Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2001, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 2. JÚLÍ 2001
Fréttir DV
Tíu sóttir slasaðir um methelgi hjá þyrlusveit Gæslunnar:
Sjö sjúkraflug
- nauðsyn að efla varðstöðu um miklar ferðamannahelgar, segir yfirflugstjóri
Fræknir flugkappar
Fóru í sjö sjúkraflug um helgina. Björn Brekkan flugmað-
ur, Tómas Vilhjálmsson flugvirki, Benóný Ásgrímsson,
Magnús Örn Einarsson stýrimaður og Hlynur Þorsteins-
son læknir.
J jójúhjjjfhjg
* vi JD \
Hrafnseyrarhelði
WÖ A /V \
nrr»a
„Þetta var
methelgi, við höf-
um aldrei farið í
jafn mörg sjúkra-
flug um eina
helgi,“ sagði Ben-
óný Ásgrímsson,
flugstjóri á TF-
LÍF, þyrlu Land-
helgisgæslunnar,
í samtali við DV
síðdegis í gær.
Þyrlusveitin var
þá að koma úr
sjöunda sjúkra-
flugi helgarinnar
frá því síðdegis á
föstudag. Benóný
segir álagið þessa
síðustu daga
sýna að varð-
staða þyrlusveit-
arinnar þurfi að
eflast um miklar
ferðamannahelgar eins og þá sem
nú var að líða. Alls voru tíu slasað-
ir eða sjúkir sóttir í þessum sjö ferð-
um.
Fyrsta útkallið sem sveitinni
barst kom á föstudagskvöldið. Þá
var farið til leitar að þýskum ferða-
manni af skemmtiferöaskipi sem
týnst hafði í Almannagjá. Þegar
þyrlan var í því flugi barst svo út-
kall í sjúkraflug að Efstadal í Laug-
ardal en þar hafði bíll oltið og tveir
menn slasast. Síðdegis á laugardag
fór þyrlan vestur á firði til að sækja
fernt sem slasast hafði í bílveltu á
Hrafnseyrarheiði. Seint í fyrrinótt
var kallað á sjúkraflug i Þórsmörk
vegna manns sem fannst meðvit-
undarlaus og 1 annarlegu ástandi.
Farið var í annað sjúkraflug í Mörk-
ina í gær til að sækja mann sem fall-
ið hafði niður af klettum og slasast
þannig. Milli Þórsmerkurferðanna
var farið vestur að Amarstapa á
Snæfellsnesi snemma um morgun-
inn og sóttur maður sem fallið hafði
í sjóinn fram af hömrum við Arnar-
stapa. Hann var mikið slasaður. Síð-
asta sjúkraflug TF-LÍF um helgina
var síðdegis í gær vegna konu sem
fótbrotnað hafði í fjallgöngu í Hengl-
inum.
„Veðurskilyrði í þessum ferðum
voru yfirleitt góð nema í síðustu
ferðinni en þá var skyggni aðeins
500 til 700 metrar og ókyrrð í lofti
þar sem vindur stóð beint á Hengil-
inn,“ sagði Benóný Ásgrímsson.
Þyrlumenn Landhelgisgæslunnar
voru þreytulegir að sjá þegar DV-
menn hittu þá á Reykjavíkurflug-
velli eftir Hengilsflugið síðdegis í
gær. Þá voru þeir búnir að vera að
í tæpan sólarhring á vakt og urðu
að taka sér frí samkvæmt vinnu-
tímareglum. Þyrlan var því stopp
frá því síðdegis í gær til klukkan
sex í morgun vegna áðumefndra
reglna. Á meðan var þyrlusveit
Varnarliðsins í viðbragðsstöðu eins
og hún er raunar alltaf.
Benóný Ásgrímsson segir að hefði
minni þyrla Landhelgisgæslunnar,
TF-SIF, verið tiltæk hefði hún vísast
verið send í fimm af sjö flugferðum
helgarinnar, þegar fyrirsjáanlegt var
að aðeins einn sjúkling þurfti að
flytja. Minni þyrlan er mun ódýrari í
rekstri en sú stóra og því reyna menn
að nota hana eins mikið og kostur er.
TF-SIF laskaðist sem kunnugt er
vegna ókyrrðar í flugi yflr Snæfells-
nesfjallgarði á dögunum en viðgerð
mun ljúka fljótlega. Kveðst Benóný
vænta þess að hún verði komin í loft-
ið eftir þrjár vikur eða svo.
Þrír af liðsmönnum þyrlusveitar-
innar fóru í öll sjö sjúkraflugin um
helgina, þeir Magnús Örn Einars-
son stýrimaður, Tómas Vilhjálms-
son flugvirki og Hlynur Þorsteins-
son læknir. Einnar viku langri vakt
þeirra lauk í morgun. Benóný Ás-
grímsson og Björn Brekkan flug-
maður komu á vaktina á laugar-
dagskvöld og fóru þeir í fimm ferðir
af sjö um þá annasömu helgi sem nú
er að baki. -sbs
Hjólreiðamaður
á batavegi
Ökumaður keyrði á spænskan
hjólreiðamann til móts við bensín-
stöð Essó í Fossvogi á laugardaginn
og stakk af. Hann gaf sig fram við
lögregluna nokkrum tímum síðar.
Spánverjinn er á batavegi en hann
hlaut minni háttar meiðsl á höfði.
Hann fékk hins vegar nokkurt áfall
við ákeyrsluna og vildi dveljast
áfram á sjúkrahúsi þar til í dag. Öku-
maðurinn sem keyrði á Spánverjann
var yfirheyrður af lögreglu en síðan
sleppt. Málið er í rannsókn. -jtr
Matvæli Vestfirð-
inga í veltu
Flutningabíll fór út af veginum á
Ennishálsi við Kollaflörð í Stranda-
sýslu aðfaranótt laugardags. Talið er
líklegt að hemlabilun hafi valdið slys-
inu, en það varð við krappa beygju á
malarvegi. Bilstjórinn hlaut minni
háttar meiðsl en ákvað að leita sér að-
hlynningar sjálfur. Hann vildi verða
sér úti um annan flutningabU sem
fyrst tU að bjarga verðmætum farmi.
BíUinn var hlaðinn matvælum og vör-
um fyrir Vestflrðinga og til allrar
lukku fyrir þá tókst bUstjóranum fljót-
lega að útvega nýjan bU og koma farm-
inum áleiðis. -jtr
Fótbrotnaði í
Henglinum
Kona um fertugt rann tU á móbergs-
heUu og fótbrotnaði á sköflungi þegar
hún gekk á HengUinn seinni partinn í
gær. Konan var í gönguhópi Ferðafélags
íslands. Hún var sótt af þyrlu Gæslunn-
ar, þar sem ekki reyndist með góðu
móti hægt að sækja hana öðruvisi. -jtr
Sævar Gunnarsson sem talar ekki við Helga Laxdal í framtíðinni:
Velstjorar stungu
okkur í bakið
s
I
Það neistar á miUi forystumanna
tveggja starfsstétta á fiskiskipum, vél-
stjóra og annarra starfsmanna um borð
j eftir úrskurð gerðardóms um kjör fiski-
( manna á laugardaginn. Sævar Gunnars-
son, formaður Sjómannasambandsins,
: segir að vélstjórar hafl stungið rýtingi í
bak sjómanna með þeim samningum
sem þeir gerðu í vor. Eftir að sett voru
lög á deUu sjómanna tUnefndi Hæstirétt-
ur þá Brynjólf Sigurðsson prófessor,
Garöar Garðarsson hrl. og Guðmund
| Skaftason, fyrrverandi hæstaréttardóm-
ara, í gerðardóm. Eftir mánaðarvinnu
j liggja úrslit fyrir.
„Þetta er að mestu framlenging á vél-
| stjórasamningnum sem við höfnuðum í
j vor, smávegis frávik eru þama sem þó
: hniga öU i þá átt að draga dilk útgerð-
anna, þar á ég við tryggingarákvæðin
j og fleira," sagöi Sævar Gunnarsson í
gær. Smágulrót segir hann að fmna í
! launaliðnum, 10% meira en 1 vélstjóra-
samningnum.
„Það er ekki minnsti vafl í mínum
huga að gríðarleg skemmdarverkastarf-
semi var unnin með vélstjórasamningn-
um,“ segir Sævar. Hann segir að þeir
Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags
j íslands, hafi ekki rætt saman eitt orð
Ieftir samning vélstjóranna. „Ég nenni
ekki að tala við Helga Laxdai og hef
i reyndar ekki um neitt að ræða við
Sævar Helgi
Gunnarsson. Laxdal.
hann. MiUi okkar er ekkert samband og
verður ekki,“ sagði Sævar Gunnarsson.
Hann segir að Helgi hafl gert stjómvöld-
um og LfÚ greiða með þessum samningi
á kostnað sjómanna.
„Hann var búinn að segja aUan vetur-
inn að ef ekki yrði tekið út úr frumvarp-
inu ákvæði um mönnunarmál skipa, þá
mundi hann aldrei skrifa undir. Þegar
mönnunarmálin voru komin út úr
frumvarpinu smaU aUt saman og Helgi
rak hnífmn í bakið á okkur hinum og
gerði samning," sagði Sævar.
300 þúsund á dag
Friðrik J. Amgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ísl. út-
vegsmanna, sagði í gærkvöldi að samn-
ingsaðUar hafi misst forræði málsins, -
því miður. „Við eram ekki að fá það
sem við hefðum óskað. Kostimir era að
þama er viðurkennt mUíið réttlætismál,
Friðrik J.
Arngrímsson.
sem er að þegar
fækkar í áhöfh þá
hækkar ekki kostn-
aður útgerðarinn-
ar,“ sagði FriðrUi.
Hann segir að
þessi viðurkenning
skipti miklu. Síðan
sé staðan sú að ný
og stór nótaveiði-
og togskip sem eru
að koma tU landsins verði nú hægt að
gera út. Það markmið hefði ekki náðst í
samningum við fuUtrúa sjómanna. Skip-
stjórahlutur á þessum skipum verður
tveir hásetahlutir eins og á öðrum
frystiskipum. Hár hlutur skipstjóra
hefði tU dæmis þýtt á Viihelm nýlega að
skipstjórinn hefði verið með á miUi 5 og
6 miUjónir króna í laun eftir rúmlega 2
vikna túr. „Á þessu stóð Farmanna- og
flskimannasambandið fast en fékk að
sjálfsögðu ekki í gegn. Auðvitað sjá aUir
að þetta nær ekki nokkurri átt,“ sagði
Friðrik í gærkvöldi.
Hann segir að mönnunarákvæðin
séu ekki eins og útvegsmenn hefðu vUj-
að sjá þau, gUdistíminn stuttur og fleira
sem ekki náðist. „GrundvöUurinn er
samningurinn við vélsfjóra, og þar
gengum við mjög langt, miklu lengra en
nokkurn óraði fyrir," sagði FriðrUí.
-JBP
Þorsteinn vili hætta
Þorsteinn Pálsson,
forstjóri Kaupáss hf„
sem sagt hefur upp
störfum hjá félaginu,
hefur faUist á að
sinna starfinu þar tU
verðugur eftirmaður
verður fundinn.
Kaupás rekur versl-
anir Nóatúns, KÁ á Suðurlandi, 11-11,
Intersport og HúsgagnahöUina.
Stærsta alþjóðaráðstefnan
Utanríkisráðherrar Nató-ríkjanna
munu efha tU vorfundar hér á landi í
maí á næsta ári. Hann verður stærsta
alþjóðaráðstefna tU þess tíma á íslandi
með um þúsund þátttakendum og
fjölda fréttamanna. Mikill viðbúnaður
verður hjá íslenskum löggæslumönn-
um.
Heitt vatn á Eskifiröi
Fimmtíu gráða heitt vatn hefur
fundist fyrir botni Eskifjarðar, á um
350 m dýpi. Jarðfræðistofan Stapi, með
Ómar Bjarka Smárason í fylkingar-
brjósti, hefur unnið að leitinni og er
Ómar bjartsýnn á að hitta á enn heit-
ara vatn á svæðinu ef hann fær að
bora dýpra. Slík borhola gæti kostað
40-50 miUjónir.
Bílvelta í Selvogi
Tveir hoUenskir ferðamenn sluppu
blessunarlega ómeiddir er bifreið þeirra
valt við Hlíðarvatn í Selvogi í gær. Aðr-
ir ferðamenn komu þeim tU aðstoðar og
litlu síðar lögreglan á Selfossi.
íslandsieikhús á ferð
íslandsleikhús er nýr leUchópur,
skipaður fólki úr sjö sveitarfélögum á
landinu. Hann er lagstur í flakk og
mun m.a. skemmta á humarhátíðinni
á Höfn um næstu helgi. ísfirðingar
áttu hugmyndina.
deCODE á uppleið
Gengi deCODE, móðurfélags Is-
lenskrar erfðagreiningar, hækkaði um
42,3% fyrir helgina og er það mesta
hækkun á bréfum félagsins í langan
tíma. MikU viðskipti voru með bréfin
á fóstudag á bandaríska Nasdaq-verð-
bréfamarkaðinum.
Þjóðfundaríns minnst
Hundrað og fimm-
tíu ár verða liðin frá
Þjóðfundinum mikla
nú á fimmtudag og
verður hátíðarsam-
koma 1 Menntaskól-
anum í Reykjavlk af
því tUefni. Þar verða
forseti íslands, ráð-
herrar, alþingismenn og fleiri mætir
gestir.
Krossnefur á flækingi
Krossnefur hefur sést viða um land
að undanfómu. Hann er flækingsfugl
en hefur komið hingað i hrinum af og
tU, líklega úr barrskógum Skandinav-
íu og Rússlands. Eflaust er hann að
fylgjast með skógræktinni á íslandi.
Dr. Kári Stefáns-
son, forstjóri ís-
lenskrar erfðagrein-
ingar, opnaði í gær
sýninguna Skín við
sólu - Tónlist í
Skagafirði í 1000 ár í
Safnahúsi Skagfirð-
inga á Sauðárkróki.
Þar eru heimUdir, handrit, ljósmyndir
og munir sem tengjast aldalangri tón-
listariðkun í Skagafirði.
Nekt í næstu görðum
Margar kvartanir berast jafnan tU
húseigendafélagsins á sumrin þar sem
fólk kvartar undan nágrönnum sínum.
Helstu umkvörtunarefhin era sláttu-
vélagnýr á svefntíma, hávaxnar aspir
á lóðamörkum og fáklætt fóUc í pottum
í næsta garði. Stöð 2 greindi frá. -Gun
Skin við solu