Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2001, Síða 10
HARTOPPAR
Frá| BERGMANt^?
og HERKULES
Margir
verðflokkar
Rakarastofan
Klapparstíg
Verktakar,
útgerðarmenn,
bændur og
aðrir
VÍR
■fyrir ■
LYFTUR
tæki og vélar
Höfum ávallt á lager
ýmsar geröir víra. r
• Stálvír
■ Kranavír
■ Riðfrír vír
Göngum frá endum
í samræmi við óskir
kaupenda.
Netagerð
Jóns Holbergssonar ehf
Hjallahraun 11,
220 Hafnarfjörður
sími: 555 4949
Sól og
öryggisfilma.
Sandblástursfilmui
• Stórminnkar sólarhita
• Gerir sólabirtuna mildari og þægilegri
• Cltilokar nánast útfjólubláa geisla og upplitun
• Eykur öryggi í fárviðrum og jarðskjálftum
• Eykur öiyggi gegn innbrotum
• Brunavarnarstuðull er F 15
• Elnangrar gegn kulda, hita og hávaða
• Glerið verður 300% sterkara
• Minnkar hættu á glerllísum I andlit
• Gerir bílinn/húsið glaesilegra
GLÓIHF
Dalbrekku 22 • Kópavogi
sími 544 5770
Útlönd.
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2001
I>V
7,9 á Richter:
Gríðarlegt tjón eftir
jarðskjálfta í Perú
Gríðarlegt tjón varð þegar jarð-
skjálfti upp á 7,9 á Richter reið yfirí
Suður-Ameríkulandinu Perú í fyrra-
kvöld. Upp undir 50 hafa fundist látn-
ir og 550 slasaöir eftir skjálftann sem
stóð i eina mínútu og 15 sekúndur.
Um 90 prósent húsa í borginni
Chuguibamba eyðilögðust og þorp
jöfnuðust nánast gervöll við jörðu. í
gærkvöld hófst örvæntingarfull leit
björgunarsveita að fórnarlömbum
skjálftans. Óbætanlegt tjón varð
einnig á hafnarborginni Arequipa,
sem nefnd hefur verið „Hvíta borgin“
vegna fjölda bygginga og fagurra
kirkna frá nýlendutíma Spánverja.
M.a. skemmdist dómkirkja frá árinu
1656, sem reyndar hafði verið endur-
byggð eftir jarðskjálfta 1868. Sam-
kvæmt upplýsingum frá borgarstjór-
anum skemmdust 70 prósent heimila
í borginni. Strandbærinn Camana
varð fyrir flóðöldu í kjölfar skjálftans
og skemmdust mörg hús. 36 eru týnd-
ir eftir að aldan skall á bæinn.
Fréttir hafa ekki borist frá afskekkt-
Alejandro Toledo
Forseti Perú aflýsti Bandaríkjaferö til
þess aö vera meö landsmönnum
sínum á áfallatímum. Hér er hann
fyrir framan skemmda nýlendudóm-
kirkju.
um svæðum Perú, þar sem símalínur
liggja niðri og vegir eru víða tepptir
vegna skriðufalla.
Upptök skjálftans voru undan
Kyrrahafsströnd, um 190 kílómetra
vestur af Arequipa. Þrátt fyrir það
skalf jörð í Bólivíu og Chile. Eftir-
skjálftar hafa skipt hundruðum og
hafa þeir mest mælst 6,1 á Richters-
kvarða. Margir íbúa þeirra svæða sem
verst urðu úti í skjálftanum brugðu á
það ráð að sofa í almenningsgörðum
og á öðrum opnum svæðum aðfaranótt
sunnudags.
Árið 1970 reið skjálfti 7,7 á Richter
yfir Perú. Þá létust um 70 þúsund
manns og 600 þúsund urðu heimilis-
laus.
Alejandro Toledo forseti frestaði
ferð til Bandaríkjanna í gær vegna
skjálftans til að efla samhug á meðal
íbúa tjónasvæðanna.
Reiknað er með að tala látinna eigi
eftir að hækka næstu daga þegar frétt-
ir berast frá afskekktum svæðum og
björgunarmenn ná að rannsaka rústir.
Andkapítalistar í Barcelona
Nokkrir tugir andkapítalískra mótmælenda fóru um götur Barcelona á Spáni og brutu rúöur í verslunum og skemmdu
almenningssíma. Þeir voru meöal þúsunda sem tóku þátt í mótmælagöngu gegn alþjóöavæðingu, en flestir hegöuöu
sér friösamlega. Alþjóðabankinn færöi fund sinn, sem vera átti í borginni í dag, á Netiö til aö foröast óeiröir.
Montesinos fundinn:
Landflótta njósnaforingi
gómaður í Venesúela
Landflótta perúski njósnaforing-
inn Vladimiros Montesinos var
tekinn höndum í Venesúela á laug-
ardagskvöld, að því er Hugo
Chavez, forseti landsins, lýsti yfir í
gær.
Montesinos varð þess valdandi
að Fujimori, fyrrverandi forseta
Perú, var steypt af stóli í desember
á síðasta ári. Njósnaforinginn fyrr-
verandi flúði heimaland sitt fyrir
áramót eftir að myndband birtist af
honum þar sem hann mútaði
stjórnarandstæðingum. Fujimori
kallaði á allsherjarleit að
Montesinos, en sjálfur þurfti hann
að flýja land til Japans vegna
hneykslismála sem tengd voru
spillingarvef Montesinos. Andvirði
500 milljóna króna voru sett til höf-
uðs Montesinos en flótti hans hefur
Vladimiro Montesinos
Eftirsóttasti maöur Rómönsku Amer-
íku náöist á laugardagskvöld.
þótt reyfarakenndur. Hann er mik-
ill aðdáandi James Bond og hefur
viðurnefnið doktorinn. Miklar
sögusagnir hafa verið uppi um æv-
intýralegan flótta Montesinos. Með-
al annars var því trúað að hann
hafi farið í lýtaaðgerð í Caracas,
höfuðborg Venesúela, og væri
breyttur maður. Sem hægri hönd
Fujimoris forseta forðaðist hann
alla tíð sjást í fjölmiðlum og virtist
viðbúinn því að þurfa að leggja
skyndilega á flótta.
Perez de Cueliar, fyrrverandi aðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna og núver-
andi utanríkisráðherra Perú, fagnaði
handtöku Montesinos og kallaði
hana siðferðilegan sigur fyrir Perú.
Chavez forseti Venesúela sagðist
ætla að skila Montesinos til Perú
„við fyrsta hanagal".
Stuttar fréttir
Kastró fékk aðsvif
Fidel Kastró
Kúbuleiðtogi fékk
aðsvif á laugardag-
inn eftir tveggja
klukkustunda
ræðuhöld. Honum
var hjálpað af
ræðupallinum en
sneri svo aftur tví-
efldur nokkrum mínútum síðan. Þá
sagðist Kúbuleiðtoginn 74 ára gamli
hafa veriö að æfa dauða sinn.
Bútan vill skæruliða burt
Yfirvöld í búddíska smáríkinu
Bútan biðja indverska skæruliða-
hópa sem dveljast innan landamæra
landsins um að yfirgefa það frið-
samlega.
Kani myrtur til lukku
Líkamsleifar bandarískrar konu
fundust í Malasíu á dögunum, en
talið er að henni hafi verið fórnað í
athöfn sem miðaði að því að velja
réttar tölur í lottóinu.
Þúsundir flýja eldgos
Eftir nokkurra vikna umrót og
hraungos hófst öskugos í eldfjallinu
Maya á Filippseyjum í gær. Þúsund-
ir flýja nú gosið en um það bil 560
þúsund manns búa í 15 kílómetra
radíus frá eldstöðinni.
Kínverji gegn tóbakinu
17 ára gamall Kínverji hefur höfð-
að mál gegn 25 kínverskum tóbaks-
fyrirtækjum. Hann byrjaði að
reykja 13 ára og segir fyrirtækin
ekki hafa útskýrt hættur tóbaksins
á vefsíðum sínum.
Clinton gegn alnæmi
Bill Clinton, fyrr-
verandi Banda-
ríkjaforseti, vill að
Bandaríkin leggi
fram meira fé gegn
alnæmisfaraldrin-
um í Afríku. Hann
segir baráttuna
gegn alnæmi vel
vera vinnandi, en ekki með jafn tak-
mörkuðu fjármagni og nú tíðkast.
Vopnahlé í Makedóníu
Vopnahlé milli Makedóníuhers
og albanskra skæruliða var í gær
endurvakið eftir þriggja daga átök.
Milosevic í bobba
Slobodan Milosevic, fyrrverandi
Júgóslavíuforseti,
hyggst berjast gegn
úrskurði um fram-
sal sitt. Stjómvöld
heimalands hans
munu vinna með
stríðsglæpadóm-
stóli Sameinuðu
þjóðanna.
Múgur elti satanista
Réttarhöld í Gvatemala leiddu i
ljós að sögusagnir móður höfðu í for
með sér morð á tveimur túristum.
Móðirin sagði íbúum heimaþorps
síns að japanskur eldri borgari sem
strauk höfuð barnsins hennar væri
satanisti. í kjölfarið fór múgur um
og drap annan Japana og rútubíl-
Sharon hittir Blair
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, hitti að máli Tony Blair,
breskan starfsbróður sinn, í gær.
Sharon hefur verið herskár í yfir-
lýsingum upp á síðkastið, en hann
hittir næst Bush Bandaríkjaforseta.