Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2001, Side 7
MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2001
DV
7
Fréttir
Gatnamót Miklubrautar og Skeiöarvogs
Gerö mislægra gatnamóta á þessum stað hefur snarfækkaö umferðarslysum.
efa Miklabraut og þar er
sagan sannarlega svört. Um
73% tjóna á Miklubraut
verða á gatnamótum og þar
eru gatnamót Miklubrautar
og Kringlumýrarbrautar á
toppnum yfir tjónahæstu
gatnamót landsins. Þar eru
aftanákeyrslur algengasta
orsök tjóna, eða i um 63%
tilfella, og hafa farið vax-
andi.
Af. tíu tjónahæstu gatna-
mótunum eru sjö á Miklu-
braut og oft er þar um mjög
alvarleg slys á fólki að ræða.
Einungis um 30% tilkynntra
tjóna eru í formi lögreglu-
skýrslna en um 70% í formi
tjónstilkynninga. Það getur
skýrt misræmi í opinberum
upplýsingum þegar leitað er
eftir tjónatölum.
Svartur topp tíu listi
gatnamóta
í fyrsta sæti á þessum
vafasama lista eru gatnamót
Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar með tjón
tryggingafélaga upp á nærri
452 milljónir króna á fimm
ára tímabili, 1995-1999. í
öðru sæti er *Mikla-
braut/Reykjanesbraut með
tjón upp á 447 milljónir
króna. (*Þetta hefur breyst
mjög við tvöföldim brúar.
Líklegur fimm ára kostnaður miðað
við forsendur i dag er varla meiri
en um 40 milljónir króna.) í þriðja
sæti eru gatnamótin Mikla-
braut/Grensásvegur með tjón upp á
347 milljónir króna, í fjórða sæti
Miklabraut/Háaleitisbraut með tjón
upp á 254 milljónir króna, í fimmta
sæti Miklabraut/Snorrabraut með
tjón upp á 253 milljónir króna, í
sjötta sæti Fellsmúli/Grensásvegur
með tjón upp á 245 milljónir króna,
í sjöunda sæti Bústaðaveg-
ur/Reykjanesbraut með tjón upp á
228 miUjónir króna, í áttunda sæti
Laugavegur/Kringlumýrarbraut
með tjón upp á 226 mUljónir króna,
í níunda sæti Miklabraut/Langahlið
með tjón upp á 215 miUjónir króna.
í tíunda sæti á þessum svarta lista
eru svo gatnamót *Miklubrautar og
Réttarholtsvegar með tjón á fimm
ára tímabili upp á 202 milljónir
króna. Þar hafa hlutirnir þó breyst
verulega með mislægum gatnamót-
um og tjón á þessum gatnamótum
eru nú sárafá miðað við það sem
áður var.
Allar þessar tölur eru reiknaðar
út frá forsendum í skýrslu Sjóvár-
Almennra frá því á síðasta ári og
ættu að gefa nokkuð heildstæða
mynd þó hugsanlega geti einhverju
skeikað í sumum tilfellum.
Tveggja milljarða tjón
Ef litið er til tjóna á Miklubraut í
heild árin 1994 til 1999 er áætlað að
bótaskyld tjón úr ábyrgðartrygging-
um bifreiða allra tryggingafélag-
anna vegna umferðaróhappa og
slysa á Miklubraut hafi þessi sex ár
numið 1.258.296.519 krónum, eða
nær tólf hundruð og sextíu milljón-
um króna. Rjöldi tjóna var um 2500
þar sem um 750 manns slösuðust
meira eða minna og um 5000 bílar
hafa skemmst. Ef tekið er mið af
kostnaðarlegri samsetningu meðal-
tjónsins þá má bæta við þessa tölu
eigin kostnaði tjónvaldanna, um 240
milljónum króna, og samfélagsleg-
um kostnaði vegna tjóna upp á ríf-
lega 500 milljónir króna. Heildartal-
an vegna tjóna á Miklubraut einni
saman þessi ár væri þá komin í
rúma tvo milljarða króna.
Miðað við þegar þekktar stað-
reyndir um áhrif af gerð mislægra
gatnamóta og lagfæringa á mann-
virkjum má ætla að hægt sé að
lækka tölu tjóna griðarlega. Stærsti
ávinningurinn yrði þó væntanlega
fækkun slysa á fólki þar sem skað-
inn er oft óbætanlegur. -HKr.
Lada 111 Grand Tour Station
0U0I0I01 framle'dclur í Evrópu fyrir Evrópu
(m/skráningu og ryðvörn)
Lada Family fólksbíll
módel 2001 Verð 890.000
Eigum ennþá nokkra Lada Sport Jeppa 2001
módel á gamla veröinu kr. 990.000
l.ársábyrgð
Búnaður:
■ Rafdr. rúður f/a
■ Samlæsingar
■ Veltistýri
■ Miðstöð m/sjálfvirkum hitastílli
■ Hæðarstillanleg aðalljós
■ Rafdr. opnun á afturhlera
* Farangurshlíf
■ Skipt, fellanleg aftursæti (60/40)
■ Hæðarstillanlegir höfuðpúðar á aftursætum
* 1,5 I 8 ventla fjöl-innsprautun, „Bosch“
■ Rafkerfi „Bosch“
■ Ljós „Bosch"
■ Mælaborð VDO
Útlit:
■ Samlitir stuðarar
* Vindskeið með bremsuljósi
■ Toppbogar
Erum fluttir í Holtagarða beint á móti IKEA
Sími 855 0300 • 695 4547 • Fax 577 5110
Hún er eins, leiðin að heiman og heim.
„Kostar bara minna“
Lada
Lada-umboðið ehf.9
Holtagarðar beint á móti IKEA
Sími 588 0300 og 695 4547, fax 577 5110
heimasíða www.lada.is