Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Blaðsíða 22
34 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2001 íslendingaþættir______________________________________________________________________________________________________X>V Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára________________________ Margrét Larsen, Hrísholti 22, Selfossi. 80 ára________________________ Guömundur Guöjónsson, Brekkukoti, Reykholti. Sigurbjörg Einarsdóttir, Selnesi 36, Breiðdalsvík. 75 ára________________________ Auöur Bjarnadóttir, Hafnarbraut 48, Neskaupstaö. Guömundur Þorsteinsson, Sjónarhóli, Grindavík. Pálína Magnúsdóttir, Asparfelli 12, Reykjavík. 70 ára________________________ Haraldur Sigfús Magnússon, Hverfisgötu 23c, Hafnarfirði. Margrét Björnsdóttir, Víöigrund 6, Sauðárkróki. Þorsteinn Jónsson, Neströö 1, Seltjarnarnesi. 60 ára________________________ Böövar Árnason, Hraunholti 3, Akureyri. Hreinn Tómasson, Eikarlundi 13, Akureyri. Sigurjón Kristjánsson, Geitlandi 6, Reykjavík. Valgeröur Ebenesersdóttir, Byggðarholti 41, Mosfellsbæ. 50 ára________________________ Birna Ólafsdóttir, Suðurhvammi 9, Hafnarfirði. Gunnar Gunnarsson, Grettisgötu 11, Reykjavík. Helga Kristín Ásgeirsdóttir, Rauðalæk 41, Reykjavík. Helgi Már Eggertsson, Vallarbaröi 3, Hafnarfirði. Jónas Sigurðsson, Beykihlíð 5, Reykjavík. Kristín Árnadóttir, Selvogsbraut 11, Þorlákshöfn. María Guömundsdóttir, Drekagili 8, Akureyri. Sigfríður Steingrímsdóttir, Lautasmára 26, Kópavogi. Þorsteinn Guömundsson, Kjartansgötu 8, Reykjavík. 40 ára_______T________________ Helgi Ólafur Ólafsson, Hrismóum 7, Garðabæ. Ingibjörg Hulda Björnsdóttir, Jörundarholti 9, Akranesi. Kristófer Máni Bogason, Hólabraut 27, Skagaströnd. Magnús Bjarni Helgason, Hafnargötu 6, Seyöisfiröi. Unnur Einarsdóttir, Neðstaleiti 8, Reykjavík. Persónuleg, aihliöa útfararþjónusta. Swerrir Einarsson Bryndis útfararstiórí Valbjamardóttir útfararstjórí Útfararstofa íslands Suöurhlíö35- Sími 581 3300 allan sölarhringlnn. wWW.Utforin.is Hrafnkell Gunnarsson, Hverafold 146, Reykjavík, lést 21.6. Guölaugur V. Helgason, dvalarheimilinu Höföa, Akranesi, andaðist 8.6. Útförin hefur fariö fram. Magnús Þorsteinsson, Hamrahlið 13, Reykjavík, lést 22,6. Valgeröur Hrólfsdóttir, Dvergagili 1, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri, 21.6. Andrés Helgi Magnússon, Markarflöt 37, Garöabæ, lést á Landspítala, Fossvogi, 20.6. Ásgeir Þorbjörnsson lést á Landspitala, Vífilsstöðum, 8.6. Útförin hefur farið fram. Vera E. Maack, Sogavegi 103, Reykjavík, lést 21.6. Matthildur Lyngdal Karlsdóttir, Njálsgötu 20, Reykjavík, lést 22.6. Hafdís Hlíf Björnsdöttir, Dofrabergi 11, Hafnarfirði, lést 21.6. Fólk í fréttum Ólína Þorvarðardóttir skólameistari Ólína Þorvaröardóttir þjóöfræöingur Ólína er á förum til Vestfjaröa þar sem hún verður skólameistari Menntaskólans á ísafiröi. Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræð- ingur hefur verið skipuð skólameistari Menntaskólans á ísafirði. Starfsferill Ólína fæddist í Reykjavík og ólst þar upp fram til fjórtán ára aldurs en átti síðan heima á ísafirði til 1979. Hún var búsett á Húsavík 1979-80 en hefur verið búsett í Reykjavík frá 1980 að því undan- skildu að hún bjó í Danmörku 1996-97. Ólína lauk stúdentsprófi frá MÍ 1979, BA-prófi í íslenskum bók- menntum og heimspeki 1985, cand. mag.-prófi í íslenskum bókmennt- um og þjóðfræðum 1992 og stundar nú doktorsnám í þjóðfræði við heimspekideild HÍ. Ólína var kenn- ari við Gagnfræðaskólann á Húsa- vík 1979-80, blaðamaður frá 1984, fréttamaður við ríkissjónvarpið 1986-90, er dagskrárgerðarmaður og pistlahöfundur við RÚV frá 1990, hefur stundað bókmenntagagnrýni og önnur ritstörf um árabil og stundakennari í þjóðfræðum við HÍ frá 1991. Ólína sat í Stúdentaráði HÍ og í háskólaráði 1982-84, var borgar- fulltrúi i Reykjavík 1990-94, sat í borgarráði 1992-94, sat i stjórn Dag- vistar bama 1990-94, í stjóm SVR 1994-97, í stjórn Neytendasamtak- anna 1994-96, hefur gegnt fjölda annarra trúnaðarstarfa fyrir félaga- samtök og hópa og er nú varafor- maður Kvæðamannafélagsins Ið- unnar. Fjölskylda Eiginmaður Ólinu er Sigurður Pétursson, f. 13.6.1958, sagnfræðing- ur og kennari við VÍ og fyrrv. for- maður SUJ. Þau hófu sambúð 1979 en giftu sig 28.3. 1983. Sigurður er sonur Péturs Sigurðs- sonar, f. 18.12. 1931, formanns Al- þýðusambands Vestfiarða, og k.h., Hjördísar Hjartardóttur, f. 12.5. 1939, deildarstjóra. Sonur Ólínu frá því áður er Þor- varður Kjerúlf Benediktsson, f. 15.11. 1975. Börn Ólínu og Sigurðar eru Saga, f. 30.6. 1982; Pétur, f. 24.10. 1983; Magdalena, f. 26.4. 1985; Andr- és Hjörvar, f. 25.1 1994. Alsystir Ólínu er Halldóra Jó- hanna, f. 23.11. 1959, prófastur í Rangárþingi. Háifsystir Ólínu, sam- mæðra, er Dýrfinna Jónsdóttir, f. 9.2. 1947, húsmóðir á Selfossi. Hálf- systkini Ólínu, samfeðra, eru Einar, f. 16.3. 1944, umdæmisverkfræðing- ur Vegagerðar rikisins á Austur- landi, búsettur á Reyðarfirði; Sigríð- ur, f. 3.8.1948, kaupmaður i Reykja- vík; Guðbjörg, f. 30.3. 1951, dýra- læknir á Hvolsvelli; Þorsteinn, f. 10.8. 1955, heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík; Dagbjört Þyri, f. 19.3. 1958, hjúkrunarfræðingur og bæjar- fulltrúi á Húsavík. Foreldrar Ólínu: Þorvarður Kjer- úlf Þorsteinsson, f. 24.11. 1917, d. 31.8. 1983, sýslumaður i ísafiarðar- sýslu, og Magdalena Thoroddsen, f. 7.2. 1926, húsmóðir og blaðamaður. Ætt Þorvarður var bróðir Þorgeirs, lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli, foður Herdísar ritstjóra og bróðir Margrétar, móður Eiriks Jónssonar blaðamanns. Þorvarður var sonur Þorsteins, kaupfélagsstjóra á Reyð- arfirði, Jónssonar, kaupfélagsstjóra á Egilsstöðum, Bergssonar. Móðir Þorsteins var Margrét Pétursdóttir, b. í Vestdal, Sveinssonar. Móðir Þorvarðar var Sigríður Kjerúlf Þor- varðardóttir, læknis og alþm. á Ormarsstöðum, Andréssonar Kjer- úlf, bókbindara á Melum. Móðir Sig- ríðar var Guðríður, dóttir Ólafs Hjaltested og Þorgerðar Magnús- dóttur. Meðal systkina Magdalenu má nefna Einar lögmann og Þor- vald, hreppstjóra á Patreksfirði. Magdalena er dóttir Ólafs Thorodd- sen, útvegsb. og kennara í Vatnsdal, Einarssonar, b. i Vatnsdal, Jónsson- ar, b. á Vatneyri, Þóroddssonar, bróður Þórðar beykis, föður Jóns Thoroddsens sýslumanns, föður Skúla alþm., Þorvalds náttúrufræð- ings, Sigurðar verkfræðings og Þórðar læknis. Móðir Ólafs var Sig- ríður Ólafsdóttir, b. í Sviðnum, Teitssonar, og Bjargar Einarsdótt- ur, eyjajarls og alþm. í Svefneyjum, Eyjólfssonar. Móðir Magdalenu var Ólína Andrésdóttir, b. á Vaðli, Björnsson- ar, og Jónu Einarsdóttur. Merkir Islendingar María Markan Östlund fæddist 25.6. 1905 i Ólafsvík á Snæfellsnesi. For- eldrar hennar voru Einar Mark- ússon, síðar aðalbókari ríkisins, og kona hans, Kristín Árnadóttir. María stundaði nám í Kvennaskóla Reykjavíkur í tvö ár. Hún æfði píanó- leik frá 8 ára aldri. Árið 1927 hóf Mar- ia söngnám í Berlín; lærði bæði fyrir konsert og óperu. Hún lauk óperuprófi við Buhnen Nachweis í Berlín 1935. María starfaði sem konsert- og óperu- söngkona í Kaupmannahöfn, Ósló, Stokkhólmi, Hamborg, Berlín og Reykja- vik á árunum 1935-1939. Hún starfaði í London, Glyndebourne Kaupmannahöfn og Ástralíu 1939-1940, María Markan Vancouver og Winnipeg 1940-1941. María starfaði við Metropolitan-óperuna í New York 1941-1942 en vegna heimilisanna framlengdi hún ekki samning sinn þar. Hún hélt áfram söngnámi undir leið- sögn tónskáldsins Pietros Cimara en fluttist heim og settist að í Keflavík. Frá árinu 1962 bjó María i Reykjavík þar sem hún rak raddþjálfunar- og óp- erusöngskóla. Árið 1949 hélt hún tón- leika við mikla aðsókn og söng í ís- lenska útvarpið. Útvarpsráð lét og gera hljómplötur með henni með tíu íslensk- um sönglögum til sölu erlendis. María var gift Georg Östlund, f. 25.1. 1901, d. 30.12. 1961, syni Davíðs trúboða og prentsmiðjustjóra. Maria lést í maí 1995. Jarðarfarir Kristmundur Breiöfjörö Bjarnason, Dalbraut 59, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju 25.6. kl. 14.00. Guðrún Magnúsdóttir, Hrafnistu, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, 25.6. kl. 13.30. Pálmi Steingrímsson, Hávegi 15, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju, 25.6. kl. 13.30. "---A Allt milli himins ogjarðar... J, rr DV Smaauglysingar 550 5000 Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍf.ÍS 0jrftL '<*7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.