Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Blaðsíða 22
26 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára________________________________ Jóhann Valdemarsson, Hrísalundi 10g, Akureyri. Sigurliöi Jónasson, Mýrarvegi 111, Akureyri. SS-áia_________________________________ Guörún Jónsdóttir, Garösenda 15, Reykjavík. 75 ára_________________________ Helga Anna Pálsdóttir, Borgarhóli, Mosfellsbæ. Ingibjörg Guölaug Jónsdóttir, Álftamýri 56, Reykjavík. Jónatan Ágúst Ásvaldsson, Vesturgili 6, Akureyri. Magnús Thorvaldsson, Kaplaskjólsvegi 39, Reykjavík. Svanhild Ágústsson, Bauganesi 7, Reykjavík. 70_ára_________________________ Garöar Gíslason, lllugagötu 50, Vestmannaeyjum. Hjördís Þorgeirsdóttir, Sólheimum 23, Reykjavík. Svala Ásbjörnsdóttir, Hjaröarhaga 46, Reykjavik. Svava Benediktsdóttir, Sunnuvegi 4, Þórshöfn. 60 ára Gunnar Þór Alfreösson, Hrísateigi 45, Reykjavík. Ólafur Ingólfsson, Arnarhrauni 48, Hafnarfirði. Af því tilefni taka Ólafur og kona hans, Svanhildur Guömundsdóttir, á móti gestum i sumarhúsi sinu á Eyri í Ingólfsfirði, laugardaginn 23.6. kl. 18. 50 ára I Asta G. Siguröardóttir, rögrubrekku, Borgarf. rdda Baldvinsdóttir, Dvergaborgum 3, Reykjavík. Geir Þorsteinsson, Engjaseli 67, Reykjavík. íngibjörg Hjartardóttir, Bollagöröum 39, Seltjarnarnesi. Karl Lúðvíksson, Furulundi 10, Varmahlíö. Margrét Sigurjónsdóttir, Egilsgötu 10, Reykjavík. Sóley ísaksdóttir, Ægissíöu 25, Grenivik. Svanhildur Ólafsdóttir, Vesturholtum 1, Rangárvallasýslu. Sverrir B. Þorsteinsson, Furuhjalla 10, Kópavogi. | Þorkell Elí Guömundsson, Logafold 123, Reykjavík, læknir, er fimmtugur i dag. | Þorkell er kvæntur Ragnhildi B. Karlsdóttur hjúkrunarfræöingi. 40 ára____________________________ Agnes Heiöa Skúladóttir, Helgamagrastræti 22, Akureyri. Björn Vignir Björnsson, Húnabraut 3, Blönduósi. Bozena Modzelewska, Suöurgötu 7, Sandgerði. Friöþóra E. Þorvaldsdóttir, Hólabraut 2, Höfn i Hornafirði. Halldór Guömundsson, Skálaheiöi 1, Kópavogi. Helga Baldvina Ásgrímsdóttir, Heiömörk 15, Hverageröi. Jóhannes Ágúst Stefánsson, Foldahrauni 42d, Vestmannaeyjum. Jón GTsli Þorkelsson, Vatnsendabletti la, Kópavogi. Kristín Þorsteinsdóttir, Veghúsum 17, Reykjavík. Ólafur Örn Ólafsson, Hlunnavogi 12, Reykjavik. Ólöf Magnúsdóttir, Byggðavegi 92, Akureyri. Sigurlaug Eggertsdóttir, Grensásvegi 60, Reykjavík. Arndís Guömundsdóttir, Hvassaleiti 14, Reykjavík, lést 19.6. Kolbrún Jóhannesdóttir, Völvufelli 20, Reykjavík, lést á Landspítalanum 18.6. Hallgeröur Jónsdóttir, frá Miðskeri, Hornafiröi, lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgaröi 17.6. Jón Kr. Jónsson, Hvanneyrarbraut 56, Siglufirði, lést 17.6. Dýrlelf Ármann kjólameistari er látin. Margrét Lára Þóröardóttir, Hjallabraut 3, Hafnarfiröi, lést á Landspítalanum 19.6. Hinrik Pétursson, Hrauntungu 6, Hafnarfiröi, lést á Landspítalanum 19.6. Guðni E. Gunnarsson, Hvolsvegi 27, Hvolsvelli, lést á líknardeild Landspítalans 19.6. FÖSTUDAGUR 22, JÚNÍ 2001 J>V Fófk r f'réttum_________________ Jóhann Óli Guðmundsson athafnamaður Jóhann Óli Guðmundsson hefur mikið verið í fréttum undanfarið vegna umsvifa sinna, ekki síst þeim sem tengjast innbyrðis átökum í Lyfjaverslun íslands. Starfsferill Jóhann Óli Guðmundsson er fæddur 2.9. 1954. Hann lauk gagn- fræðaprófi. Hann sneri sér ungur að viðskiptum, kom sér upp eins manns skrifstofu í húsi Egils Vil- hjálmssonar í Reykjavik. Skömmu síðar var Jóhann Óli búinn að gera öryggisþjónustuna Securitas að stórveldi. Jóhann hefur um árabil verið nokkuð áberandi í íslensku við- skiptalifl. Hann hefur tengst ís- lenska útvarpsfélaginu, Delta og Lyfjaverslun íslands. Þá er Jóhann Óli fráfarandi formaður Víkings. Jóhann Óli er búsettur ásamt fjöl- skyldu sinni á Gíbraltar. Fjölskylda Jóhann Óli er kvæntur Guðnýju Kristínu Ólafsdóttur, f. 16.12.1954. Börn Jóhans Óla og Guðnýjar Kristínar eru Elísabet Rósa, f. 19.8 1976, Arnar Hrafn, f. 11.1. 1979, Anna Lísa, f. 5.12. 1983 og Thelma Rut, f. 15.2. 1996. Foreldrar Guðnýjar Kristínar eru Ólafur Halldórsson, f. 15.8. 1928 í Reykjavík, og Hrefna Knudsen Lár- usdóttur, f. 25.7.1926 í Reykjavík. Jóhann Óli er sonur Guðmundar Halldórs Halldórssonar, f. 27.6. 1924, og Guðrúnar Karólínu Jóhannsdótt- ur, 18.11. 1930. Þau eru búsett í Reykjavík. Ætt Faðir Guðmundar Halldórs var Halldór Benediktsson, f. 28.1. 1891 á Dönustöðum í Laxárdal, d. 14.10. 1970, skipstjóri á ísafirði. Móðir Guðmundar Halldórs var Jóna Kristjana Jónsdóttir, f. 29.9. 1900 í Þverdal í Sléttuhreppi, húsmóðir á ísafirði. Faðir Halldórs var Benedikt, f. 10.9.1861, d. 21.4.1910, frá Bolungar- víkurmölum, Halldórssonar, bónda að Leysingjastöðum í Hvammssveit, f. 3.2. 1828, Péturssonar, bónda að Leysingjastöðum, f. 14.4. 1798, Helgasonar, hreppstjóra að Skarf- stöðum, Jónssonar, Guðmundarson- ar, Péturssonar. Halldór og Jóna Kristjana bjuggu á ísafirði. Þau skildu. Foreldrar Guðrúnar Karólínu voru Jóhann Isfeld Ólafsson, f. 5.11. 1892 í Skörðum í Reykjahverfi, d. 19.2. 1986, bifreiðarstjóri og Ólína Sigtryggsdóttir Jóhann Oli Guömundsson Jóhann Óli hefur um árabil verið nokkuð áberandi í íslensku viðskiptalífi. Hann hefur tengst íslenska útvarpsfélaginu, Delta og Lyfjaverstun ísiands. Fertúgcir Ólafur Rúnar Ólafsson sölustjóri Attræður Bergsveinn Breiðfjörð Gíslason fyrrverandi verkstjóri Ólafur Rúnar Ólafsson, Laugar- túni 6a á Akureyri, sölustjóri hjá Kjarnafæði, er fertugur í dag. Starfsferill Ólafur Rúnar er fæddur á Akur- eyri. Hann ólst upp á Akureyri og Seltjarnamesi. Ólafur Rúnar varð kjötiðnaðarmaður árið 1982. Hann lærði slátrun í Danmörku 1984 og markaðsfræði hjá Útflutningsráði 1998. Frá árinu 1978 hefur starfs- vettvangur Ólafs Rúnars verið kjötiðnaður og sölustörf. Fjölskylda Ólafur Rúnar kvæntist 25.6.1983 Oddnýju Steinunni Kristjánsdótt- ur húsmóður. Hún er dóttir Krist- ins Steinssonar húsasmiðs og Auðbjargar Sigursteinsdóttur hús- móður. Börn Ólafs Rúnars og Oddnýjar eru Alma Rún, f. 14.2. 1982, nemi, Eva Dögg, f. 6.1. 1984, nemi, og Gyða Björk, f. 24.12. 1993. Systkini Ólafs Rúnars eru Guð- björn St. Ólafsson, f. 7.11. 1957, sjó- maður. Anna Elísabet, f. 9.6. 1958, lögreglukona og þroskaþjálfi í Kópavogi. Helgi Þór, f. 1.9. 1962, matreiðslumaður á Akureyri. Foreldrar Ólafs Rúnars eru Ólafur Guðbjömsson, f. 19.8. 1925, framreiðslumaður, og Gyða Ein- arsdóttir, f. 21.11. 1928. Bergsveinn Breiðfjörð Gislason, Skúlagötu 20 í Reykjavík, verður átt- ræður í dag. Starfsferill Bergsveinn er fæddur og uppal- inn í Rauðseyjum á Breiðafirði. Hann lærði skipasmíði á Akureyri. Lengst starfaði Bergsveinn sem verkstjóri við hafnargerðir hjá Hafnamálastofnun. Hann flutti til Reykjavíkur 1947 og hefur búið þar æ síðan, ef frá eru talin árin 1967-1969 en þá var hann búsettur í Stykkishólmi. Fjölskylda Bergsveinn er ókvæntur. Hann á fimm börn: Brynju, Sig- urð, Láru, Ölmu og Freyju. Foreldrar Bergsveins voru Gísli Bergsveins- son, bóndi í Rauðseyj- um, d. 1939, og Magða- lena Kristjánsdóttir húsmóðir, f. 13.11. 1897, d. 2001. Bergsveinn tekur á móti vinum og vandamönnum í Breiðfirðinga- búð, milli kl. 18 og 21 á afmælisdag- inn. Andlát William Erling Kristjánsson fyrrverandi prófessor William Erling Kristjánsson, fyrr- verandi prófessor, andaðist í Fargo í N-Dakóta í Bandarikjunum, þann 12.6. sl. Starfsferill William Erling fæddist í Svoldar- byggð í Norður-Dakóta 28.4. 1920. Hann lauk BS-prófi í búvísindum frá Oklahoma-háskóla 1941 og doktors- prófi frá Perdue-háskóla í Indíana 1949. William var prófessor við South Dakota State College og frá árinu 1949 við landbúnaðarháskólann i Fargo. William stafaði í stjórnskipuðum nefndum er vörðuðu vísindagrein hans (Animal nutrition Committee o. fl.). Hann gegndi herþjónustu í Banda- ríkjaher á íslandi 1942-1944. William skrifaði greinar í Journal of Animal Science og fleiri blöð vestra. Fjölskylda William kvæntist 1944 Ingibjörgu Hermannsdóttur, f. 22.6.1918. Foreldrar hennar voru séra Hermann Hjartarson á Skútustöðum og Kristín Sig- urðardóttir. Börn Williams og Ingi- bjargar eru Frida Kristin, f. 15.6.1945, og Erling, f. 12.3.1951. Foreldrar Williams voru Tryggvi Dínusson, f. 30.4. 1875, d. 23.7. 1945, bóndi í Svoldarbyggð, og Hallfriður Guðbrandsdóttir, f. 17.3. 1875, d. 21.6. 1942, Erlendssonar og Sig- riðar Hávarðsdóttur. Foreldrar Tryggva voru Dínus Jónsson, frá Mýlaugsstöðum í S-Þing- eyjarsýslu, og Kristjana María Andrésdóttir, bónda í Fagranesi, Ólafssonar. Þau íluttust vestur um haf 1879, settust fyrst að í Nýja-íslandi, en komu til Dakóta 1882 og bjuggu í grennd við Svoldarpósthús. ! Merkír islertdfngar Ragnar Þ. Stefánsson þjóðgarðsvörður fæddist 22. júní árið 1914. Hann var sonur hjónanna Stefáns Benediktssonar bónda og Jóhönnu Jónsdóttur húsfreyju. Ragnar fæddist í Skaftafelli. Hann naut barnaskólafræðslu í sveitinni og varð síðar bóndi i Skaftafelli. Árið 1966 seldi Ragnar jörðina Náttúru- vemd ríkisins. Þykir það skýrt dæmi um áhuga hans á náttúruvernd. Hann var einn af brautryðjendum náttúraverndar á Islandi og átti á þessum tima um aðra kosti að velja en valdi að vemda landið til frambúðar. Endurminningar Ragnars komu út hjá Hörpuútgáfunni árið 1995 undir heitinu Ragnar í Skaftafelli - endurminningar og frá- sagnir. Þaö var Helga K. Stefánsdóttir sem skráði. Ragnar Þ. Stefánsson Ragnar var tvígiftur. Fyrri kona hans hét Anna Pálsdóttir og eignaðist hann með henni bömin Jóhönnu og Einar Þorstein, sem bæði dóu ung. Seinni kona hans var Laufey Lárusdóttir og eignuðust þau dótturina önnu Maríu. Ragnar var einkar fróður og vel að sér um allt sem viðkom íslenskum skáldskap, hvort sem var í bundnu eða óbundnu máli, og hafði ætíð tilvitnanir á reiðum höndum. Á ferli sínum sem þjóðgarðsvörður átti Ragnar samskipti við marga merka fræðimann, þeirra á meðal Jack Ives sem lagði grunninn að ævistarfi sínu í Skaftafelli. Ragnar lést 1.9.1994. Jarðarfarir Ingi Björgvin Ágústsson, Hátúni 10a, Reykjavík, veröur jarösunginn frá Laugarneskirkju, 22.6. kl. 13.30. Ása Valdís Jónasdóttir, Silungakvísl 19, Reykjavík, lést 15.6. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju 22.6. kl. 13.30. Vigfús Einarsson, Smáratúni 20, Selfossi, veröur jarösunginn frá Selfosskirkju 22.6. kl. 15.30. Óskar Gíslason, Grænumörk 5, Selfossi, verður jarðsunginn frá Þykkvabæjarkirkju 22.6. kl. 14.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.