Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Blaðsíða 10
10
Útlönd
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001
DV
Michael Portillo
Vinsælastur þrátt fyrir
skrautlega fortíö.
Fjórir í
framboði
Michael Ancram, formaður
íhaldsflokksins breska, tilkynnti í
gær að hann sæktist eftir embætti
leiðtoga flokks síns. Hann er sá
fjórði sem sækist eftir embættinu
en áður voru komnir þeir Iain
Duncan Smith, einn talsmanna
íhaldsflokksins, þingmaðurinn Dav-
id Davis og Michael Portillo .
Erfitt verkefni liggur fyrir þeim
leiðtoga sem tekur við íhaldsflokkn-
um. Flokkurinn er nú í sárum eftir
annað stóra tapið í röð gegn Verka-
mannaflokknum. Flokkurinn hefur
aldrei tapað tvennum kosningum í
röð áður.
Allir fjórir frambjóðendumir eiga
það sameiginlegt að vilja fara var-
lega með þátttöku í Evrópusam-
bandinu. Þeir vilja allir halda pund-
inu í stað þess að taka upp evruna.
Portillo er talinn sigurstrangleg-
astur. Hann er afar vinsæll í flokkn-
um þrátt fyrir að hafa færst nærri
miðju í stjórnmálaskoðunum. Hann
hefur einnig viðurkennt kynferðis-
leg sambönd við karlmenn á yngri
árum.
Gereyðing á
skæruliðum
Makedónski herinn hóf sókn að
þorpinu Aracinovo nálægt Skopje,
höfuðborg Makedóniu. Tilgangur-
inn er að sögn talsmanns hersins að
uppræta og útrýma skæruliðum í
því. Herþyrlur hófu skothríð á þorp-
ið í dögun. Skæruliðar hafa hótað
sprengjuárásum á Skopje frá þorp-
inu.
Árás þessi er skýlaust brot á
vopnahléi því sem gilt hefur síðustu
11 dagana í Makedóníu. Því virðist
sem tilraunir Evrópusambandsins
við að koma á friði hafl ekki gengið.
Óttasta er að borgarastyrjöld brjót-
ist út í landinu.
írar verða að sam-
þykkja Nicesáttmálann
Romano Prodi, formaður
framkvæmdastjómar Evrópu-
sambandsins, segir að án sam-
þykkis íra á Nice-sáttmálan-
um verði ekkert úr stækkun
Evrópusambandsins í austur.
Tvær vikur eru síðan írar
felldu sáttmálann í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Nice-sáttmálanum er m.a.
ætlað að straumlínulaga stofn-
anir Evrópusambandsins svo
þær vinni með meiri mýkt og
auðveldi inntöku nýrra aðild-
arlanda. Margar stofnanir
hafa ekki verið endurskipu-
lagðar síðan Evrópusam-
bandsríkin voru aðeins 6 að
tölu.
Prodi kom til írlands í gær
til viðræðna við ráðamenn
þar f landi um stöðu mála eft-
ir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Áður en Prodi lenti í írlandi f
gær var haft eftir honum í
Stokkhólmi í Svíþjóð að í raun
þyrfti ekki samþykki allra að-
ildarlanda til að hrinda Nice-
Romano Prodi
Gaf út misvísandi yfiriýsingar um gildi
neitunar íra.
sáttmálanum í framkvæmd.
Prodi dró þetta til baka við
komuna til írlands. Hann sagði
að haft hefði verið vitlaust eft-
ir sér. Það sem hann hefði sagt
væri að nokkrir lögmenn
hefðu sagt að tæknilega væri
hægt að hrinda sáttmálanum í
framkvæmd án samþykkis íra.
Það væri hins vegar hans skoð-
un að allir þyrftu að sam-
þykkja áður en af stækkun
yrði. Prodi benti á írar hefðu
tíma þar til á næsta ári til að
samþykkja og vonaðist hann
að það yrði raunin.
Aðild írlands að Nice-sátt-
málanum var felld með 54%
gegn 46% í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Meðal þess sem fólk
hræddist var að sáttmálinn
þröngvaði upp á íra lögleiðingu
fóstureyðinga. Auk þess óttað-
ist fólk að hlutleysi írlands
væri í hættu þar sem sáttmál-
inn gerir ráð fyrir að írar taki
þátt hernaðaðaruppbyggingu
Evrópusambandsins.
Afganar flýja land
Nýkomin yfir landmærin í flóttamannabúöir í 'iran kastar þessi afganska kona mæöinni ásamt tveimur börnum sínum.
Fjöldi afganskra flóttamanna í íran er nú um 1,5 milljónir og fjölgar dag frá degi. Ástæöan er langvinn átök milli
stríöandi fylkinga í heimalandinu auk uppskerubrests og matarskorts.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þelm sjáif-
um sem hér segir:
Dalbraut 1, 0301, 117,3 fm 5 herb. íbúð á
3. hæð t.v., Reykjavík, þingl. eig. Elías
Halldór Elíasson og Elísa Hjördís Ás-
geirsdóttir, gerðarbeiðendur Bjami Stein-
grímsson og Ibúðalánasjóður, þriðjudag-
inn 26. júní 2001 kl. 10.30.
Sóltún 20, 010102, 239,6 fm, 1. hæð í
forhúsi, A-hluti, Reykjavík, þingl. eig.
H.J. Sveinsson ehf.. gerðarbeiðandi
Landsbanki íslands hf., höfuðst., þriðju-
daginn 26. júní 2001 kl. 11.00.
SYSLUMAÐURINN I REYKJAVIK
Elskar eiginkonuna
þrátt fyrir morðin
Russell Yates, eiginmaður
Andreu Yates sem drekkti fimm
börnum sinum í baðkari á miðviku-
dag, segist enn þá elska eiginkonu
sína. „Andrea, ef þú sérð þetta: Ég
elska þig,“ sagði hann á blaða-
mannafundi fyrir utan heimili sitt í
úthverfi Houston í Texas. Hann
kennir veikindum eiginkonu sinnar
um barnamorðin, en hún var haldin
Reiðhjólauppboð
Sýslumaðurinn á Akranesi mun selja á opinberu uppboði óskilamuni í vörslu lögregl-
unnar á Akranesi laugardaginn 30. júní 2001 kl. 11.00 en uppboðið mun fara fram í
porti lögreglustöðvarinnar að Þjóðbraut 13, Akranesi. Þeir munir sem boðnir verða
upp eru ca 50 reiðhjól.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANESI
Yates-fjölskyldan
Börnin gáfu móöur sinni hjartaiaga
bókamerki á Valentínusdaginn.
fæðingarþunglyndi. „Hún var blíð
og góð manneskja. Þegar hún var
með fullu ráði kenndi hún bömun-
um heima og umvafði þau athygli.
Á Valentínusdaginn gáfu þau henni
útskorið hjartalaga bókamerki,"
segir RusseÚ. Börnin voru frá aldr-
inum sex mánaða til 7 ára. Ná-
grannar Yates-fjölskyldunnar segja
hana hafa litið út fyrir að vera full-
komlega hamingjusama.
Andrea Yates var á lyfjakúr til að
komast yfir þunglyndið þegar hún
framdi morðin. Hún tók meðal ann-
ars inn lyf sem ætlað er geðsjúkum
og raunveruleikafirrtum.
Russell segist andvígur þvi að eig-
inkona sín verði tekin af lífi, enda
hafi hún ekki verið með sjálfri sér.
Næsta víst er að ákærendur krefjist
dauðarefsingar.
mm
m
Bush tapar fylgi
Samkvæmt nýrri
skoðanakönnun
minnkaði stuðning-
ur við George W.
Bush Bandaríkja-
forseta um fjögur
prósent frá því í
síðasta mánuði. Nú
styðja 53 prósent
Bandaríkjamanna forseta sinn. Um
60 prósent studdu hann í mars.
Þjóöernisskærur í Nígeríu
Nokkrir eru látnir og þúsundir
hafa flúið heimili sín vegna þjóðern-
isátaka í miðhluta Nígeríu.
Lest keyrði á herbíl
Lest og bandarískur herflutninga-
bíll skullu saman í bænum Vilseck
í Suður-Þýskalandi um klukkan
hálfsjö í morgun. Tilkynnt hafði
verið um ljóra látna þegar blaðið fór
í prentun.
Skæruliðar sleppa þremur
Múslimskir skæruliðar á Filipps-
eyjum slepptu þremur gíslum í gær,
samkvæmt tilkynningu frá tengiliði
þeirra. Skömmu áður en tilkynning-
in barst fundust þrjú stök höfuð á
svæði skæruliðanna. Talið er að
þau séu af hermönnum.
Flóttamannaskip týnt
Skip með 180 líberískum flótta-
mönnum hefur verið týnt síðustu 4
daga. Talið er að það hafi stefnt frá
Benín til Nígeríu, en ferðin ætti að
taka einn dag.
Tekið á mótmælendum
Göran Persson,
forsætisráðherra
Svíþjóðar, kallar á
aukna hörku gagn-
vart ofbeldisfulllum
mómælendum.
Andkapítalistar
rústuðu miðborg
Gautaborgar þegar
leiðtogafundur ESB var haldinn þar
á dögunum.
Dúman gegn reykingum
Dúman, neðri deUd rússneska
þingsins, samþykkti í gær lög sem
setja þröngar skorður á reykinga-
frelsi. Rússland var lengi griðastað-
ur fyrir reykingamenn.
Njósnarana heim
Fidel Kastró
Kúbuleiðtogi lýsti
yfir nýrri baráttu
fyrir lausn fimm
kúbverskra njósn-
ara sem dúsa i
bandarískum fang-
elsum. Þeim er lýst
sem hetjum í
heimalandinu.
Sjómaður aflimar spúsu
Kóreskur sjómaður situr í gæslu-
varðhaldi fyrir að saga fót af eiginkonu
sinni. Hann grunaði hana um að halda
fram hjá þegar hann var á sjó.
Látin eftir tívolíslys
Tvítug stúlka lést af sárum sínum
sem hún hlaut við tívolíslys í
Norður-Englandi í gær. Þrír aðrir
meiddust.
Philip-Morris í viðræður
Tóbaksframleiðandinn Philip-
Morris hóf viðræður við
dómsmálaráðuneyti Bandarikjanna
i gær um sættir í máli alríkisins
gegn tóbaksfyrirtækjum.