Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2001 Skoðun DV Siðspillingin svífst einskis Engar skyldur, engar hömlur. Grímulaus óhugnaöur í höfuöborginni. Ertu hjátrúarfull/ur? Sigurbjörn Ármannsson múrari: Nei, þaö er ég ekki. Lena Sól Sörensen nemi: Nei, ég verö alla vega ekki vör viö þaö. Guöjón Smári Guðmundsson öryrki: Já, ég geng ekki undir stiga og si/o stoppa ég þegar svartir kettir ganga í veg fyrir mig. Arnar Gunnar Hjálmarsson nemi: Nei, ekki neitt. Héðinn Helgason verktaki: Nei, og hef aldrei veriö. Bjarni Waage bakari: Nei, ég pæli aldrei í þessum hjátrúm. Hvemig svo sem þjóðin reynir að afsaka sjálfa sig gagnvart vax- andi ofbeldi, villi- mennsku og sið- spillingu, sem senn verður rót- föst í íslensku GejrR samfélagi, þá er Andersén jafnvíst og nótt blm. skrifar: fylgir degi að frá ——— ósköpunum verð- ur ekki komist án hugarfarsbreyt- ingar okkar sjálfra. Siðspillingin svífst einskis og verður ekki upp- rætt af dómskerfmu, löggæslunni, skólunum eða með breyttum lokun- artíma skemmtistaðanna, og ekki heldur af borgarstjórn. - Alþingi verður þó ekki hvítþvegið og kem ég að því hér síðar. í öllum þeim umræðuþáttum og viðtölum sem ég hef orðið vitni að á síðustu misserum, um aukna glæpa- tíðni, vaxandi ofbeldi og villi- mennsku, sem hefur nú náð ein- hvers konar hámarki (þótt enn kunni að syrta í álinn), hef ég aldrei heyrt svo mikið sem minnst á meira aðhald þegnanna á þjóðarvisu, líkt og aðrar þjóöir eru aldar upp við. - Auðvitað á ég við þegnskylduvinnu. Flestar þjóðir, og allar okkar ná- grannaþjóðir, búa við herskyldu. Þetta er sumstaðar ævilöng kvöð, líkt og í Sviss. Hér hafa menn ekki mátt taka sér orðið þegnskylda i munn (hvað þá herskylda) án þess að viðkomandi hafi verið úthrópað- ir fasistar eða eitthvað þaðan af verra. Og því forðast menn svona tal í lengstu lög. - Utan hvað menntamálaráðherra hefur ýjað að aðild okkar að vamarstarfi því sem NATO er nú ábyrgt fyrir með veru vamarliðsins á Keílavíkurflugvelli. Það hefur líka sætt aðkasti og skopi þegar best lætur. Flestir sem líta raunsætt á málið hljóta að sjá hve lítil hyggindi það eru hjá einni þjóð (mannfjöldi skipt- ir ekki máli) að líta fram hjá upp- Sigurpáil Óskarsson skrifar: Eitt af því sem einn pistlahöfund- ur á Skjá einum hefur tönnlast á er fyrirhuguð skattalækkun á fyrir- tæki sem forsætisráðherra hefur boðað að undanfómu. Mér er ofarlega í minni það sem kennari minn sagði einu sinni um pólitískan áróður: Þingmaður nokk- ur, kunningi hans, gisti hjá honum á kosningaferðalagi og sá hann (kennarinn) hjá honum framboðs- ræðuna áður en hún var flutt opin- berlega. „Heldurðu að nokkur trúi þessu skrumi,“ varð þá gestgjafan- „í dag hefur íslenska þjóðin ekki neinum skyldum að gegna við land og þjóð, utan hvað skólaskylda er lögboðin með svokölluðum grunnskóla. “ eldisskyldum og aga sem alls staðar annars staðar er flokkað sem for- senda fyrir marktæku þjóðfélagi. í dag hefur íslenska þjóðin ekki nein- um skyldum að gegna við land og þjóð, utan hvað skólaskylda er lög- boðin með svokölluðum grunn- skóla. Alþingi átti fyrir löngu að hafa frumkvæði um þegnskylduvinnu fyrir ungt fólk í svo sem eitt ár æv- innar. Af nægum verkefnum er að taka til sjós og lands og þarf ekki að teygja lopann í því efni í þessum „Hjá núverandi valdhöfum þýðir lœkkun skatta á fyrir- tæki aukin gjöld á almenn- ing i landinu, því að skatt- heimtusvikamyllan er ífull- um gangi eins og almenn- ingur hefur orðið var við...“ nógu oft á því, þá fara menn að trúa því,“ svaraði hinn. „Menn álykta sem svo að þetta hljóti að vera satt og rétt fyrst maðurinn er að endur- taka þetta aftur og aftur.“ Hjá núverandi valdhöfum þýðir pistli. En þar er ekki samstaða um svo mikilvægt mál, enn sem komið er a.m.k. Margt myndi breytast hér við jákvæða afstöðu löggjafans og þjóðarinnar. í fréttatíma Skjás eins sl. fimmtu- dag voru vegfarendur teknir tali og spurðir hvað þeim fyndist um nið- urstöðu könnunar DV um verð- hækkun matarverðs. Svör fólksins reyndust einungis rugl, enda spurn- ingin galtóm. Spyrja átti frekar: Hvernig ætlar þú að bregðast við þessum verðhækkunum? - Aðeins einn aðspurðra svaraði skynsam- lega. „Enginn annar en við sjálf get- um mætt þessu vandamáli - með samdrætti og sparnaði. Og þannig er það um villimennskuna og siö- spillinguna sem nú er í hámarki. Hún verður ekki kveðin niður nema þjóðin taki nýjan kúrs. Taki í hnakkadrambið á sjálfri sér. - Allir skilja og vita hvað það þýðir. lækkun skatta á fyrirtæki aukin gjöld á almenning í landinu því að skattheimtusvikamyllan er í fullum gangi eins og almenningur hefur orðið var við á undanfömum miss- erum og það í flestum greinum þjóð- lífsins. En um leið finnst þarna kjörin leið fyrir fjárplógsmenn og braskara að komast hjá tekjuskatti, sem stór- minnkað hefur tekjur sveitarfélag- anna eins og þingmaður einn benti svo rækilega á. Það er þó huggun harmi gegn í skattpíningunni aö grynnkað hefur verið á erlendum skuldum þjóðarbúsins. En skylt er að geta þess sem vel er gert. um að orði. „Um að gera að stagla Garri Fyrirhuguð skattalækkun Með Betelstaf í hendi Samkvæmt fréttum eru ýmsir þessa dagana of- sóttir sakir uppruna síns, útlits og skoðana. Einkum er það fólk frá Austurlöndum sem kannski trúir á Búdda, Allah eða Konfúsius sem verður fyrir barðinu á þessum ofsóknum. Þetta er auðvitað til háborinnar skammar og smánar- blettur á íslenskri þjóð. En það eru fleiri sem þurfa að búa við for- dóma og fordæmingu vegna skoðana sinna og uppruna, meðal annars sannkristnir Vestmanna- eyingar. Því hefur Snorri Óskarsson, safnaðar- formaður úr Betel, fengið að kynnast norður í Eyjafirði að undanfómu þar sem hann þrammar nú milli Pílatusar og Heródesar með Betelstaf í hendi að leita sér að vinnu. Vaxtarlag Ef marka má DV (og það má oftast, enda skrif- ar Garri f blaðið) þá taldi Snorri sig hafa vilyrði fyrir kennarastarfi nyrðra en annað kom á dag- inn. Talað er um undirskriftalista foreldra ey- firskra skólabarna gegn Snorra, fordóma skóla- stjórnenda í málinu og guð má vita hvað (og það veit guð, enda sá sem allt veit). Og hvaö hefur Snorri svo til saka unnið til að fá þvílíkar trakteringar á hinu annars gestrisna Norðurlandi? Jú, í fyrsta lagi er hann auðvitað Vestmannaeyingur og ber það með sér en það hefur nú ýmsum verið fyrirgefið til þessa. í ann- an stað er hann einn af fáum sannkristnum mönnum á íslandi en það hefur heldur ekki alltaf verið lagt mönnum til lasts. Og í þriðja lagi mun Snorri hafa látið þau orð falla um til- tekinn skólastjóra nyrðra, sem ekki vildi ráða hann til starfa, að viðkomandi væri „vonandi karlmannlega vaxinn.“ Djöfullinn er danskur Hvað síðasttalda sakarefnið varðar þá brestur Garra skilning og skortir upplýsingar um vaxt- arlag viðkomandi skólamanns til þess að geta metið hve alvarleg téð ásökun er. En er ekki alltaf hægt að biðjast afsökunar og draga til baka móðgandi ummæli? Þarna ætti hnífurinn fjanda- komiö ekki að standa verulega fast í kúnni. Því verður hins vegar því miður ekki breytt ef maö- ur er Vestmannaeyingur en það verða Snorri og aðrir Eyjamenn bara að sætta sig við og lifa með. En umburðarlyndir Norðlendingar hljóta að geta horft fram hjá þessari staðreynd. Hins vegar áttar Garri sig alls ekki á því að trú eða trúgimi manna þurfi að koma í veg fyrir að þeir geti kennt dönsku hvar á landi sem er, nema helst í Danmörku sjálfri, því djöfullinn er náttúrlega danskur. Góður dönskukennari í Vestmannaeyjum er ekki síður á vetur setjandi í þeim efnum á Akureyri. Garri vill því hvetja Eyfirðinga til að endur- skoða afstööu sína til Snorra og hafa í huga hans fleygu orð úr mörgum predikunum: „Niður með fordóma og dómhörku, upp með _ umburðarlyndi og víðsýni!" Gam Við grilliö Já, steikja betur og hart í gegni Sjóða og steikja í gegn! Erla Magnúsdóttir skrifar: Nú hefur Héraðsdómur Reykja- víkur sýknað Reykjagarð fyrir að selja campylobactersýkta kjúklinga og hafnað í leiðinni skaðabótakröfu fólks sem veiktist af því að borða kjúkling frá þessu sómabúi. Þetta þýðir auðvitað að héðan í frá munu matvælaframleiðendur kæra sig kollótta um framleiðslu sína og verja sig með því að merkja vöru sína: Sjóðið eöa steikið í gegn! Fín lausn í matvælabransanum, ekki rétt? Og nú er bara að halda áfram að framleiða, því réttarstaða þeirra framleiðenda er skýr; ef lýðurinn ekki sýður eða steikir í gegn þá er þeim sjálfum um að kenna maga- kveisan, spítaladvölin eða heim- sókn mannsins með ljáinn. En er þetta ekki annars dæmigert fyrir ís- lenskt dómskerfi? - Og nú í neyt- endamálum. Krárnar loki kl. 2 og 4 Kristinn Sigurösson skrifar: Full ástæða er til að taka orð lög- reglumannsins sem var í Kastljósi nýlega alvarlega um að harka og mannvonska hafi aukist í kjölfar þess að veitingastaðir eru opnir til morguns. Hann var sá eini í Kast- ljósþættinum sem virtist ábyrgur í málflutningi. Aðrir bulluðu og hlógu. Lögreglumaðurinn hló ekki, enda reynslunni ríkari af ástandinu í borginni í dag. Loka ætti hluta kránna kl. 02 og öðrum kl. 04, í síð- asta lagi. Verði opið lengur þá borgi veitingahúsin þann mannafla lög- reglunnar sem til þarf eftir þann tíma, eða milli kl. 04 og til morguns. Þú dásamlegi hversdagur Einar Ingvi Magnússon skrifar: Spár eru nú uppi um vaxandi verðbólgu og minnkandi kaup- mátt. Enn eitt tímabil sem gefur bölsýnismannin- um aukna ástæðu til að kvarta og vera leiður á líf- inu, þegar sumar- fríin ganga í garð. Holl væri manninum hug- arfarsbreyting í þessu sem öðru. Ef við göngum til starfa okkar sérhvern dag með þjónustulund og gleði fer lífið að taka á sig aðra mynd. Við upplif- um allt annan veruleika, ekki grámyglu hversdagsins, heldur gleði hans. Sumarleyfin verða ekki skemmtilegri eftir því sem ellefu mánuðir ársins eru leiðin- legri. Sumir ganga með það í buxnaskálmunum að vera sífellt óánægðir og sjá ekkert til að gleðj- ast yfir. Með því að læra að njóta hversdagsins getum viö notið þess að vera til alla mánuði ársins og lifað af vaxandi verðbólguspár. n Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.is Eða sent bréf til: Lesendasíða DV, Þverholti 11, 105 ReyKjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar með bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.