Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.2001, Blaðsíða 13
13 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2001 DV Gunnar bassáleikari Hrafhsson og allir hinir! Minnistæöur leikur Gunnars Gunnar Hrafnsson lék „eins og engiir meö Kristjönu ogAgnari. Hann lék skemmtilegar einleikslínur, mjög melódískar og fallegar. Tónn hans var hreinn og fallegur, þrátt fyrir vindinn á Jómfrúartorginu. Undanfarnar vikur hefur Gunnar Hrafnsson, bs, komið fram og leikið með mörgum af okkar ágætustu djassleikurum, bæði á sviði og í sjón- varpi. Gunnar hefur í mörg ár verið einn af okk- ar betri kontrabassaleikurum, stöðugur og tón- mikill með Stórsveit Reykjavikur, léttur og skemmtilegur með tríói Bjöms Thoroddsens og því næst sem ómissandi þar sem djassleikarar hafa þurft að skera niður i trió eða jafnvel dúó vegna lítilfjörlegra launa. Leikur Gunnars er sérlega minnisstæður með Hauki Gröndal, alto, á tónleikum Gröndals á Ozio fyrir hálfum mánuði. Haukur er mjög efni- legur ungur djassleikari sem undanfarin ár hef- ur stundað nám við hrynháskólann í Kaup- mannahöfn. Þar hefur hann líka leikið með sinni eigin hljómsveit, m.a. á djasshátíð Kaup- mannahafnar sl. sumar og víðar. Haukur kom heim í nokkra daga til að leika á Jazzdögum Garðabæjar, en freistaðist til að leika á Ozio nokkrum klukkustundum áður en Kaupmannahafnarvélin fór í loftið. Með honum léku þeir Matthías M.D. Hemstock, trm, og Gunnar Hrafnsson, bs. Ólafur Jónsson, tnr, lét með tríóinu í nokkrum lögum. Haukur sýndi þarna á sér nýja hlið með því að leika á klarinett annars vegar og sópransax hins vegar. Ef „Kletzmer“-dönsunum er sleppt, þá er Haukur orðinn afbrags djassleikari, með persónulegan stíl og tón. Það kom fyrir að hrað- inn var ekki rétt valinn og óþægilegur fyrir Hauk, en slíkt getur nú komið fyrir á bæstu bæj- um. Gunnar Hrafnsson, bs, fór á kostum bæði í undirleik og samleik. Hann var í einu orði sagt frábær. Nokkrum dögum seinna lék Gunnar Hrafnsson með Jóni Páli Bjamasyni í Kastljósþætti. Leikur þeirra var einstaklega áheyrilegur, enda sagði stjórnandi þáttarins: „Svona á djass að vera!“ Jón Páll heldur áfram að sýna snilldartakta hér heima, takta sem vöktu athygli í Bandaríkjunum. í Kastljósi sýndi bassaleikarinn Gunnar Hrafns- son aftur og einu sinni enn hvers hann er megn- ugur. Samleikur þeirra Jóns Páls var einstaklega skemmtilegur. Og nú er Jómfrúin við Lækjargötu komin aftur af stað með djasstónleika á laugardagseftirmið- dögum. Síðastliðinn laugardag lék þar enn eitt tríóið, tríó Kristjönu Magnúsdóttur, söngkonu. Kristjana hefur dvalið síðastliðin ár í Hollandi og Englandi við nám og söng. Á laugardaginn söng Kristjana, „djass-standarða“ að eigin sögn, en inn á milli læddist bítlalag og „Nature Boy,“ sem Nat King Cole varð frægur fyrir á sínum tíma. Söng- ur Kristjönu var afslappaður og áferðarfallegur. Með Kristjönu léku þeir Agnar Már Magnús- son, pno, og Gunnar Hrafnsson, bs. Agnar er ný- kominn heim eftir eins og hálfs árs dvöl í New York. Viö eigum nokkra prýðilega djasspíanista um þessar mundir. Agnar Már er einn þeirra. Flestir ef ekki allir þessir píanóleikarar eiga það sameiginlegt að vera vel verseraðir í djassleik, nokkrir meira að segja sprenglærðir. Þeir leika allir af mikiUi tækni og hljómasamsetning þeirra er aðdáunarverð. Á hinn bóginn vantar þá mýkt og persónulegan stíl. Þvi miður. Agnar Már er undantekning (sem sannar regl- una). Hann nýtir tækni sína mjög greindarlega og notar hljómasetningu sem uppfyllingu fyrir einleikara og söngvara án þess að vera sífelt að sýna getu sína. Það verður spennandi að heyra nýju tríóplötuna, sem hann gerði í New York fyrir skömmu. Einnig verður gaman að heyra útsetningar hans fyrir Kristjönu á upptökum sem hún vinnur í sumar ásamt Agnari Má, pno, Birki Frey, trpt, og erlendum félögum Kristjönu. Gunnar Hrafnsson lék „eins og engill" með Kristjönu og Agnari. Hann lék skemmtilegar einleikslínur, mjög melódískar og fallegar. Tónn hans var hreinn og fallegur, þrátt fyrir vindinn á Jómfrúartorginu. Hann er góður hann Gunn- ar. Ólafur Stephensen Gunnar Hrafnsson, djassleikari, með Kristjönu Stef- ánsdóttur á Jómfrúnni, 16.6.01, í Kastljósi á Rúv, 14.6.01 og í Ozio meö Hauki Gröndal, 4.6.01 Ósigur listarinnar Að undanfömu hafa stríðsmyndimar komið fljúgandi frá Hollywood. Saving Private Ryan halaði inn ófá verðlaun og ekki að ósekju. Hina síðari daga hafa hins vegar komið í kvik- myndahúsin myndir sem ekki hafa náð þvi flugi sem Spielberg var á. Má þar nefna sér- staklega þrjár myndir, Enemy at the Gates, Thirteen Days og nú síðast Pearl Harbor. I Sunday Times fjallaði Bryan Appleyard um stríðsmyndirnar, sannleikann og listina. Hann tekur dæmi um sagnfræðilegt leikrit Williams Shakespeares um Rikarð þriðja. Hann segir að þrátt fyrir að margir fræðimenn séu sammála Shakespeare í persónusköpun Rikarðs þá séu þeir einnig til sem telji verk Shakespeares vera grimmilegt níð og líkast til það versta í sög- unni; hann hafi ekki einu sinni verið kroppin- bakur. Ríkarður þurfi þó að „lifa“ við það að hann sé ímynd illsku og geðveiki. Appleyard spyr hvort það skipti máli þótt Ríkarður hafi verið saklaus og að í þessu til- felli listin hafi borið sannleikann ofurliði. Tímalaus og landamæralaus sannleikur Shakespeares hafi sigrað tímabundinn sann- leika lífs Ríkarðs þriðja. „Enginn með réttu ráði myndi fordæma leikritið þar sem það væru ósannindi í því. Vofa konungs verður að sækja réttlæti sitt á annan hátt.“ „Hver gerir þetta?" Appleyard fjallar um hvernig sagnfræði 20. aldarinnar hefur ratað inn í kvikmyndirnar. Hann nefnir þar dæmi um einstaklega vel heppnaða færslu stríös yfir á hvíta tjaldið í mynd Francis Fords Coppola, Apocalypse now! Einnig nefnir hann til sögunnar kvik- Óslgur listarinnar Þaö var ekki aöeins bandaríski herinn sem beiö ósigur í Pearl Harbor. mynd Terrence Malick, The Thin Red Line, sem hann segist hafa tilhneigingu til að líta á sem meistaraverk líkt og þá fyrrnefndu. í þessum tveimur myndum nálguðust kvik- myndagerðarmennirnir stríðið og stríðsrekst- urinn á öðrum forsendum en gert er í þeim kvikmyndum sem verið hafa i kvikmyndahús- unum á þessu ári. í stað þess að velta sér upp úr yfirboröslegum sagnfræðilegum staðreynd- um nálgast þeir hermennina sjálfa og hugará- stand þeirra. í mynd sinni fjallar Malick til dæmis um það hvernig svona hræðilegir hlut- ir geti átt sér stað. I einu magnaðasta atriði myndarinnar heyrast hugsanir eins her- mannsins: „Hver gerir þetta?“ Þetta tekur Appleyard sem dæmi um snilld. Endanlegur ósigur í Enemy at the Gates er hryllingur stríðsins jafnvel meiri en í myndum um Víetnam. Samt segir Appleyard að ijóst sé frá fyrstu mínútu að sá hryllingur verði einungis bakgrunnur sögunnar. Tilbúin barátta hetjanna er líkari íþróttakeppni en stríði. Endir myndarinnar segir Appleyard að sé beinlínis hlægilegur. Hann segir að heppilegri titill fyrir myndina hefði verið Áfram Stalíngrad!, myndin hefði passað vel inn i þá syrpu. Appleyard er hins vegar mun hrifnari af Thirteen Days, sem tekst bæði að fylgja sann- færandi sagnfræði og listrænni uppbyggingu. í heildina tekið séu þó stríðsmyndir síðustu missera ekki merki um ósigur sannleikans heldur miklu frekar ósigur listarinnar. Þegar grein Appleyards er skrifuð hafði Pearl Harbor ekki verið sýnd í Bretlandi og mesta áfallið því eftir fyrir Bryan Appleyard. Ógæfa þeirrar myndar er mikil; sagnfræðin er yflrborðskennd og ónákvæm, jafnvel röng, leikur er slakur og söguþráðurinn lélegur. Appleyard segir við lok greinar sinnar að sagan sé ekki heilög en við listræna útfærslu þurfi þó að gæta að ýmsu. Nákvæmni sé ekki aðalmálið heldur miklu frekar sannleikur ímyndunaraflsins. Byggt á The Sunday Times. ________________Menning Umsjón: Sigtryggur Magnason Listasumar á Akureyri Næsta laugardag verður Listasumar 2001 sett í Ketilhúsinu á Akureyri. Ræðuhöld og opnun á þremur myndlistar- sýningum markar upp- haf sumars- ins. Um er að ræða sýningu Kristbergs O. Péturssonar í Ketilhúsinu, sýningu franska ljósmyndarans Veronique Legros í Deiglunni og sýningu hol- lensku myndlistarkonunnar Merthe Koke í Gestavinnustofunni. Allar sýn- ingarnar eru opnar alla daga frá 14-18, nema mánudaga en þá er lokað. Á laugardaginn opna einnig Jón Lax- dal og Aðalheiður S. Eysteinsdóttir vinnustofusýningar í Grófargili. Þau hafa einnig á dagskrá viðburði undir heitinu „Á slaginu sex“ sem verða á hverjum degi meðan á sýningum stend- ur, kl. 18, í vinnustofu Áðalheiðar. Kínversk kvikmyndahátíð í byrjun júlí munu Filmundur, Kvik- myndasjóður íslands og Kínverska sendiráðið standa fyrir kínverskri kvikmyndahátíð. Sýndar verða sjö ný- legar kvikmyndir sem hafa vakið mikla athygli en hafa aldrei verið sýndar áður hér á landi. í tilefni af hátíðinni mun leikstjórinn Zhang Jianya verða viðstaddur frumsýningu á mynd sinni „Crash Landing" en hann er einn af virtustu leikstjórum Kínverja um þess- ar mundir. Einnig kemur leikkonan Xi Meijuan til landsins og verður hún við- stödd frumsýningu á myndinni „Round Moon Tonight", þar sem hún fer með eitt aðalhlutverkanna. Frumskógur í stofuna Japis hefur geflð út geisladiskinn Mógli. Á honum er að finna bamaleik- rit Leikfélags Reykjavíkur frá í vetur. Ekki er aðeins um að ræða lögin úr leikritinu því farin er „Egnerleiðin" og stór hluti leikritsins gefinn út líka. Böm og fullorðnir geta því notið leik- gerðar Illuga Jökulssonar á verki Kiplings í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfs- sonar með tónlist eftir Óskar Einars- Leikarar í Móglí eru Friðrik Friðriksson, sem leikur Móglí, Jó- hann G. Jóhanns- son, Jóhanna Vig- dís Arnardóttir, Halldór Gylfason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Gunnar Hansson, Ellert A. Ingimundarson og Theodór Júlíusson. son. Loksins Erró Nú líður að menningarviðburöi sem margir telja hápunkt sumarsins. Um er að ræða opnunarsýningu Errósafnsins í öllum sölum Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Hefst sýningin á Jónsmess- unni, laugardaginn 23. júní, klukkan átta um kvöldið. Sýningin er skipu- lögð þannig að góð yf- irsýn fæst yfir allan feril Errós. Einnig verður í kastljósinu sú staðreynd að Erró hef- ur ekki síður unnið í öðrum listmiðlum en málverkinu en hann var einn fyrsti íslenski listamaðurinn til að skipu- leggja og framkvæma gjörningana í upphafi sjöunda áratugarins og vann á svipuðum tima við ýmsar kvikmyndir. Hann hefur einnig unnið mikið með teikningar, klippimyndir, grafik og þrí- víð verk. Myndverkið Stríð, sem Erró vann aðeins fjórtán ára gamall, mun skipa sérstakt heiðurssæti á sýning- unni. Við opnun sýningarinnar fer fram af- hending úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur, móðursystur Errós, til framúrskrandi listkvenna á sviði myndlistar. Erró stofnaði sjóðinn til minningar um frænku sína og er þetta í fjórða sinn sem veitt er úr sjóðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.