Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2001, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2001
Fréttir DV
31 ofbeldis- og ólátamál í miðborginni um helgina
- ráðherra kallar á úttekt:
Umsjón: Siguröur Bogí Sævarsson
Oryggi folks ognað
- ferðafólk upplifir rusl, ofbeldi, glerbrot og blóð er það heimsækir Reykjavík
Lífiö um helgar í miðborg Reykja-
víkur er orðið þannig að brestir eru
famir að koma í þá ímynd íslands
að hér sé öruggt fyrir ferðamenn að
koma, að sögn ferðamálastjóra. Skal
engan undra.
Um siðustu helgi munaði t.a.m.
litlu að óeinkennisklæddur lög-
reglumaður léti hreinlega lífið er
hann hugðist koma í veg fyrir
stimpingar.
Innlent fréttaljós
Óttar Sveinsson
blaöamaður
Margir tugir kráa, næturklúbba
og veitingahúsa eru opnir langt
fram á nótt og klúbbar fram eftir
morgni - þúsundir sitja að sumbli
meira og minna á sama tíma - það
hjá þjóð sem ekki er beinlínis þekkt
fyrir að fara vel með áfengi. Síðan
ræður kylfa kasti um hve mörg of-
beldisverkin verða hverju sinni.
Ekki batnar ástandið þegar fíkniefn-
in eru lika komin til sögunnar. E-
töflurnar, amfetamínið, kókaínið og
það allt er þama líka um hverja ein-
ustu helgi með meðfylgjandi árásar-
girni neytendanna.
Þetta vita langflestir en tala mis-
mikið um það.
'
lögreglan
Veröum að hugsa um öryggi
fólks, segir ráðherra
„Ég hef kallað lögreglu á minn
fund og óskað eftir upplýsingum og
úttekt þar sem síðasta helgi er kort-
lögð. Um síðustu helgi skapaðist
mjög alvarlegt ástand í miðborginni
DVJVIYNDIR HILMAR ÞÓR
Slagsmál meðan mynd af ráðherra og yfirlögregluþjóni var tekin
Á meöan stærri myndin var tekin um hábjartan dag í gær upphófust slags-
mál tveggja ölvaðra manna á Lækjartorgi sem enduðu með því að annar
þeirra tók upp pálmatré úr stórum potti - aðeins fáa metra frá GeirJóni Þór-
issyni yfirlögregluþjóni og Sólveigu Pétursdóttur dómsmátaráöherra. Mörg slík
mál koma upp á degi hverjum segir lögreglan. Ástandið verður enn verra um
helgar þegar skyggja tekur.
sem ástæða er til að skoða,“ sagði
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra við DV.
Ráðherrann segir að ástandið í
borginni þurfi að skoða betur með
hliðsjón af því hvemig helgamar
era að næturlagi og bendir á að
borgarstjóm sé að kanna breyttan
afgreiðslutíma veitingastaða. „Við
verðum að hugsa um öryggi borg-
aranna,“ segir ráðherra og bendir
jafnframt á að þegar erlendir ferða-
menn og íbúar borgarinnar fari
um hana á morgnana eigi ástandið
að geta verið með viðunandi hætti.
Lögreglumaður limlestur
Tökum dæmi um hvemig hluti
þjóðarinnar hagar sér um helgar
niðri i hæ í höfuðborg íslands. Per-
sónur og leikendur eru vissulega
ekki allir gestanna. En eftirfarandi
atburðir eru engu að síður vanda-
mál okkar allra og hvert okkar
sem er getur lent þar á meðal ef
við tökum áhættuna og forum yfir
höfuð niður í miðbæ að kvöldlagi
um helgar - það gera nefnilega æ
færri í dag.
Um síðustu helgi var maður bar-
inn með þungri bjórkrús sem
brotnaði á andliti hans. Slík
drykkjuílát eru yfirleitt ekki langt
undir kílói að þyngd enda var
maöurinn fluttur á slysadeild.
Lögreglan segir að ofbeldi í mið-
borginni verði alvarlegra eftir því
sem lengra líður á nóttina. Klukk-
an að verða hálfsjö að morgni um
helgina var óeinkennisklæddur
lögreglumaður á frívakt staddur í
Hafnarstræti en var á heimleið.
Þrír menn réðust á manninn sem
féll í götuna. Voru spörkin þá látin
dynja á lögreglumanninum sem
var fluttur illa slasaður og meðvit-
undarlaus á sjúkrahús.
Miskunnarleysið var svo mikið í
árásarmönnunum að þeir létu
spörkin dynja þrátt fyrir að hann
lægi hreyfingarlaus í götunni.
Þetta er aöeins ein árásin af tugum
ef ekki hundruðum á lögreglu-
menn á íslandi á þessu ári.
Þetta segir margt um hvemig
ástandið er.
Feröamenn sjá blóð, glerbrot
og rusl
Um það leyti sem árásin varð á
lögreglumanninn, klukkan hálfsjö
að morgni, var ekki langt í að
ferðamenn gerðu sig klára til að
fara út eða stíga upp i rútur til að
skoða landið - líka þeir sem dvelja
á hótelum í miðborginni, t.d. á
Hótel Borg. Hvernig var útlitið þá
á götunum? - allt í rusli, glerbrot-
um og blóði, sumir enn að sumbli
- og lyktin eftir þvi.
„Hreinsunarmenn miðborgar-
innar voru í hreinustu vandræð-
um til klukkan tíu um morguninn
á 17. júní að fá fólk heim,“ sagði
Geir Jón Þórisson yfirlögreglu-
þjónn við DV.
Framkvæmdastjóri miðborgar
sagði við Morgunblaðið í gær að
dæmi séu um að ráðist hefði verið
á fólk í verslunum snemma morg-
uns og ferðamenn væru að mæta
næturhröfnum í ýmsu ástandi.
Hreinsunarfólk hefur oftast átt í
basli með að þrifa upp og hefur
jafnvel átt fótum fjör að launa.
Þetta er ekki fallegur raunveru-
leiki en sannur engu að síður.
Of langur afgreiöslutími
„Það er ljóst að afgreiðslutíma
næturklúbba verður að tak-
marka,“ sagði Geir Jón. „í mið-
bænum er gjarnan rólegt fram
undir fjögur en svo koma eftir-
legukindur sem hanga á þeim stöð-
um sem opnir eru lengur, sérstak-
lega í Hafnarstræti og Tryggva-
götu. Við merkjum að í miðborg-
inni á þessum tíma er gjarnan illa
drukkið fólk eða undir áhrifum
fikniefna."
Geir Jón bendir á að um helgina
hafi einnig átt sér stað mjög alvar-
legt atvik þegar hundruð ung-
menna hlupu á eftir pilti af asísk-
um uppruna sem hafði sveiílað
kylfu. Lögreglan hafi hreinlega
bjargað þeim pilti undan hópnum
og útilokað að segja til um hvað
gerst hefði ef ungmennin hefðu
náð honum.
Hver verður hefndin?
Þjóðhagsstofnun birti í vikubyrj-
un nýja þjóðhagsspá þar sem góð-
æri síðustu
missera er |
hreinlega blás-
ið af og spáð |
níu prósenta I
verðbólgu og I
ekki nema
0,5% hagvexti.!
Þetta er mun I
dekkri spá en
sú sem kom í |
mars síðastliðn-
um en hún var gagnrýnd harkalega
af Davíð Oddssyni sem í kjölfarið
boðaði að leggja stofnunina niður.
Velta menn nú fyrir sér hver hefnd
Davíðs á hendur Þórði Friðjóns-
syni verði vegna þessarar svarta-
gallsspár - nú hafi Þórður og hans
fólk sýnt að staðan í efnahagsmál-
um sé mun dekkri en „karlinum
með sólgleraugun" hugnist og sé því
auðsætt að hann muni gripa til
sinna ráða - og hefnda.
Á atkvæðaveiðum
Kergja er meðal Keflvíkinga eins
og fram kom i DV í gær því að
leikarinn góð-
kunni, Gunn-
ar Eyjólfs-
son, var gerð-
ur að bæjar-
listamanni í
Reykjanesbæ
enda þótt
hann hefði
búið í Reykja-
vík um ára-
tugaskeið.
Ákvörðun bæjaryfirvalda um þetta
var gerð heyrinkunn í Keflavik á
sautjándanum og var þar mikið um
dýrðir. Þar sem Gunnar kom í bæ-
inn til að taka á móti nafnbótinni
var með honum í för dóttir hans,
Þorgerður Katrín, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins. Segja menn að
hún hafi notað tækifærið og tekið i
hönd hvers manns sem hún náði í
við þetta tækifæri, sýnt sig og séð
aðra. Þarna hafi með öðrum orðum
verið þingmaður á atkvæðaveiðum.
Betri er skúr en skjálfti
Nýi málshátturinn hans Davlðs
Oddssonar forsætisráðherra, „Þeg-
ar þú ert
kominn ofan í
holu skaltu
hætta að
moka“, hefur
vakið mikla
athygli og er á
aflra vörum
við öll hugsan
leg tækifæri
Davíð var þi
ekki einn um
að semja málshátt 17. júni. íbúar á
Selfossi héldu þjóðhátíðardaginn
hátíðlegan eins og aðrir landsmenn
og gekk á með skúrum. Einum bæj-
arbúa varð á að kvarta yfir veðr-
inu en var svarað af bragöi: „Betri
er skúr en skjálfti". Því eins og
flestir vita reið fyrri stóri jarð-
skjálftinn yfir á Suðurlandi 17. júní
í fyrra - og Davíð Oddsson er upp-
alinn á Selfossi.
Sáttur við lífið
Á Norðurlandi eystra þykjast
menn ekki sjá nein merki þess að
Halldór
Blöndal sé á
útleið úr
stjórnmálum
og muni hann
án nokkurs
vafa verða
leiðtogi Sjálf-
stæðisflokks-
ins í hinu nýja
N'orðaustur-
kjördæmi í
næstu kosningum. í nýju viðtali
við AK-tímarit segist Halldór vera
sáttur við bæði lífið sjálft og flokk-
inn sinn og liti vonglöðum augum
til framtíðarinnar. Segist Hafldór
ætla í sumar að ferðast vítt og
breitt um hið nýja og víðfeðma
kjördæmi sitt og einmitt nú þyki
sér Múlasýslur aldrei hafa verið
jafnfaflegar.