Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Blaðsíða 23
31
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001
X>V________________________________________________________________________________________________Kvikmyndir
Malena:
Malena og aödáendur
Malena þarf aö verjast
karlmönnum sem eru aö-
gangsharöir.
I leit aö moröingjum eiginkonu
Guy Pearce í hlutverki Leonard Shelby sem leitar hefnda
vegna morös á eiginkonu hans. Meö honum á myndinni
er Carrie-Anne Moss.
Memento er frumleg sakamálamynd
sem vakið hefur athygli á undanfóm-
um misserum. Fjallar hún um Leon-
ard Shelby sem hefur það eitt mark-
mið að hafa upp á morðingja eigin-
konu sinnar. Þetta reynist honum
erfitt þar sem hann særðist í morð-
árásinni sem gerð var á þau hjónin og
missti að hluta til allt minni, á hann
sérstaklega erfitt með að muna það
sem nýlega hefur skeð. Þetta gerir það
að verkum að hann á erfitt meö að ein-
beita sér að einum hlut og verður brátt
ómeðvitaður um hvað hann er að gera.
Leit hans að morðingjanum verður því
tilviljunarkennd og öfgafull. Shelby
reynir þó að klóra í bakkann með þvi
að taka polaroid-myndir af öllu sem
hann gerir auk þess sem hann tattó-
verar á sig skilaboð. Leit hans verður
þó ómarkvissari eftir því sem líður á
myndina.
Það er ástralski leikarinn Guy
Pearce sem leikur Shelby. Þykir hann
fara einstaklega vel með hlutverk
manns sem man allt áður en konan
hans var myrt en á erfitt með að muna
hvað skeði fyrir fimmtán minútum.
Pearce hóf feril sinn í hinni vinsælu
Natalle
Carrie-Anne Moss leikur barþjóninn Natalie sem Shelby kynnist.
Memento:
Minnislaus í leit
aö morðingja
sjónvarpsseríu, Nágrönnum. Hann
vakti fyrst athygli kvikmyndahúsgesta
í Pricilla, Queen of the Desert og frægð
hlaut hann þegai' hann lék einn af
harðsoðnu lögreglumönnunum í L.A.
Confidental. í öðrum hlutverkum eru
meðal annars Carrie-Anne Moss, sem
gerði garðinn frægan i Matrix, og Joe
Pantoliano.
Leikstjóri Memento er breskur,
Christopher Nolan, og skrifar hann
handritið eftir smásögu bróður síns,
Jonathans Nolans. Nolan fékk mikla
athygli fyrir fyrstu kvikmynd sína,
Following, sem þótti einkar vel heppn-
að byrjandaverk. Þessa dagana er
hann að hefja tökur á Insomnia og þar
eru engir smákallar í aðalhlutverkum,
A1 Pacino og Robin Williams leiða
saman hesta sína og mótleikkona
þeirra er Hilary
Swank.
Memento verð-
ur frumsýnd á
morgun í Bíóhöll-
inni og Nýja bíói í
Keflavík.
-HK
Fagurt fljoö
gerir usla í
röðum karla
Malena er ný kvikmynd frá
ítalska leikstjóranum Giuseppe
Tornatore sem skrifaði handritið
eftir smásögu Lucianos Vincenz-
onis. Eins og í nokkrum fyrri
mynda Tornadore gerist myndin í
smábæ á Sikiley þar sem allt er í
fóstum skorðum þar til óvæntur
gestur birtist.
Myndin hefur fengið mikið lof
gagnrýnenda og hlaut á dögunum
tvær Golden Globe-útnefningar og
tvær óskarstilnefningar. Var það til-
nefning sem besta erlenda kvik-
myndin og besta tónlistin.
í myndinni kynnumst við ungum
dreng sem verður ástfanginn af
fongulegri og iturvaxinni snót, sem
flytur í litla bæinn hans, þrátt fyrir
að hún sé mun eldri en hann. Eðli-
lega vekur koma hennar mikla at-
hygli I bænum. Eiginkonurnar
verða afbrýðissamar og karlarnir
gerast lostafullir. Þetta gerir líf
hennar ansi erfitt en drengurinn
gerir sitt besta til að hjálpa henni,
oft í óþökk bæjarbúa, með ófyrirséð-
um afleiðingum. Myndin gerist á
dögum seinni heimsstyrjaldarinnar
og semur snillingurinn og ósk-
arsverðlaunahafinn Ennio Morri-
cone hina hugljúfu tónlist sem svíf-
ur yfir bænum og túlkar tónlist
hans þær ólgutilfinningar sem bær-
ast í brjóstum bæjarbúa.
Það er hin gullfallega Monica
Bellucci sem leikur Malenu en stutt
er síðan hún sást i Under Suspicion,
þar sem hún lék á móti Gene Hack-
man og Morgan Freeman. Það kem-
ur sjálfsagt engum á óvart að Mon-
ica Belluci var eftirsótt fyrirsæta
áður en hún hóf að leika í kvik-
myndum. Hún hafði leikið i tveim-
ur ítölskum kvikmyndum þegar
Francis Ford Coppola fékk henni lít-
ið hlutverk i Dracula.
Eftir það lék hún ein-
göngu í ítölskum kvik-
myndum þar til í Und-
er Suspicion. Þessa
dagana er Monica
Bellucci að leika i Mat-
rix 2. Bellucci býr í
París ásamt eigin-
manni sínum, leikaran-
um Vincent Castel.
Allt frá því Giuseppe
Tornetore sendi frá
sér Cinema Paradiso
hefur hann staðið í
fremstu röð evr-
ópskra leikstjóra.
Áður hafði hann
verið valinn efnfieg-
asti ítalski leikstjór-
inn fyrir II
Camorrista. Myndir
hans hafa yfirleitt
fengið góðar við-
tökur bæði hjá
gagnrýendum og
almenningi. Má
geta þess að hann
fékk sérstök verð-
laun dómnefndar í
Feneyjum fyrir
L’Uomo delle Stelle og sú
kvikmynd var einnig til-
nefnd til óskarsverðlauna
sem besta erlenda kvik-
myndin. Fyrir tveimur árum
gerði Tornatore sína fyrstu
kvikmynd með ensku tali,
hina hugljúfu The Legend of
1900, kvikmynd um mann sem
fæðist á skemmtiferðaskipi og
stígur aldrei fæti á land alla
ævi.
Malena verður frumsýnd í
Regnboganum á morgun.
-HK
Cherry Falls:
Hrein mey, dauð mey
Hrein mey eöa ekki
Brittany Murþhy leikur dóttur lög-
reglustjórans en fööur hennar grun-
ar aö hún sé næst á lista.
Cherry Falls sækir efnivið sinn í þekktar ung-
lingahryllingsmyndir sem sett hafa svip sinn á
kvikmyndaiðnaðinn á undanfórnum árum.
Cherry Falls er samt ekki hefðbundin hryllings-
mynd heldur er hún á gamansömum nótum.
Myndin gerist í rólegum smábæ, Cherry Falls,
sem er líka dæmigerður svefnbær. Þegar þrjár
ungar námsmeyjar menntaskólans eru drepnar á
hrottalegan hátt hleðst spennan upp. Stelpumar
áttu allar eitt sameiginlegt: þær voru allar hrein-
ar meyjar. Bæjarfógetinn Brent Marken (Michael
Biehn) boðar til bæjarfundar til að ræða þessi
hrikalegu morð. Bæjarfundurinn leysist upp í al-
gjöra vitleysu og mitt í allri ringulreiöinni er
fjórða ungmennið drepið með köldu blóði. Brent
gerir allt til að vernda dóttur sína, Jody (Brittany
Murphy), enda hefur hann sínar grunsemdir um
hver morðinginn sé og, það sem meira er, hann
telur það víst að dóttir hans sé enn óspjölluð, sem
er að sjálfsögðu ekkert víst. Nemendur mennta-
skólans ákveða að halda heljarinnar svallveislu
þar sem markmiðið er að engin hrein mey verði í
skólanum eftir þá veislu. Sem sagt, stelpurnar
verða að afmeyjast eða deyja.
Leikstjóri Cherry Falls er ástralskur, Geoffrey
Wright, og er þetta í fyrsta sinn sem hann leik-
stýrir í Bándaríkjunum. Frægasta kvikmynd
Wrights er Romper Stomper, sem er ein vin-
sælasta innlenda kvikmyndin sem sýnd hefur ver-
ið og gerði Russell Crowe þekktan.
Cherry Falls verður frumsýnd í Stjörnubíói á
morgun.
Hrædd ungmenni
Ungir og saklausir veröa menntaskólanemar fórnar-
lömb moröingja.