Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.2001, Side 24
28 FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001
Tilvera DV
Fjölskyldusafarí:
Flakkað um
f jórar heimsálfur
DV-MYNDIR STEFÁN GUNNARSSON OG EYRÚN BJÖRNSDÓTTIR
Safarí fjölskyldurnar
Eyrún Björnsdóttir, Signý Stefánsdóttir, 7 ára, Jónas Stefánsson, 13 ára, Arnar Gunnarsson, 7 ára, Gunnar Valdimars-
son, Lára Kristjánsdóttir og Stefán Gunnarsson.
lí f iö
E F T I R V I N N U
J ónsmessuhlaup
Miðnæturhlaup á Jónsmessu fer
fram í Laugardalnum í 9. sinn í
kvöld. Skráning hefst kl. 14 við
Sundlaugina í Lauardal þar sem
hlaupið hefst síðan kl. 23.00.
Þátttökugjald er kr. 800 og 600
fyrir 12 ára og yngri. Innifalið
er verlaunapeningur, bolur,
svaladrykkur, súkkulaði, kex,
útdráttarverðlaun og fl. Eftir
hlaup er öllum boðið í sund.
Leikhús
■ MEÐ VIFH) I LÚKÚNÚM
Leikritiö Með vífiö í lúkunum eftir Ray
Cooney veröur sýnt í kvöld klukkan 20
á Stóra sviöl Borgarleikhússins. Leik-
stjóri er Þór Túlíníus og þýöandi Árnl Ib-
sen. Nokkur sæti eru laus.
■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI
Leikritiö Meö fulla vasa af grjóti eft-
ir Marie Jones veröur sýnt í kvöld kl.
20 á Stóra sviöi Þjóöleikhússins.
Örfá sæti eru laus.
Kabarett
■ SNÆDROTTNINGINEFTIR
H.C.ANDERSEN
I Möguleikhúsinu veröur kynntur af-
rakstur vinnu ungmenna á tveimur
sýningum á Snædrottningunnl eftir
H.C Andersen, kl. 14.00 og kl.
17.00. Ása Björk Ólafsdóttir aö-
stoðaði hópinn við leikmynd.
Sýningar
■ EGGERT PÉTURSSON í 18 Egg-
ert Pétursson hefur opnað sýningu
á nýjum verkum ÍI8. Allir eru vel-
komnir.
■ KAREN KERSTEN Á MOKKA
Nú stendur yfir sýning á Mokka-
kaffil á verkum kalifornísku listakon-
unnar Karenar Kersten, sem hún
kallar Alls staöar, og stendur hún
fram til 14. júlf.
■ MAGDALENA í HAFNARBORG
Nú stendur yfir í Kaffistofu Hafnarborg-
ar, menningar- og listastofnunar Hafnar-
fjaröar, sýning á grafíkverkum Magda-
lenu Margrétar Kjartansdóttur. Sýning-
in, sem Magdalena nefnir Rispur, sam-
anstendur af skissum og skyssum sem
rispaðar eru á kopar-, plast- eöa tréplöt-
ur meö beittum verkfærum en inntak
flestra verkanna er að sögn Magdaienu
heilbrigð sál og búkteygjur. Sýningin er
opin alla daga nema þriðjudaga frá
klukkan 11 til 17 og hún stendur til 2.
júlí.
Sveitin
■ SKUGGA-BALDIIR A FLATEYRI
Vagninn á Flateyri er vettvangur
plötusnúösins Skugga-Baldurs í
kvöld. Þaö þekkja allir reykinn og
lætin sem fylgja kappanum. Kíktu á
Skuggann í kvöid.
■ PENTA Á KAFFI AKUREYRI
Hljómsveitin Penta skemmtir gest-
um á Kaffi Akureyri f kvöld. Reykur
og sviti eins og venjulega.
■ SIXTIES Á ODDVITANUM
í kvöld mun hljómsveitin Sixties leika á
Oddvitanum á Akureyri.Söngvari hljóm-
svejtarinnar að þessu sinni verður Rún-
ar Órn Friöriksson en hann var fyrsti
söngvari sveitarinnar. Öll gömiu góðu
lögin veröa rifjuð upp, svo sem Vor í
Vaglaskógi, Alveg ær, Stjáni saxófónn
ogfl.
Krár
■ PÉTUR OG GARGIÐ Á KAFFl
REYKJAVÍK Pétur Kristjáns og
Gargið eru með tónlistarfestival á
Kafli Reykjavík þessa helgina.
■ DANNI CHOCCO Á SKÚLA FÓ-
GETA Stórhljómsveit Danna Chocco
leikur á Skúla fógeta í kvöld.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vlsi.is
í september í fyrra lögðu tvær is-
lenskar íjölskyldur upp í rúmiega níu
mánaöa ferðalag þar sem keyrt var í
gegnum Evrópu og yfir Afríku til
Höfðaborgar. Frá Höfðaborg flugu þær
yfir til Suður-Ameríku og óku sem leið
lá suöur á syðsta odda álfunnar á Eld-
landi. Þaðan var stefnan tekin norður á
bóginn og ekið gegn um Suður- og
Norður-Ameríku til Halifax og flogið
heim síðastliöinn fóstudag.
Stuttur fyrirvari
Að sögn Stefáns Gunnarssonar, eins
ferðalangsins, héldu fjögur fullorðin og
þrjú böm út í ævintýrið. „Auk mín var
konan min, Eyrún Bjömsdóttir, og
bömin okkar, Jónas Stefánsson, sem er
nýlega orðinn þrettán ára, og Signý
Stefánsdóttir sem er sjö ára. Vinafólk
okkar, Gunnar Valdimarsson, Lára
Kristjánsdóttir og Amar Gunnarsson,
sem er sjö ára, ákváðu svo að fara með
aðeins þrem mánuðum fyrir brottfór."
Undirbúningur fyrir ferðina var
skemmri en búast má við fyrir svona
ferð. „Við emm týpiskir íslendingar
hvað það snertir að láta okkur detta
eitthvað í hug og hrinda því síðan strax
í framkvæmd. Hugmyndin fæddist í
kringum áramót og í lok mars vomm
við Eyrún búin að ákveða að fara og'
taka bömin með. Þegar við sögðum
Gunnari og Lám frá þessu urðu þau
strax mjög spennt og það tók þau ekki
nema tvo daga að ákeða sig.“
Fjölskyldumar tvær fóm því næst út
í að innrétta tvo Econoline húsbíla og
breyta þeim fyrir ferðina. Bílamir
stóðu sig mjög vel og það var lítið um
bilanir fyrr en í Suður-Ameríku þegar
vélin í bílnum þeirra Stefáns og Eyrún-
ar bræddi úr sér. Sú bilun tafði fórina
um fjórar vikur á meðan þau biöu eftir
nýrri vél frá Bandaríkjunum og varð til
þess að þau þurftu að breyta áætlun
sinni.
Ferðin hefst
„Ferðin hófst 6. september í
Reykjavík og við keyrðum sem
leið lá austur á Seyðisfjörð og
sigldum til Danmerkur. Þaðan lá
leiðin í gegnum Danmörku til
Þýskalands þar sem við gistum
hjá gömlu vinafólki sem ég var í
sveit hjá sem unglingur. Síðan
var ekið í gegn um Frakkland og
Andorra til Spánar þar sem við
vorum í viku hjá fööur mínum i
sumarhúsi. Við sigldum svo yfir
Gíbraltarsund yfir til Tanger í
Marrokkó þar sem mætti okkur
algerlega nýr heimur."
Létt menningarsjokk
„Frá Tanger var ferðinni heitið í
gegnum Marrokkó upp til Meknes og
yfir Atlasfjöllin að landamærum Alsír
og inn í Sahara-eyðimörkina. Það
verður að segjast eins og er að það var
mikið „kúltúrsjokk" að koma frá Evr-
ópu til Marrokkó. Þrátt fyrir glæsileg-
ar byggingar og forna menningu voru
öll farartæki mjög frumstæð og lifnað-
arhættir allt öðruvísi en við eigum að
venjast. Við áttum satt best að segja
von á því að fá meiri aðlögun og að
Marrokkó væri evrópskara en raun
varð á. Maður stökk í raun heila öld
aftur í tímann í einu vetfangi.
Við ókum eftir Vestur-Sahara að
strönd Altantshafsins og þaðan í her-
fylgd yfir landamærin frá Marrokkó
til Máritaníu. Það hefur verið mjög
stirt á milii þessara tveggja landa
lengi og mikið af jarðsprengjum á
landamærunum þannig að það borgar
sig að fara varlega. Ferðin yfir landa-
mærin tók tvo daga þó leiöin væri
ekki nema rétt rúmir hundrað kíló-
metrar. Við byrjuðum á því að skrá
okkur í fylgdina og svo var gist á ein-
hverju bílaplani á miðri leið. Þegar
við komum til Máritaníu fengum við
áritun inn í landið og vorum toliaf-
greidd í tjaldi úti í eyðimörkinni en
því hafði verið slegið upp af því tUefni.
Til öryggis vorum við með nokkur
karton af sigarettum, eitthvað af
áfengi og doUaraseðla tU að nota sem
mútur í ferðinni en við sluppum nán-
ast alveg við að grípa til þess aUa ferð-
ina. Að minnsta kosti eru nánast aUar
sígrettumar enn til.“
Sandur og meiri sandur
Stefán segir að i Máritaníu hafi tek-
ið við sandur og meiri sandur enda er
landið í vestanverðri Sahara-eyði-
mörkinni. „Eftir þriggja daga ferð yfir
Sahara komum við út að strönd Atl-
antshafsins og þurftum að sæta sjávar-
fóllum til að halda áfram suður Márit-
aníu næstu tvo hundruð kílómetrana.
í höfuðborginni Nouakchott hittum
við hóteleiganda og margmiUjóner frá
Úrúgvæ sem hreifst svo af bílunum
okkar að hann bauð okkur umsvifa-
laust gistingu á hótelinu sínu heima í
Úrúgvæ. Sem við nýttum okkur
seinna í ferðinni.
Frá Máritaníu héldum við tU aust-
urs og keyrðum yfir tU Malí og Níger
sem er mjög þurrt svæði og gróður-
snautt. í Malí heimsóttum við Dogon-
landi sem einu sinni var heimkynni
Pigmía og fórum í þriggja daga göngu-
ferð með leiðsögumanni. Þegar við
komum til Níger urðum við að breyta
ferðaáætluninni vegna ástandsins í
Saír. Við ætluðum upprunalega í gegn-
um Nígeriu, Kamerún, Kongó og það-
an tU Saír og Úganda en þess í stað
fórum við til Tsjad í gegnum Súdan og
tU Eþiópiu."
Spólaö í Sahara
Feröast var um í tveimur sérútbún-
um Econoline-húsbílum sem voru
heimili þeirra í rúma níu mánuöi.
Eþíópía kom á óvart
„Til þess að fá vegabréfsáritun inn í
Súdan, sem er fremur lokað land,
þurftum við að setja upp smáleikrit.
Við höfðum bömin með okkur í sendi-
ráðið og bámm okkur aumlega. Sögð-
umst við hafa ætlað í gegnum Saír en
þar væri nú aUt vitlaust og við vildum
miklu frekar skoða hans faUega land.
Sendiherrann hýmaði við það og gekk
frá árituninni á tveimur tímum í stað
tveggja vikna eins og það tekur yfir-
leitt.
Eþíópía kom okkur verulega á óvart
því í mínum huga tengdist landið
Heimsins stærsti sandkassi
Signý og Arnar leika sér í Sahara-
eyöimörkinni.
Torres del Paine
/ Chile voru graníttindarnir í Torres del Paine skoðaöir en þeir eru í stærsta
þjóðgaröi landsins.