Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Side 22
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001
tólvui tíkni og vísinda
VBS Worm Generator 2.0 komiö á Netiö:
Ormaflóð á leiðinni
- sleppa mögulega fram hjá vírusvarnarforritum
Svo gæti farið
að holskefla af
nýjum ormum, í
ætt við Önnu
Komikovu orm-
inn og
ILOVEYOU
orminn, séu á leiðinni á næstunni.
Ástæðan er sú að á föstudaginn síð-
astliðinn sendi náunginn, sem gerði
forritið sem Önnu Kornikovu orm-
urinn var búinn til á, nýja útgáfu til
ormagerðar sem mun vera mun ein-
faldari í notkun.
Ormagerðarforritið VBS Worm
Generator var notað til að gera orm-
inn sem kenndur var við Önnu
Kornikovu og var hannað af argent-
ínskum dreng sem kallaði sig þá
Kalamar. í dag kallar hann sig að-
eins [K] og hefur að sögn sérfræð-
inga tekist að búa til ormahönnun-
arforrit sem jafnvel tölvufatlaðast
^fólk getur notað.
Starfsmenn netöryggisfyrirtækis-
ins Finjan Software hafa farið yfir
forritið og að sögn þeirra er hér um
listavel smiðað forrit að ræða og
einstaklega notendavænt. Gallar
sem leyndust í fyrsta VBS Worm
Generator forritinu eru horfnir.
Ormarnir sem hægt er að gera geta
gert árásir á varnarlausar tölvur,
hvort sem er með tölvupósti, í gegn-
um spjallrásir eins og IRC og með
sýktum tölvuskjölum. Forritið mun
einnig gera illa innrættu fólki kleift
að búa til nýjar gerðir af ormum á
einfaldan hátt. Það mun gera eftir-
likingar orma likt og komu í kjölfar
ILOVEYOU ormsins útdauðar og
Það er lágt lagst aö nota súpergell-
una Önnu Kornikovu til að fá fólk,
og þá karlmenn sérstaklega, til aö
opna sýkt viðhengi en mannskepn-
an er á stundum grimm og ailt eins
von á holskeflu nýrra orma með til-
komu nýrrar útgáfu VBS Worm
Generator 2.0.
Starfsmenn netörygg-
isfyrirtækisins Finjan
Software hafa farið
yfir forritið og að sögn
þeirra er hér um lista-
vel smíðað forrit að
ræða og einstaklega
notendavænt. Gallar
sem leyndust í fyrsta
VBS Worm Generator
forritinu eru horfnir.
þ.a.l. verður erfiðara fyrir fyrirtæki
í vírusvömum að halda i við þróun-
ina.
Hægt er að nálgast forritið á Net-
inu á heimasíðu [K] og fleiri
argentískum heimasíðum (sem fólk
verður sjálft að grafa upp því DV
Heimur ætlar ekki að auðvelda staf-
rænum skemmdarvörgum fram-
kvæmdir á spellvirkjum). I skil-
málaskjali sem fylgir VBS Worm
Generator 2.0 segir [K] að hann frii
sig allri ábyrgð af þeim ormum sem
framleiddir verði á forritið. Hann
varar líka fólk við þvi þeir ormar
sem gerðir verði á forritinu geti
dreifst hratt og valdið miklum
skaða. Og að lokum segir [K] að for-
ritið sé aðeins ætlað til fræðslu.
Umferð á Napster minnkar
- og minnkar eftir því sem sían eykst
Nú þegar búið er
að neyða grey-
kallana á Napst-
er til að sía út
lög sem eru
bundin höfund-
arrétti hefur
umferð um síðu fyrirtækisins
minnkað þó nokkuð. Vefkönnunar-
fyrirtækið Webnoize, sem fylgist
með umferð á tilteknum síðum á
Netinu, sagði að frá því síunin fór í
gang hefði skjalaskiptum fækkað
um 60%.
Þrátt fyrir að sían sé komin í
gang er nokkuð um að fólk sé að
Vefkönnunarfyrirtækið
Webnoize, sem fylgist
með umferð á tilteknum
síðum á Netinu, sagði
* að frá því síunin fór í
gang hefði skjalaskipt-
um fækkað um 60%.
skiptast á höfundarréttarbundnu
efni. Þetta er gert með því að breyta
nöfnum listamanna eða laga lítil-
lega. T.d. er enn hægt að finna lög
með Madonnu með því að slá inn
Madona eða Maddona. En þar sem
áður var hægt að fá hundruð laga
frá poppdrottningunni fæst nú að-
eins handfylli.
Búist er við því að sían eigi enn
eftir að herðast þannig að vitlaust
stöfuð nöfn muni ekki virka lengur.
Napster-fyrirtækið hefur gert samn-
ing við fyrirtækið Gracenote. Það
fyrirtæki á stóran gagnagrunn yfir
höfundarréttarbundin lög og er bú-
ist við þvi að það muni jafnvel
verða erfiðleikum háð að fmna vit-
laust stöfuð nöfn sem aftur leiðir af
sér enn minni umferð um Napster-
síðuna.
Það er þó enn fullt af tónlist sem
ekki hefur verið bönnuð til á Napst-
er og munu heitir tónlistaraðdáend-
ur sjálfsagt enn flykkjast að og leita
að góðri tónlist. Síðan er að sjálf-
sögðu fullt af öðrum steliforritum
Enn er hægt að nálgast lög eftir
stórstjörnur eins og Madonnu með
því að slá inn nafniö hennar vitlaust
stafað, t.d. Madona eða Maddona.
eins og Gnutella í gangi sem gera
fólki kleift að skipta beint á milli
sín i stað þess að fara í gegnum fyr-
irtæki. Einn Napster-notandi skildi
líka eftir skilaboð á síðu fyrirtækis-
ins um að annað fyrirtæki, Aimster,
væri fínt til að ná í tónlist þar sem
ekki væri búið að kæra það. Síða
Aimster er á www.aimster.com.
iMovie 2 á Makkann
Nú er loks komið
til landsins
klippiforritið
iMovie 2. Um er
að ræða forrit
sem hægt er að
láta taka
myndefni af stafrænum upptökuvél-
~*um, klippa, setja inn hljóð og fram-
kvæma ýmsar aðgerðir á einfaldan og
fljótlegan hátt.
Hægt er að nota iMovie 2 á öllum
Apple-tölvum sem eru með FireWire-
tengi. Þetta eru allar þær tölvur sem
eru seldar í dag ásamt þeim
PowerMac-tölvum sem hafa verið í
sölu í rúmlega 2 ár. Auk þess fylgir
forritið öllum nýjustu tölvunum frá
Apple.
í iMovie er hægt að raða og klippa
stafræn myndskeið fram og aftur og
jafnvel beita hinum ýmsu myndhrif-
um og brellum. Einfalt mál er að setja
Askiptingar á milli búta, sem og að
bæta texta ofan á myndefnið.
Hljóövinnsla og hljóðsetning er
mjög einföld. Fyrir utan tvíóma
hljóðrás myndskeiðanna eru tvær
tvíóma hljóðrásir fyrir viðbótarhljóð
og tónlist. Forritinu fylgja ýmis
hljóðhrif en einfalt er að flytja inn
lög af geisladiskum, mp3-skrár, aðrar
^hljóðskrár, sem og eigin rödd sem
hægt er að taka upp beint úr forrit-
Meö iMovie getur fólk á einfaldan og
sett sfnar eigin bíómyndir.
inu. í lokin er svo hægt að flytja efn-
ið aftur til baka yfír í myndavélina
eða vista myndina sem QuickTime-
skrá sem er svo hægt að setja á Net-
ið eða á geisladisk.
Einnig er vert að minnast á það að
ef DVD-brennari er til staðar í tölv-
unni er hægt að nota forritið iDVD
frá Apple til að búa til DVD-
fljótlegan hátt klippt, skorið og hljóð-
mynddiska sem hægt er svo að spila
í hefðbundnum DVD-spilurum.
Forritið sjálft, sem og allar leiðbein-
ingar, eru á íslensku þannig að flókin
ensk tölvuorð eru ekki að þvælast fyr-
ir fólki.
Nánari upplýsingar er hægt að fá á
íslenskri heimasíðu Apple,
www.apple.is/imovie.
húmúiií
T-zero tekur Ferrari 550 Maranello í bakaríið.
Spíttkerra
knúin rafmagni
- hraðskreiðari en Ferrari og Porsche
Nú geta þeir
bílaáhugamenn
sem áhuga hafa
á umhverfis-
vemd en hafa
ekki fengið sér
rafmagnsbíl
vegna þess hversu hægfara þeir
hafa verið hingað til farið að hlakka
til. Bandariska fyrirtækið AC Pro-
pulsion hefur nú hannað rafmagns-
bíl sem tekur aðeins 4,1 sekúndu að
komast frá núll kílómetrum á
klukkustund í hundrað en það er
hraði sem slær jafnvel út hrað-
skreiðustu bílana frá Ferrari og
Porsche.
Talsmaður AC Propulsion segir
að bilarnir, sem hlotið hafa nafnið
T-zero, séu ekki tilbúnir í fjölda-
framleiðslu þar sem fyrirtækið sé
enn að leita að aðilum til að fjár-
magna framleiðsluna. Annað sem
kemur til með að aftra fjöldafram-
leiðslu er verðið á faratækinu
en áætlað verð er 80.000
dollarar, tæpar sjö
milljónir is-
lenskra
króna.
Þrátt
fyrir
hátt
verð
er fyr-
irtækið
engu að
síður búið
að fá níu pantanir
enda sjálfsagt nóg af milljónamær-
ingum úti i hinum stóra heimi sem
bíða spenntir eftir einhverju sem
þeir hafa ekki prófað.
Eins og flestir rafmagnsbílar er
T-zero algerlega hljóðlaus. í raun-
inni þarf aðeins eitt fótstig í bílinn
til að gefa honum inn, rafmagn að
sjálfsögðu. Þegar fóturinn er tekinn
af fótstiginu hemlar bíllinn sjálf-
krafa og er þeirri orku sem verður
til við hemlun breytt í rafmagn sem
aftur er leitt á rafgeymana. Hins
vegar þarf fótstig fyrir bremsur til
að nauðhemla.
AC Propulsion vonast til þess að
koma T-zero á markað í lok ársins
eða byrjun þess næsta og því ekki
seinna vænna að fara að leggja
nokkra aura til hliðar. Þeir sem
vilja kynna sér spíttkerruna frekar
er bent á heimasíðu AC Propulsion,
www.acpropulsion.com.
því eftir.