Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2001, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2001
I>V
5
Fréttir
DV-MYND E.ÓL
Sextán ára fangelsi
Jón Egilsson, héraðsdómslögmaöur og verjandi Atla Helgasonar, við dóms-
uppkvaðninguna í gær.
Fékk 6
mánaða
fangelsi
DV. VESTURLANDI:__________________
Héraðsdómur Vesturlands dæmdi
á mánudag 46 ára gamlan mann, bú-
settan í Reykjavík, í 6 mánaða fang-
elsi fyrir meðal annars fjársvik,
gripdeild og skemmdarverk. Mann-
inum var auk þess gert að greiða
bætur til þeirra aðila sem hann stal
frá, málsvarnarlaun og sakarkostn-
að. Ákærða var gefið að sök að hafa
í apríl, maí og júní 1999 dvalið á
tveimur gististöðum á Vesturlandi
og notið þar veitinga og þjónustu án
þess að hafa möguleika á að greiða
reikningana. Einnig hafði hann
stolið af öðru gistiheimilinu og
skemmt þar innanstokksmuni.
Hann var auk þess ákærður fyrir
nokkur hegningar- og umferðarlaga-
brot sem áttu sér stað í mars á
þessu ári. Meðal þess var líkams-
árás á Arnarstapa, skemmdir á
gistihúsi á sama stað, bílþjófnaður,
akstur án ökuréttinda, þjófnaður á
ökuskírteini og debetkortum. Mað-
urinn komst yfir leyninúmer á
reikningi debetkorteigandans og tók
út samtals 30 þúsund krónur af hon-
um. Finnur Torfi Hjörleifsson hér-
aðsdómari kvað upp þennan dóm.
-DVÓ
Héraðsdómur dæmir Atla Helgason fyrir manndráp:
Sextán ára fangelsi
fyrir ofsafengna árás
- sýknaður af ákæru um fjárdrátt í opinberu starfi
Héraðsdómur í Reykjavík dæmdi
I gær Atla Helgason lögfræðing í
sextán ára fangelsi fyrir að hafa
banað Einari Emi Birgissyni í nóv-
ember síðastliðnum. Mikið fjöl-
menni var við uppkvaðningu dóms-
ins, þar á meðal fjölskylda Einars
Amar, en ákærði, Atli Helgason,
var fjarstaddur.
í niðurstöðu dómsins segir að
árás ákærða hafl verið ofsafengin
og hann hafi banað Einari Emi með
því að slá hann fjórum sinnum í
höfuðið með hamri. Atli játaði þann
15. nóvember sl. að hafa ráðið við-
skiptafélaga sínum, Einari Emi
Birgissyni, bana á bifreiðastæði við
Öskjuhlíö en kvaðst ekki muna eft-
ir að hafa veitt honum fleiri ham-
arshögg en eitt og ef til vill tvö. Það
þykir hins vegar sannað að höggin
voru fjögur og er þar vitnað til nið-
urstöðu Þóru Steffensen réttar-
meinafræðings, sem taldi að þrír
áverkanna hefðu hver um sig getað
valdið dauða Einars.
í dómnum er jafnframt tekið fram
að ekkert bendi til þess að Atli hafi
fyrir fram verið búinn að taka
ákvörðun um að bana Einari Erni
og er því talið að ásetningur hans
hafl orðið til um leið og hann reiddi
hamarinn til höggs. Sjálfur kvaðst
Atli hafa verið gripinn ofsahræðslu
og í sjálfsvöm þegar hann átti fund
með Einar Emi í Öskjuhlíðinni
hinn örlagaríka dag. Atli segir þá
hafa deilt um rekstur verslunarinn-
ar GAP sem þeir áttu í sameiningu
og deilumar hafi magnast og endað
með átökum þeima á milli - átökum
sem lauk með dauða Einars Amar.
Vitnisburður Þóru Steffensen
bendir jafnframt til þess að ekki sé
unnt að segja til um hversu lengi
Einar Öm var með lífsmarki eftir
að hann hlaut höfuðáverkana en
mikið blóðtap fórnarlambsins bendi
til þess að dauðann hafi borið að
garði á lengri tíma en nokki-um
mínútum.
Þá er tekið fram i dómnum að
þrátt fyrir að ákærði kunni að hafa
verið undir áhrifum örvandi efna
þegar hann banaði Einari Emi eða
haft fráhvarfseinkenni vegna
neyslu slíkra efna hafl það ekki
áhrif á refsingu í málinu.
Atli var sem fyrr segir dæmdur til
16 ára fangelsisvistar og auk þess til
að greiða sambýliskonu og foreldrum
Einars Amar miska- og skaðabætur,
samtals rúmar fimm milljónir. Þá
var Atli sviptur málflutningsleyfl.
Atli var sýknaður af ákæra um
fjárdrátt í opinberu starfl þar sem
hann hafði til meðferðar þrota- og
dánarbú. Skaðabótakröfum fyrir
hönd Unit á íslandi, áður Gap ehf.,
og skaðabótakröfu sambýliskonu
Einars Amar var vísað frá dómi.
-aþ.
Allt ff ffd seljíst!
N U SKALTU KDMA DG
PRLJTTA PRUTTA PRUTTA
□ G FA ÞER HRIKALEG
GÆÐAMERKI FYRIR NÆSTUM
EKKI NEITT, EN BARA I DAG,
MIÐVIKUDAG □ G A MDRGUN,
FIMMTUDAG, ÞVI ÞA VERÐUM
VIÐ HÆTTIR □ G FARNIR □ G
BUNIR AÐ VERA ÞVI HEIMILISTÆKI
KEYPTU □ KKU R UPP TIL AGNA.
Armúla 1 7