Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2001
Fréttir DV
Réttarhöld að hefjast vegna konu sem ákærð er fyrir að svíkja 8 karlmenn:
Sviknu karlarnir verða
allir leiddir fyrir dóm
Réttarhald fer fram í dag í máli 66
ára konu í Reykjavík þar sem það
verður að öllum líkindum ákveðið
að átta menn sem hún er ákærð fyr-
ir að svíkja út úr samtals 52 milljón-
ir króna verði leiddir fyrir dóm og
þeir siðan látnir gera grein fyrir
hvers vegna þeir kæra konuna og
hvers vegna helmingur þeirra dreg-
ur kærur og kröfu um skaðabætur
til baka. Fulltrúi ríkislögreglustjóra
mun tilkynna að þess sé óskað að
áttamenningarnir mæti þegar aðal-
meðferð málsins fer fram í lok mán-
aðarins.
Áttamenningarnir eru flestir
rosknir og búsettir á landsbyggð-
inni. Konan sendi dómara málsins
nýlega bréf þar sem hún tilkynnir
að hún geri athugasemdir við eigin
játningar við þingfestingu málsins.
Hún hafi einungis verið að játa að
hafa tekið við þeim peningum frá
áttamenningunum sem greinir frá í
ákæru - en hún hafl ekki verið að
svíkja þá af mönnunum með blekk-
ingum eins og hún er ákærð fyrir.
Elskuleg og hlýleg kona
Konan er átta barna móðir og frá-
skilin. Bú hennar var tekið til gjald-
þrotaskipta árið 1986 en engar eign-
ir fundust í búinu.
Árið 1988 var ungum manni i
Reykjavik tjáð að elskuleg og hlýleg
kona væri farin að heimsækja rosk-
inn föður hans - mann sem þjáðist
á stundum af þunglyndi og átti við
einmanaleika að stríða. Maðurinn
var ánægður að heyra að konan,
sem sögð var frænka þeirra feöga og
nýflutt að norðan, væri farin að
annast föðurinn enda hældi hann
konunni á hvert reipi. Konan fór
síðan að líta reglulega til með hin-
um einmana manni. Hún tók meira
að segja stundum af honum þvott og
gaf honum kaffi, kleinur og annað
kaffibrauð.
Faðirinn tjáði syni sínum siðar
að kona þessi, frænkan, ætti bágt.
Hún væri fráskilinn, maðurinn
hefði verið drykkjusjúklingur og
hún þyrfti að ala önn fyrir börnum
sínum. Faðirinn sagðist reyndar
hafa lánað konunni peninga fyrir
gleraugum og gervitönnum. Sonur-
inn bað föður sinn, sem hafði verið
starfsmaður Mjólkursamsölunnar í
á fjórða áratug og hafði ávallt lagt
laun sín samviskusamlega inn á
reikning, að gæta þess að lána kon-
unni ekki of mikið þótt hann vildi
hjálpa henni.
Svona gengur þetta ekki
lengur
Leið svo einhver tími þangað til
faðirinn sagði syninum að hann
hefði lánað konunni fyrir bifreið.
Hún hefði beðið hann um það. Síð-
an bar lán á góma fyrir íbúðarkaup-
um. Nú skammaði sonurinn föður-
inn og sagði að svona gengi þetta
ekki lengur. Faðirinn lofaði að gæta
sparifjár síns enda lifði hann sjálfur
sparsömu líferni.
Fyrir jólin 1988 bað konan mann-
inn að lána sér fyrir jólagjöfum. Fór
sonurinn þá að kanna málið nánar í
samráði við föðurinn. Gerðu þeir yf-
irlit yfir alllar úttektir af sparisjóðs-
reikningum föðurins sem runnið
höfðu til hinnar elskulegu og hlý-
legu konu.
Kom þá í ljós að hann var á fáum
mánuðum, í samtals 21 skipti, bú-
inn að lána henni rúmar 2 milljónir
króna á gengi þess árs. Allt hans
sparifé eftir áratugi var að verða
uppurið.
Vann viö aðhlynningu á
Droplaugarstóðum
Feðgamir kærðu konuna og var
hún síðan ákærð og mál hennar
flutt í Sakadómi Reykjavíkur árið
1991. Þegar konan kom fyrir dómara
sagðist hún hafa unnið við aðhlynn-
ingu á Droplaugarstöðum og hefði
49 þúsund krónur á mánuði þegar
opinber gjöld höfðu verið greidd.
Hún viðurkenndi þá, á sama hátt og
í framangreindu sakamáli sem tekið
verður fyrir í dag, að hún hefði tek-
ið við öllum þeim peningum sem
henni var gefið að sök að hafa þegið
í ákæru. Hún neitaði því hins veg-
ar, alveg eins og nú, að hafa verið
að blekkja nokkurn.
Þetta féllst Sakadómur Reykjavík-
ur ekki á þegar dómur var upp
kveðinn þann 22. maí 1991. Þar tók
dómurinn fram að konan hefði orð-
ið uppvís að því að hafa með síend-
urteknum blekkingum haft fé af
hinum roskna manni með sviksam-
legan hætti. Hún var sakfelld fyrir
fjársvik og fékk 6 mánaða fangelsi
skilorðsbundiö í 3 ár. Það skilorð
hélt konan. Á hinn bóginn er nú
ákært fyrir brot sem áttu sér stað
þegar ári áður en dómurinn var
kveðinn upp og allar götur til síð-
asta sumars, árið 2000.
Nú er ákært fyrir 52 milljónir
sem konan sveik af 8 körlum. Þó svo
að fjórir þeirra dragi kærur sínar
nú til baka verður málið engu að
síður sótt af sama þunga af hálfu
ákæruvaldins - mennirnir geta ekki
lengur haft áhrif á refsiþáttinn enda
var lögð mikil vinna í að rannsaka
málið og ákæra í því. Á hinn bóginn
er hinum sviknu mönnum frjálst að
fella niður bótakröfur sínar.
-Ótt
Spjallað saman í vorsólinni
Ingibjörg, Ebba og Sunna létu fara vel um sig fyrir utan Kringluna og nutu
blíðviörisins.
Slökkviliðsmenn í kjarabaráttu:
Yfirvinnubann á
Keflavíkurflugvelli
- slökkviliðsstjóri efast um lögmæti aðgerða
Aðeins í dagvinnu
Slökkviliðsmenn eru óánægðir með kjör sín og vinna ekki eftirvinnu.
Lætur ekki deigan síga
Þessi aldni grásleppuveiðimaður,
Ríkharður Sæmundsson, lætur ald-
urinn ekki á sig fá og stundar grá-
steppuveiðar af kappi, kominn á nf-
unda áratuginn.
Tjón hjá grá-
sleppukörlum
DV, AKRANESI:_____________
Margir grásleppukarlar, sem
stunda veiðar frá Akranesi, urðu
fyrir miklu tjóni á netum sinum í
lok aprílmánaðar þegar leiöindaveð-
ur gerði á miðunum. Hroði kom í
netin í vestanáttinni með þeim af-
leiðingum að töluvert af þeim eyöi-
lagðist. Samkvæmt heimildum DV
hafa ekki margir grásleppukarlar
lagt net eftir þetta enda hefur tíðin
ekki verið sérlega góð. Sumir grá-
sleppukarlar eru jafnvel að hugsa
um að hætta veiðum vegna tjónsins
sem þeir urðu fyrir og eins vegna lé-
legs verðs á grásleppuhrognum.
-DVÓ
Slökkviliðsmenn á Keflavíkurflug-
velli samþykktu í gær að fara í yfir-
vinnubann eins og félagar þeirra á
höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri og
eru því allir slökkviliðsmenn sem eru
í fullri vinnu á þessu svæði i yfir-
vinnubanni. Stjórnendur Slökkviliðs
Reykjavíkur telja bannið ólöglegt.
„Við teljum að yfirvinnubannið brjóti
í bága við reglur umíettindi og skyld-
ur opinberra starfsmanna,“ segir
Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri.
Hann segir að sem betur fer hafi
bannið ekki komið niður á starfsem-
inni en menn líti alvarlegum augum á
málið. Hægt hafi verið að leysa þau
verkefnið sem upp hafi komið en
erfitt sé að segja til um hvernig hlut-
irnir muni þróast ef stórslys eða elds-
voði komi upp á þar sem liðið sé und-
irmannað. „Með færri mönnum verð-
ur öryggið minna,“ segir Hrólfur.
Hann segir að menn vonist til að
lausn finnist á málinu sem fyrst.
Guðmundur Vignir Óskarsson, for-
maður Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna, segir að sam-
kvæmt lögum þurfi félagar í samband-
inu ekki að vinna meiri yfirvinnu en
8 stundir á viku eins og aðrir opinber-
ir starfsmenn og því séu aðgerðir
þeirra löglegar. „Við munum ekki
hætta að sinna neyðarútköllum þrátt
fyrir yfirvinnubannið," segir Guð-
mundur.Viðræður hafa staðið yfir frá
því í haust við launanefnd sveitarfé-
laganna en í síðustu viku slitnaði upp
úr samningviðræðum. Á morgun
munu formenn samningaðila eiga
fund með rikissáttasemjara.
Að sögn Guðmundar er ágreining-
urinn um grunnlaunin sem séu of lág
og ekki í samræmi við kröfur sem
gerðar séu við ráðingu í starfið. Aðal-
lega á það við um þær menntunar-
kröfur en þær eru að að slökkviliðs-
menn séu með iðnmenntun eða aðra
sambærilega menntun. „Ef við fáum
ekki þær kjarabætur sem nauðsynleg-
ar eru leiðir það til þess að við fáum
ekki menn með iðnmenntun og menn
með áhuga og vilja til að takast á við
þessa sérhæfingu. Þá eru við komin
með annars konar efnivið og það þýð-
ir einfaldlega verra slökkviliö og
sjúkraflutninga í landinu," segir Guð-
mundur. Hann telur ekki ásættanlegt
að skrifa undir samninga sem leiða til
slíks. Landssambandið undirbýr
einnig atkvæðagreiðslu um boðun
verkfafls. Slökkviliðsmenn hafa skil-
yrtan verkfallsrétt sem þýðir að halda
verði upp ákveðinni lágmarksþjón-
ustu í verkfafli.
-MA
Áfram grátt í vöngum
Pottverjar hafa talsvert rætt um
uppsögn Gests Einars Jónassonar
hjá RÚVAK en eins og fram hefur
komið í DV er
Gestur að hætta
hjá Ríkisútvarpinu
eftir langa og far-
sæla vist þar. Fram
hefur komið að
missætti hafi kom-
ið upp sem hafi
verið tilefni þess að
Gestur sagði upp störfum. Fullyrt er
í pottinum að þetta missætti, sem
svo hefur verið nefnt, tengist ekki
sist samskiptum þeirra Gests Einars
og Karls Eskils Pálssonar frétta-
manns og raunar hafi líka eitthvað
kastast í kekki milli Gests og Sigurð-
ar Þórs Salvarssonar, deildarstjóra
RÚVAK. Ekki er vitað hvað Gestur
mun taka sér fyrir hendur en upplýst
hefur verið að þátturinn Hvítir máv-
ar muni hverfa af dagskrá. Hins veg-
ar verður þáttur Gests, Með grátt í
vöngum, víst áfram á dagskrá,
þannig að laugardagssíðdegi margra
er reddað!...
Sjávarútvegsnefndin?
í pottinum hefur spurst innan úr
Framsóknarfloknum að nokkur kurr
sé þar kominn í menn vegna þess að
enn hefur lítið sem
ekkert verið gert í
að ýta af stað starfi
nefndar um sjávar-
útvegsmál en slík
nefnd var forsenda
sáttar um þennan
málaflokk á flokks-
þinginu á dögunum.
Á flokksvefnum hriflu.is má nú sjá
fyrirspurn frá flokksmanni um sjáv-
arútvegsnefndina þannig að þetta er
á leiðinni að verða opinbert klögu-
mál. Heimildir sem tengjast forust-
unni hafa í þessu sambandi bent á að
vandinn sé ekki að setja svona nefnd
af stað heldur sé vandinn sá að ekki
finnst neinn ásættanlegur einstak-
lingur til að veita henni forstöðu.
Jón Sigurðsson, hagfræðingur og
fyrrum rektor á Bifröst, stýrði störf-
um sambærilegrar nefndar um Evr-
ópumál á sínum tíma en nú vantar
einhvern óumdeildan til að fara í
þetta umdeilda mál. Ljóst þykir að
það getur ekki orðið Kristinn H.
Gunnarsson sem reifaði málið fyrir
flokksþing og eins má viðkomandi
ekki vera of tengdur kvótakerfinu!...
VG og Reykjavík
Framboðspælingar magnast nú
með hverjum deginum í heita pottin-
um. Orðrómurinn um sérstakt VG-
framboð er nú orð-
inn sterkur og er á
mörgum að heyra
að Árni Þór Sig-
urðsson, sem er
leiðtogi þess hóps
innan VG sem vill
áfram R-listasam-
starf, sé að komast
í minnihluta í flokknum. VG hefur
til þessa haldið opnum möguleikan-
um á samstarfi í framboðsmálum vítt
um landið en nú þykir ljóst að ekki
verður af slíku samkrulli á Akureyri
og tæplega heldur á Húsavík og ef
orðrómurinn reynist réttur - ekki
heldur í Reykjavík...
Tryggvi að hætta?
í Hafnarfirði eru hræringar innan
Samfylkingarinnar vegna uppstilling-
ar til bæjarstjórnar. Fullyrt er í pott-
inum að Tryggvi
Harðarson hyggist
alfarið draga sig út
úr stjórnmálum og
er skarðið sem
hann skilur eftir
sig stórt. Raunar
var Tryggvi búinn
að gefa ádrátt um
þetta þegar hann bauð sig fram til
formennsku í Samfylkingunni gegn
Össuri en menn tóku það þá ekki
mjög bókstaflega. Ljóst er að Lúðvik
Geirsson mun gera kröfu til að leiða
lista Samfylkingarinnar áfram en
meðal þeirra nafna sem heyrst hefur
að hyggist fylla skarð Tryggva og
jafnvel ógna Lúðvíki er Hafnfirðing-
urinn og popparinn, Jakob Frímann
Magnússon...