Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001
Skoðun DV
Spurning dagsins
Eflum stjórnarfarið,
virðum stjórnarskrána
Drekkurðu mikið af
gosdrykkjum?
Guðmundur Aöalsteinsson
leigubílstjóri:
Nei, ég hef aldrei vaniö mig á þaö.
Aðalsteinn Olafsson leigubílstjóri:
Svona 1/2 I á dag af kóki.
Sigurjón Tracy leigubílstjóri:
Eg drekk lítiö afgosi, þaö
er svo óhollt.
Melkorka Otradóttir nemi:
Já frekar, svona 1/2 I á dag af kóki.
í grein Hjörleifs
Guttormssonar,
Átak til að efla
þjóðþingið, sem
birtist í DV 14.6.,
er vikiö að að-
skilnaði löggjafar-
og framkvæmda-
valds og lagt til að
Helgi Jónsson ráðherrar hafi
skrlfar: ekki atkvæðisrétt.
Þarna virðist höf-
undur ekki hafa haft stjórnarskrána
við höndina því samkvæmt 51.
grein hennar segir:
„Ráðherrar eiga samkvæmt emb-
ættisstöðu sinni sæti á Alþingi og
eiga þeir rétt á að taka þátt í um-
ræðunum eins oft og þeir vilja, en
gæta verða þeir þingskapa. Atkvæö-
isrétt eiga þeir þó því aðeins að þeir
séu jafnframt alþingismenn."
Alþingismenn eru kosnir af þjóð-
inni til að fara með löggjafarvaldið,
ekki framkvæmdavaldið. Og það er
ekki hægt að svipta menn því valdi
sem þjóðin hefur falið þeim. Eða
hvað? Ef farið væri að þvi sem
Stjórnarskrá íslands kveður skýrt á
um, og forsetinn skipaði ráðherra,
væru þeir ráðherrar óháðir Alþingi.
Embættisstaða ráðherra er skipun
forsetans. Það er alls ekki í anda
stjórnarskrárinnar að ráðherrar
séu úr hópi alþingismanna. Sú
stjórn, sem stjórnarskráin kveður á
um, er utanþingsstjórn. I þeirri
skipan felst aðskilnaður valdaþátt-
anna. Og reyndar er skipting lands-
ins í kjördæmi tæplega í anda 48.
greinarinnar sem kveður á um sjálf-
stæði þingmanna. Þar er þó til fleiri
hluta að líta, eins og þróunar byggð-
ar i landinu og réttar þeirra sem
Ráöherrastólar á Alþingi
„Alls ekki í anda stjórnarskrárinnar að ráöherrar séu úr hópi
atþingismanna.
Sídan hafa alþingismenn aldrei
vidurkennt vald forsetans. Þeir
hafa margir haldið því fram að
það vald sé aðeins formlegt og
þessu trúir fólk. Ef þetta vœri
rétt hlyti það að standa skýr-
um stöfum í stjómarskrdnni,
en svo er ekki. “
eiga heima í fámennari byggðum.
Trúlega var það í gleðivímu yfir
fengnu frelsi að alþingismenn sam-
þýkktu 1944 betri stjórnarskrá og
lýðræðislegri en ílokksræðið sætti
sig við. Siðan hafa alþingismenn
aldrei viðurkennt vald forsetans.
Þeir hafa margir haldið þvi fram að
það vald sé aðeins formlegt og þessu
trúir fólk. Ef þetta væri rétt hlyti
það að standa skýrum stöfum í
stjórnarskránni, en svo er ekki.
Þó að höfundur þessara orða hafi
lengst af eftir stríð verið í stjórn-
málaflokki, reyndar sama flokki og
Hjörleifur, þá hefur jafnlengi vakað
með honum draumur um að til
verði samtök áhugafólks um þjóð-
mál, samtök þar sem fólk með ólík-
ar skoðanir getur borið saman bæk-
ur sínar. Skoðanir okkar eru trú-
lega ekki eins ólíkar og við höldum.
Og eiginlega eru flokkamir hálf-
gerðar hjarðir sem haldið er aö-
skildum. En stjórnarskrána skulum
við virða, annars verða allar óskir
um betra stjómarfar hjáróma.
Háar bílatryggingar fyrir
yngri aldurshópana
Júlíanna Sigtryggsdóttir (Aron):
Nei, ég drekk ekki mikiö af gosi,
stundum fæ ég mér þó kók í gleri
þegar ég er í stuöi.
Sóley Árnadóttir stuöningsfulltrúi:
Já, ég drekk frekar mikiö af gosi, ég
myndi segja um 1/2 I af kóki á dag.
Ragnar Rúnar
skrifar:
Hækkun tryggingafélaganna hjá
aldursflokknum 17 til 25 ára er fyr-
ir neðan allar hellur. Það getur
kostað allt upp i 260 þúsund kr. að
tryggja bílinn fyrir þetta fólk, af því
mesta tjónið er sagt vera hjá þess-
um aldurshópi. En það eru nú ekki
allir í aldurshópi þessum sem aka
eins og vitleysingar. Samt gengur
jafnt yfir alla, lika þá sem sannan-
lega keyra varlega og eru aldrei orð-
aðir við óhöpp í umferðinni. Og þeir
eru orðnir mjög margir, því menn
vita hvað það þýðir að valda óhappi,
árekstri o.þ.h.
„Það er til lausn á þessu
máli eins og mörgum öðr-
um. Það er að sekta þessi
ungmenni um 30 til 40
þúsund krónur fyrir of
hraðan akstur og eingöngu
þá sem aka sem óðir séu. “
Aðrir eru kærulausir og þekktir
sem óhappa- og tjónavaldar. Þessi
hópur lætur sér fátt um flnnast og
mamma eða pabbi borga skaðann -
og eru stundum einnig eigendur að
viðkomandi ökutæki. Og þá er mál-
ið leyst, það er að segja - ekki fyrir
tryggingamar en fyrir fólkið.
Það er til lausn á þessu máli eins
og mörgum öðrum. Það er að sekta
þessi ungmenni um 30 til 40 þúsund
krónur fyrir of hraðan akstur og
eingöngu þá sem aka sem óðir séu.
Hinir sem aka varlega greiða auð-
vitað ekkert. En hvað á að gera viö
sektargreiðslurnar? Þær gætu sem
best gengið til tryggingafélaganna.
Svo er eitt að lokum; ég er þess
fullviss að þegar unglingar þurfa að
borga úr eigin vasa þá hugsa þeir
sig tvisvar um áður en þeir leggja í
hraðakstur og aka varlega. - Sem ég
held að flestir þeirra geri nú þegar.
Sjálfs er holan hollust
Það hefur verið mikil tíska í gegnum tíðina
hjá andans stórmennum að tjá sig í véfréttastíl
og tala í illskiljanlegum dæmisögum og hafa
nokkur slík þótt harla spámannlega vaxin fyrir
vikið. Eitt var Nostradamus, en allt hans tal var
svo loðið og úr lagi fært að hver og einn gat
túlkað með sínum hætti, enda þykir Nostradam-
us í dag einna mestur sjáandi úr hópi alræmdra
rugludalla fyrri alda.
Nú, Jesús og ýmsir aðrir trúarleiðtogar mæltu
löngum i dæmisögum og langsóttum líkingum,
enda hafa menn staðið á haus um aldir við tákn-
fræðilegar útlistanir á spekinni og fá allir þá
niðurstöðu sem best hentar hagsmunum viðkom-
andi.
Og enn beita stórmenni um allan heim loðn-
um líkingum. Meðal annars stærsta stórmenni á
íslandi, Davíð Oddsson, sem sagði í ræðu á þjóð-
hátíðardag:
„Þegar þú ert kominn ofan í holu, þá áttu að
hætta að moka.“
Oft er í holu...
Táknfræðingar og málsháttamagisterar hafa
lagt höfuðið í bleyti síöustu daga og spáð og
spekúlerað í þetta spakmæli Davíðs og ekki ver-
ið sammála um túlkun þess. Trúarbragðafræð-
ingur líkti „holu“ Davíðs við holuna í enni Golí-
ats eftir að annar Davíð slöngvaði grjóti í pönn-
una á honum fyrir margt löngu. Og þekktur
málsháttarýnir hefur lýst því yfir að þessi ágæta
nýsmíði forsætisráðherra á spakmælasviðinu
sómi sér vel í hópi helstu holumálshátta þjóðar-
innar á borð við: Oft er í holu heyrandi nær.
Holl er heimafengin hola. Sér grefur holu þótt
grafl. Sjálfs er holan hollust og svo framvegis.
Hola í höggi
Vinstri kverúlantar hafa reynt að gera lítið úr
holufyllingarspeki Davíðs. Einn benti á að þama
væri Davíö í raun að boða niðurskurð á fé til
vegamála á Vestfjörðum, þ.e. að þegar vegagerð-
armenn færu ofan í fyrstu holuna af milljón á
vegaslóðum vestra, þá ættu þeir að hætta fram-
kvæmdum. Og frægur heimspekingur bætti við
að ef menn þyrftu á annað borð að grafa holu, þá
væri yflrleitt farsælast að grafa hana til botns en
ekki gefast upp í miðjum klíðum og hætta að
moka. Og hann vitnaði í þessu sambandi til
fleygra orða Bakkabræðra, sem voru ekki síður
andans menn en Davíð, en þeir sögöu: „Hálfgraf-
in er holan í Hafnarfirði þegar botninn er suöur
í Borgarfiröi".
En fyrir utan þessar örfáu úrtöluraddir eru
flestir á því að aö 17. júní hafi Davíð einfaldlega
slegið holu í höggi. Og að í framtíöinni, þegar
einhver segir eitthvað íðilsnjallt og eftirminni-
legt, þá veröi haft á orði:
„Já, þama fór hann nú heldur betur holu í
höggi.“
Garri
Gömlu lágu Ijósin
Öröugt aö sjá þau fyrir stærri bílum.
Of lág umferðarljós
Atvinnubílstjóri sendir þessar línur:
Ég er undrandi að ekki skuli enn
vera búið aö skipta út gömlu lágu um-
ferðarljósunumm fyrir hærri ljós yfir
miðju akreina. Á hornum eins og
Hringbraut/Miklubraut/Snorrabraut
og svo aftur á mótum Miklubraut-
ar/Kringlumýrarbrautar (að hluta) er
orðið stórhættulegt að aka því útilok-
að er að sjá ljósin ef hærri bíll en sá
venjulegi fólksbíll er fyrir framan
mann. Sums staðar hefur verið skipt
um ljós, en í borginni em enn flest
umferðarljósin þau gömlu lágu. Þessu
verður að breyta, bara fyrir umferð-
aröryggið.
Samskiptin batna
Ég dreg ekki i efa rétt ritstjórnar
virðulegs dagblaðs yðar til að velja
efni til birtingar á síðum þess, en get
ekki orða bundist vegna forystugrein-
ar, sem birtist í 138. tölublaði DV þ.á.
hinn 19. júní undir fyrirsögninni
„Vesturlönd hossa Pútín“. Höfundur
greinarinnar lýsir einhliða og rang-
lega stefnu ríkisstjómar Rússlands í
innan- og utanríkismálum og hefur í
frammi ruddalegt orðbragð um æðsta
leiðtoga sjálfstæðs ríkis. Að framan-
sögð grein skuli birtast í virðulegu
blaði yðar sama daginn og íslenskir
fjölmiðlar skýra frá því að forseti ís-
lands muni fara í fyrstu opinberu
heimsókn íslensks þjóðhöfðingja til
Rússlands og samskipti þjóðanna fara
jafnframt batnandi, leiðir hugann að
því að ekki séu allir jafn hrifnir af
slíkum staðreyndum.
Með virðingu,
Blaðafulltrúi sendiráðs
Rússlands, V. Alexeev
Ferðamenn í hættu
Sigrún hringdi:
Loks eru að
opnast augu ráða-
manna, a.m.k.
sumra eins og t.d.
ferðamálastjóra,
ftrir því að hér á
íslandi er ekki
eins vistvænt iand
og af hefur verið
látið. Ég á auðvit-
að við óróann í
þjóðfélaginu og af-
leiddan vanda sem lýsir sér m.a. í árás-
arhneigö fólks hvers á annað eftir að
það hefur verið í samkvæmum heima
eða á opinberum skemmtistöðum.
Ólætin og uppþotin í miðborg Reykja-
víkur, og svo einnig á minni stöðum
vítt og breitt um landsbyggðina, sýna
að erlendir ferðamenn eru í hættu séu
þeir einir á ferð. Ekki er eftir neinu að
bíða, öryggi almennra borgara verður
að tryggja með öllum ráðum.
Förum ekki á taugum
Snæbjörn skrifar:
Við fréttir af aukinni verðbólgu er
eins og þjóðarlíkaminn hafi fengið
harkalegt högg og menn keppast við að
sverta ástandið hver fyrir öðrum. Allt
orðið ískyggilegt eða kreppueinkenni á
næsta leiti, segir fólk. En ég spyr: Hvað
hefur breyst, er ekki sama óðagotið í
mannskapnum? Allir á hlaupum í inn-
kaupum. Eina breytingin er að nú er
kapphlaupið hafið um að koma pening-
unum frá peninganna furstum í eitt-
hvað arðbært í stað bréfanna sem svik-
in voru inn á okkur af þessum fúrstum
í gegnum litauglýsingar. Förum nú
ekki á taugum, en pössum upp á aur-
inn og afraksturinn.
Idv Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
Ógnvænlegt
ástand að kvöldi
17. júní
Öryggi borgaranna
veröur aö tryggja.