Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Page 28
36
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001
Tilvera
JJLEJLft
Öperu- og
Vínartónleikar
Söngsveit Hafnarfjaröar efnir
til Óperu- og Vínartónleika í
kvöld í Hafnarborg, Hafnarfirði.
Stjórnandi er Elín Ósk Óskars-
dóttir, píanóleikari er Peter
Máté og einsöngvarar eru Þor-
geir J. Andrésson, Gréta Jóns-
dóttir, Hanna Björk Guðjóns-
dóttir, Steinarr Magnússon,
Kjartan Ólafsson og Elín Ósk
Óskarsdóttir. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 20.
Klassík
■SINFONIUTONLEIKAR Sinfóníu-
hljómsveit Islands leikur verk eftlr
Brahms á tónleikunum klukkan
19.30 í kvöld. Hljómsveitarstjóri er
Rico Saccani og einleikarar eru
Adele Anthony og Tsuyoshi
Tsutsumi.
Leikhús
■ FIFL I HOFI Gamanleikritið Fífl í
hófl veröur sýnt klukkan 20 í kvöld í
Gamla bíói (hús íslensku óperunn-
ar). Leikstjóri er María Sigur&ardótt-
ir. Nokkur sæti laus.
■ LAUFIN í TOSCANA Laufin í
Toscana eftir Lars Norén verður sýnt
á Stóra sviði ÞJó&leikhússlns í kvóld
klukkan 20. Nokkur sæti eru laus.
■ SNIGLAVEISLAN Sniglaveislan
eftir Olaf Jóhann veröur sýnd í Loft-
kastalanum klukkan 20 í kvöld.
Gunnar Eyjólfsson, Sigurþór Albert
Helmisson, Sunna Borg og Hrefna
Hallgrímsdóttlr fara meö helstu
hlutverk og leikstjóri er Sigur&ur Sig-
urjónsson. Nokkur sæti eru laus.
■ ÖNDVEGISKONUR Öndvegiskon-
ur eftir Werner Schwab veröur sýnt
á Litla svi&i Þjóðleikhússins klukkan
20 í kvöld.
Kabarett
■ BILLY JOEL KVOLD I KAFFILEIK-
HUSINU Skarphéöinn Hjartarson
syngur lög Billy Joel í Kaffileikhús-
inu og hefst dagskráin kl. 21. Eftir
hlé stígur hljómsveit á sviö. Hang
skipa Júlíus Jónasson á bassa, Örn
Arnarson á gítar og Eysteinn Ey-
steinsson á trommur. Eins og fyrir
hlé er þaö Skarphéöinn sem syngur.
Síðustu forvöð
■ HjJLDA LEIFSDOTTIR A ISA-
FIRÐI Myndlistarkonan Hulda Leifs-
dóttlr lýkur sýningu á ullarverkum
meö myndefni úr íslenskum jgjóö-
sögum í Edinborgarhúsinu á Isafir&i
í dag. í verkum Huldu hefur Manga
sem gefur kaffiö í kvæöi Þórbergs
vaknað til lífsins á ný og birtist sí-
fellt í nýjum aöstæðum og útgáfum.
Fundir
■ VELINDABAKFLÆOI
Margrét Oddsdóttir, dósent í
skurðlækningum, flytur erindi sem
nefnist Aögeröir viö vélindabakflæöi
á Landspítalanum 1994-2000.
Málstofan fer fram í sal
Krabbameinsfélags íslands, efstu
hæö, og hefst kl. 16.15 en
kaffiveitingar eru frá kl. 16.
Pjass
■ „CANNONBALL “
OJ&Möller kvintettinn leikur tónlist
saxófónleikarans Julian
„Cannonball" Adderley á Múlanum í
Húsi Málarans, í kvöld. Kvintettinn
skipa Carl Möller hljómsveitarstjóri á
píanó, Birkir Freyr Matthíasson
trompet, Ólafur Jónsson tenórsax,
Birgir Bragason bassi og Erik Qvik
trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Steinunn (Kjartansdóttir) Truesdale stenst inngöngupróf sem landgönguliði:
Islensk kona komin í
3ja mánaða „herkví“
- svipuð eldraun hjá US Marine Corps og Demi Moore í þekktri bíómynd
Bio&if'nryni
Sam-bíóin - Enemy at the Gates:
Leyniskyttur í húsarústum -gsj
„Það er verið að senda mig í
burtu núna eftir smástund. Við
erum að fara á eyju í Suður-Kar-
ólínu í þjálfun sem landgönguliðar.
Þar verðum við í þrjá mánuði og
megum einungis vera í bréfasam-
bandi við umheiminn,“ sagöi Stein-
unn H. Truesdale, 27 ára kona, dótt-
ir Ríkeyjar Ingimundardóttur
myndlistarkonu og Kjartans Sig-
tryggssonar öryggisfulltrúa. Hún og
Rut Reginalds söngkona eru báöar
dætur Ríkeyjar.
„Ég tók inntökuprófið þann 5.
april og nú er ég að fara í þjálfun-
ina. Ég held ég sé fyrsta alíslenska
konan sem fer í þjálfun sem land-
gönguliði,“ segir Steinunn.
Hún býr í San Diego í Kaliforníu
og er gift Allan Truesdale atvinnu-
hermanni. Þau eiga 4 ára dóttur,
Nicole Steinunni. Steinunn er fædd
í Keflavík.
Margur íslendingurinn hefur séö
kvikmyndina G.I. Jane þar sem
Demi Moore leikur
aðalhlutverkið. Stein-
unn segist nú vera að
fara í gegnum svipaða
eldraun hjá The US
Marine Corps, eins og
það heitir hjá land-
gönguliðum vestra.
„Demi Moore fór
reyndar í gegnum
Navy en þetta er mjög
svipað sem ég fer í.
Þetta er mjög erfíð og
löng þjálfun - land-
gönguliðamir eru
með erfiöustu þjálfun-
ina í öllum Banda-
ríkjaher."
- Ertu þá að fara aö
vaða eld og eimyrju
og þú verður skömm-
uð og tekin í gegn hjá
ströngum og að því er
virðist samviskulaus-
Steinunn í búningi eiglnmannsins
Steinunn býr í San Diego í Kaliforníu meö banda-
rískum eiginmanni sem er atvinnuhermaður. Þau
eiga 4 ára dóttur, Nicole Steinunni.
Demi Moore í kvikmyndinni G.l. Jane
Steinunn segir að þjálfun sín verði mjög svipuð þeirri sem kom fram í mynd-
inni. Hún verði erfiö, ekki síst vegna þess að erfiðara er fyrir kvenfólk en
karla að standast hinar þriggja mánaða raunir sem ganga verður í gegnum.
um þjálfurum eins og í bíómyndun-
um?
„Já, þetta verður alveg nákvæm-
lega eins. Ég verð að standa mig
eins og strákamir. Þaö er líka sagt
aö þetta sé erfiðara fyrir kvenfólk
en karlmenn því þeir vilja ekki hafa
mikið af konum í þessu. Þetta verð-
ur mikil eldskírn - og ég er aö
leggja af staö - eftir 30 mínútur,"
sagði Steinunn.
- Ertu kvíðin?
„Já, alveg óskaplega. Nei, nei, ég
ætla að standast þetta,“ sagöi Stein-
unn og kvaðst veröa að fara að taka
sig til áöur en haldið yröi af stað.
Standist Steinunn þjálfunina verður
hún væntanlega orðin atvinnuher-
maöur þegar líður á árið.
DV mun greina frá því hvernig
þjálfun Steinunnar gengur áður en
mjög langt líður.
Leyniskyttur
Jude Law í hlutverki Zaitov, meistaraskyttu sem nasistar hræðast, ásamt
Rachel Weisz sem einnig leikur skyttu.
Þegar verstu menn síðustu aldar
eru tíndir til þá eru Hitler og Stalín
ávallt ofarlega á blaöi. Þaö er því
dálítið hjákátlegt að hetjurnar í
Enemy at the Gates skuli ekki aö-
eins vera aö berjast fyrir fóðurland-
iö heldur einnig þessa tvo þjóðhöfð-
ingja sem eru eins og samnefnari
fyrir allt þaö illa í manninum. 1 síð-
ari heimsstyrjöldinni taldist Stalin
enn til „góðu“ mannanna þar sem
hann barðist gegn Hitler. Leikstjóri
Enemy at the Gates, Jean-Jacques
Annaud, hefur að vopni síðari tíma
þekkingu á stjórnarháttum Stalíns
og notfærir sér þaö til að koma á
framfæri ógnarstjórn Stalíns með
því að sýna hvemig ungir menn eru
leiddir í dauðann í byrjun myndar-
innar í nafni föðurlandsins og for-
ingjans. Ungir menn sem vita varla
hvað skotvopn er. Þetta var skipun
Stalíns og ef viðkomandi herforingi
fór ekki eftir henni þýddi það dauða
fyrir viðkomandi. Stalíngrad hélt
velli en fómin var mikil - borgin
rústir einar og hundruð þúsunda
manna í valnum.
Orrustan um Stalíngrad er um-
gjörðin í Enemey at the Gates sem
aö mestu leyti fjallar um tvær
leyniskyttur, Rússa og Þjóðverja
sem heyja sitt einkastríð í rústum
borgarinnar. Um er að ræða tvo
ólíka menn, bóndasoninn Vassili
Zaitsev (Jude Law) og þýska
aristókratann Konig (Ed Harris).
Þeir eiga ekkert sameiginlegt annað
en að vera góðar skyttur. Snemma
sýnir Zaitsev snilli sína og er gerð-
ur að hetju áður en hann sannar
sig, áróðurinn verður að vera fyrir
hendi svo ungir menn fáist til að
fóma lífinu. Um þann hluta sér
Khrústsjov (Bob Hoskins) sem síðar
átti eftir að standa í sömu sporum
og Stalín.
Það sem gefur myndinni fyrst og
fremst gildi er einvígi þeirra Zait-
sev og Konig. Þar nær Annaud upp
sálrænni spennu um leið og við
kynnumst persónunum, hvernig
þær hugsa og hvað hefur drifið á
daga þeirra. Endalokin eru nokkuð
fyrirsjáanleg og myndin á það til að
detta niður í melódrama þegar kem-
ur að hinni rússnesku Taniu
(Rachel Weisz) sem Zaitsev og vinur
hans áróðursfulltrúinn Danilov
(Joseph Fiennes) elska báðir. Góður
leikur þeirra allra bjargar þó miklu.
Það er samt Ed Harris sem er senu-
þjófurinn í þetta skiptið. ískaldur á
svip með andlitsgrímu sem passar
vel inn í rússneskan vetur bíður
hann færis. Hvort sem hann drepur
eða er að veiða upplýsingar þá er
ljóst að þama er maður sem best er
að forðast öll samskipti við.
Enemy at the Gates er mikil epísk
kvikmynd og leiðir hugann að
tveimur snilldarverkum, The Thin
Red Line og Saving Private Ryan.
Hún nær ekki gæðum þeirra en býð-
ur eins og þær upp á mikið sjónar-
spil úr mestu styrjöld sem mann-
kynið hefur háð.
Leikstjóri: Jean-Jacques Annaud. Hand-
rit: Jean Jacques Annaud og Alain God-
ard. Kvikmyndataka: Robert Fraisse.
Tónlist: James Horner. Aðalleikarar:
Jude Law, Joseph Fiennes, Rachel
Weisch, Ed Harris og Bob Hoskins.