Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Side 2
2 Fréttir MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2001 x>v Um eitt þúsund manns við stærsta uppboð íslandssögunnar á laugardag: Hamarshögg á mínútu fresti -114 bílar seldir - kaupendur staðgreiddu samtals 52 milljónir króna Sýslumannsembættið í Reykjavík hélt stærsta uppboð íslandssögunnar í Bílageymsluhúsi Vöku á Eldshöfða 4 á laugardag. Um þúsund manns kepptu um 114 bíla sem boðnir voru upp. Tvær og hálfa klukkustund tók að selja bílana og lætur því nærri að hamarshögg Úlfars Lúðvíkssonar, deildarstjóra fullnustudeildar sýslu- manns, hafi glumið á rúmlega mín- útu fresti. „Þetta er örugglega stærsta upp- boðið sem við höfum haldið," sagði Bjami Ingólfsson hjá Vöku við DV. Sumir „redduðu sér“ á síð- ustu stundu Á föstudeginum stóð til að bjóða upp mun fleiri bíla, 160-170 að sögn Úlfars, en eigendum um 50 þeirra tókst að „redda málum“ - sumum á síðustu stundu, það er undir hádegi á laugardag með því að semja við upp- boðsbeiðendur sem langflestir eru lánastofnanir. Mikil vanskil á bíla- lánum voru meginástæða fyrir lang- flestum uppboðsbeiðnanna. „Án efa gerðu margir góð kaup og uppboðið gekk mjög hratt," sagði Bjarni hjá Vöku. „En þetta var óvenju fjölsótt því raunar hafa upp- boð oft verið illa sótt. 700-800 upp- boðslistar voru á staðnum og kláruð- Margir gerðu góð kaup - uppboöiö gekk mjög hratt dvmvnd þök „Menn komu hingaö strax klukkan ellefu um morguninn aö skoöa, “ segir forstööumaður Vöku. ust þeir fljótt - færri fengu en vildu. „Menn komu hingað strax klukkan ellefu um morguninn til að skoða en uppboðið hófst klukkan hálftvö. Mesta spennan var í kringum vin- sæla bíla á markaði og margir höfðu hugsað sér sömu bílana. Síðan buðu einhverjir meira en þeir ætluðu sér í byrjun. Menn voru að yfirbjóða hver annan og sumir vildu ekki gefa sig. En það var allur gangur á hvað bfl- amir fóm,“ sagði Bjarni. 10-15 prósent undir mark- aðsverði Bjami segist telja vanskil vera að aukast. Undir það tekur Úlfar: „Þetta hlýtrn- að vera ákveðin vísbending," sagði hann og átti við ástandið í skuldamálum í þjóðfélaginu. 52 milljónir komu í kassann hjá sýslumanni á laugardag. Allir 114 bíl- arnir voru staðgreiddir við hamars- högg. Úlfar segir að e.t.v. sé það sorg- legasta við uppboð að skuldir eigend- anna em þar með ekki uppgerðar við lánardrottnana. Þó að bflamir fari á viðunandi verði fáist sjaldnast upp í heildarkröfu lánastofnananna á hendur skuldurunum. Menn missa því ekki bara bílana heldur skulda þeir samt áfram. Varðandi verð sagði Úlfar að á uppboðum seljist bílar gjarnan 10-15 prósent undir markaðsverði. „En þetta getur verið mjög rokkandi," sagði hann. Næsta uppboð verður haldið 1. september, það er ekki fyrr en eftir svokallað réttarhlé. Úlfar segir að það sem af er ári hafi 442 bflar verið seldir á uppboði í Reykjavík - á sama tíma í fyrra höfðu 355 bílar farið und- ir hamarinn. Þetta er 87 bíla aukning - 24,5 prósent - sem sagt fjórðungi fleiri bílauppboð í ár en í fyrra. Á stærsta uppboðinu á síðasta ári voru 94 bflar seldir en 20 fleiri, eða 114 á laugardag eins og áður segir. -Ótt Sonia Gandhi: Sagði Ólaf góð- an vin Indlands Sonia Gandhi, formaður Kon- gressflokksins á Indlandi, kom hingað til lands um helgina í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta íslands. Gandhi átti fund með Ólafi Ragnari á Bessastöðum á laugardag. Hún sagði að fundi loknum að Ólafur væri góður vinur Indlands. Á laugardag heimsótti Gandhi Árnastofnun, þar sem hún skoð- aði handritin. Þá tók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri á móti Gandhi og fylgdarliði í Höfða og síðan sat hún kvöldverð í boði forseta á Bessastöðum. í gær heimsótti Gandhi Þingvelli þar sem Ástríður Thorarensen, eiginkona forsætisráðherra, tók á móti henni. Nesjavellir, Svarts- engi og Bláa lónið voru áfanga- staðir Gandhi áður en hún hélt af landi brott í gær. -aþ/kip Sonia Gandhi á Bessastööum dv-mynd þök Sonia Gandhi, formaöur Kongressflokksins á Indlandi, ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni forseta og Dorrit Moussaieff. Krónufall hagstjórn að kenna - segir Steingrímur J. um ummæli Davíðs „Ummæli Davíðs um evruna eru eitt af þvi fáa í þessu viðtali sem ég get í aðalatriöum tekiö undir," segir Stein- grímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri hreyfingar- innar - græns framboðs. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra segir í viðtali við Morg- unblaðið um helgina að umræða um að íslendingar taki upp evruna sem gjaldmiðil eða tengist dollar- anum eigi fullan rétt á sér við nú- verandi aðstæður. Meginatriðið sé þó að slíkt sé ekki lausn á þeim skammtíma- vanda sem íslenskt efnahagslíf sé nú í. „Hinn augljósi kostur við að hafa sérstaka mynt í landi sem hef- ur sérstakan efnahag, og um margt ólíkan því sem gerist í ná- grannaríkjunum, er ef krónan lækkar, og það er ekki út af ein- hverri taugaveiklun, er það væntanlega vegna þess að það er í samræmi við þaö efnahagsástand sem er í landinu." „Það er ekkert óeöli- Evran Forsætisráöherra og formaöur VG sammála um aö evran komi ekki í bráö þótt umræöan sé eölileg. legt að umræðan komi upp þegar krónan hríðfellur. Hitt er jafn ljóst að fall krónunnar er afleiðing mis- taka í hagstjóm en ekki tflvist hennar sem sjálfstæðs gjaldmiðfls að kenna. í öðru lagi er ekkert um að ræða að við tökum upp evruna nema með því að ganga jafnframt í ESB, með kostum þess en þó fyrst og fremst göllum. í þriðja lagi kæmi slíkt aldrei til framkvæmda fyrr en að mörgum árum liðnum, þannig að se'm lausn á bráðavanda i efnahagsmálum er slíkt tal út í hött. Loks standa svo eftir allir ókostir þess vegna sérstöðu ís- lensks efnahagslifs og margs fleira að taka upp evruna." -sbs msxnsmmmm Ráðherra til Færeyja Geir H. Haarde fjármálaráðherra og eiginkona hans, Inga Jóna Þórðardóttir, fóru í gær í þriggja daga opinbera heim- sókn tfl Færeyja. Heimsóknin er í boði fjármálaráðherra Færeyja og munu ráðherrahjónin meðal annars hitta lögmann Færeyja. Ráðherra heldur síðan til Oslóar þar sem hann hittir fjármálaráðherra Noregs. 585 brautskráðir 585 kandídatar voru brautskráðir frá Háskóla íslands síðastliðinn laug- ardag. Þá luku 53 nemendur viðbótar- námi í raunvísindadeild og félagsvís- indadeild og 10 diplómanámi. Af kandídötum sem brautskráðust luku 52 meistaranámi sem er 33% aukning miðað við júníútskrift síðasta árs. Af þeim brautskráðust 12 nemar með meistarapróf í sálfræði og eru það fyrstu nemamir sem útskrifast með slíkt próf frá Háskóla íslands. Bólusetning hafin Þessa dagana vinnur Landlæknis- embættið að því að hefja bólusetningu við heilahimnubólgu en mikið hefur verið um sjúkdómstilfelli að undan- fornu. Um 1,5 tilfelli hafa greinst á mánuði og er tíðni heilahimnubólgu meiri hér en annars staðar á Norður- löndum. Frí nettenging í lagi Fjármálaeftirlitið hefur úrskurðað að viðskiptabankarnir hafi ekki brotið lög með þvi að bjóða fría nettengingu. Samtök netveitna eru ekki sátt við þessa niðurstöðu eftirlitsins og útiloka ekki að leitað verði til dómstóla. RÚV greindi frá. Þórir til Kára Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður hefl- brigðis- og trygginga- málaráðherra, hefur sagt upp starfi sínu og mun taka við nýju starfi á lögfræðisviði íslenskrar erfða- greiningar. Hann hefur fengið lausn frá störfum frá og með næstu áramótum. 60% ánægð Samkvæmt nýrri viðhorfskönnun telja tæplega 60 prósent borgarbúa að sú þjónusta sem þeir fá hjá borginni sé mjög eða frekar góð. Einnig kom fram að tæplega helmingur telur að borgar- stjómin standi sig vel í starfi sínu. mp<á 312 óhöpp Lögregluembættunum á landinu bárust alls 312 tilkynningar um um- ferðaróhöpp tengd lausagöngu búfjár á síðasta ári. Þetta kemur fram í frétta- blaði Sjóvár-Almennra sem út kemur á þriðjudag. Hættur í Hafnarfirði Ingvar Viktorsson, bæjarfulltrúi og fyrr- verandi bæjarstjóri í Hafnarfirði, hefur ákveðið að vfkja úr bæjarráði. Jóna Dóra Stefánsdóttir hefur tekið sæti hans. Ingvar hefur setið í bæjarstjórn og bæjarráði frá 1986. Bílvelta á Gjábakkavegi Þrennt var flutt á slysadeild eftir að bíll valt á Gjábakkavegi milli Gjá- bakka og Laugarvatns um hádegið í gær. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var fólkið flutt á Landspítalann í Foss- vogi en ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur. Einn farþeginn hlaut alvarlega innvortis áverka en öku- maðurinn og hinn farþeginn vom minna slasaðir. -MA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.