Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Qupperneq 2
2
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001
DV
Fréttir
Stjórnarþingmenn leita stuðnings stjórnarandstöðu vegna kvótasetningar smábáta:
Stjórnarliðið klofið
um smábátalögin
- sjávarútvegsráðherra fastur fyrir en segir hugsanlegt að mýkja áhrif laganna
Miklar deilur eru í uppsiglingu á
Alþingi vegna ákvæöa í lögum um að
setja kvóta á krókabátana frá og með
1. september. Innan stjórnarflokk-
anna eru menn sem beita sér af krafti
gegn því að lögin hafi framgang. And-
stæðingar laganna vilja að þeim
verði breytt þannig að smábátar
haldi áfram á sama kerfi og nú er við
lýði. Aðrir vilja ekkert hreyfa við
þeim. Landssamband íslenskra út-
gerðarmanna hefur krafist þess að
ekki verði hreyft við lögunum. Sam-
tökin hafa lýst veiðum smábátanna
sem „stjórnlausum" og sýnt fram á
þaö með útreikningum að bátarnir
veiði þúsundir tonna umfram þaö
sem þeim er ætlað. Mikil fundarhöld
hafa verið milli þingmanna og ráð-
herra stjórnarinnar vegna þessa en
langt er í land með að lausn finnist.
Tíminn er naumur því þingi lýkur í
vikunni og að
óbreyttu fara smá-
bátamir á kvóta.
Einstakir stjóm-
arþingmenn hafa
rætt við stjórnar-
andstöðuna vegna
málsins og óskað eft-
ir stuðningi þeirra
til að kveða niður
lögin.
Guöfinnsson. Einar K. Guð-
Einar K.
finnsson, sem er þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins fyrir Vestfirði og
jafnframt formaður sjávarútvegs-
nefndar Alþingis, segir að það sé ekki
hægt að tala um samráð stjórnarþing-
manna og þingmanna stjórnarand-
stöðunnar við aö berjast gegn mál-
inu.
„Hins vegar hefur þetta mál verið
griðarlega mikið rætt meðal þing-
manna í öllum flokkum og það er
mikill stuðningur við smábátana,
bæði meðal stjórnarþingmanna og
þingmanna stjórnarandstöðunnar,“
segir hann.
„Það er ekkert
I launungarmál að ég
hef í samtölum um
þetta mál við stjórn-
arþingmenn lofaö
stuðningi Samfylk-
ingarinnar við hvert
það þingmál sem
þeir kynnu að beita
sér fyrir í því skyni
að tryggja hagsmuni
þeirra smábátasjó-
manna sem nú eiga undir högg að
sækja. Það dylst engum að stjórnar-
liðið er rótklofið í málinu," segir Öss-
ur Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingarinnar. Hann segir að Sam-
fylkingin vflji að málinu verði frestað
þar til hefldarendurskoðun á lögun-
Ossur Skarp-
héðinsson.
um um stjórnun fiskveiða lýkur og
leggi á það mjög mikla áherslu að
trillukarlar eigi sér öfluga máísvara
á Alþingi. „Það dylst engum að ríkis-
stjórnarflokkarnir ganga erinda stór-
útgerðarinnar eins og sjá má á frum-
varpi þeirra um að banna sjómanna-
verkfallið," segir Össur.
Heitt mál
Einar Kr. Guðfinnsson segir að
vissulega geti þetta mál orðið „mjög
heitt“ í þinginu, enda sé hér á ferð-
inni mjög stórt mál sem snerti marga
og bæði einstaklinga og byggðarlög.
„Það hreinlega verður að nást sam-
komulag í málinu," segir Einar.
Vestfjarðaþingmennirnir Karl V.
Matthiasson og Guðjón Amar Krist-
jánsson hafa lagt fram breytingartil-
lögu við frumvarpið þess efnis að mál-
inu verði frestað í eitt ár og hefur
sjávarútvegsnefnd
þingsins þegar rætt
breytingartOlöguna
formlega á tveggja
tíma löngum fundi.
Árni Mathiesen
sjávarútvegsráð-
herra sagði í samtali
við DV í gærkvöld að
hann tryði því ekki
Árni að þingmenn stjórn-
Mathiesen. arinnar hefðu leitað
liðsinnis stjórnarandstöðunnar.
„Hvorki stjórnarþingmenn né þing-
menn stjórnarandstöðu eru sammála
um að fresta lögunum. Það mun ekki
takast að mynda meirihluta um að
fresta því að lögin nái fram aö ganga
varðandi smábátana," segir hann.
Árni segir að tO greina komi að
breyta lögunum með það fyrir augum
ieirra.
„Ég sé engan flöt á
því að hægt verði að
fresta lögunum," seg-
ir hann.
Kristinn H. Gunn-
arsson, þingmaður
Framsóknarflokks-
ins, segir útOokað
annað en komið
verði til móts við
triflukarla. Hann
segir eðlilegt að
fresta gOdistöku laganna þar sem
heildarendurskoðun á fiskveiðilög-
gjöfmni standi yfir. Gangi lögin fram
muni það rústa atvinnu í einstökum
byggðarlögum. Hann segir jafnframt
að ef í harðbakkann slái geti hann
hugsað sér að standa að meirihluta
með stjórnarandstöðunni í málinu.
„Það er vel hugsanlegt ef ekki næst
niðurstaða sem er ásættanleg," segir
Kristinn.
-gk
að mýkja áhrif
Kristinn H.
Gunnarsson.
Evróvisjón:
Norðmenn vilja
nýja keppni
Halldór norski.
„Við ætlum að
halda nýja keppni á
næsta ári,“ sagði
Jon Ola Sand, full-
trúi norska ríkis-
sjónvarpsins, þegar
úrslit lágu fyrir í
Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarps-
stöðva í Kaup-
mannahöfn á laug-
ardagskvöldið. „Við munum berjast
á móti þessu fyrirkomulagi og vilj-
um fá íslendinga i lið með okkur til
að snúa þessu okkur í vO,“ hélt Jon
áfram og viðurkenndi fúslega að
ástæðuna fyrir reiði Norðmanna
mætti rekja til þess að símakosning
eins og sú sem viðhöfð var eyðOegg-
ur möguleika þeirra liða sem fyrst
koma á svið til að lenda ofarlega í
keppninni. Fyrstu tíu lögin fengu fá
sem engin stig og í efstu sætin röð-
uðust síðustu lög kvöldsins. Norð-
menn, sem voru fjórðu á svið, höfðu
lagt allt sitt traust á söngleikja-
stjörnuna HaOdór og bjuggust við
sigri en ekki stórtapi með frændum
sínum, íslendingum. -MT
ÞrjÚ Stíg DV-MYND EINAR J.
Höfundur íslenska lagsins, Einar Báröarson, sýnir stigin þrjú í rúllustiganum í Leifsstöö. Yesmine er aö baki hans
meö tívolíbjörn í fanginu.
Vélstjorar sam-
þykktu naumlega
„Þetta er aOt of 1001 munur,“ sagði
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafé-
lags tslands, eftir að atkvæði höfðu
verið talin hjá sáttasemjara í gær um
samning Vélstjórafélagsins og útgerð-
armanna sem gerður var í síðustu
viku.
Samingurinn var samþykktur en
eins og Helgi sagði þá var munurinn
ekki mikOl. Þeir sem greiddu samn-
ingnum atkvæði sitt voru 163, eða
56%, nei sögðu 119, eða 41%, og auðir
og ógOdir seðlar vpru 8 talsins.
Sem fyrr sagði sömdu vélstjórar og
útgerðarmenn um miðja síðustu viku
og var verkfalli þeirra þá þegar aflýst.
Talsmenn Sjómannasambandsins og
Farmanna- og fiskimannasambands-
ins hafa sagt vélstjórasamninginn
handónýtan en fullyrt er að við hann
muni gerðardómur styðjast takist
ekki samningar í deilu þeirra við út-
vegsmenn fyrir mánaðamót.
-gk
Messaö yfir Helga dvmynd pjetur
Eiríkur Jónsson, skipstjóri á Akranesi, lét Heiga Laxdal, formann
Vélstjórafélagsins, fá þaö óþvegiö vegna nýja kjarasamningsins, sem hann
taldi svik viö sjómannastéttina.
Heiðraður í París
Helgi Tómasson,
listrænn stjórnandi
San Francisco-baO-
ettsins, fékk í gær-
kvöld orðu frá
franska ríkinu fyrir
framlag sitt tO lista.
Orðan er ein helsta
viðurkenning sem
franska ríkið veitir fyrir starf i listum.
BaOettinn er á sýningarferðalagi í
Frakklandi.
76,9% þjóðarinnar með Netið
AOs hafa 76,9% landsmanna aðgang
að tölvu með Intemettenginu, sam-
kvæmt nýrri könnun Pricewaterhou-
seCoopers sem unnin var fyrir Verkefn-
isstjóm um upplýsingasamfélagið. Ekki
er marktækur munur á aðgengi eftir
kynjum en eldra fólk hefur síður að-
gang. FóLk með framhaldsmenntun hef-
ur frekar aðgang að Netinu en þeir sem
minni menntun hafa.
Verðtryggö lán hækka
Verðtryggðar skuldir heimOanna
hafa hækkað um nálægt 6 mOljarða
króna vegna vísitölutenghigar lána en
vísitala neysluverðs hefúr hækkað um
1,4% frá siðasta mánuði. Neysluverðs-
vísitalan hefur hækkað um aOs 3,5% frá
áramótum. Því má ætla að verðtryggðar
skuldir heimOanna hafi hækkað um ná-
lægt 15 miOjarða króna á þessu tímabOi.
Mbl. greindi frá,
Aliir fá biðlaun
Ákveðið hefúr verið að faOa frá mála-
ferlum vegna átta starfsmanna Byggða-
stofnunar sem ekki vOdu flytjast norður
í Skagafjörð með stofnuninni. Samið
var um að aOir hefðu rétt á biðlaunum
og eru horfúr á að það takist að útvega
öOum nýtt starf.
Hópslagsmál við Stapann
KaOa þurfti á lögreglu tO að leysa upp
hópslagsmál fyrir utan skemmtistaðinn
Stapann i Njarðvik á laugardagskvöldið.
Þurfti lögregla að beita úðagasi tO að
róa mannskapinn sem var nokkuð æst-
ur, en aOs voru um 50-60 manns á svæð-
inu. Einn var færður á lögreglustöð og
annar fylgdi með sjálfvOjugur og endaði
með því að sá síðarnefndi gisti fanga-
geymslur.
Umferðarslys aukast
Á siðustu þremur árum hefúr um-
ferðarslysum i einkabifreiðum fjölgað
um rúm 80% og slysum í rútum og
vörubifreiðum um tæp 200%. Tíu létust
á Landspítalanum eftir umferðarslys í
fyrra en þrir árið áður.
Landvernd fær nýjan formann
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arkitekt
var kosin formaður Landvemdar á aðal-
fúndi samtakanna sem haldinn var i
Hótel Valaskjálf á EgOsstöðum sl. laug-
ardag. Á fúndinum var meðal annars
QaOað um umhverfismál höfúðborgar-
innar, þjóðgarð norðan Vatnajökuls og
áhrif fyrirhugaðrar Kárahnjúkavirkjun-
ar á náttúrufar.
Dælt upp í haust
Stjómvöld hafa
samið við norska
verktakafyrirtækið
RUE um að fyrirtæk-
ið taki að sér að dæla
olíu upp úr skipinu E1
GrOlo sem situr á
botni Seyðisfjarðar en
lífríkinu í firðinum hefúr stafað mikO
mengunarhætta af því. Það var Siv Frið-
leifsdóttir umhverfisráðherra sem und-
irritaði samningmn fyrir hönd ís-
lenskra stjómvalda á borgarafundi á
Seyðisfirði á laugardaginn en hann er
metinn á um 90 mUljónir. -MA/-hdm