Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Side 23
27
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001
I>V Tilvera
Kris Kristofferson 65 ára
Leikarinn og
söngvarinn geðþekki,
Kris Kristofferson, er
afmælisbarn dagsins.
Kristofferson, sem er
sonur hershöfðingja í
flugher Bandaríkj-
anna, gaf lítið fyrir
það að feta í fótspor fóðurins, lærði að
vísu flug en sneri sér að tónlistinni
með góðum árangri. Það var vinur
hans, Dennis Hooper, sem fékk hon-
um fyrsta kvikmyndahlutverkið i The
Last Movie en Kristofferson hefur
leikið í yfir sextíu kvikmyndum. Til
íslands kom Kristofferson fyrir
nokkrum árum og hélt tónleika.
Gildir fyrir laugardaginn 23. Júní
Vatnsberinn (20. ian.-ifi. fshr.i:
, Samskipti milli manna
ganga vel þannig að
heppilegt er að ræða
við þá sem þú þarft
. oft að eiga samskipti við.
Happatölur þíanr eru 6, 22 og 35.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars>:
Eitthvað sem á að ger-
last í næstu viku á hug
þinn allan. Þú ert
mjög upptekinn af
heimiiisstörfum en kvöldið notar
þú til að hvílast.
Hrúturinn (21. mars-19. aprfl):
IH Þú veltir fyrir þér hvort
^ þú hafir verið nógu
fórnfús og ekki sinnt
áhugamálum nægilega.
Vinir þínTr rifja upp hðna tíð og
skemmta sér konunglega.
Nautið (?0. anril-20. maíl:
Þú hefur nægan tíma
fyrir sjálfan þig í dag.
Hafðu ekki áhyggjur
af þvi þó að þér verðir
líBF úr verki, reyndu heldur að
skemmta þér.
Tvíburarnir (21. maí-?i. iúniu
Þér bjóðast ný tæki-
"færi, jafnvel á per-
sónulega sviðinu eða
með óbeinum hætti.
Ekki fálla í gryfju kæruleysis.
Happatölur þínar eru 7, 13 og 35.
Krabbinn (22. iúni-22. íúiíu
Nú er góður tími til að
I ræða mikilvæg mál en
þú þarft að sýna
sveigjanleika. Þú ert
Eu en ekki hæðast að
orkuleysi annarra.
Liónið (23, iúlí- 22. ágústl:
WXBSk Þetta verður ánægjuiegur
w i dagur hjá þér og þú nærð
árangri í þvi sem þú ert
að fást við. Einhver veld-
ur þér mikilli undrun og þú fmnur
fyrir þörf til að gera athugasemdir.
Mevian (23. áeúst-22. sept.l:
Eitthvað sem ætlað er
að virka jákvætt á þig
.hefur þveröfug áhrif.
Þú þarft að leggja tölu-
vert á þig til að eyða misskilningi.
1 viuuiqmii iz.
</ n
Ekki falla í 1
Kjarngóð dagskrá á kirkjudögum
Kirkjudagar verða haldnir í fyrsta skipti á ís-
landi nú um Jónsmessuhelgina. Umgjörð þeirra
er Skólavörðuhæðin með Iðnskólann, Vörðuskól-
ann og sjálfa Hallgrímskirkju sem aðalsamkomu-
staði. Hátíðin hefst í kvöld með kvöldvöku kl.
20.30 í Hallgrímskirkju og á morgun verður viða-
mikil og spennandi dagskrá frá 9.30-0.45. Hún er
öllum opin endurgjaldslaust. Þar fær fólk tæki-
færi til að njóta tónlistar, leiklistar og myndlist-
ar. Þar verður kröftug umræða í gangi um mann-
réttindi, umhverfismál, siðfræði, samskipti hjóna
og uppeldismál. Auk þess verður fjöldi málstofa
um helgisiði og trúmál. Nefna má einnig sýnis-
horn af nýjungum í helgihaldi kirkjunnar, svo
sem djassmessu, þjóðlagamessu og kaffistofu-
messu. Sérstök barnadagskrá er allan morgun-
daginn í Vörðuskóla þar sem skipt verður í deild-
ir eftir aldri. Á kvöldvökunum í Hallgrímskirkju
verða söngur, ljóð og leikir í öndvegi bæði kvöld-
in.
-Gun.
Fordæmið
sterkasta upp-
eldisaðferðin
„Ég ætla að fjalla um það þjóðfé-
lag sem við lifum í og þann vanda
sem uppalendur standa frammi fyr-
ir,“ segir sr. Sigurður Pálsson.
Hann hefur framsögu í málstofu er
ber heitið Trúaruppeldi barna í fjöl-
hyggjuþjóðfélagi og byrjar kl. 10 í
fyrramálið. Þar er vísað til þess að i
samfélaginu eru ekki bara mörg
trúarleg viðhorf heldur margs kon-
ar lífsviðhorf þar fyrir utan. „Guð-
leysi er líka viðhorf og má segja að
það sé trúarafstaða út af fyrir sig. í
þessum margbreytileika lifum við
og þeir sem vilja leggja áherslu á
trúarlegt uppeldi þurfa að huga að
þeim vanda sem því fylgir,“ segir sr
Sigurður. Hann kveðst ætla að
skoða hvað sálarfræðin og guðfræð-
in geti sagt okkur um börn og upp-
eldismótun þeirra og einnig ræða
um mikilvægi félagsmótunar. En
skyldi hann eiga einhver húsráð til
hins almenna foreldris sem vill ala
börn sín upp í kristinni trú? „Þar
gildir það sama og í öUu öðru, að
vera sjálfum sér samkvæmur,"
svarar hann og heldur áfram: „For-
dæmið er sterkasta uppeldisaðferð-
in. Því meiri samvistir sem foreldr-
ar hafa við börnin sín því öflugri
áhrifavaldar eru þeir. Það gUdir um
hið trúarlega uppeldi eins og aUt
annað. Umræðan vekur meðal ann-
ars upp spurningar um hvort for-
eldrar séu í of ríkum mæli að af-
henda öðrum mótun barna sinna til
þess að geta blómstrað sjálf.“
-Gun
DV-MYND PJETUR
Guðni Már Harðarson
Rödd unga fólksins mun heyrast.
Getur kirkjan
nýtt sér GSM?
I. li J-t .* . , í. %
■ifZi > >, . j
m
' • ' iv 1
: ■ Í , 1 J
• íp. '.í. J. ■
■ /■ ! , - « ■■'?/■ ■ t
■
, r- v.-\ ,• • ■
í
/ j v ;y
" 5 • ' ' *
, •
'' ' r - / r ^
■ -•• - V> i.
.
' i'■;>■■-; - .
•■■:■•:-
'•■/ •;«*■ ' v'••';
Getur kirkjan nýtt sér GSM-sím-
ann í boðun sinni? Er Intemetið
sóknarfæri fyrir kirkjuna? Þarf að
auka fjölbreytni í helgihaldi kirkj-
unnar? Er ímynd kirkjunnar góð
meðal ungs fólks? Þessar spurning-
ar og fleiri verða ræddar á kirkju-
þingi unga fólksins sem fram fer í
Iðnskólanum milli 10 og 12 á morg-
un, laugardag. Guðni Már Harðar-
son er meðal þeirra sem hafa undir-
búið það. „Við fengum tíu manna
hóp á aldrinum 15-22 ára til að
ákveða umræðuefnin. Markmiðið
var að þar kæmi fram hvernig unga
fólkið teldi að best mætti efla kirkj-
una á nýrri öld,“ segir hann. Guðni
Már segir átta spurningar teknar
fyrir á þinginu. „Þeim verður for-
gangsraðað og sumar þeirra ræddar
ítarlegar en aðrar,“ segir hann.
Gestir á þinginu verða að minnsta
kosti á þriðja tuginn, að sögn Guðna
Más, og þeir koma alls staðar að af
landinu. „Það verða fulltrúar frá
flestum prófastsdæmum og að
minnsta kosti um 10 héðan af
Reykjavíkursvæðinu," segir hann.
Á kvöldvökunni í Hallgrímskirkju
annað kvöld munu svo fulltrúar af
báðum kynjum kynna niðurstöður
hópsins i stuttu máli. „Við vonumst
til að þær niðurstöður verið kynnt-
ar biskupi og prestum landsins og
teknar þar til athugunar sem rödd
unga fólksins," segir Guðni Már að
lokum.
-Gun
Sr Sigurður Pálsson
“Þeir sem vilja ieggja áherslu á trúarlegt uppeldi þurfa aö huga aö þeim
vanda sem þvi fytgir"
Vogin (23. sept.-23. okU:
J Vertu viðbúinn seink-
fNy/ unum við að fram-
V f fylgja áætlunum þín-
r f um vegna þess að ein-
hver er í kringum þig er verulega
óstundvís.
Sporðdreki (24. okt.-?i. nnv.r
Þér fmnst þú hafður út
imdan, sérstaklega finnst
>þér einhver ákveðinn að-
] ih hafa horn í síðu þinni.
Þetta er fremur htilfjörlegt og ekki
ástæða til að hafa áhyggjur.
Bogamaður (22. nóv.-2l. des.i:
jDagurinn er einkar
/hagstæður til að ræða
málin og geta margar
gagnlegar hugmyndir
komið fram. Hópvinna skilar ekki
miklu um þessar mundir.
Steingeitin (22. des.-19. ian.t:
Tilfinningasemi verður
ráðandi í dag og fólk
virðist fúst til sam-
vinnu. Þú ættir að
dekra svolítið við sjálfan þig og
kannski fara í stutt ferðalag.
Hjartað tekur aukaslög
„Ég verð þarna sem al-
mennur íbúi svæðis 101,“
segir Magga Stína söng-
kona. Hún er meðal máls-
hefjenda i umræðum um
miðborgarkirkju í mark-
aðsumhverfinu sem fara
fram á efstu hæð Vörðu-
skóla milli 10 og 12 í fyrra-
málið. „Þetta verða um-
ræður um hvernig kirkj-
an getur komið inn í líf al-
mennings í miðborginni á
nóttu sem degi. Ég kem til
með að lýsa því hvernig
er að búa í miðbænum 13
ára og 33 ára,“ heldur
Magga Stína áfram. Að-
spurð kveðst hún aldrei
hrædd í miðbænum og
hefur sínar skýringar á
þvi. „Ég lít á alla sem vini
mína og mig sem vini
þeirra,“ segir hún og bros-
Magga Stina er meðal málshefjenda
„Mér eru málefni nýbúa hugleikin".
ir sínu fallega brosi. Hún
vill líka halda uppi vörn-
um fyrir miðbæinn.
„Skelfilegir hlutir geta
gerst alls staðar, ekki
bara í miðbænum. Of-
beldi í samfélaginu er
vissulega orðið hrotta-
legra en það var. Það er
hægt að kenna hinu og
þessu um, þar á meðal
kapítalismanum og sjón-
varpinu."
Enn ein heimskan
Magga Stína neitar því
ekki að þótt hún sjálf hafi
aldrei lent í hremming-
um í miðbænum þá heyri
hún um óhugnanlega
hluti sem gerist þar.
„Mér eru málefni nýbúa
hugleikin," segir hún og
kveðst hafa verið að vona að frétt-
irnar af kynþáttahatrinu sem bloss-
aði upp í borginni á sjálfan þjóðhá-
tíðardaginn væru orðum auknar.
„Ég hef megnustu fyrirlitningu á
fólki sem hagar sér svona fyrir neð-
an fávitamörk. Þetta er enn ein
heimskan sem bætist við í þessu
einkennilega samfélagi sem er farið
að mótast af græðgi og peninga-
hyggju. Hjartað i mér tekur auka-
slög þegar ég fer að tala um þetta.
Ég verð svo reið.“
Rykfellur ekki í guðshúsi
Þótt Magga Stína telji sig ekki
sérstaka kirkjunnar manneskju þá
kveðst hún bera mikla virðingu fyr-
ir miðborgarstarfi hennar. „Þar
rykfellur hún ekki inni í einhverju
guðshúsi heldur er úti meðal fólks-
ins og lætur gott af sér leiða. Þannig
á kirkjan að vera.“ -Gun