Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001______________________________________________________________________________________________37 I>V Tilvera Krá opnar á Þingeyri: Höfum engar súlumeyjar DV, ÞINGEYRI:________________________ Staðurinn var opnaður í byrjun apríl og hefur fengið afbragðs við- tökur og fólk er ánægt með þessa nýju þjónustur hér á staðnum," seg- ir María Valsdóttir, rekstrarstjóri Tóka munks á Þingeyri. Tóki munkur er pitsustaður og krá sem rekin er sem útibú frá Hróa hetti á ísafirði. Þingeyringar hafa óspart nýtt sér staðinn og hefur skemmtileg kráarstemning skapast um helgar þar sem meðal annars hefur verið boðið upp á lifandi tón- list og er gert ráð fyrir að enn meira verði um að hljómlistarmenn skemmti gestum með hækkandi sól. Enda er öflugt tónlistalíf á staðnum. Vínveitingastaður hefur ekki áður verið á Þingeyri og er þetta því enn ein rós í bæjarflóruna á staðnum auk þess að skapa nokkra atvinnu á staðnum. „Þegar kemur fram á sumarið verður lengri afgreiðslutími og enn bætt þjónusta í mat og drykk. Fólk úr nágrannabyggðunum er svolítið farið að sækja staðinn og við stefn- um að því að draga fleiri gesti til okkar eftir því sem við festum okk- ur í sessi. Það hefur aðeins einn kvartað yfir ónógri þjónustu. Hann vildi súlumeyjar á staðinn en við gátum því miður ekki orðið við þeim óskum því við höfum engar slíkar hérna. Blessaður maðurinn varð að leysa sín mál sjálfur án okk- ar hjálpar, segir María og hlær við minningunni. -GS DV, MYND: GS A barnum María Valsdóttir, rekstrarstjóri Tóka munks á Þingeyri, segir viðtökur þorps- búa hafa verið framar öllum vonum. Hinn ímyndunarveiki Hér eru þau Guðbrandur Guðbrands- son, sem hinn ímyndunarveiki, og Hrönn Pálmadóttir í hlutverkum sín- um. ímyndunarveikin í Sæluvikunni: Læknar dæla lyf junum DV. SAUDÁRKRÖKI: Leikfélag Sauðárkróks sýnir gam- anleikinn ímyndunarveikina eftir Moliére i Sæluvikunni. Frumsýning verður í Bifröst á sunnudagskvöld- ið. Þetta er í fyrsta skipti sem Leik- félag Sauðárkróks sýnir verk þessa konungs gamanleikjanna en þess má geta að nýlega voru 60 ár liðin frá því Leikfélag Sauðárkróks var endurreist. Eggert Kaaber stjómar uppfærslu ímyndunarveikinnar. Leikendur eru 11 og alls koma um 30 manns að sýningunni. Guðbrandur Guð- brandsson leikur hinn ímyndunar- veika Argon, heimilisfoðurinn sem hefur á sínum snærum fjöldann all- an af læknum sem dæla stöðugt í hann lyfjunum og jafnframt stendur hann í þeim stórræðum að gifta dóttur sína inn í læknastéttina til að gulltryggja nú heilbrigðisþjón- ustuna sér til handa. Það er Hrönn Pálmadóttir sem er i stærsta kvenhlutverkinu og einnig eru í stórum hlutverkum Styrmir Gíslason, Dagbjört Jóhannesdóttir, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Sigurður Halldórsson. Leikhópur- inn er að mestu skipaður því fólki sem hefur borið hitann og þungann af sýningum hjá LS síðustu misser- in en þrír leikarar eru nú að stíga sin fyrstu spor á leiksviði: Gísli Þór Ólafsson, Ingimar Eiríksson og Sig- urður I. Ragnarsson. „Klassískur gamanleikur með sorglegu ívafi, eða fjölskyldu-gam- an-harmleikur.“ Þannig lýsir leik- stjórinn, Eggert Kaaber, ímyndun- arveikinni sem gerist í París í byrj- un síðustu aldar. ímyndunarveikin er þekkt verk sem hefur verið leik- ið um nánast allan heim og verið sýnt viða hér á landi hjá áhugaleik- húsum, en reyndar lítið í atvinnu- leikhúsum síðustu áratugina. Egg- ert Kaaber er ungur maður sem út- skrifaðist á sínum tíma frá Leiklist- arskóla íslands og hefur leikið tals- vert og einnig leikstýrt hjá áhuga- leikfélögum og leikdeildum fram- haldsskóla. -ÞÁ Gospelsystur Margrét Pálmadóttir hefur alltaf ver- ið stjórnandi þeirra. Gospelsyst- * ur og Páll Rósinkranz Gospelsystur Reykjavíkur halda, undir stjórn Margrétar Pálmadótt- ur, vortónleika í Langholtskirkju í kvöld og laugardag, kl. 14 og 17. Ein- söngvari með systrunum að þessu sinni er Páll Rósinkranz og er efnis- skráin mjög fjölbreytt. Hljómsveit- arstjóri er Stefán S. Stefánsson. Gospelsystur Reykjavíkur eru að ijúka fjórða starfsári sínu og hefur Margrét Pálmadóttir stjórnað þeim frá upphafi. í kórnum eru nú um 120 konur og leggur hann áherslu á « negrasálma, gospeltónlist, þjóðlög og kirkjutónlist. Gospelsystur hafa haldið marga sjálfstæða tónleika og farið í tónieikaferð til Kölnar í Þýskalandi, auk þess sem sumir meðlimir kórsins fara reglulega í æflngabúðir á Ítalíu. í maí fara fram upptökur á fyrstu geislaplötu Gospelsystra. í lok ágúst mun kórinn halda til Bandaríkjanna i pílagrímsfór. Ferð- inni er heitið til New Orleans og þar mun kórinn syngja á tónleikum ásamt öörum gospelkórum. Kórinn heldur einnig tónleika í New York. ’ í ágúst eru fyrirhugaðir kveðjutón- leikar fyrir þessa ferð. „Landsbyggðartútturnar" Friðrik Ómar og Hera Björk munu flytja lagiö „Engum nema þér“ í Landslagskeppni Stöövar 2 og Byigjunnar nk. föstu- dagskvöld. Mynd Brink Landsbyggðartúttur Friðrik Ómar og Hera Björk eru fulltrúar landsbyggðarinnar í Landslagskeppninni sem fram fer 27. apríl nk. á Broadway. Alls keppa flytjendur 10 laga um Landslagið 2001 og virðist sem tónlistaráhugi landsmanna hafi aldrei verið meiri, því 370 lög bárust í keppnina. Lag Friðriks Ómars við texta Gunnars Þórissonar, bónda á Búr- felli, heitir Engum nema þér og er dúett með suðrænu ívafi. Þetta er í fyrsta skipti sem Hera og Friðrik Ómar starfa saman en von er á frek- ari samvinnu þar sem þau hafa ný- stofnað hljómsveitina „Sweetí“ ásamt fleirum. „í upphafi fannst mér algjört lyk- ilatriði að nota heimafólk í flutning- inn á Broadway. Auk okkar Heru njótum við stuðnings tveggja fag- urra yngismeyja, Hrafnhildar Reykjalín og Guðbjargar Jóhannes- dóttur, á sviðinu. Svo má nefna að Jón Elvar Hafsteinsson, gamall landsbyggðarrefur, spilar á gitar,“ segir Friðrik Ómar. Enn fremur má geta þess að útsetningu lagsins ann- aðist Óskar Einarsson frá Akureyri. Hera Björk flutti frá Reykjavík sl. haust til Dalvikur og er alls ekkert fararsnið á henni aö hennar sögn. „Það er eitthvað við snjóinn, sjóinn og sólina sem heillar mig hér fyrir norðan,“ segir Hera. -BÞ Sportvörugerðin er flutt í Skipholt 5, 105 Reykjavík Símar 562-8383 og 899-0000 Átt þú rétt á húsaleigubótum? Samkvæmt lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997, skulu öll sveitarfélög greiða húsaleigubætur til þeirra leigjenda sem eiga rétt á slíkum bótum. Þeir leigjendur eiga rétt á húsaleigubótmn sem leigja íbúðarhúsnæði til að vera í og eiga þar lögheimili. Ef erlendir ríkisborgarar eiga lögheimili hér á landi eiga þeir rétt á húsaleigubótum. íbúar í leiguíbúðum sem eru á vegum sveitarfélaganna sjálfra eiga rétt á húsaleigubótum. Við útreikning húsaleigubóta er tekið mið af leigufjárhæð, tekjum, eignum og framfærslu bama. Sveitarfélög annast afgreiðslu og útborgun húsaleigubóta og ber leigutaka að skila umsóknum til þeirra. Umsókn um húsaleigubætur skal rituð á sérstakt umsóknareyðublað. Eyðublað þetta liggur m.a. frammi hjá félagsþjónustum viðkomandi sveitarfélaga, íbúðalánasjóði og á heimasíðu ráðuneytisins. Útfylltri umsókn ásamt umbeðnum gögnum skal skilað til félagsþjónustu sveitarfélaga þar sem umsækjandi á lögheimili. Nánari upplýsingar um húsaleigubætur, útreikning þeirra og skilyrði em á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins. Auk upplýsinga um tekju- og eignamörk leigjenda (sjá: www.stjr.is / félagsmálaráðuneyti / húsnæðismál /húsaleigubætur / Upplýsingabæklingur - 6. útgáfa 2001). Einnig er hægt að fá bækling afhentan í félagsmálaráðuneytinu. Samráðsnefnd um húsaleigubætur félagsmálaráðuneytinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.