Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Blaðsíða 28
Hugmyndaauðgi Listamaðurinn Jonna vann þetta verk út frá hugmyndum „Öryggi og innri frið“. um , Kirkja úr tíðatöppum - listaverkið selt á þrjú hundruð þúsund Á fyrstu 4 dögum samsýningar 16 myndlistarmanna á Akureyri í Lista- safni Akureyrar seldust 8 verk, þar á meðal harla nýstárlegt trúarverk. Listakonan Jonna hefur gert líkan af Akureyrarkirkju úr fleiri þúsund lit- uðum OB-tíðatöppum og var verkið styrkt af innflytjanda tíðatappanna. DV-MYND BRINK Sýningarskráin var send utan með ósk um slagorð fyrir tiðatappa. í aug- lýsingum um tíðatappa er fyrst og fremst lögð áhersla á þægindi en hug- mynd Jonnu er að slagorðið verði: „Öryggi og innri friður“. Verkið hefur verið selt framleiðanda tíðatappanna fyrir 300 þúsund krónur. -GG 4 4 4 4 4 4 Ortröð á Fimmvöröuhálsi Hátt í fimm hundruð manns munu ganga Fimmvörðuháls um Jónsmess- una á vegum ferðafélaga. Um 300 manns ganga með Útivist og á vegum Ferðafélags Islands fara rúmlega 50. Þá eru ótaldir þeir sem ganga á eigin vegum. Ferðafélagsfólkið gengur úr Skóg- um, yfir Fimmvörðuháls og niður í Þórsmörk laugardagskvöldið 23. júní þar sem slegið verður upp kvöldvöku og grillveislu. Útivistarfólkið gengur hins vegar aðfaranótt laugardagsins og slær einnig upp grillveislu í Þórs- mörk að göngu lokinni. Sjálf Jóns- messan er 24. júní. -EIR Inngrip Seðlabanka gagnrýnt - skammtímalausn: Krónan stenst ekki FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 Atök fyrirsætu I Helgarblaði DV á morgun er rætt viö Ásdísi Maríu Franklín fyrirsætu sem hyggst nú helga sig því verkefni að hjálpa ungum stúlkum sem stríða við brotna sjálfsmynd. Hún sækir styrk í eigin reynslu af því að missa stjórn á mataræði sínu. Einnig er rætt við Guðmund Ólafs- son hagfræðing um að stórvirkjanir séu nauösynlegar og einnig er rætt við Árna Sigfússon, nýráðinn for- stjóra Aco-Tæknivals sem varð til í vikunni. Ámi talar um hlutverk leið- togans og upplýsingatækni. Fjallað er um íslenskar öskubuskur og sumarfrí ólíkra þjóðfélagshópa vandlega skiigreind og rætt við for- svarsmenn Fóstbræðra. ALLIR MINIR HAPPATAPPAR! Nýtt sameinað samgöngufyrirtæki - Strætó bs.: Margir vilja forstjórann - segja forkólfar í atvinnulífinu Talsmenn stórmarkaðanna eru á einu máli um að orsök 17-25% hækk- unar á matarverði frá því í janúar eins og fram kom i verðkönnun DV í gær, sé tilkomin vegna tveggja megin- þátta, gengisþróunar á þessu tímabili og kostnaðarhækkunar innanlands sem stafi aðallega af launahækkun- um. Allir neita þeir því að matvöru- verslunin taki meira til sín með auk- inni álagningu. „Það hafa verið miklar hækkanir á öllum vörum til okkar og öllum rekstrarkostnaði" segir Þorsteinn Pálsson, forstjóri Kaupáss sem rekur Nóatúnsverslanir en þar mældist hækkunin 17%. „Burtséð frá framkvæmd könnun- arinnar sem ég er mjög ósáttur við, þá get ég sagt að það eru gengisþróunin og kostnaðarhækkanir innlendra framleiðenda sem skýra þessa hækk- un fyrst og fremst. Kostnaðarhækkan- ir eru gríðarlegar og þeir sem fylgjast með vita að hagnaður matvöruversl- ana er alltaf að minnka" sagði Guð- mundur Marteinsson, framkvæmda- stjóri Bónuss en þar var hækkun mat- arkörfunnar 17%. „Það eru þrír liðir sem eiga 40% þeirrar krónutöluhækkunar sem orð- ið hefur hjá okkur í þessari könnun, en það eru paprika, tómatar og appel- sínur. Kostnaðarverð okkar tvöfaldað- ist t.d. varðandi tómata og papriku sem var tollalaus í janúar en nú er tekið verð á íslenskum vörum. Kostn- aðarverð okkar vegna þessara vöru- flokka i verðkönnun DV hefur frá því í janúar aukist um rúmlega 30%,“ sagði Sigmundur Ófeigsson forstjóri Matbæjar sem rekur verslanir Nettó, en þar var hækkunin mest, 25%. -gk Verkfalli þroskaþjálfa hjá borginni aflýst: Veruleg hækkun Verkfalli þroskaþjálfa sem starfa hjá Reykjavíkurborg hefur verið af- lýst í kjölfar undirritunar nýs kjara- samnings þeirra og borgarinnar um þrjúleytið í nótt. Samkvæmt heimild- um DV nálgast hækkun grunniauna þroskaþjálfa í nýja samningnum mjög þá kröfu sem samninganefnd þeirra setti fram upp á 145.000 krónur. Áður hafði launanefnd sveitarfélaga samið við þroskaþjálfa upp á tæp 130.000 kr. grunnlaun. Sá samningur var kolfefld- ur eins og kunnugt er. Telja forystu- menn þroskaþjálfa ástæðu til bjart- sýni um samninga við launanefndina og sjálfseignarstofnanir í kjölfar nýja samningsins við borgina. í morgun hófst fundur þroskaþjálfa og Skálatúnsheimilis hjá ríkissátta- semjara. Kl. 13 var svo boðaður fund- ur launanefndar sveitarfélaga og þroskaþjálfa. -JSS Reykjavíkur og Almenn- ingsvagna ekki um starfið því þeim hafði verið til- kynnt að það væri ekki til neins. Hið sama gilti um Helga Pétursson borgar- fulltrúa sem vann að sam- einingu fyrirtækjanna fyr- ir hönd Reykjavikurborg- ar: „R-listinn þorði ekki að láta Helga hafa starfið svona stuttu fyrir kosning- ar,“ sagði einn af sjálfstæð- ismönnunum í borgarstjórn. Ekki náðist í Helga Pétursson í gær. -EIR Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iönaðarins, segir inngrip Seðlabanka til að styrkja krónuna ekki annað en skammtímalausn. „Við erum greinilega komin út fyrir öll vik- mörk og uppfyrir verðbólgumark- mið. Við höfum ekki séð það að undanfornu í hverju okkar pen- ingastjórn er fólgin." Birgir ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri lét hafa eftir sér í fjölmiðlum í gær að sennilega hafi verið mistök af bankanum að grípa ekki inn í þróun gengismála fyrr eins og gert var í gær. Þá keypti Seðlabankinn krónur fyrir dollara að andvirði 2,5 milljarða króna. „Það má benda á Svía,“ segir ¥ Sveinn. „Sænska krónan hefur hríðfallið að undanförnu og þar kaflar allt atvinnulifið nú á evru. Við erum ekkert öðruvísi en þeir, en þeir eiga auðvitað mikið greið- ari leið að þessu þar sem þeir eru aðilar að Evrópusambandinu. Þor- steinn Þorgeirsson hagfræðingur- inn okkar hefur hinsvegar verið að Hátt i 20 umsóknir bár- ust um framkvæmda- stjórastarf hjá sameinuðu fyrirtæki Strætisvagna Reykjavíkur og Almenn- ingsvagna en umsóknar- frestur er útrunninn. Nýja fyrirtækið heitir Strætó bs. og hefur Skúli Bjarnason verið skipaður stjörnarformaður. Hann vildi ekki í gær gefa upp nöfn umsækjenda þar sem enn væri von á umsókn- um frá ráðningarstofu sem annaðist Samkvæmt heimfldum DV sóttu málið. núverandi forstjórar Strætisvagna Talsmenn stórmarkaðanna bera sig illa: Hagnaður minnkar erum við borga tugi milljarða í auka vaxtagreiðslur og við erum að fæla frá erlenda íjárfestingu. Þá gerum við að mínu mati óraun- hæfa kjarasamninga vegna þess að við erum að semja í lélegum pen- ingum. Okkur hefur aldrei tekist að fara í gegnum uppsveiflu í efna- hagslífinu nema að enda í brotlend- ingu. Ég óttast að það sé að gerast enn einu sinni,“ segir Sveinn. „Þrátt fyrir að sveiflan núna sé hagkvæm fyrir okkur þá eru sveifl- ur á gengi alltaf óþægilegar. Á síð- asta ári vorum við hins vegar í hin- um dalnum. Ég styð eindregið að menn skoði kosti þess og galla að taka evruna upp. Ég held að það væri til mikilla bóta að þau mál væru skoðuð á málefnalegan hátt,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Marels. Sjá viðskipti bls. 8 -HKr./aþ fitja upp á því síðustu daga hvort við gætum tekið upp evru á grund- velli EES samningsins. Hann hefur bent á Shengen samninginn og það að t.d. Monaco er að taka upp evur þó það ríki sé utan Evrópusam- bandsins. Þeir hafa að vísu mynd af Rainier fursta á þeirri mynt. Kannski væri hægt að uppfylla samskonar óskir hjá okkur líka. Með því að halda í krónuna Sveinn Hannesson. Hörður Arnarson. FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 EVRÓ Grensasvegi 3 s: 533 1414 f%E\ A4jr Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.