Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2001, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2001
7
DV
Fréttir
HONDA CIVIC 1,5, V-
TEC H/B, 03/00,3 dyra,
ek. 22 þús km,
beinskiptur, álfelgur,
rafdr. og fl.
Verð kr. 1.490.000.
Ath. skipti.
Bíldshöfða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is
Öflugt átak hafið gegn vímuefnum í framhaldsskólum:
DV-MYND DVÓ
Bæjarlistamaður
F.v.: Smárí Vífilsson, bæjarllstamaö-
ur á Akranesi áriö 2001, og Guð-
mundur Páll Jónsson, formaöur bæj-
arráös Akraness
Efnilegur
söngvari bæj-
arlistamaður
DV, AKRANESI:
A þjóðhátíðardaginn 17. júní var
tilkynnt hver hefði hlotið starfs-
styrk bæjarlistamanns á Akranesi
fyrir árið 2001. Menningarmála- og
safnanefnd hafði mælt með að
styrknum yrði úthlutað til tveggja
aðila og hafði bæjarráð staðfest það.
Annar listamaðurinn afþakkaði
sinn hlut en Smári Vífilsson söngv-
ari tók við sínum hluta starfsstyrks
listamanns 2001. Smári hóf söng-
nám við Tónlistarskólann á Akra-
nesi og lauk 8. stigi frá Nýja tónlist-
arskólanum sl. vor. Sigurður Braga-
son var lengst af kennari hans. í
vetur stundaði Smári einkanám hjá
prófessor André Orlowitz í Kaup-
mannahöfn og hyggur hann á
frekara nám. Smári hefur komið
víða við að undanfórnu og þeir sem
hafa séð hann syngja hafa séð hann
eflast og þroskast sem listamann og
vænta mikils af honum. -DVÓ
Engir 8., 9. og 10. bekkir:
Aðstoðarskóla-
stjórar verða
deildarstjórar
Bæjarstjórn Vesturbyggðar sam-
þykkti á 100. fundi sínum breytingar á
skólahaldi sveitarfélagsins. Gert er ráð
fyrir því að engir 8., 9. og 10. bekkir
verði í Örlygshafnarskóla á næsta
skólaári en heimavist verður starfrækt
í Örlygshöfn mánuðina janúar, febrú-
ar og mars. Starfandi aðstoðarskóla-
stjórar á Bíldudal, Birkimel og í Ör-
lygshöfn verða ráðnir sem deildastjór-
ar. Einn skólastjóri er nú starfandi yfir
grunnskólum í Vesturbyggð. Skóla-
stjóra og aðstoðarskólastjórum verður
óheimilt að taka í Grunnskóla Vestur-
byggðar nemendur með lögheimili
utan Vesturbyggðar án samþykkis
bæjarráðs.
í samþykkt bæjarstjómarinnar seg-
ir svo m.a.: „Allt starfsmannahald í
skólum miðast við þá hagkvæmni sem
mest má verða. Leitað verði samninga
við Helga Jónasson út árið 2001 við eft-
irfylgni þessara tillagna. Eftir það
verði ráðinn sérstakur starfsmaður til
að annast launaútreikning og hafa eft-
irlit með íjárhagslegri framkvæmd við
skólahald. Gert verði sérstakt erindis-
bréf um starfið. Leitað verði allra leiða
I samráði við forsvarsmenn bama á
Hvalskeri að þau stundi nám við Pat-
reksskóla og aðra þá sem slíkt kann að
eiga við á komandi vetrum." -GG
Kaplakriki
veðsettur
Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar á
dögunum var lagt fram bréf aðal-
stjórnar Fimleikafélags Hafnarfjarðar
þar sem óskað er eftir heimild bæjar-
stjórnar til að veðsetja fasteignir fé-
lagsins í Kaplakrika fyrir allt að 28
milljónum króna til handa Sparisjóði
Hafnarfjarðar til þess að hægt verði
að koma böndum á erfiða greiðslu-
stöðu handknattleiksdeildar félags-
ins. Bæjarráð lagði til við bæjarstjóm
að aðalstjórn FH verði heimilað að
veðsetja fasteignir í Kaplakrika fyrir
umbeðinni upphæð. -DVÓ
þjóðfélaginu
- segir einn talsmanna forvarnahópsins um ofbeldi og nauðganir
„Þær tölur sem berast frá Neyðar-
móttökunni um hópnauðganir eru
ógnvænlegar," sagði Þorgerður Ragn-
arsdóttir, framkvæmdastjóri Áfengis-
og vímuvamaráðs. Nokkrir aðilar
hófú í vetur að móta öflugt forvama-
starf gegn neyslu áfengis og vímuefna
í framhaldsskólunum. Fyrst og fremst
er um að ræða forvamir gegn vímu-
efnaneyslu en einnig hafðir í huga aðr-
ir þættir á sama meiði, s.s. afbrot, slys
sjálfsvíg og ofbeldi af öllu tagi, þar á
meðal nauðganir, þar sem sterk tengst
era talin milli þessara þátta. Að for-
vömunum hafa, auk ráðsins, staðið
Jafningjafræðslan, ísland án eiturlyQa,
Heimili og skóli, Félag skólameistara í
framhaldsskólum, Félag framhalds-
skólanema og lögreglan i Reykjavík.
Til stendur að leita samstarfs við Félag
læknanema sem verið hefur með kyn-
lífsfræðslu í framhaldsskólum, lyfja-
fræðinema, kennaranema, hjúkrunar-
nema og jafnvel fleiri nemendafélaga á
háskólastigi.
DV greindi í gær frá því að
hópnauðgunum hafi farið fjöigandi.
Upp séu komin gengi sem nái sér í
stúlkur eða konur með yfirveguðum
hætti tO að nauðga þeim.
Samkvæmt tölum frá neyðarmót-
töku verða flestar nauðganir heima
hjá geranda eða þolanda. Algengast er
að þolandi þekki geranda. Aldursdreif-
ing er frá 12-78 ára. Flestir eru á aldr-
inum 15-25 ára. Af 97 komum á neyð-
armóttöku vegna kynferðisofbeldis
árið 2000 vora 30 fómarlömb í áfengis-
dauða þegar nauðgunin átti sér stað. 3
vöknuðu við atburðinn. Spuming var
um lyfjabyrlun í 5 málum. Fleiri en
einn gerandi var í 10 málum. 1. júní sl.
voru komin 30 mál til neyðarmóttöku.
Af þeim voru 11 í áfengisdauða þegar
nauðgun átti sér stað. 5 vöknuðu við
atburðinn. Fleiri en einn gerandi vora
í 8 málum.
„Ég tel að þessi ofbeldisverk og
nauðganir sem eiga sér stað hér á
landi orsakist ekki að öllu leyti af
vímuefnaneyslu," sagði Þorgerður.
„Það ríkir eins konar græðgismórall í
þjóðfélaginu. Við viljum vera lengur
úti, drekka meira, hafa möguleika á
öllu og ekkert lokað. í umfjöllim fjöl-
miðla um kynlífsmál er allt orðið sjálf-
sagt eins og allir séu að gera allt,
hverju nafni sem það nefnist."
Þorgerður sagði að umræddir for-
vamaraðilar hefðu áhyggjur af því
hvemig markaðssetningu væri beitt í
dag, til dæmis hvað varðaði klámiðn-
að, skemmtanir og áfengi. Skemmti-
staðimir auglýstu t.d. alls konar
keppnir í drykkju sterkra vína án þess
að nokkrar athugasemdir virtust gerð-
ar við það.
„Ég hef á tilfinningunni að ungar
stelpur sem eru að drekka þar til þær
deyja áfengisdauða, stundum með al-
varlegum afleiðingum, viti ekki al-
mennilega hvað sjúss er,“ sagði Þor-
gerður, sem telur þörf á fræðslu um
styrkleika áfengis og hversu mikið
meðalmannslíkaminn þoli.
Forvamahópurinn hefur m.a. hvatt
til stofnunar foreldrafélaga innan
framhaldsskólanna, þannig að lengur
sé haldið utan um unglingana en verið
hefúr. Vonir standa til að slík félög
verði stofhuð í haust.
-JSS
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Klippt og rakaö
Þótt hann rígni þessa dagana í höfuöborginni þarf engu aö síöur aö sinna
gróörinum. Þessir dugnaöarþiitar kliþþtu, skáru og þeittu hrífum sinum viö
Fjölbrautaskólann í Breiöholti.
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Kleppsvík - Kjalarvogur - Vogabakki,
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 m.s.b. er hér með auglýst til kynningar
tillaga að breytingu á deiliskipulagi í Kleppsvík.
Vogabakki lengist til norðurs, lóðirnar Kjalarvogur 7-
9, 11-15 og 17 ásamt Holtavegi 5 sameinaðar í eina
lóð, Kjalarvog 7-15, og byggingarreitir innan nýrrar
lóðar breytast. Hámarkshæð vörugeymslu verði í
kóta 24.0 og skrifstofubyggingar í kóta 28.0.
Tillagan liggur frammi í sal Borgarskipulags og
Byggingarfulltrúa Reykjavíkur, Borgartúni 3, 1. hæð
virka daga kl. 10:00 - 16:00 frá 20. júní til 18. júlí
2001.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflegatil
Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 1. ágúst 2001
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar innan
tilskilins frests, teijast samþykkir.
Reykjavík, 13. júní 2001
: IW-K-, ; .V;
____í___-J
Græðgismórall í