanda á skotmörkin, um þúsund í einu. Með sérstakri lasertækni má finna hvaða efni tengjast skotmörk- unum, þótt ekki sé vitað hver efna- samsetning þeirra er, sennilega oft- ast prótin. Þannig opnast leið til að finna lyf sem hafa nýtanleg áhrif. Alþjóðaágreiningur Breska þingið hefur þegar sam- þykkt að klóna megi stofnfrumu mannsins í tilraunaskyni. Frakkar virðast á sömu leið og ítalskir vís- indamenn hafa lýst sig reiðubúna til að framkvæma klónun til þess að ófrjótt fólk geti eignast böm. Þjóð- verjar eru á öðru máli. Lífpólitíkin skal hvorki meira né minna en, „ákveða reglur fyrir umgengni þjóða við lífið“. Róbótar gera greiningar erfða- og meinefna, lytjafyrirtæki láta róbóta finna virk efni og róbótar sitja í stjórnum lyfjafyrirtækja, sem segja nei við kröfum þróunarlanda um ódýr lyf frá fyrirtækjum sem fram- leiða „ólöglegar" eftirgerðir, t.d. gegn eyðni. Jónas Bjarnason „Róbótar gera greiningar erfða- og meinefna, lyfjafyrir- tœki láta róbóta finna virk efni og róbótar sitja í stjórnum lyfjafyrirtœkja sem segja nei við kröfum þró- unarlanda um ódýr lyffrá fyrirtœkjum sem framleiða „ólöglegar“ eftirgerðir, t.d. gegn eyðni. “ Með og á móti ninni í handbólta? EM þeirra vettvangur Komast ekki áfram jfíL „Haukarnir hafa | verið að leika IP skemmtilegan handbolta í vetur og verið með langbesta liöið. Evrópukeppnin er búin að vera þeirra vettvangur og í raun hafa Haukarnir verið að leika mun betur í Evrópu- keppninni en í Nissandeild- inni. Eftir góðan vetur viröist liðið vera komið í einhvern öldudal um þessar mundir og Viggó Valdimar þjálfari á það erfiðá verkefni fyrir höndum að rífa liðið Guöjón Gudmundsson íþróttafréttamaöur á Slöö 2 upp úr þessum öldudal. Ég er viss um að Haukarnir vinna heimaleikinn gegn króatíska liðinu en framhaldið ræðst af útileiknum í Króatíu. Hauk- amir gætu komið á óvart en þeir verða þá að leika mun betur en gegn ÍR, HK og Gróttu/KR í síðustu leikjum hér heima. Annars er Ijóst að Haukarnir eru að blæða fyrir þátttökuna í Evrópukeppninni hér heima og líklega verða þeir ekki íslandsmeistarar í vor.“ S / ' „Ég get ekki séð að Haukamir eigi fr möguleika á því að komast lengra í Evrópukeppninni. Þeir hafa verið að leika illa í síðustu leikjum og það getur ekki verið að lið sem á í miklum erfiðleikum með íslensk lið eigi mikið erindi í sterkan andstæðing í fjöguiTa liða úr- slitum í Evrópukeppni. Annars er ég nokkuð ánægð- ur með Haukana í vetur og vissulega er það góður árangur að slá út sterk- Magnús V. Pétursson fyrrv. milliríkjadómari í handbolta an andstæðing í átta liða úr- slitum. En betur má ef duga skal þegar komið er í hóp fjögurra sterkustu liðanna. Ég tel einfaldlega að Haukaliðið hafi þegar sýnt okkur sínar bestu hliðar í þessari keppni og þeir eigi fullt í fangi með aö innbyrða íslandsmeistaratitilinn hér heima. Þeir verða slegnir út af króat- íska liðinu og falla út úr Evr- ópukeppninni með sæmd eftir allt Lið Hauka hefur náð mjög góðum árangri í Evrópukeppni félagsliða í handknattleik karla í vetur. Liðið er nú komið í undanúrslit keppninnar og er það betri árangur en vonast var til fyrir fram. Spurningin er nú hvort Haukum tekst að komast alla leið í úrslitaleikinn. Maöurinn og fæðan „Eitt sem lítið breytist á þriðja árþúsundinu er bragðið, bragð af mat og drykk...Maðurinn er og hefur lengi verið toppurinn í fæðukeðj- unni...Hann er eina lífveran sem étur án þess að vera étin...Ásókn manns- ins í hryllingsmyndir nútimans stafar fyrst og fremst af þessu dulvitaða minni um þá tíma þegar hann mátti þola að vera bráð stóru dýranna. Nú leitum við að gleði og finnum hana við nægtaborð. Allar hátiðir okkar eru veisluhöid, matur og drykkur." Gunnar Dal, heimspekingur og rithöfundur. I Rabbi Lesbókar Mbl. 17. mars. Kaupæði og svikin vara „Krafan um lágt vöruverð er í sjálfu sér vel skiljanleg. En verður ekki einnig að huga að því hvað er eðlilegt gjald fyrir vöru? Það er ekki endi- lega hagur neyt- andans að borga sem minnst fyrir til- tekna vöru eða þjónustu. Það getur boðið þeirri hættu heim að framleið- endur eða milliliðir taki upp á alls kyns hundakúnstum til að blekkja neytandann. Hver kannast ekki við brimsalta og rennvota skinku innan úr umbúðum? Svoleiðis vaming mætti allt eins selja í lítratali eins og að miða magnið við kíló.“ Oddur Ólafsson blm. í Degi 17. mars. Heilsan og rafsegulsviðið „Nýlegar erlend- ar rannsóknir leiða æ meiri líkur að þvi að hvers konar rafsegulsvið geti haft alvarleg áhrif á heilsu og liðan fólks og jafn- vel valdið krabba- meini...En hvemig hefur rafmagn og rafsegulmengun áhrif á heilsu fólks? Er hugsanlegt, að hjá þeim sem búa í nágrenninu geti staðsetning þessara mannvirkja valdið heilsuskaða?... Nú nýlega hafa verið að berast fréttir um að í fyrsta skipti hafi opinber bresk stofnun viðurkennt opinberlega að tengsl geti verið á milli krabba- meinstilfella og háspennulína." Drífa Hjartardóttir alþingism. í Mbl. 17. mars. Skoðun Vörpulegur flokkur Niðurstaða þingsins var raunar fyrst og fremst formlega staðfesting á fyrri stöðu og innsetning á ástandi sem þegar ríkti. Halldór Ásgrimsson er áfram hinn óumdeildi og elskaði leiðtogi og sonur framsóknarsólarinnar 1 landinu. Guðni Ágústsson er nú formlega i næstaefsta þrepi valdastiga flokksins, en þangað var hann reynd- ar að flestra dómi þegar kominn fyrir þingið. Siv Friðleifsdóttir sýndi Hjálm- ari Árnasyni enn og aftur hver hef- ur töglin og hagldirnar á Suðurnesj- um. Og Ólafur Örn Haraldsson sit- ur eftir í því horni sem hann hafði fyrir þingiö verið settur í eða sjálf- ur málað sig út í. Afturhaldskommar? Þetta var sem sé ekki stótíðinda- þing, eins og mátt hefði ætla af gríð- arlegri umíjöllun í aðdraganda þess. Það sem gerðist var mestan part fyrirsjáanlegt og niðurstaðan sú sem flestir pólitiskir álitsgjafar höfðu spáð. Meira að segja hafði þessum úrslitum verið spáð í stjömuspám blaðanna, þar sem nagli er sjaldan barinn á höfuð. Spár um að kvóta- sprengjum yrði varpað inn á þingið gengju ekki eftir og Evrópumálin virt- ust heldur ekki eldfim. Innanflokksværingar voru i lágmarki en þess meira barið á andstæðingum utan flokks, svo sem vinstri grænum „aftur- haldskommum", en þar virðast framsóknarmenn hafa fund- ið sinn höfuðandstæðing. Þetta var sem sé ekki tímamóta- eða átakaþing. Og ekki heldur stefnumótandi, enda sagði Ólafur Örn Haraldsson í viðtali við DV eft- ir þingið að hann hefði viljað sjá „sprota af pólitískri stefnumótun út úr þinginu,“ og bragð er að þá bam- ið finnur. Feiknstafir í brosi Þrátt fyrir tíðindaleysið hefur maður á tilfinningunni að Fram- sóknarflokkurinn hafa styrkt stöðu sína eftir þingiö og þess eigi eftir að sjá merki í næstu skoðanakönnun- um. Flokkurinn hefur lengið liðið fyrir ýmsa ímyndarvankanta og kannski lélega markaðssetningu, en var áberandi sem aldrei fyrr í íjölmiðlum í aðdraganda flokks- þingsins og sú umíjöllun á eftir að skOa fylgi. Og vissulega var það mikilfeng- leg sjón að fylgjast með hinum vörpulegu leiðtogum, Halldóri og Guðna, i Kastljósi sjónvarps á sunnudagskvöldiö. Mikilúðlegir og sem hoggnir í stein sátu þeir eins og klettar í hafi, landsfóðurlegir báðir, trausir og óbifanlegir en einnig mannlegir því annað veifið svignuðu feiknstafir í brosi. „Hér sitjum við og getum ekki annað því hér eigum við heima," mátti lesa út úr líkamstjáningu þeirra félaga í valdastólunum. “Og þá kjósum við og getum ekki annað“, segja örugglega margir eft- ir að flokksþingið og fjölmiðlaum- fjöllunin hefur vakið upp framsókn- argenið í þeim af þyrnirósarsvefni. ,,..og loks er eins og ekkert hafi gerst,“ sagði skáldið Steinn, og það er kannski svolít- ið sú tilfinning sem ugglaust situr í ýmsum eftir flokksþing Framsóknarflokksins um helgina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.