Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Blaðsíða 4
Fréttir FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 r>v Engihjallamorðið: Dómur þyngdur í 16 ár Hæstiréttur þyngdi í gær fang- elsisdóm Ásgeirs Inga Ásgeirsson- ar fyrir moröið á Áslaugu Perlu Kristjánsdóttur en Ásgeir hrinti henni fram af svölum á 10. hæð fjölbýlis- húss í Engihjalla í maí á síðasta ári. Var dómur Héraðsdóms Reykjaness yfir Ásgeiri Inga þyngdur um tvö ár eða úr 14 ára fangelsi í 16 ára fangelsisvist. Þá var ákærði dæmdur til að greiða aðstandendum miskabætur að upphæð samtals 1600.000 krón- ur auk vaxta og 538.670 til viðbót- ar auk dráttarvaxta til greiðslu- dags. Ákvörðun héraðsdóms um sakarkostnað var og staðfest ásamt því að ákærði greiði allan áfrýjunarkostnað. -HKr. Asgeir Ingi Ásgeirsson. Héraðsdómur Reykjavíkur: Þrír Litháar dæmdir í fangelsi - fengu eitt og hálft ár hver fyrir innbrot og rán Þrír Litháar voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í eins og l hálfs árs fangelsi hver fyrir innbrot | í verslanir Hans Petersen og Bræðr- [ anna Ormsson í mars á þessu ári. | Þeim var gefíð að sök að hafa stolið verðmætum fyrir milljónir króná. Litháarnir neituðu staðfastlega ‘ sakargiftum en dómnum þótti sann- : að að þeir hefðu franiið umrædd af- 1 brot. Auk fangelsisdómsins voru mennirnir dæmdir til að greiða all- an sakarkostnað og málsvamar- laun. Þremenningamir em með slóð af- I brota á eftir sér í Evrópu. Litháarn- I ir voru handteknir í pósthúsi í aust- urbæ Reykjavíkur þegar þeir voru að senda þýfið úr landi - muni upp á um 7 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum DV neita þremenning- greinda staði en sögðust hafa verið landi - það hafi veriö Pólverji sem arnir að hafa brotist inn á framan- fengnir til að senda vörumar úr óskaði eftir því. -HKr./Ótt. Úr héraðsdómi í gær Framburöur Litháanna þriggja var ekki tekinn trúanlegur. Heitt sumar undir Eyjafjöllum: Skógaskóli aflagöur - óskiljanleg ófyrirleitni, segir bóndinn í Berjanesi Skólaráö grunnskólans að Skógum undir Eyjaíjöllum hefur lagt til við hrepps- nefndina á staðnum að skólahald verði aflagt og nemendur fluttir í grunn- skólann á Hvolsvelli og jafn- vel í skólann í Seljalandi. Er mikil ólga i sveitinni vegna þessa og er spáð heitu sumri undir Eyjafjöllum verði hreppsnefndin við tilmæl- um skólaráös: „Þetta er óskiljanleg ófyr- irleitni gagnvart foreldrum og börnum hér í sveitinni. Mikill meirihluti er andvíg- ur þessu en samt á að leggja það af sem okkur er hvað kærast hér í sveitinni, Skógaskóla. I staðinn á að leggja það á bömin okkar að sitja í skólabíl í allt að 160 mínútur á degi hverjum og Skógaskóli Nemendum gert aö sitja í skólabíl svo ktukkustundum skiptir veröi skóianum lokaö. taka áhættuna á því að börnin verði veðurteppt á Hvolsvelli þar sem engin að- staða er fyrir þau. Hér er landsþekkt veðravíti á milli,“ sagði Vigfús Andrésson, bóndi í Berjanesi, sem stað- hæfir að nokkrar fjölskyldur hyggja á brottflutning úr hreppnum verði skólanum lokað. Hreppsnefndin kemur sam- an til aukafundar í dag til að taka endanlega ákvörðun i málinu og að sögn Vigfúsar í Berjanesi fylgist sveitin öll grannt með. Formaður skóla- ráðs grunnskólans á Skógum er Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri. Hann sagði ekki margt er við hann var rætt í gær: „Ég er í heyskap og hef ekki tíma til að tala.“ -EIR DV MYNDIR DANÍEL V. ÓLAFSSON Góö síld Þeir voru ánægöir meö síidina, skip- verjar á Víkingi AK 100. Síldin er sögö bragöast mjög vel Góður síldarafli og sumarloðnu- veiðar að hefjast DV, AKRANESI:_________________________ Skipin frá Akranesi, sem hafa ver- ið að veiða síld úr norsk-íslenska síld- arstofninum, þ.e Víkingur AK 100, Bjarni Ólafsson AK 70 og Ingunn AK 150, hafa verið að gera það gott að undanfornu. Sum þeirra veiða síldina til manneldis en önnur til bræðslu. Bjarni Ólafsson AK 70 landaði í gær 200 tonnum af síldarflökum í Noregi til manneldis. 'Aflaskipið Vík- ingur AK landaði 1100 tonnum af góðri síld til bræðslu og Ingunn var á leið í land með ágætis afla. Skipverjar á Vikingi sögðu í samtali við DV að veiðin væri að minnka en skipin hafa verið á veiðum norðarlega í síldarsmugunni. í gærkvöld voru þeir að leggja af stað á sumarloðnu- veiðar sem mega hefjast á miðnætti og kæmi ekki á óvart að aflaskipstjórinn á Víkingi, Viðar Karlsson, yrði fyrstur til aö finna loðnuna. Það hefur hann gert undanfarin ár. -DVÓ Skerðing á aflaheimildum: Kemur hart niður á atvinnulífinu í Stykkishólmi DV. STYKKISHÓLMI: ~~ Bæjarráð Stykkishólms samþykkti á síðasta fundi sínum tillögu Rúnars Gíslasonar og lýsti yfir áhyggjum vegna skerðingar aflaheimilda á hörpudiski í Breiðafirði úr 8 þúsund í 6.500 tonn, sem er 19% niðurskurður. Á síðasta ári voru aflaheimildir skertar um 6%. „Þessi mikli samdráttur á hörpu- disksafla kemur hart niður á atvinnulífi í Stykkishólmi. Því fer bæjarráð fram á það viö Hafrannsóknastofnun að rann- sóknir verði nú þegar auknar og skýrt hvaða ástæður liggja að baki minnkun veiðistofna.“ Bent er á að nauðsynlegt sé að hraða þessari vinnu sem kostur er og kynna niðurstöðumar sem allra fyrst. Tillagan var send sjávarútvegsráð- herra og alþingismönnum Vesturlands. -DVÓ Veöríð i kvöld Léttskýjað fyrir norðan og austan Fremur hæg suölæg eöa breytileg átt en suöaustan 5-10 m/s SV-lands. Léttskýjaö NA- og A-lands en annars skýjaö meö köflum og dálítil súld sunnan til í nótt. Solargangur og sjavarfoll REYKJAVIK AKllREYRI Sólarlag í kvöld 24.05 24.07 Sólarupprás á morgun 02.55 02.53 Síödegisflóð 19.09 23.42 Árdeglsflóð á morgun 07.34 12.18 Skýúngar á veöurfáknum /♦^VINDÁTT 15) ~%VINDSTYRKUR í metriim á sekúndu 10°. HITI 10° NFR0ST & HEIÐSKiRT O o LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ V w RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA | == ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEOUR SKAF- RENNiNGUR ÞOKA [ Veöríð a morgun Fa-rö F»rt í Herðubreiðarlindir Allir þjóðvegir á landinu eru færir. Þó er aöeins fært fyrir jeppa um Þverárfjall frá Skagastrandarvegi og yfir á Sauðárkrók. 7 tonn ásþungi er á Axarfjaröarheiði. Hálendisvegir eru aö byrja aö opnast. Fært er um Uxahryggi og Kaldadal, Kjalveg, Fjallabak nyröra og syðra, nema Mælifellssandur er lokaöur. Þá er fært í Herðubreiöarlindir Hlýjast í innsveitum Austan 5-10 m/s sunnan til á morgun og sums staöar dálítil súld en annars fremur hæg suöaustlæg eöa breytileg átt og skýjaö meö köflum. Hiti 10 til 20 stig að deginum, hlýjast í innsveitum NA-lands. SiiiinudLigu Vindur: ^ 8-13 m/* M.tniid.igtir tnió|iid,i]4u Hiti 10° til 18° V Vindur; 5-8 m/* Hiti 10° tii 19° O 1° *Vt* Vindur: 7-12 Hiti 10° til 18 Austlæg átt, 8-13 m/s syðst en annars hægarl. Dálitll rlgnlng sunnan- og vestan tll en skýjað á Norðausturlandi. Hltl 10 tll 18 stlg. Fremur hæg austlæg átt, víða dálítil rlgnlng en skýjað með köflum norðaustanlands. Hltl 10 til 19 stlg, hlýjast á Norðausturlandi. Austlæg átt, víða dálitll rlgnlng og mllt i veðrl. Hltl 10 -18 stig. AKUREYRI skýjaö 10 BERGSSTAÐIR skýjaö 12 BOLUNGARVÍK skýjaö 9 EGILSSTAÐIR 9 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 9 KEFLAVÍK súld 9 RAUFARHÖFN skýjaö 9 REYKJAVÍK skýjaö 10 STÓRHÖFÐI súld 8 BERGEN hálfskýjaö 12 HELSINKI þokumóöa 15 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 13 ÓSLÓ skýjaö 13 STOKKHÓLMUR 12 ÞÓRSHÖFN alskýjaö 9 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 14 ALGARVE heiöskírt 21 AMSTERDAM skýjaö 14 BARCELONA heiðskírt 19 BERLfN skýjaö 12 CHICAGO þokumóða 13 DUBLIN skýjaö 10 HALIFAX hálfskýjaö 12 FRANKFURT skýjaö 13 HAMBORG skúr 11 JAN MAYEN léttskýjaö 5 LONDON heiöskirt 12 LÚXEMBORG léttskýjað 9 MALLORCA heiöskírt 20 MONTREAL léttskýjaö 18 NARSSARSSUAQ skýjaö 10 NEWYORK þokumóöa 20 ORLANDO léttskýjaö 20 PARÍS heiöskírt 16 VÍN skýjaö 17 WASHINGTON alskýjaö 21 WINNIPEG léttskýjaö 16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.