Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2001 I>V 5 Fréttir Ritt Bjerregárd, sjávarútvegsráðherra Dana, í opinberri heimsókn: Heimsækir Neskaupstað og Vestmannaeyjar Sjávarútvegs- og matvælaráð- herra Dana, Ritt Bjerregárd, kem- ur í opinbera heimsókn til íslands í dag en síðdegis er hún með fram- sögu í boði Dansk-íslenska versl- unarráðsins á Grand Hótel þar sem hún ræðir um sjálfbærar fisk- veiðar og öryggi í matvælum sem ætti að vekja athygli í ljósi nýút- kominnar skýrslu Hafrannsókna- stofnunar um fiskistofna við ís- land. Britt Bjerregárd er í fremstu röð danskra stjórnmálamanna, hefur látið til sín taka á alþjóðleg- um vettvangi og var um tíma í for- svari fyrir umhverfismál í fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins. Ritt Bjerregárd. Opinber heimsókn hefst þó ekki fyrr en fostudaginn 29. júní en þá fer hún á fund með Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráð- herra í sjávarútvegsráðuneytinu. Um hádegið verður svo flogið til Neskaupstaðar og Síldarvinnslan heimsótt en Síldarvinnslan er einn stærsti framleiðandi sildar- afurða hérlendis. Á laugardegin- um verður Náttúrugripasafn Vestmannaeyja skoðað og siglt kringum eyjarnar. Um kvöldið býður íslenski sjávarútvegsráð- herrann til kvöldverðar í Ráð- herrabústaðnum við Tjarnar- götu. -GG Bæjarráð Húsavíkur hafnar staðsetningu nýrrar sorpbrennslu: Sorphirðumál Húsvíkinga í vandræðagangi Áformað var að ný sorpbrennslu- stöð yrði tekin í notkun í ársbyrjun 2003 hjá Sorpsamlagi Þingeyinga. Hún átti að vera að Lyngmóum við Húsavik. Þar sem lokun blasir við núverandi brennslustöð á Höfða við Húsavik hefur Sorpsamlagið lagt til að sorp verði urðað í Laugardal þar til ný sorpbrennslustöð verður tek- in 1 notkun. Sorpsamlag Þingeyinga hefur enn fremur spurst fyrir hjá umhverfisráðuneytinu um lögmæti sorpurðunar í Laugardal. Bæjar- verkfræðingur telur að ekki komi til greina að urða lífrænan úrgang í Laugardal, m.a. vegna mikilla nýt- ingarmöguleika á vatni frá svæðinu til heilsubaða, fiskeldis og iðnaðar- notkunar. Bæjarráð Húsavikur tel- ur urðun á lífrænum úrgangi ekki koma til greina í Laugardalnum en bærinn er hins vegar reiðubúinn að koma að málinu ásamt Sorpsamlag- inu og Hollustuvernd ríkisins til að finna ásættanlega lausn. í ljósi framkominna upplýsinga sam- þykkti bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn að lóðarveiting vegna fyrirhugaðrar sorpbrennslustöðvar við Lyngmóa verði afturkölluð. Jafnframt var óskað viðræðna við byggingayfirvöld í Reykjahreppi um staðsetningu sorpbrennslustöðvar í Saltvíkurlandi. Stjórn Sorpsamlags- ins mun hafa frumkvæði að þeim viðræðum. -GG SUMARÚTSALAII! Dagana 25 júní -15 júll JEPPADEKKÁ FRÁBÆRU VERÐI Felgur 8" eða 10" 4stk Ef keypt eru 4 dekk adekk Hágæða Amei TRAC OTR 50R15 11,990 33-12MA 33-12,5R1IÍ 225Z70R16 235/85R16 245/75R16 265/75R16 285/75R16 ^VDO) Sendum um allt land. VISA/EURO til 36 mán. Vegmúla 2 Sími 588 9747 www.vdo.is Daewoo, árg. 2000, 1500 vél, bsk., Dodge Stratus, árg.1997, 2400 vél, Fiat Brava, árg. 1998,1600 vél, bsk., gulgrænn, 3 dyra, ekinn 29 þ. km. ssk., hvítur, 4 dyra, ekinn 78 þ. km. blár, 3 dyra, ekinn 52 þ. km. Fiat Multipla 100, árg. 1999,1600 vél, Ford Fiesta, árg. 2000, 1300 vél, bsk., Honda Civic, 1,5i, arg.1998, 1500 vel, bsk., Ijósgrænn, 6 manna, ekinn 39 þ. Ijósgrænn, 5 dyra, ekinn 15 þ. km. bsk., vínrauður, ekinn 61 þ. km.Hyundai Fiat Brava, árg. 1997,1600 vél, bsk., Toyota Carina E Wagon, árg. 1996,2000 grænn, 4 dyra, ekinn 59 þ. km. vél, ssk., blágrænn, 5 dyra, ekinn 162 þ. km. Accent, árg. 1999, ssk., 1500 vél, Toyota Corolla, árg. 2000,1600 vél, grænn, 5 dyra, ekinn 25 þ. km.Hyundai grænn, 4 dyra, ekinn 27 þ. km. km. Accent GLS, árg. 2000, 1500 vél, ssk., Almera 1,4 GX„ árg. 1999, 1400 vél, Nissan Micra LX„ árg. 2000, 1300 vél, Opel Astra, árg. 1997, 1600 vél, ssk., Ford Econoline E 150, árg. 1991, 4900 grænn,4 dyra, ekinn 20 þ. km.Nissan bsk., grænn, 3 dyra, ekinn 20 þ. km. bsk., bleikur, 3 dyra, ekinn 20 þ. km. dökkblár, 5 dyra, ekinn 68 þ. km.Opel bensínvél, ekinn 122 þ. km. Renault Kangoo, árg. 1999,1400 vél, bsk., blár, 5 dyra, ekinn 21 þ. km. dráttarkrókur, aflstýri, ekinn 70 þ. km. SsangYong Family RS, árg. 2000,2200 dísilvél, bsk., brúnn, 5 dyra, ekinn 87 þ. km. Zafira, árg. 1999, dráttarkrókur, aflstýri, samlæsingar, ekinn 23 þ. km. Peugeot 306 Wagon, árg. 1999,1600 vél, bsk, blár, 5 dyra, ekinn 38 þ. km. OrVa) no+a*ra bíla af 5I)om s+ær&owi 03 3er*uw / Margar bifreiðar á söluskrá okkar er hægt að greiða með Visa eða Euro raðgreiðslum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.