Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2001, Qupperneq 32
Nýja verslunarmiðstöðin
k Reikna má meö vandamálum viö aö
komast til og frá svæöinu í haust.
Öngþveiti við
Smáralind
Búast má viö miklum töfum og
vandræðum í umferð um Reykjanes-
braut og aðreinar til og frá Smáralind
í Kópavogi þegar nýja verslunarmið-
stöðin verður opnuð í október. Að
sögn Jónasar Snæbjörnssonar hjá
Vegagerðinni er ekki á döfinni að
gera þar vegabætur á þessu ári.
I dag vottar fyrir fyrirhuguðum að-
reinum inn á verslunarsvæðið i
Smáralind af Reykjanesbraut. Eftir er
^ að klára þær og tvöfalda en slíkt mun
ekki vera á dagskrá á þessu ári. Jónas
Snæbjörnsson segir ljóst að umferða-
magnið, sem gert er ráð fyrir að flæði
til og frá verslunarmiðstöðinni,
sprengi umferðaræðarnar á álagstím-
um. Hann segir ekki spurningu hvort
það gerist, heldur hversu oft. Til
stendur þó að gera lagfæringar með
ljósum á Arnarneshæðinni við Hafn-
arfjarðarveg til að liðka þar fyrir auk-
inni umferð. -HKr.
Súlukóngur léttist um 15 kíló
Ásgeir Davíðsson, betur þekktur
sem Geiri i Maxím, hefur lést um 15
kíló í Ungverjalandi en þar hefur
hann dvalist á heilsuhóteli i Sobron á
landamærum Austurríkis undanfarn-
ar tvær vikur og verið i strangri
megrun. Geiri var 140 kíló þegar hann
fór utan en er nú 125 kíló og þakkar
árangurinn sérvöldu, ungversku
mataræði.
„Þetta er aldagamall kúr sem ég er
á hér og hann virkar," sagði Geiri í
Maxím í símtali við DV þar sem hann
var í hvíldarstöðu i leikfimisalnum á
heilsuhótelinu i Sobron. „Fyrstu vik-
una fékk ég djúsglas í morgunverð og
grænar baunir og gulrætur í hádeg-
imat. í eftirrétt voru gular baunir.
Kvöldmaturinn
samanstóð svo af
einu epli sem var
fyllt með jógúrt,"
sagði Geiri og við-
urkenndi að hann
hefði verið mjög
svangur fyrstu vik-
una i Sobron. „Síð-
ari vikuna fékk ég
hins vegar súpu-
disk í öll mál og ein-
hvern veginn venst þetta.“
Geiri er vakinn eldsnemma á
morgnana og settur í leikfimi. Að því
loknu fer hann upp á efri hæðir
heilsuhótelsins þar sem hann er
sprautaður með heitu og köldu vatni
Geiri
í Maxím.
til skiptis, þrjá mnganga, og síðan
dembt í sundlaug:
„Það er mjög sérstakt að vera bað-
aður svona upp úr köldu og heitu til
skiptis en það mun vera lykilatriði í
þessum ungverska megrunarkúr.
Einnig er lagt mikið upp úr daglegum
gönguferðum og nuddi alls konar,“
sagði Geiri sem finnur mikinn mun á
sér eftir 15 kílóin sem eru farin, segist
léttari á sér og allar hreyfingar snar-
ari. Hann dvelur á heilsuhótelinu í
Sobron ásamt félaga sínum, Þorsteini
Hjaltested, stórbónda á Vatnsenda.
Þorsteinn hefur líka grennst um 15
kíló. Hann var 150 kUó þegar hann fór
utan en er nú 135 kUó. Þeir félagar
biðja fyrir kveðjur heim. -EIR
Voðaverk og
Guttormur
í Fókusi á morgun verður umfjöll-
un um sjálfsvíg á íslandi. Meðal ann-
ars er rætt við sérfræðinga i geölækn-
ingum, vitni og fólkið sem er reiðubú-
ið að fórna frítíma sínum til að að-
stoða þá sem eru í sjálfsmorðshugleið-
ingum.
Fókus fer með HeUisbúanum
Bjarna Hauki Þórssyni á æfingu á
Píkusögum Eve Ensler. Rætt er við
fólk sem fór í sveit og ætlar aldrei aft-
ur; fólki ráðlagt hvernig hægt er að
gera fuUkomið sumarfrí fyrir aðeins
tíu þúsund krónur og hús tekiö á
nautinu Guttormi og rætt við hann
um misheppnaðan megrunarkúr.
brother p-toUChi25o
Lítil en STÓRmerkileq merkivél
5 leturstærðir
9 leturstillingar
prentar i 2 linur
boröi 6. 9 og 12 mm
4 geröir af römmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Simi 554 4443
Veffang: www.il.is/rafport
CEIRI SÚLA!
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
FIMMTUDAGUR
APRIL 2001
Landslag í hættu
Björn Árnason, formaður Félags ís-
lenskra hljómlistarmanna, gekk í
morgun á fund for-
ráðamanna Stöðvar
2 til að gera úrslita-
tilraun tU að bjarga
útsendingum á
Landslagi Bylgjunn-
ar 2001 sem fyrir-
hugað er að senda
út beint í útvarpi og
sjónvarpi frá Broad-
way annað kvöld.
Björn Árnason.
Stöð 2 hefur ekki vUjað semja við tón-
listarmenn um greiðslur fyrir að
koma fram i útsendingunni og það tel-
ur formaður tónlistarmanna hreina
lítilsvirðingu við félagsmenn sína. Á
fundinum í morgun átti að reyna til
þrautar að ná samkomulagi og bjarga
þar með Landslaginu 2001. -EIR
Krakkar á sjó
Reykjavíkurhöfn, Fræöslumiöstöö Reykjavíkur og Háskóli íslands hafa tekiö höndum saman um að bjóöa grunnskóla-
nemendum í Reykjavík lifandi fræöslu um höfnina og sjávarlífið á Sundunum. Samstarfiö hófst í desember
síöastliðnum og í gær fóru ellefu ára nemendur í Laugarnesskóla í Reykjavík í fyrstu sjóferöina,
ásamt kennara sínum og Loga Jónssyni, dósent viö Háskólá íslands.
Lögreglan í Reykjavík rannsakar
enn sjálfsvíg manns sem grunaöur
var um að framleiða amfetamín á
heimili sínu. Verið var að gera húsleit
hjá manninum þegar hinn hörmulegi
atburður átti sér stað.
Að sögn lögreglu liggur ekki ljóst
fyrir hvert umfang meintrar am-
fetamínframleiðslu var en það mun
væntanlega skýrast á ailra næstu dög-
um. Lögregla verst frétta af rannsókn-
inni en skýrslugerð vegna atburðar-
ins mun þó vera langt komin. -aþ
Veröfall krónunnar segir til sín og skellur á neytendum:
inverði eftir helgina
- ástæðan sögð hækkun dollars og hærra heimsmarkaðsverð
Búast má við umtalsverðri
hækkun á eldsneytisverði eftir
helgina. Staðfest er að hækkunin
verður veruleg og er jafnvel búist
við fimm krónu hækkun á bensín-
lítra og jafnvel meiru.
Reynir Guðlaugsson, hjá inn-
flutningsdeild oiíufélagsins Skelj-
ungs, segir gengislækkun hafa
bæst ofan á miklar hækkanir á
bensíni á heimsmarkaðsverði. Því
liggi í loftinu hækkanir um mán-
aðamótin.
„Það er ekki fjarri lagi að bens-
ín hækki um fimm krónur eins og
staðan er núna. Ef eitthvað er þá
var doiiarinn enn að styrkjast í
morgun og það dregur ekki úr þörf
á hækkunum. Ég myndi því halda
að mjög líklegt sé að bensínlítrinn
Dýr dropi
Bensíniö fer yfir hundraö krónur.
hækki í kringum 5 krónur.“ Reyn-
h segist samt ekki búast við eins
miklum breytingum varðandi hrá-
olíuverð.
Samúel Guðmundsson, forstöðu-
maður áhættustýringar OLÍS, seg-
h alveg ljóst að búast megi við
bensín og oliuverðshækkunum eft-
ir helgina vegna gengislækkunar
krónunnar að undanförnu.
„Hversu mikið það verður get ég
ekki sagt um á þessari stundu, en
það er ljóst að það verða hækkan-
ir. Bensín hefur hækkað verulega
á heimsmarkaði og dollari hefur
einnig styrkst umtalsvert þannig
að þaö verður talsverð hækkun,“
sagði Samúel, en sagðist þó ekki
geta staðfest að bensín hækkaði
um 5 krónur lítrinn.
Magnús Ásgeirsson, birgða-
stjóri eldsneytis hjá Olíufélaginu
Esso, segir alveg ljóst að gengis-
lækkun hafi sett töluvert strik í
reikninginn varðandi verö á oliu-
vörum. Þá hafi heimsmarkaðs-
verð á olíu frekar verið að fara
upp á við þó ekki hafi verið nein
stór stökk. „Það liggja þó ekki fyr-
ir endanlegir útreikningar hjá
okkur, en þetta verður skoðað
nánar á mánudag. Hann sagðist
ekki hafa heyrt nefnda neina tölu
í sambandi við bensínhækkun.
Magnús sagði birgaðstöðu Olíufé-
lagsins vera í meðaiiagi, en lítil ol-
íusala væri eðliiega til skipa sem
liggja bundin í verkfalli.
-HKr.
Storhækkun a bens-