Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 DV Fréttir Byssum beint að bæj- arstjóra Hveragerðis - var aldrei hræddur enda ekki ástæða til Bæjarstjórinn og hermennirnir Atmenn ánægja meö heimsóknina í bænum þó skoöanir séu vissulega skiptar. DV, HVERAGERDI:____________________ Ekki eru allir á eitt sáttir um leigu Grunnskóla Hveragerðis fyrir stjórnstöð bandarískra hermanna. Erlendur F. Magnússon, trélista- maður og bókagerðarmaður, kom að máli við DV vegna atburðar sem átti sér stað í gær. „Ég er mikill áhugamaður um sögu Hveragerðis- bæjar og er að vinna að ljósmynda- bók um bæinn. Þess vegna geng ég um þessar mundir með myndavél- ina framan á mér til þess að festa á blað heræfingar Bandaríkjamanna hér. Mér datt i hug að gaman væri að fá bæjarstjóra Hveragerðis, Hálf- dán Kristjánsson, til þess að stilla sér upp fyrir framan hermenn og herbúnað, sem er nú við Grunn- skóla Hveragerðis. Myndin yrði geymd sem innlegg í sögu bæjar- ins,“ sagði Erlendur. Hálfdán hafði brugðist vel við og kom á staðinn skömmu á eftir Er- lendi. Erlendur sagðist hafa gengið upp að gaddavírsgirðingunni þar sem hann hitti fyrir mann með byssu og sá sagt honum að fara burt. „í því kom Hálfdán á fullri ferð og byssumanninum brá. Ég gekk að Hálfdáni og í því komu her- menn hlaupandi út úr skólanum. Þeir hrópuðu: „Leave, leave!, eða farið burt,“ sagði Erlendur. „Byssum var beint að okkur og reynt að koma í veg fyrir mynda- töku. Hálfdán og ég reyndum síðan að sannfæra þá um að við værum ekki hryðjuverkamenn í dulbún- ingi, heldur væri Hálfdán gestgjafi þeirra, bæjarstjórinn á staðnum." Hálfdán bæjarstjóri segist þó hafa upplifað þetta á alla annan hátt en Erlendur: „Ég var aldrei hræddur enda ekki ástæða til. Ég ræddi þarna við liðþjálfa sem bauð mér inn til að skoða. En þess þurfti ég ekki. Konan mín vinnur í skólanum þannig að ég þekki þetta allt,“ sagði Hálfdán og bætti því við að sér fyndist almenn ánægja í Hveragerði með heimsóokn hermannanna í bæinn. „Tívolíið fór og hermennirnir komu í staðinn. Þetta vekur sannanlega athygli og flestir sem ég hef hitt eru bara ánægðir með tilbreytinguna í bæajarlifinu þó skoðanir séu vissulega skiptar." -eh Dvergshúsi breytt í íbúðarhús samkvæmt nýju deiliskipulagi: Þetta hús er skipulagsslys - segja samfylkingarmenn í Hafnarfirði og vilja rífa það Átök eru í bæj- arstjóm Hafnar- fjaröar um fram- tíð svokallaðs Dvergshúss, und- ir Hamrinum við Lækjargötu, þar sem héraðsdóm- ur hefur m.a. ver- ið til húsa. Húsið er að stærstum hluta í eigu bæj- arins og hefur tillaga skipulags- nefndar um að breyta húsinu í íbúð- arhúsnæði verið samþykkt inn í deiliskipulag miðbæjarins. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinn- ar lögðu fram tillögu á fundi bæjar- stjórnar á þriðjudag og vildu fá sam- þykkt að húsið yrði rifið. Kvöð er á húsinu samkvæmt nýju deiliskipu- lagi fyrir miðbæ- inn sem sam- þykkt var á þriðjudag. Þar er gert ráð fyrir að hægt verði að breyta Dvergs- húsi í íbúðarhús. Þessari kvöð vildu samfylking- armenn aflétta svo hægt væri að rífa húsið. Magnús Gunnarsson bæjarstjóri lagði þá fram tillögu um að visa tillögu Samfylkingar til um- ræðu í bæjarráði og var það sam- þykkt af meirihlutanum. Samfylk- ingarmenn sátu hins vegar hjá og lýstu því jafnframt yfir að þeir gætu ekki samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir miðbæinn þar sem opinn væri möguleiki á að breyta Dvergshúsi í íbúðarhús. Tillaga um niðurrif hússins hefur áður verið lögð fram í skipulagsnefnd og féll þar á jöfnum atkvæðum. í gærmorgun var málið tekið fyr- ir í bæjarráði. Þar lét Lúðvík Geirs- son, fulltrúi Samfylkingar, bóka að bæjarstjóra yrði falið að láta gera yfirlitsmynd sem sýndi svæðið án Dvergshúss. „Við teljum það ekki ganga upp að leyfa íbúðir í þessu húsi. Þar með væru menn að auka verðmæti þess og festa það í sessi. Ég held að allir Hafnfirðingar séu sammála um að þetta hús sé eitt mesta skipulags- slys sem gert hefur verið á undan- fórnum áratugum," sagði Lúðvík Geirsson. Ekki náðist niðurstaða um framtíð hússins i bæjarráði í Dvergshús undir Hamrinum í Hafnarfiröi Þarna hefur Héraösdómur Reykja- ness veriö meö aösetur en er nú á förum í nýtt húsnæöi. gær. Lítil starfsemi hefur verið i húsinu að undanfornu og er héraðs- dómur t.d. að flytja í nýtt húsnæði. -HKr. Magnús Gunnarsson. Óvenju kaldur júnímánuður dregur úr grassprettu: Einn kaldasti júnímánuður í áratugi í Skagafirði Bændur í kulda Júní er kaldur en Veöurktúbburinn á Dalvík boöar nýja og enn befri spá fyrir júlí á næstu dögum. Heyskapur er hafinn víða á Suð- urlandi. Bændur undir Eyjafjöllum eru að venju fljótastir til á landinu en þar er yfirleitt klakalaus jörð og tún þar yfirleitt tilbúin til sláttar um hálfum mánuði fyrr en annars staðar á Suðurlandi. Sláttur er t.d. hafinn á Þorvaldseyri og Guðna- stöðum í Landeyjum. Sláttur er ekki hafinn í Árnessýslu, að sögn ráðu- nautar, en tún eru fremur sein á ferðinni vegna þurrks en rigningar að undanförnu hafa aukið sprettuna verulega. Kúabændur byrja slátt yf- irleitt eins snemma og þeim er unnt og þannig hefur Jóhann Nikulásson í Stóru-Hildisey slegið um 5 hektara af um 60 hektara túni. Hann lýkur heyskap í þessum mánuði ef hann helst þurr þann tíma. í Borgarfirði er bændur ekki farnir að slá og byrja ekki fyrr en í byrjun júlímánaðar, að sögn Magn- úsar Kolbeinssonar að Stóra-Ási í Hálsahreppi. Hann segir að nú líti hins vegar vel út með grassprettu. Mjög kalt hafi verið á Ströndum og jafnvel næturfrost sumar nætur. Því líti mun verr út með grassprettu nú en í meðalárferði en ástandið sé einna best inni í Hrútafirði. í Húna- vatnssýslum sé heyskapur ekki byrjaður en vonir standi til að hægt verði að byrja innan tíðar ef eitt- hvað hlýnar í veðri. Vel leit út með sprettu í maí en kuldar í júní hafa dregið úr sprettu. Reiknað er með, að venju, að bændur á Skriðulandi og Holtastöðum í Langadal verði fyrstir til að hefja slátt. Júnímánuð- ur hefur verið með þeim kaldari í Skagafirði síðustu áratugi og segir ábúandinn á Silfrastöðum að helst sé von grassprettu þessa dagana í kirkjugörðunum. Þar sé hafinn ein- hver sláttur. Heyskapur er lítillega hafinn í Eyjafirði en að venju var bóndinn á Brakanda í Öxnadal fyrstur til að slá. Það er skiki sem skepnum er ekki beitt á á vorin. Eiríkur Helga- son á Ytra-Gili í Eyjafjarðarsveit segist hafa slegið lítillega en almenn hefjist sláttur ekki fyrr en hlýnar í veðri. Ljár hefur einnig verið lítil- lega verið borinn í gras á Hrafna- gili. Enginn sláttur er hafinn í Þing- eyjarsýslum og þarf aö hlýna til þess að það verði hægt. Sömu sögu er að segja frá Austurlandi en vegna kuldans er grasspretta seinna á ferðinni þar en í meðalárferði. Þar örlar einnig á skorti á vætu. Sláttur hófst fyrir viku á Selja- völlum og á Svinafelli í Austur- Skaftafellssýslu. Þar rigndi alla sið- ustu viku og við það hefur gras- spretta örvast mjög. Sláttur ætti að komast þar á fullan skrið á næstu dögum ef hann hangir þurr og ekki væri verra að hitastig kæmist í tveggja stafa tölu. -GG Umsjón: Hörður Kristjánsson netfang: hkrist@ff.is Guösmanni úthýst Norðlendingar kunna greinilega ekki gott að meta. Nýjasta sendingin að sunnan, sjálfur Snorri Óskars- son úr Betel í, Vestmannaeyjum, er nú hundsaður I nyrðra og fær ekki vinnu. Þessi marg-1 frægi og skörulegi I predikari hugðist miðla eyfirskum | ungmennum af I viskubrunni sínum ' með kennslu í Hrafnagilsskóla næsta vetur. Sagt er að undirskrifta- söfnun hafi farið í gang gegn guðs- manninum sem ætlaði bara að kenna dönsku. Björn Þórleifsson skólastjóri segir að það vanti bara engan dönskukennara. í heita pott- inum er hins vegar piskrað að Bjössi ætli að leggja dönskukennsl- una niður og taka upp kennslu í rússnesku til að þurfa ekki að ráða Snorra... Á teppið ísfirskir útsvarsgreiðendur eru nú saltvondir út i bæjaryfirvöld vegna óráðsíu og misnotkunar á bifreiðum bæjarins. Halldór Halldórsson bæj- arstjóri ver starfs- menn sína fimlega þó málstaðurinn sé dapur. Hann hefur þó sér til málsbótar að ná meiri tekjum inn i bæjarsjóð en gert hafði verið ráð fyrir. Ibúar gefa lítið fyrir það og um þverbak gekk þegar fréttist af ómerkt- um Toyotajeppa i eigu bæjarins við Vatnsdalsá fyrir skömmu. Halldór mun í verulegum vanda með að verja þetta, enda áin alls ekki í eigu bæjar- ins. Segir sagan að þar hafi einn af stjórum stofnana Isaflarðarbæjar ver- ið í fjögurra daga veiðiferð með fjöl- skylduna. Fram undan munu vera annir hjá verkstjórum og öðrum yfir- mönnum að hlusta á skammarræður á teppi bæjarstjórans... Sýslumaður flengdur Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra hefur tekið upp vöndinn að hætti góðra húsmæðra og flengir nú óþekku bömin sín. Þannig hefur dómsmálaráðu- neytið fellt úr gildi ákvörðun Rík- harðs Mássonar, sýslumannsins á Sauðárkróki, þess efnis að embættið gefi aðeins út skemmtanaleyfi fyrir dansleiki að aldurstakmark sé 18 ár. Frægt var er hljómsveitin Á móti sól flutti einfald- lega tónleikahald sitt úr Miðgarði yfir í Húnaver í næstu sýslu vegna ákvörðunar sýslumanns. Ljóst er nú aö skemmtanaglaðir Skagfirðingar unnu sigur í málinu. Líkur eru því á að ný-rassskelltur Ríkharður sýslu- maður verði að horfa skömmustuleg- ur og aðgerðarlaus á ef Á móti sól dettur í hug að gera aðra tilraun til að troða upp í Miðgarði... Keikó fer hvergi Sagt er að Hallur Hallsson, tals- maður Keikósamtakanna á íslandi, sé farinn að huga að því að koma upp risabaðkari heima hjá sér. Ástæðan er ekki sú að hann sé með einhverja sérstaka baðdellu heldur hitt að hann sér fram á að losna ekki við vatnskær- m vin sinn. Vinur- nn góði er háhyrn- ingurinn Keikó sem hefur fengið að svamla í Klettvikinni í Vestmanna- eyjum í vetur. Tilraunir Keikóvina tO að sleppa hvalnum á haf út hafa til þessa ekki gengið upp. Keikó er svo heimaríkur að hann vill hvergi fara. Bandariskir þjálfarar hans eru sagðir pirraðir enda úthaldið dýrt. Allt bendir þvi til að Hallur sitji sjálfur uppi með Keikó og þurfi því að koma upp veglegu baði...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.