Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2001, Blaðsíða 24
36
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2001
Tilvera DV
Bútasaumur í
Ráðhúsinu
Sýning á bútasaumsteppum
stendur yflr 1 Ráðhúsi
Reykjavíkur þessa viku.
Sýningamefndin hafði að
leiðarljðsi að sýna fjölbreytnina
í íslenskum bútasaumi, enda er
breiddin mikil, bæði í litum,
mynstrum og tækni. Sýningin
endurspeglar einnig hlýju og
ánægju. Hún stendur fram á
næsta sunnudag.
Leikhús
■ LAUFIN I TOSCANA Verkiö Laufin
í Toscana eftir Lars Norén verður
sýnt á Stóra sviöi Þjóðleikhússins i
kvöld klukkan 20. Nokkur sæti laus.
Athugiö að þetta er síðasta sýning.
■ LÓMA TRÖLLASTELPA Leikritið
um hana Lómu tröllastelpu sem
Möguleikhúsið ferðast nú meö um
landið verður sýnt í félagsheimilinu í
HrTsey í dag kl. 15.
Tónleikar
■ ISLENSK OG FRONSK
KIRKJUTONLIST A AKUREYRI Þeir
Oskar Pétursson tenór og Björn
Steinar Sólbergsson orgelleikari
flytja verk eftir Pál ísólfsson, Árna
Thorsteinsson, Þórarin
Guðmundsson, Áskel Jónsson,
Sigvalda Kaldalóns, Cesar Franck,
Bach, Gounod og Geroges Bizet á
tónleikum Tónlistarfélags Akureyrar
sem verða kl. 20.30 í kvöld í
Akureyrarkirkju.
■ NEMENDATÓNLEIKAR í
SALNUM Tónlistarskólinn í
Reykjavík stendur fyrir vortónleikum
í Salnum T kvöld kl. 20. Þar verður
leikiö á hin ýmsu hljóðfæri svo sem
píanó, selló, þverflautu og
mannsröddina sjálfa.
Fundir
■ MALVISINPI Jorge Hankamer
þrófessor við Kaliforníuháskóla
heldur erindi sem hann nefnir
„Defite Nouns an d Definite NPs" í
dag kl. 17.15 í stofu 201 í
Lögbergi. Fyrilesturinn á vegum
íslenska málfræðifélagsins.
■ ER ÞJÓÐHAGSSTOFNUN
OÞORF? Niels Kærgard, doktor í
þjóðfræði og prófessor við
Landbúnaðarháslkólann í
Danmörku, flytur framsögu um
hlutverk og sjálfstæði
þjóöhagsstofnana á
morgunveröarfundi Dansk-íslenska
verslunarráösins á Grandhótell á
morgun, 10. maí kl. 8.15.
■ FUNDUR UM SÓGULEGA
KROFU KVENNA Ahugafólk um
Maríusetur ætla að hittast á
aðalfundi I Sögufélaginu i
Fichersundi í kvöld kl. 20.30. Þar
verður rætt um þann draum sem
ýmsar merkiskonur hafa alið með
sér um að kvenþjóðin eignaðist
sérstakt menningarhús er bæri
nafniö Maríusetur. Þennan draum
viöruöu þær á sögulegum fundi í
Viöey á jónsmessu 1999 og töldu
réttmætt aö eignast slíkt hus fyrir
ígildi 90 jarða er voru í eigu
kvennaklaustranna sem var skilaö
af Dönum 1918.
Sýningar
9 ROPI Listakonurnar Anna Líndal,
Olöf Nordal og Valka sýna list sina í
Nýllstasafninu við Vatnsstíg undir
yfirskriftinni Ropi.
Popp
I BOTNLEÐJA A GAUKNUM Stór
hljómsveitin Botnleðja heidur stór-
tónleika á Gauki á Stöng i kvöld.
Sjá nánar: Lifið eftir vlnnu á Vísi.is
Evróvisjón:
Veðbankar byrjaðir að spá
- konungsfjölskyldan ætlar ekki að koma
Veðbankar í Evrópu og jafnvel
víðar eru byrjaðir að spá um úr-
slitin í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva og á þeim er
hægt að veðja um sigurvegarann.
Á heimasíðu ástralska veðbank-
ans centerbet kemur fram að lik-
umar á að þeir Gunnar Ólason
og Kristján Gíslason sigri í
keppninni á laugardag séu 1 á
móti 30 og 1 á móti 7 að þeir lendi
í þremur efstu sætunum.
Mestar líkur eru á að Frakkar
eða Svíar vinni, eða 1 á móti 4,25
og minnstar líkur eru taldar á að
Tyrkir vinni, eða 1 á móti 100.
Hjá breska veðbankanum blu-
esq.com eru líkur íslands á sigri
nokkru meiri, eða 1 á móti 20.
Þar eru Svíar taldir sigurstrang-
legastir með 1 á móti 3 en Frakk-
ar fylgja fast á hæla þeirra.
Breski veðbankinn Eurobet telur
einnig mestar líkur á að Svíar
sigri, eða 7 á móti 2, og á eftir
þeim koma Grikkir og Frakkar.
íslenski hópurinn fékk frí frá
æfingum fyrir keppnina i gær og
skellti sér þess í stað í kynnisferð
um kóngsins Kaupmannahöfn.
Yasmine Olsson, sem dansar í ís-
lenska atriðinu, hefur vakið at-
hygli í Danmörku og á heimasíðu
keppninnar hjá danska sjónvarp-
inu má finna frétt um hana þar
sem meðal annars kemur fram að
hún hafi búið til dansatriði fyrir
ekki ómerkari hljómsveitir en
All Saints, Backstreet Boys,Take
That og Eternal. í gær var einnig
tilkynnt um að enginn úr dönsku
konungsQölskyldunni yrði við-
staddur söngvakeppina en búið
var að bjóða henni sérstaklega.
Aðstandendur keppninnar og
danska ferðamálaráðið segja að
það hefði verið ánægjulegt að fá
prinsana á keppnina en vildu að
öðru leyti ekki tjá sig um málið
þegar danskir fjölmiölar leituðu
eftir viðbrögðum þeirra. -MA
Einar Bárðarson
Stefnir að einu af tíu efstu sætunum.
Evróvisjónæfingarnar gengu vel:
Var bara eins
og í Njálsbúð
- segir Einar Bárðarson
Klessubílar og spilltar löggur
Hílmar
Karlsson
skrífar gagnrýni
um kvikmyndir.
12. sætið í fyrra
Þau Einar Ágúst og Telma lentu í 12. sæti í fyrra og nú bíöa menn spenntir aö sjá hvort ísland kemst
ofar i ár eöa lendir í 16. sætinu eins og oft áöur.
Bakraddirnar slá í gegn
Bakraddasöngkonur Two
Tricky, Margrét Eir og Regína,
vöktu mikla athygli i Ráðhúsi
Kaupmannahafnar í fyrrkvöld.
Undir lok formlegrar dagskrár
hófu þær upp rausn sína og
sungu Abba-lög fyrir erlenda
blaðamenn og keppendurna sem
þarna voru í boði borgarstjóra
Kaupmannahafnar. Það vakti síð-
an athygli að allir i salnum tóku
undir þegar drengirnir okkar,
Kristján Gíslason og Gunnar Óla-
son, komu ofan af annarri hæð,
þar sem þeir höfðu meðal annars
verið á spjalli við hina margróm-
uðu Olsen-bræður, og sungu með
stelpunum okkar. Og undir
stjórn Einars Bárðarsonar var
strax skipt yfir í íslensk júró-
visjon- lög. Bakraddirnar og Two
Tricky tóku auðvitað Angel en
þar að auki sungu þeir um hana
Nínu og Gleðibanka góðærisins
1986.
Þetta vakti mikla kátínu við-
staddra og augljóst að gömlu lög-
in eru ekki gleymd í Evrópu því
bæði blaðamenn og sumir kepp-
andanna kunnu textana utanbók-
ar og sungu með. Af spám er það
hins vegar að frétta að Sunnu-
dagsblaðið, danska, spáir íslandi
16. sæti en bætir því við að þeir
Kristján og Gunnar komi til með
að sigra hjörtu evrópskra ung-
lingsstúlkna.
-MT
Einar Bárðarson, höfundur Evróvisjónlags-
ins Angel, segist bjartsýnn á gott gengi og hef-
ur stefnan verið tekin á eitt af 10 efstu sætun-
um. í fyrradag fóru fram fyrstu æfingar á
flutningi lagsins á íþróttaleikvanginum Park-
en i Kaupmannahöfn sem tekur 42.000 manns í
sæti.
„Það er meiri háttar ánægja, æfingarnar
komu mjög vel út. Ég viðurkenni að innst inni
hafði ég fyrir fram áhyggjur af þvi hvernig
þetta myndi ganga í þessum risasal en krakk-
arnir stóðu sig rosalega vel. Þetta var bara
eins og við værum í Njálsbúð,“ sagði Einar
kampakátur i samtali við DV. Blaðamanna-
fundur sem haldinn var í kjölfarið var einnig
vel heppnaður að sögn Einars og iluttu íslend-
ingarnir lagið bæði á ensku og íslensku.
Keppnin fer fram nk. laugardagskvöld og
hefur íslenski hópurinn vikuna til að kynna
lagið, æfa og hitta „rétta fólkið". Áður hafa
borist fregnir af því að Angel, eða Birta, eins
og lagið heijir á íslensku, hafi fengið misjafn-
ar viðtökur og hefur a.m.k. verið vitnað til
einnar könnunar sem spáði Angel botnsæti.
Að sögn Einars er þetta hins vegar mismun-
andi eftir veðbönkum: „Ef menn toppa á rétt-
um tíma þá á þetta eftir að ganga vel. Ég vil ná
einu af tíu efstu sætunum, svona til að maður
sé raunhæfur. Innst inni langar þó alla til að
vinna,“ sagði Einar. Svo dæmi sé tekið úr
dönskum veðbanka gefur rússneska lagið 50-
falt af sér ef það vinnur. Þeir sem veðja á Ang-
el fá 10-falda peninga sína til baka ef íslending-
arnar sigra en Svíar myndu hljóta sexfaldan
ágóða. Sjálfur nefnir Einar franska, sænska og
gríska lagið sem dæmi um sigurstrangleg lög.
Alls verða sex á sviðinu þegar íslenska lag-
ið verður flutt. Einar segir andann í hópnum
vera frábæran og þau hafi m.a.
tekið lagið á veitingahúsi við
mikla ánægju heimþekktra
hlustenda. -BÞ
Sam-bióin - Exit Wounds -^-
Vinir eöa óvinir?
Steven Seagal og DMX ieika tvo ólíka haröjaxla.
Steven Seagal kom inn í kvik-
myndirnar vegna þess hversu góður
hann var í sjálfsvamaríþróttum.
Hann hafði auk þess að vera marg-
faldur meistari þjálfað þekkta leik-
ara í Hollywood sem síðan hjálpuðu
við að koma honum á framfæri.
Kvikmyndir hans hafa síðan ein-
kennst af þessari sérgrein hans
enda hafa leikhæflleikar ekki verið
að þvælast fyrir honum. Hefur
Seagal leikið í fimmtán kvikmynd-
um sem allar falla undir flokk saka-
málamynda og eru oft og tíðum eft-
iröpun hver af annarri. Hátindinum
náði hann í Under Siege (1992) sem
var fjórða kvikmynd hans. Varð sú
mynd mjög vinsæl. Gæði hennar má
kannski fyrst og fremst þakka leik-
stjóranum Andrew Davis (The
Fugitive). Vinsældir Seagals hafa
síðan farið þverrandi og er það i
takt við gæði mynda hans og var
svo komið að síðustu myndir hans
fór nánast beint á myndbandamark-
aðinn.
Eitthvað virðist kappinn vera að
rétta úr kútnum í nýjustu kvik-
mynd sinni, Exit Wounds, sem not-
ið hefur talsverðra vinsælda vestan
hans. Ekki hafa þó að gæðin batnað
en áherslubreytingar er að finna og
gefa þær myndinni frískt útlit.
Seagal slæst ekki eins mikið og
áður, enda orðinn fimmtugur. í stað
þess er óteljandi bílum fómað á göt-
um bílaborgarinnar Detroit. Og til
að hressa upp á staðlaðar persónur
er vinsæO rappari, DMX, fenginn til
að vera Seagal tO halds og trausts
og er ég ekki frá því að DMX eigi
einhvern þátt í góðri aðsókn í
Bandaríkjunum.
Segal er enn einu sinni í hlut-
verki einfarans innan lögreglunnar.
í upphafi fær hann aðeins skammir
fyrir að bjarga varaforseta Banda-
ríkjanna og er lækkaður í tign og
látinn í hverfi þar sem óöld ríkir.
Seagal lætur sem fyrr iOa að stjórn
og fær flesta upp á móti sér. Ekki er
allt eins og á að vera innan lögregl-
unnar f hverfinu og fljótt grunar
Seagal samstarfmenn sína um að
stunda heróínsölu.
Sagan sem boðið er upp á mynd-
inni er götótt eins og svissneskur
ostur og fátt í töluðu máli sem vit er
í. Það sem heldur myndinni saman
eru vel gerð áhættuatriði þar sem
bOar koma mikið við sögu og er
erfltt að trúa öðru en að einhverjir
hafi legið í valnum með ljótar
skrámur eða brotin bein í öllum
þessum látum. Að öðru leyti er ekk-
ert sem gleður augað og ekki hefur
Seagal, með aukinni reynslu, farið
fram í leiklistinni.
Lelkstjóri: Andrzej Bartkowiak. Handrit:
Ed Horowitz og Richard D’Ovidio. Kvik-
myndtaka: Glen MacPherson. Aöalleikar-
ar: Steven Seagal, DMX, Isiah Was-
hington og Michael Jai White.