Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Síða 5
5
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001
DV Fréttir
Skagafjörður:
Bann sýslumanns
bundið skilyrðum
Dómsmálaráðuneytið hefur fellt
úr gildi bann það er Ríkarður Más-
son sýslumaður setti á um miðjan
maí um aðgang yngri en 18 ára að
almennum dans-
leikjum í hérað-
inu.
Bann sýslu-
manns mæltist
mjög illa fyrir og
gengu undir-
skriftarlistar í
Skagafirði þar
sem því var mót-
mælt. í kjölfar
þess var ákvörð-
un sýslumanns
kærð til dómsmálaráðuneytisins en
það var einmitt það sem sýslumað-
ur hafði vonast eftir, að málið færi
þangað og ráðuneytið tæki efnislega
afstöðu til þess.
Meginforsenda sýslumanns fyrir
að neita að gefa út leyfi til dans-
leikjahalds þar sem yngri en 18 ára
hefðu aðgang var sú að þar viðgeng-
ist almenn ölvun. Dómsmálaráðu-
neytið lítur hins vegar þannig á
málið að ekki séu forsendur fyrir
ákvörðun sýslumanns og hefur því
fellt hana úr gildi.
Ríkarður Másson sýslumaður
segir að úrskurðurinn taki ekki fyr-
ir að honum sé ekki heimilt að setja
þessi aldurstakmörk og er því sátt-
ur við úrskurðinn. Honum sé það
heimilt að gefnum forsendum. Að
mati ráðuneytis sé honum heimilt
að hinda útgáfu skemmtanaleyfis
aldurstökmörkunum, t.d. 18 árum,
þegar sýnt þyki að önnur og vægari
úrræði séu ófullnægjandi.
„Ég þarf bara að sýna fram á ým-
is atriði þarna, s.s. mikla ölvun og
vandræði, og þá get ég farið að taka
þetta upp á nýtt. En ég þarf að halda
saman gögnum um hvern dansleik
fyrir sig og senda ráðuneytinu. Ald-
urstakmarkið fer því um næstu
helgi niður í 16 ár en áfengisneysla
og meðferð áfengis er eftir sem áður
bönnuð. Það eru landslög," segir
sýslumaður.
Kolbeinn Konráðsson, húsvörður
í félagsheimilinu Miðgarði, segir
það ljóst að sýslumanni sé ekki
heimilt að færa aldurstakmark upp
í 18 ár samkvæmt úrskurði ráðu-
neytisins enda hafi hann ekkert að
styðjast við, t.d. lögregluskýrslur.
Enginn dansleikur sé í Miklagarði
um næstu helgi en fóstudaginn 29.
júní séu Sálin og Stefán Hilmars þar
og þá verði öllum eldri en 16 ára
hleypt inn. Kolbeinn segir að þessi
biðtími hafi hins vegar skaðað starf-
semina í Miklagarði. -gk/GG
Meirihluti íbúa Bessastaðahrepps hafnar sameiningu við Garðabæ:
Nær 60% íbúanna sögðu
nei í símakönnun
Frá Alftanesi
Engar frekari viöræður:
Viss
vonbrigði
Bessastaðahreppur
hefur neitað ósk bæj-
arstjómar Garðabæj-
ar um viðræður sem
leiða kynnu til sam-
einingar þessara sveit-
arfélaga. Ásdís Halla
Bragadóttir, bæjar-
stjóri Garðabæjar, seg-
ir að sameiningarvið-
ræður hafi verið í gangi milli sveitarfé-
laganna á höfúðborgarsvæðinu með ein-
um eða öðrum hætti en ekkert hafi
formlega átt sér stað nema gagnvart
Bessastaðahreppi að undanfómu. Ekk-
ert sé nú í spUunum sem bendi til þess
að frekari viðræðna sé von á næstunni.
„Þetta era viss vonbirgði, við hefðum
gjaman viljað ræða málin og það hefðu
ýmsir í Bessastaðahreppi einnig viljað
gera. En það getur vel verið að forsend-
ur þar breytist einhvern tima. Það hafa
engar ákvarðanir verið teknar um það
að fara í viðræður við önnur nágranna-
sveitarfélög. Samstarf þessara sveitarfé-
laga hér.er alltaf að aukast, bæði milli
Garðabæjar og Bessastaðahrepps og við
önnur sveitarfélög. Því ekkert lát á sam-
starfi sveitarfélaganna þrátt fyrir þessa
stefhu í málinu og þar með ekki samein-
ingu sveitarfélaganna," segir Ásdís
Halla Bragadóttir. -GG
Á fundi hreppsnefndar Bessa-
staðahrepps 10. maí sl. var sam-
þykkt að láta fara fram skoðana-
könnun um vilja íbúa hreppsins til
þess að ganga til sameiningarvið-
ræðna við Garðabæ skv. samþykkt
bæjarráðs Garðabæjar frá 25. apríl
sl. þar sem lagt var til að hrepps-
nefnd Bessastaðahrepps skipi full-
trúa í samstarfsnefnd til þess að
vinna að athugun á sameiningu
Bessastaðahrepps og Garðabæjar.
Hreppsnefnd samþykkti að senda
öllum kosningabærum íbúum kynn-
ingarbækling 23. maí sl. og borgara-
fundur var haldinn 31. maí sl. þar
sem 90 manns mættu. Skoðana-
könnunin fór fram 6. til 12. júní
gegnum sima á vegum Gallup. Full-
trúar Á- og H-lista mótmæltu því al-
farið að vald um val á spurningu og
aðdraganda að henni skyldi flutt frá
hreppsnefnd til Gallup, þannig að
hreppsnefndarmenn vissu ekki um
hvað yrði spurt.
í könnuninni var spurt: „Vilt þú
að hreppsnefnd Bessastaðahrepps
vinni að sameiginlegri tillögu með
Garðabæ um sameiningu sveitar-
félaganna tveggja sem þú fengir síð-
an að kjósa um, eða vilt þú að sú
vinna fari ekki fram?“. Endanlegt
úrtak svarenda var 921. Þar af svör-
uðu 823 spurningunni. Svarhlutfall
var þvi 89,4%. 308, eða 40,5%, sögðu
já, 453, eða 59,5%, sögðu nei. 761 tók
því afstöðu, eða 92,5% þeirra sem
svöruðu, en 62 tóku ekki afstöðu,
eða 7,5% þeirra sem svöruðu.
Gunnar Valur Gíslaon, sveitar-
stjóri Bessastaðahrepps, segir að sú
afstaða fulltrúa Sjálfstæðisfélagsins,
sem mynda meirihluta hrepps-
nefndar Bessastaðahrepps, hafi þeg-
ar verið kynnt íbúum Bessastaða-
hrepps með dreifibréfi. Með hlið-
sjón af niðurstöðu könnunar Gallup
meðal ibúa hreppsins dagana 6. til
13. júní sl. verði ekki farið í formleg-
ar viðræður við Garðabæ um sam-
einingu sveitarfélaganna tveggja á
grundvelli samþykktar bæjarráðs
Garðabæjar. -GG
Asdís Halla
Bragadóttir.
Mardís VE strandaði í fjörunni vestan Alviðruhamra:
DV-MYND PÉTUR S. JÓHANNSSON
Kominn heim
Leifur Halldórsson SH er hér aö
koma til hafnar Ólafsvík, sinni nýju
heimahöfn.
Bjartsýni þrátt
fyrir skerðing-
artalið
dvTolafsvík:
Það er ekki hægt að segja annað
{ en að bjartsýni riki hjá útgerðar-
mönnum í Ólafsvík. Þó skerðingar á
aflaheimildum séu það eina sem
komist að í hugum ráðamanna
| iandsins þá dregur það ekki kjark
úr Ólsurum því enn einn nýr bátur
bættist í flotann í síðustu viku.
Þessi nýi glæsilegi bátur heitir Leif-
ur Halldórsson SH 217 og er gefið
nafn til heiðurs einum eigandanum
: en þeir eru ásamt Leifi synir hans,
j Þorgrímur og Steingrímur.
Leifur Halldórsson SH hét áður
Grótta RE og er um 150 lestir. Bát-
urinn er mjög vel útbúinn til drag-
nótaveiða og fer hann á veiðar fljót-
lega. Að sögn Leifs Halldórssonar,
eiganda og útgerðarstjóra, mun bát-
: urinn landa í Ólafsvík en þeir feðg-
ar reka bæði fiskvinnslu í Ólafsvík
og Þorlákshöfn. Skipstjóri á hinum
: nýja bát verður Ingólfur Aðalsteins-
son og vélstjóri er Mímir Brynjars-
son. Alls verða 8 menn í áhöfn. Mik-
il gróska er í útgerð í þremur höfn-
um Snæfellsbæjar. Bæði hefur stór-
um bátum og trillum fjölgað og
einnig hefur mikið verið um land-
anir aðkomubáta.
Nýlega tók til starfa ísverksmiðj-
an Breiði í nýju húsnæði í Ólafsvík
og veitir hún góða þjónustu tU aUra
báta sem landa í höfnunum. Enn-
j fremur sér Breiði um landanir úr
bátum. -PSJ
Eigandi og skipstjóri
Leifur Halldórsson, eigandi og út-
geröarstjóri báts meö hans nafni, og
Ingólfur Aöalsteinsson skipstjóri í
brúnni.
Orkubúið hlutafjárvætt:
Metið á 4,5
milljarða
Bjargvættinum ekki ansað
- þegar hann reyndi að kalla eftir aðstoð
Sex tonna Sómabátur, Mardís VE
236, strandaði í hörunni vestan Al-
viðruhamra, austan Hjörleifshöfða,
um hádegi á fimmtudag. Náðist bát-
urinn óskemmdur á Uot um tólf tím-
um síðar.
HaUdór Jón Jóelsson var einn á
bátnum þegar óhappið varð. Hann
hafði verið á handfæraveiðum
ásamt Ueiri bátum. Hann sagði að
þetta hefði farið eins og best varð á
kosið. „Það var renniblíða og ég var
ekki kominn með nema um 200 kUó
af fiski þegar ég lenti þarna uppi í
fínum sandi.“
HaUdór var í sambandi við Guð-
Unnu VE 249, sem var á sömu slóðum,
og kom hún UjóUega tU aðstoðar.
DV hafði samband við Óskar Krist-
insson, skipstjóra á GuðUnnu VE, sem
einnig er Sómabátur. Sagðist hann
hafa verið á leið austur að IngóUshöfða
um hádegið á Ummtudaginn. Þá hefði
sér dottið í hug að kaUa í HaUdór og
spyrja um hvar hann væri. „Hann
sagðist þá vera kominn upp í fjöru.
Það var óvenju kyrrt í sjóinn og HaU-
dór mjög heppinn að lenda þama upp
i mjúka sandfjöru. Beggja vegna við
hann vom hins vegar klappir og grjót.
Enginn svaraði beiðni
um aðstoð
Ég fór strax að reyna að draga
hann út en sleit tógið sem ég var
með. Þá reyndi ég að kaUa upp
báta, sem ég vissi af í nágrenninu,
tU að fá nýtt tóg. Ég kallaði ekki á
neyðarbylgju heldur á venjulegum
rásum. Það svaraði hins vegar eng-
inn. Þá náði ég símasambandi við
menn á stórum netabáti sem var
nokkru vestar. Þeir voru bara með
hundshaus og sögðust ekki mega
vera að því að gera neitt. Þeir
höfðu engan tima tU að sinna því
þótt bátur væri strandaður á sand-
inum.“
Aðstæður voru, að sögn Óskars,
nokkuð sérstakar. Stórt rif er þarna
um 700 metra fyrir utan ströndina
sem ekki er fært yfir nema á grunn-
sigldum bátum. „Það hefði aldeilis
ekki verið farandi þarna yfir í ein-
hverri ólgu,“ sagði Óskar og taldi að
vegna þess að veðrið var gott hefði
aUt farið vel. Menn væru alltaf í
hættu við slíkt strand og furðaði
hann sig því á afskiptaleysi annarra
skipstjórnarmanna.
-HKr.
Orkubú Vestfjarða verður hluta-
félag 1. júlí nk. Ekkert sveitarfélag-
anna á Vestfjörðum hefur selt sinn
hlut í Orkubúinu þrátt fyrir tilboð
ríkisvaldsins þar að lútandi en
mörg þeirra eru með mjög slæma
fjárhagsstöðu. Kristján Haraldsson
orkubússtjóri segir það sína skoðun
að það verð sem sé í boði sé það gott
að sveitarfélögin geti iUa afþakkað
það enda reikni hann með því að
þau muni ekki gera það.
Heildarverðmæti fyrirtækisins er
4,6 milljarðar króna og eiga sveitar-
félögin 60% hlut eða 2,7 milljarða
króna. Stærstur er hlutur ísafjarð-
arbæjar eða 1,4 milljarðar króna.
Breytingin í hlutafélag er gerð til
þess að gera eigendum kleift að ráð-
stafa hlut sínum í fyrirtækinu en í
sameignarfélagi eru þau bundin
samþykki aUra eigenda. -GG