Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Blaðsíða 28
Helgason hf. FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2001 ' -> Breiðdalsvík: Alvarlegt slys Harður árekstur varð við Breið- dalsvík um fimmleytið í gær. Tvær stúlkur slösuðust alvarlega við áreksturinn. Að sögn lögregl- unnar á Fáskrúðsfirði ók jeppi af afleggjaranum til Breiðdalsvíkur inn í hliðina á fólksbíl sem var ek- ið um þjóðveginn. Einn var í jepp- anum en fjórir í minni bílnum og voru stúlkurnar tvær í honum. Þær voru fluttar á Egilsstaði með sjúkrabifreið og þaðan með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamót- töku Landspítalans í Fossvogi. Ökumaður jeppans slapp ómeiddur en hinir farþegarnir tveir úr fólksbílnum hlutu minni háttar áverka og voru fluttir til að- hlynningar á heilsugæslustöð. Lögregla rannsakar tildrög slyss- ins. MA Slysið í Álverinu: Maðurinn enn í lífshættu Maðurinn sem brenndist meira í slysinu í Álverinu á föstudag var I aðgerð í allan gærdag og var áætlað að henni lyki um miðnætt- ið. Á laugardag kom bandarískur sérfræðingur hingað til lands með gervihúð. í fréttatilkynningu frá Jens Kjartanssyni lýtalækni kem- ur fram að ástand mannsins sé enn mjög alvarlegt og hann enn í lífshættu. Manninum, sem brennd- ist minna, heilsast eðlilega eftir aðgerð á föstudag, en ástand hans er eftir atvikum. -Kip Feðgar slösuðust í bifhjólaslysi Feðgar slösuðust i bifhjólaslysi við Borgarnes skömmu fyrir hádegi í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti þá á bráðamóttöku Landspítalans 1 Fossvogi. Faðirinn reyndist alvarlega slasaður, með innvortis meiðsli. Son- urinn, sem er níu ára, fótbrotnaði og hlaut minni háttar áverka. -MA Konubjargað úr Ölfusá Konu var bjargað úr Ölfusá rétt eftir hádegi í gær. Að sögn lögregl- unnar á Selfossi er ekki vitað hvað konunni gekk til með svamlinu en vitni sá hana í ánni. Bátadeild björgunarsveitarinnar á Selfossi var kvödd á vettvang og fór hún á bát út í ána og náði konunni um borð í hann. Hún var flutt á Heil- brigðisstofnun Suðurlands til að- hlynningar. DV-MYND ÞOK Forsætisráðherra írlands á íslandi Bertie Ahern, forsætisráöherra írlands, kom i opinbera heimsókn til landsins í gærkvöld. Meö honum á myndinni er eiginkona hans, Celia Larkin, og Guðni Bragason prótókollsstjóri. í dag situr Ahern morgunveröarfund hjá Verslunarráöi. Því næst hittir hann Davið Oddsson forsætisráöherra í Ráöherrabústaönum viö Tjarnargötu og heimsækir forsetann aö Bessastööum. Síöan veröur haldið i skoöunarferö til Þingvalla, aö Gullfossi, Geysi og Bláa lóninu. Vandamálin sífellt alvarlegri, segir Ólafur F. Magnússon, læknir og borgarfulltrúi: Vitneskja um vændi - á nektardansstöðum - víma meðverkandi þáttur „í gegnum starf mitt hef ég upplýs- ingar um að á einhverjum hinna svo- nefndu nektardansstaða í borginni sé stundað vændi. Til mín á læknastof- una hafa verið að leita skjólstæðingar sem þarna hafa lent í ýmiss konar hremmingum og þá er vímuefnanotk- un mjög meðverkandi þáttur,“ segir Ólafur F. Magnússon, heimilislæknir og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Hann staðfestir með þess- um orðum þann orðróm, sem hefur verið í gangi að undanfórnu, að vændi sé stundað á nektarstöðunum í borg- inni. Telur Ólafur mikilvægt að grip- ið verði til aðgerða vegna þessa hið fyrsta. Vandamálin alvarlegri Mikilvægt er að starfsemi þessi verði tekin réttum tökum og skikki komið á hana, segir Ólafur. Það sé ekki tækt að félagsmálaráðuneytið af- greiði mál stúlkna sem koma til starfa á dansstöðunum með þeim hætti að þær séu listamenn. Hér verði að kalla hlutina sinum réttu nöfnum og starfa samkvæmt því. Hann segir það mikilvægt að stúlkunum, sem koma til starfa á nektarstöðunum, verði gert skylt að gangast undir „vandaða heilsu- farsskoðun". Á slíku sé full þörf vegna eðlis starfsem- innar því ætla megi að samskipti við viðskiptavini séu oft náin. „Þau vandamál sem skjólstæðingar hafa leitað til mín með vegna heim- sókna á nektarstaðina eru bæði fjár- hagslegs og heilsufarslegs eðlis," segir Ólafur. „Svona vandamál eru góðu heilli ekki daglegt brauð í mínu starfi, en þau fóru fyrst að koma upp fyrir um ári síðan. Þeim hefur farið fjölg- andi og vandamálin eru að verða mun alvarlegri með hverjum mánuðmum sem líður.“ Slæleg vinnubrögð Ólafur á sæti í stjórn Heilsugæsl- unnar í Reykjavík og hefur, að eig- in sögn, reynt að beita sér í máli þessu með það að markmiði að vinnubrögð félagsmálaráðuneytis- ins verði bætt. „Á þessum vettvangi hef ég komið mínum sjónarmiðum á framfæri og í framhaldinu tel ég rétt að þau berist ráðuneytinu, en vinnubrögð þess i málefnum nektar- staða hafa verið slæleg og bera vott um kæruleysi." -sbs Ólafur F. Magnússon. Vopnaö par í Engjahverfi: Táragas notað eftir ógn- un með hnífum Maður og kona voru látin gista fangageymslur eftir að hafa verið með ólætiú Engjahverfi í Grafar- vogi á laugardagskvöldið. Að sögn sjónarvotta lenti maðurinn í rifr- ildi við fyrrverandi sambýliskonu sína fyrir framan húsið. Hann, sem var ölvaður, gekk berserks- gang þar og réðst meðal annars á bíl konunnar, sparkaði í hann, braut rúður og reif af honum ljós- in. Maðurinn olli einnig skemmd- um á öðrum bíl. „Hann kom síðan inn aftur, öskraði á mig í stiga- ganginum, kallaði mig öllum ill- um nöfnum og hótaði síðan að skera mig á háls,“ segir einn sjón- arvotta sem var að vonum skelk- aður en náði að forða sér inn í íbúð sína. Eftir það kom maðurinn aftur út með tvo stóra hnifa og var þá kallað á lögreglu. Sambýliskona mannsins tók á móti lögreglunni - •• ■ Og OXI vopnuð öxi og var hún yfirbuguð með táragasi. Maðurinn hljóp hins vegar í burtu en náðist fljót- lega og var einnig handtekinn. „Þetta var mjög óskemmtileg lífs- reynsla," segir sjónarvotturinn. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni fannst enginn hnífur á manninum. Lögreglu tókst að ná öxinni af konunni en hún haföi meðal annars skemmt grindverk. -MA Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.