Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2001, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001
4
37
DV Tilvera
Vinsælustu myndirnar í Bandaríkjunum:
Endurkoma
Stevens Seagals
Síðustu kvikmyndir Stevens
Seagals hafa ekki fallið í náðina
hjá fjöldanum og lent beint á
myndbandamarkaðinn. Þótti
mörgum fall hann stórt frá því
hann var vinsælasti hasarmynda-
leikarinn snemma á tíunda ára-
tugnum. Lengi lifir í gömlum
glæðum segir máltækið og það á
svo sannarlega við Seagal um þess-
ar mundir þar sem nýjastu kvik-
mynd hans, Exit Wounds, tókst
um helgina að skáka Juliu Roberts
og Brad Pitt í The Mexican, auk
þess að fá meiri aðsókn en dýrasta
kvikmynd sem Evrópubúar hafa
gert, Enemy at the Gates, sem fékk
mun betri umfjöllun hjá gagn-
rýnendum heldur en Exit Wounds.
Nú er óskarshelgin fram undan í
Bandaríkjunum og eru þær kvik-
myndir sem eru með flestar óskars-
tilnefningarnar á bakinu í góðri að-
sókn. Þrjá þeirra mynda sem til-
Exit Wounds
Steven Seagal leikur enn einu sinni
hörkutól sem lemur andstæöinga sína
sundur og saman
nefndar eru sem besta kvikmyndin
eru á listanum, Crouching Tiger,
Hidden Dragon, Traffic og Chocolat.
Þess má geta að Hidden Dragon er
búin að vera funmtán vikur á list-
anum og er enn í sjötta sæti listans.
HELGIN 16. TIL 18. MARS
ALLAR UPPHÆÐIR í ÞÚSUNDUM BANDAfflKJADOlLARA.
SÆTI FYRRI VIKA TITILL (DREIFINGARAÐILI) INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDi BÍÓSALA
O Exit Wounds 19.025 19.025 2830
o Enemy at the Gates 13.600 13.600 1509
o í The Mexlcan 8.100 50.900 3162
o 3 See Spot Run 5.210 25.018 2656
o 2 15 Minutes 4.350 17.948 2337
o 6 Crouching Tiger, Hidden Dragon 4.117 100.349 1860
o 5 Down To Earth 4.000 56.802 2425
o 4 Hannlbal 3.700 157.000 2433
0 8 Traffic 3.409 102.469 1682
© 8 Chocolat 3.400 55.800 1901
Hollow Man
Kevin Bacon í hlutverki ósýnilega vísindamannsins sem vefur sig sára-
bindum svo hann sjáist.
Vinsælustu myndböndin:
Ósýnilegi maðurinn
Hvorki meira né minna en fimm
nýir titlar koma inn á myndbanda-
listann þessa vikuna. Tvær þeirra
setja mark sitt á efstu sætin.
Spennutryllirinn Hollow Man með
Kevin Bacon og Elisa-
beth Shue í aðalhlut-
verkum fer beint í
efsta sætið. í mynd-
inni leikur Bacon vís-
indamann sem gerir
tilraunir á sjálfum
sér með þeim afleið-
ingum að hann verð-
ur ósýnilegur. í þriðja
sætinu er Nurse
Betty, gamanmynd
með gráleitan húmor
þar sem Renée
Zellweger leikur
konu sem hrífst af
persónu í sápuóperu
og ákveður að berja á
dyr hjá honum. I
neðri sætum listans
er svo að finna tvo
titla sem innihalda til
samans átta þætti í
hinni vinsælu sjón-
varpsseríu, Friends.
Hvemig er með þessa
vini, eldast þeir ekk-
ert? Serían hefur nú
verið á skjánum í ein sjö ár og enn
engin þroski átt sér stað i vinahópn-
um. 1 þrettánda sæti er svo hin vin-
sæla danska gamanmynd, Den
eneste ene.
VIKAN 12 18. MARS
SÆTl FYRRI VIKA i HULL (DREIFINGARAÐILI) VIKUR ÁUSTA
O _ Hollow Man (skífan) 1
e 1 X-Men (skífan) 3
o _ Nurse Betty (sam-myndbönd) 1
o 2 Coyote Llgly (sam myndbönd) 4
0 3 Snatch (skífani 5
o 4 Lost Souls (MYNDFORM) 3
o 8 Titan A.E. iskífan) 2
0 9 Whipped (MYNDFORM) 2
0 6 Gossip (SAM MYNDBÖND) 3
0 _ Friends 7 - 5-8 isam myndböndi 1
0 5 Shanghal Noon (myndformi 5
0 _ Friends 7 -1-4 isam myndböndi 1
_ Den eneste ene (háskölabíö) 1
0 7 High Fidelity (sam myndböndi 6
0 11 28 Days (SkIfanj 12
0 10 The Patriot iskífan) 7
© 12 Big Momma’s Hous (skífan) 10
© 13 U-571 (sam myndböndj 9
© 16 Music of the Heart iskífan) 4
0 17 Drowning Mona (myndform) 9
Atkvæðagreiðsla
um flugvöll
- hvað svo?
Atkvæðagreiðslan í Reykjavik um
flugvöll eða ekki flugvölf í Vatnsmýri
er afstaðin. Mikil umræða hefur verið
um máfið síðustu vikur og að margra
mati var það vonum seinna að stað-
setning flugvaflarins var tekin á dag-
skrá.
Margir sögðust þó orðnir feiðir á
umræðunni þegar liða tók að at-
kvæðagreiðsfunni og líklega er að ein-
hverju leyti um að kenna þeim
sleggjudómum og fullyrðingum sem
fóru að einkenna hana á lokasprettin-
um.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
liggur nú fyrir. 37,2% Reykvíkinga
létu sig málið varða og greiddu at-
kvæði, 49,3% þeirra vildu að flugvöll-
urinn færi úr Vatnsmýrinni en 48,1%
vildi hafa hann þar áfram, auðir og
ógildir seðlar voru 2,6%. Andstæðing-
ar flugvallar í Vatnsmýri unnu því
nauman sigur í þessum kosningum og
nú er yfirvalda að vinna úr málum.
En hvað skyldi verða um umræð-
una um flugvöllinn? DV leitaði til for-
svarsmanna þeirra þrennra samtaka
sem létu til sín taka í flugvallarum-
ræðunni og forvitnaðist um málið.
Sigur andstæðinga flugvallar
Bryndís Loftsdóttir verslunarstjóri
var í forsvari fyrir samtökin 102
Reykjavík sem stofnuð voru til að
beita sér í umræðunni um flugvöllinn
í Vatnsmýri.
„Viö unnum sigur í þessum kosn-
ingum," sagði Bryndís og vildi leggja
áherslu á að lýöræðislegur meirihluti
hefði verið fyrir því í atkvæðagreiðsl-
unni að flugvöllurinn færi úr Vatns-
mýrinni þrátt fyrir að sumir vildu
leggja niðurstöðuna út á annan veg.
Bryndís segist alsæl með niðurstöð-
una sem var þvert ofan i allar spár.
„Það má segja að niðurstaðan sé áfell-
isdómur yfir skoðanakönnunum sem
alltaf sögðu meirihlutann vera fylgj-
andi flugvelli i Vatnsmýri og spáðu
reyndar mun meiri þátttöku í at-
kvæðagreiðslunni en nokkur maður
hafði gert ráð fyrir og kom svo á dag-
inn að stóðst ekki.“
Hvað er fram undan hjá 102 Reykja-
vík?
„Samtökin voru stofnuð til þess að
Ánægð með nlðurstööuna
Bryndís Loftsdóttir vildi þó að um-
ræöan heföi veriö meiri milli borg-
aranna.
beita sér í þessu máli. Nú liggur fyrir
að meirihluti vill flugvöllinn burt og
þá er það stjórnvalda aö vinna úr
þeirri niðurstöðu," segir Bryndís og
samtökin 102 Reykjavík munu að
hennar sögn ekki beita sér í umræö-
unni frekar. „Fyrir okkur liggur hins
vegar aö safna fé til að greiða niður
skuldir okkar vegna auglýsingaher-
ferðarinnar sem við fórum af stað
með til að svara bæklingnum frá flug-
málastjórn. Kannski ég endi með að
selja bílinn minn upp í skuldirnar því V
ég þarf ekki á honum að halda lengur
þegar búið verður að þétta byggðina í
borginni og byggja upp í Vatnsmýri."
Bryndís er nú lent aftur í Bókabúð
Eymundsson í Austurstræti. „Sem
betur fer, hérna vil ég vera,“ segir
Bryndís sem segir undangengnar vik-
ur þó hafa verið frjóar og skemmtileg-
ar þrátt fyrir að umræðan hafi tekið á
sig pólitískari mynd en hún hafði von-
að. „Ég hélt að hér færu borgarar að
ræða við borgara um framtíðarsýn en
raunin varð að þetta lenti í pólitisku
Framtíð jafn óljós og áður
„Ég reikna með að Hollvinasamtök
Reykjavíkurflugvallar starfi áfram,"
segir Friðrik Pálsson formaður sam-
takanna, „þrátt fyrir að engin formleg
ákvörðun hafl verið tekin um það.
Niðurstaðan varð í raun engin og
framtíð vallarins jafn óljós og áður, ég
geri því ráð fyrir að Hollvinir starfi
áfram og leggi þeim lið sem vilja völl-
inn áfram í Reykjavík."
Friðrik segir að þetta hafi verið
mjög skemmtileg barátta og að hann
hafi ekki skemmt sér eins vel siðan
hann var á málfundaræfingum á
skólaárunum. „Þetta var í raun alveg
nýtt fyrir mér og ég hafi mjög gaman
af.“
Aðspurður segir Friðrik að hann
hafi verið sáttur við hlutfalli sem þeir
fengu í kostningunum eftir að þátt-
taka lá fyrir. „Þetta var nánast
bræðrabylta. Ég var búinn að reikna
út frá skoðannakönnunum að milli
fimmtán og tuttugu þúsund andstæð-
ingar vallarins myndu kjósa, þannig
Baráttan heldur áfram
Friörik Pálsson, formaöur Hollvina-
samtaka Reykjavíkurflugvallar,
segist reikna meö aö samtökin
starfi áfram.
að við þurftum að fá rúmlega fjörutiu
þúsund manns á kjörstað til að hafa
betur. Þegar ég frétti að þátttakan
hefði ekki verið meiri en þrjátíu þús-
und átti ég von á að útkoman yrði sex-
tíu fjörutíu andstæðingunum í hag.
Munurinn er ekki nema 384 atkvæði
þannig að við megum vel við una.
Dómsmálaráðuneytið var búið að úr-
skurða að þetta væri skoðannakönn-
un en ekki kostning og þá segir sig
sjálft að munurinn er langt innan við
öll skekkjumörk.
Ég er þess fullviss að flest atkvæð-
in sem reyndust ógild, vegna þess að
fólk staðfesti ekki atkvæði sitt, hefðu
falli í hlut stuðningsmanna vallarins
og það er náttúrlega mjög bagalegt því
ég er sannfærður um að við hefðum
fengið þau öll,“ segir Friðrik og hlær.
Friðrik segir að Hollvinasamtökin
hafi lagt út í lítinn kostnað í tengslum
við kosninguna. „Heildarkostnaður-
inn er örugglega undir milljón og við
erum búnir að safna fyrir honum með
frjálsum framlögum." -Kip
*
Hlúum áfram að betri byggð
„Við vorum aldrei sátt við þá til-
högun borgaryfirvalda að efha til
kosninga um framtiö flugvallarins í
Vatnsmýrinni. Að mínu mati voru
þau að bakka út úr vandræðum sem
þau voru búin að setja sig í með því
að efna til kosninga. Úrslitin voru
samt okkur í hag og fjöldinn sem tók
þátt í kosningunum var samkvæmt
okkar hugmyndum. Við efuðumst
alltaf um að sextíu til sjötíu prósent
borgarbúa myndu skila sér á kjörstaö
eins og kom fram í skoðanakönnun-
um fyrir kosningar. Flugvallarmálið á
þó enn langt ferli eftir og við munum
berjast fyrir því að flugvöllurinn
verði færður og byggð myndist í
Vatnsmýrinni," segir Örn Sigurðsson,
arkitekt og varaformaður Samtaka
um betri byggð, en þau samtök voru
fyrst til að láta að sér kveða þegar haf-
ið var að endurvinna Aðalskipulag
Reykjavíkurborgar 1996-2016.
Samtökin hafa eins og kunnugt er
mest látið að sér kveða að undanfómu
í flugvallarmálinu og voru í fyrstu
Örn Slgurðsson.
Berjumst áfram fyrir byggö í Vatns-
mýrinni.
stofnuð til að fylgja því eftir. Útvíkk-
un hefur orðiö á verkefnaskrá sam-
takanna og að sögn Arnar eru mörg
verkefni sem þarf að huga að til að
Reykjavík geti orðið að betri og mann-
vænni borg og Samtök um betri byggð
munu starfa áfram: „Nú erum við á
þessari stundu að glíma við flutning
Hringbrautar sem er á lokastigi hönn-
unar. Búið er að hanna brautina of-
anjarðar en samtökin eru alfarið á
móti þeirri hönnun, vilja láta leggja
hana í stokk. Ef flugvöllur verður
ekki í Vatnsmýrinni á næstu áratug-
um er fjarstæðukennt að setja einn til
einn og hálfan milljarð í að byggja
nýja Hringbraut ofanjarðar. Hún eyði-
leggur möguleika á tengingu miðbæj-
arins og Tjamarsvæðisins við þessa
nýju byggð. Þess vegna á Hringbraut-
in að fara ofan í jörðina."
Aðspurður sagði Örn að Samtök
um betri byggð hefðu ekki farið í mik-
inn beinan kostnað við auglýsingar
fyrir kosningarnar: „Við létum renna
nokkram sinnum litlum auglýsingum
í tilkynningatíma útvarpsins, það var
allt og sumt. Upp kom sú skoðun á
stjórnarfundi að auglýsa meira en af
því varð ekki. 102 Reykjavík, sem
voru kosningasamtök, auglýstu mun < -
meira." -HK